Dagskráin 8. apríl - 14. apríl 2021

Page 6

Heimavist MA og VMA Leitar að öflugu starfsfólki fyrir næsta skólaár STARF VIÐ ÖRYGGISVÖRSLU OG ÞRIF Við leitum að einstaklingi til að slást í góðan hóp starfsmanna sem mun sinna öryggisvörslu, þrifum og öðrum verkefnum sem til falla. Viðkomandi þarf að hafa mikla þjónstulund og samskiptahæfni og hafa gaman af að starfa með ungmennum. Gerð er krafa um hreint sakarvottorð. Um fullt starfshlutfall er að ræða og vinnur viðkomandi aðra hvora viku á dagvöktum en hinar á kvöldvöktum. Laun eru samkvæmt stofnanasamningi við Einingu Iðju. Viðkomandi þarf að geta hafið störf fyrir miðjan ágúst n.k.

STARF VIÐ HÚSUMSJÓN OG ALMENNT VIÐHALD AUK NÆTURVÖRSLU AÐ HLUTA Við leitum að laghentum einstaklingi til að slást í góðan hóp starfsmanna sem mun sinna almennri viðhaldsvinnu og öðrum þeim verkefnum sem til falla í húsumsjón auk nætur- og öryggisvörslu. Viðkomandi þarf að hafa mikla þjónstulund og samskiptahæfni og hafa gaman af að starfa með ungmennum. Reynsla af húsumsjón og almennu viðhaldi er kostur. Gerð er krafa um hreint sakarvottorð. Starfshlutfall er 80% með möguleikum á fullu starfshlutfalli. Viðkomandi vinnur á dagvöktum en þarf að taka einhverjar næturvaktir. Laun eru samkvæmt stofnanasamningi við Einingu Iðju. Viðkomandi þarf að geta hafið störf fyrir miðjan ágúst n.k.

STARF VIÐ ÖRYGGISVÖRSLU OG ÞRIF UM HELGAR Við leitum að einstaklingi til að slást í góðan hóp starfsmanna sem mun sinna öryggisvörslu, þrifum og öðrum þeim verkefnum sem til falla. Viðkomandi þarf að hafa mikla þjónstulund og samskiptahæfni og hafa gaman af að starfa með ungmennum. Gerð er krafa um hreint sakarvottorð. Viðkomandi vinnur 12 tíma dagvaktir á laugardegi og sunnudegi aðra hvora viku. Laun eru samkvæmt stofnanasamningi við Einingu Iðju. Viðkomandi þarf að geta hafið störf fyrir miðjan ágúst n.k.

Skriflegar umsóknir um störfin þurfa að berast fyrir 17. apríl n.k. á netfangið thora@heimavist.is. Öllum umsóknum verður svarað. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Þóra R. Stefánsdóttir thora@heimavist.is eða í síma 455 1605.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Dagskráin 8. apríl - 14. apríl 2021 by Dagskráin - Issuu