„Í stuttu máli eru magasýrur okkur lífsnauðsynlegar“
Hreinsun lifrarinnar er lykillinn að betri heilsu og vellíðan
Mikilvægasti vöðvi lífsins er ekki ræktaður í líkamsræktinni

Vertu jáhrifavaldur
í eigin lífi
„Í stuttu máli eru magasýrur okkur lífsnauðsynlegar“
Hreinsun lifrarinnar er lykillinn að betri heilsu og vellíðan
Mikilvægasti vöðvi lífsins er ekki ræktaður í líkamsræktinni
Vertu jáhrifavaldur
í eigin lífi
Kæri lesandi,
Það gleður okkur að deila með þér öðru tölublaði Heilsublaðs Heilsuhillunnar. Við vonum að efnið veiti þér bæði innblástur og gefi þér hagnýtar upplýsingar sem hjálpa þér að setja heilsuna í fyrsta sæti. Markmið okkar er að deila fróðleik sem nýtist í daglegu lífi og hjálpar þér að setja heilsuna í forgang á auðveldan og skemmtilegan hátt, þó það taki að sjálfsögðu alltaf á að breyta venjum og takast á við nýjar áskoranir –sérstaklega í upphafi. Lykillinn að góðri heilsu byrjar hér –hjá Heilsuhillunni.
Í þessu tölublaði kynnumst við Hildi Ómarsdóttur, sem stóð frammi fyrir erfiðri baráttu við krabbamein. Þegar hefðbundin meðferð skilaði ekki tilætluðum árangri tók hún óvenjulegt og hugrakkt skref, en hún ákvað að taka stjórnina í eigin hendur. Við skoðum einnig mikilvægi þess að styrkja sjálfsagavöðvann, þar sem litlar daglegar venjur geta haft stórkostleg áhrif til lengri tíma. Að auki fjöllum við um hvernig hreinsun lifrarinnar og steinefnið magnesíum geta stuðlað að betri heilsu. Blaðið er fullt af fróðlegu og hvetjandi efni sem hjálpar þér að taka næstu skref í átt að heilsusamlegra lífi.
Auk Heilsublaðsins höfum við nú hafið útgáfu á mánaðarlegu fréttabréfi, Heilsumolar Heilsuhillunnar. Með því að skrá þig
Skannaðu QR-kóðann, skráðu þig og taktu þátt í stórglæsilegum leik!
hér að neðan færðu fréttabréfið beint í innhólfið þitt um leið og það kemur út – sjóðheitt og tilbúið til að veita þér innblástur! Heilsumolarnir innihalda fjölbreytt og innihaldsríkt efni, allt frá fróðlegum greinum og hagnýtum ráðleggingum til spennandi uppskrifta og hvatningar sem gleður bæði líkama og sál.
Til að fagna fyrstu útgáfu Heilsumolanna bjóðum við þér að skrá þig á póstlistann okkar. Með skráningu tryggir þú þér fyrsta tölublað fréttabréfsins og tekur sjálfkrafa þátt í útdrætti, þar sem tveir heppnir þátttakendur vinna glæsilega vinninga að verðmæti 100.000 krónur hvor.
Vinningarnir eru ekki af verri endanum:
• Bætiefnapakki frá Heilsuhillunni að verðmæti 50.000 krónur
• Þriggja mánaða líkamsræktarkort
í Sporthúsinu
• Dagbókin hennar Katrínar Eddu, fullkomin fyrir markmiðasetningu og sjálfsrækt
Við vonum að þú hafir gaman af blaðinu og að nýja árið færi þér gæfu og gleði.
Heilsukveðjur, Ritstjórn Heilsuhillunnar
Heilsuhillan er samfélag sem hefur það að markmiði að fræða almenning um ýmislegt gagnlegt sem tengist heilsu og almennu heilbrigði í daglegu lífi.
Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum en þar má m.a. finna fróðlegar kynningar, reynslusögur og skemmtiefni ásamt flottum gjafaleikjum.
Heilsuhillan gefur út heilsublaðið.
@heilsuhilla n
Útgefandi: Artasan Suðurhrauni 12a 210 Garðabæ, Greinaskrif: Sóley Mist Albertsdóttir og Bryndís Ragna Hákonardóttir, Umbrot og hönnun: Hermann Sigurðsson, Prentun: Tryknet ApS - Danmörku, Ljósmynd á forsíðu: Eyþór Árnason, Aðrar ljósmyndir: Eyþór Árnason og fleiri.
„Ég hef prófað ýmislegt
við liðeymslum en ekkert
hefur virkað eins vel og Nutrilenk“
- Bjarki Már Elísson landsliðsmaður í handbolta
Ebba Guðný
Guðmundsdóttir hefur
áralanga reynslu og þekkingu á heilsueflandi eiginleikum eplaediks og mælir eindregið með Apple Cider töflunum frá New Nordic fyrir þá sem vilja bæta meltinguna og draga úr óþægindum sem stafa af of litlu magni magasýra.
Eplaedik hefur lengi notið vinsælda sem heilsubótarefni vegna fjölþættra
jákvæðra áhrifa á líkamann og heilsuna. Það er sérstaklega þekkt fyrir að bæta meltinguna með því að örva framleiðslu magasýra, sem eru nauðsynlegar fyrir góða meltingu og upptöku næringarefna. Regluleg neysla eplaediks getur stuðlað að jafnvægi í meltingarkerfinu og þar með dregið úr óþægindum sem tengjast lélegri meltingu. Að auki getur eplaedik haft jákvæð áhrif á blóðsykur, stuðlað að þyngdartapi og hjálpað til við að minnka bjúg.
Óþægindi minnkuðu til muna með eplaedikstöflunum
„Þegar kemur að brjóstsviða og ýmsum öðrum óþægindum frá meltingu eru of miklar magasýrur oft ekki sökudólgurinn, heldur of lítið magn af magasýrum. Ef magasýrurnar eru ekki nægilega kröftugar, þá fer maturinn hálf meltur og hálf niðurbrotinn niður í smáþarmana. Þetta skapar ýmis vandamál og
birtingareinkennin geta verið svipuð þeim sem koma fram þegar við erum með of mikið af magasýrum.
Mamma mín hafði tekið sýrubindandi lyf í mörg ár vegna brjóstsviða.
Hún byrjaði að taka eplaedikstöflu, eina á dag í tvær vikur og tók áfram magalyfin meðfram. Síðan ákvað hún að taka eplaedikstöfluna daglega og magalyfin annan hvern dag. Þetta gerði hún í mánuð og hætti svo alveg að taka sýrubindandi lyfin, en hélt áfram með eplaedikstöflurnar í tvo mánuði, eina á dag. Hún hefur aldrei byrjað á lyfjunum aftur. Nú eru liðin þrjú ár og hún segir að hún hafi minni óþægindi frá maga nú en þegar hún var á sýrubindandi lyfjum,“ segir Ebba Guðný um reynslu móður sinnar af eplaedikstöflunum.
Magasýrur eru okkur lífsnauðsynlegar
„Magasýrur drepa óværur sem geta verið í matnum, virkja ensím sem
brjóta niður prótein og byrja að melta matinn, svo líkaminn geti nýtt næringuna úr honum. Þær virkja einnig lifrina til að framleiða gall, sem hjálpar okkur að vinna betur úr fitu í matnum. Í stuttu máli eru magasýrur algjörlega lífsnauðsynlegar.
Einkenni sem geta bent til þess að við séum með of lítið magn magasýra eru meðal annars uppþemba eftir máltíðir, vindgangur, brjóstsviði, nábítur og fleira. Í einstaka tilfellum geta þó of miklar magasýrur verið sökudólgurinn.
Ef manni líður vel af eplaedikstöflunum, er líklegt að mann hafi vantað meiri magasýrur. Hins vegar, ef manni líður illa af töflunum, getur vandamálið stafað af of miklu magni magasýra. Það er mikilvægt að hlusta á eigin líkama.
Neysla á eplaedikstöflunum getur aukið framleiðslu magasýra þannig að með tímanum þarf aðeins að taka hana annan hvern dag, þriðja hvern dag eða jafnvel einu sinni í viku. Enn og aftur skiptir máli að hlusta á sinn líkama,“ segir Ebba Guðný.
Auk eplaediks innihalda Apple Cider töflurnar frá New Nordic ætiþistil og túnfífil, jurtir sem hafa lengi verið þekktar fyrir heilsueflandi eiginleika. Að auki innihalda þær króm, sem stuðlar að eðlilegum efnaskiptum orkugefandi næringarefna og hjálpar til við
að viðhalda stöðugu glúkósamagni í blóðinu. Blandan inniheldur einnig kólín, sem styður eðlileg fituefnaskipti og stuðlar að heilbrigðri starfsemi lifrar. ■
Eplaedik getur stuðlað að betra jafnvægi í meltingarkerfinu með því að styrkja kraft magasýranna
Sensi Vital ® +
D-vítamínskortur er algengur í vestrænum löndum og getur haft mjög alvarlegar afleiðingar til lengri tíma. Þetta næringarefni skiptir sköpum fyrir heilbrigt ónæmiskerfi, eðlilega vöðvastarfsemi og sterkar tennur og bein. Hér á Íslandi getur reynst erfitt að fá nægilegt magn D- vítamíns, sérstaklega yfir vetrarmánuðina, þar sem sólin — helsta uppspretta D- vítamíns — skín ekki nægilega hátt á himni til að húðin framleiði nægilegt magn. Aðeins um 10% af Dvítamíni kemur úr fæðunni, sem eykur hættuna á skorti.
Rannsóknir sýna að hlutverk D- vítamíns er umfangsmeira en margir gera sér grein fyrir. Það er lykilþáttur í að viðhalda almennri heilsu og vellíðan og getur jafnvel dregið úr líkum á ýmsum heilsufarsvandamálum. Vitað er um a.m.k. 100 mismunandi sjúkdómseinkenni eða sjúkdóma sem tengjast D-vítamínskorti.
Embætti landlæknis mælir sérstaklega með því að Íslendingar taki D- vítamín sem bætiefni. Á vef embættisins segir: „Þó almennt sé hægt að fullnægja næringarefnaþörfinni með fjölbreyttu og vel samsettu fæði er Íslendingum ráðlagt að taka D- vítamín sérstaklega sem bætiefni.“
Munnsprey fram yfir töflur
Nýlegar rannsóknir sýna að munnsprey geta verið mun árangursríkari leið til að auka D-vítamínmagn í líkamanum en hefðbundin gelhylki, sérstaklega fyrir þá sem glíma við meltingarvandamál. Í rannsókn sem birt var í Nutrients (2015) kom í ljós að D3-vítamín í munnspreyformi skilaði betri árangri í blóðgildum miðað við gelhylki [1]
Í rannsókninni var borið saman hversu mikið D3- vítamín jókst
í blóði tveggja hópa: heilbrigðra einstaklinga og þeirra sem eiga erfitt með að nýta vítamín vegna meltingarvandamála.
Hjá heilbrigðum einstaklingum jókst D3- vítamínmagn í blóði um 21,7% með hylkjum, en með munnspreyjum jókst það um 43% – eða tvöföld aukning.
Hjá einstaklingum með meltingarvandamál var árangurinn enn meiri: D3-vítamín magn jókst um 36% við notkun hylkja en um 118% með munnspreyjum.
Þessar niðurstöður staðfesta að munnsprey tryggja betri og hraðari upptöku D- vítamíns, þar sem þau fara fram hjá meltingarveginum og frásogast beint í blóðrásina. Þetta gerir munnspreyin að einstaklega góðu vali fyrir alla, hvort sem fólk á í erfiðleikum með meltingu, vill ekki taka töflur, á erfitt með að kyngja töflum eða einfaldlega vill hámarka upptöku vítamínsins á áhrifaríkan hátt.
Að tryggja daglega inntöku D- vítamíns hefur aldrei verið einfaldara. Munnspreyin frá Better You bjóða upp á bragðgóða, þægilega og áhrifaríka leið til að hámarka upptöku þessa mikilvæga næringarefnis. Þau eru fáanleg í mismunandi styrkleikum og henta öllum aldurshópum — hvort sem um er að ræða börn, fullorðna eða eldra fólk.
Með því að fara fram hjá meltingarveginum og frásogast beint í blóðrásina tryggja munnspreyin betri nýtingu D- vítamíns, hvort sem þú ert heima, í vinnunni eða á ferðinni. Veldu lausn sem hentar þínum þörfum og leggðu grunn að sterkari beinum, öflugra ónæmiskerfi og bættri heilsu. ■
Heimild: [1] J. Todd et al., Nutrients. 2015;7(11):5441-5452. PMC4627615
Fótapirringur, oft nefndur fótaóeirð (Restless Legs Syndrome), er algengt taugakerfisástand sem getur truflað bæði daglegt líf og svefn. Einkennin koma gjarnan fram sem óþægindi eða pirringur í fótum, oftast í leggjum og eru verst þegar líkaminn er í hvíld. Margir sem þjást af þessu ástandi lýsa sterkri þörf til að hreyfa fæturna til að lina óþægindin, sem leiðir oft til þess að þeir ganga um gólf til að fá tímabundna lausn. Fótapirringur getur
langvarandi svefnleysi og
streita af þessum völdum draga úr andlegri líðan, orku og einbeitingu í daglegu lífi.
Restless Legs frá New Nordic er sérhannað bætiefni sem veitir stuðning fyrir þá sem glíma við fótapirring. Innihaldsefnin
eru vandlega valin til að styðja við blóðflæði, vöðvaheilbrigði og hafa róandi áhrif á taugakerfið.
Bætiefnið inniheldur ekstrakt úr brenninetlu, strandfuru, vínberjalaufi,
mosa og langpipar, ásamt sérvöldum vítamínum og steinefnum, þar á meðal magnesíum. Magnesíum gegnir lykilhlutverki í vöðvaslökun og getur þar af leiðandi hjálpað til við að draga úr krömpum í fótum. Samspil þessara innihaldsefna styður við eðlilega starfsemi vöðva og tauga og getur stuðlað að aukinni líkamlegri vellíðan.
Regluleg notkun Restless Legs getur hjálpað til við að draga úr óþægindum í fótum og stuðlað að betri
Hair Volume™ - Fyrir heilbrigðara hár
- Guðrún Veiga
Valgerður Kummer hvetur konur til að prófa Femarelle áður en þær leita annarra lausna við einkennum breytingaskeiðsins.
Breytingaskeiðið er náttúrulegur hluti af lífsskeiði kvenna og eitthvað sem allar konur ganga í gegnum, en hins vegar er einstaklingsbundið hvernig konur upplifa breytingarnar.
Fyrir sumar er þetta tímabil sem færir aukið jafnvægi, innri frið og lífsánægju. Aðrar upplifa kvíða vegna breytinganna og þeirra líkamlegu og andlegu einkenna sem oft fylgja.
Breytingaskeiðið, þegar lífið kallar á nýtt jafnvægi
Flestar konur taka eftir hormónabreytingum þegar breytingaskeiðið hefst, þó þær átti sig ekki alltaf strax á því að um
breytingaskeiðið sé að ræða. Fyrir sumar konur er þetta tímabil léttbært, á meðan aðrar upplifa töluverða skerðingu á lífsgæðum. Á þessu tímabili er mikilvægt að setja bæði andlega og líkamlega heilsu í forgang.
Þrátt fyrir að breytingaskeiðið feli í sér miklar líkamlegar og tilfinningalegar breytingar, upplifa margar konur aukna vellíðan og innri ró að því loknu. Rannsóknir sýna jafnframt að hamingja og almenn lífsánægja aukist oft með aldrinum.
finnur mikinn mun með Femarelle
Valgerður Kummer var um fimmtugt þegar hún byrjaði að upplifa óþægileg hitakóf og almenna vanlíðan, sem hafði áhrif á daglegt líf hennar. Hún hafði heyrt af Femarelle og ákvað að prófa „bleika pakkann“, sem er sérstaklega hannaður fyrir konur á hennar aldri. Áhrifin létu ekki á sér
standa, innan skamms hættu hitakófin og almenn líðan batnaði til muna.
Valgerði leið strax mikið betur almennt og hætti að fá hitakóf og hefur síðan tekið Femarelle á hverjum degi og ekki fundið fyrir neinum einkennum. Munurinn var sérstaklega augljós þegar hjónin fóru í tveggja mánaða Evrópu ferð, en spennan fyrir ferðinni var svo mikil að það gleymdist að taka Femarelle töflurnar með í ferðina. Það var ekki fyrr en Valgerður byrjaði að fá endalaus hitakóf þegar hún fattaði að hún hafði ekki tekið töflurnar allan þennan tíma. Þegar hún kom heim fór Valgerður strax og náði sér í Femarelle og byrjaði að taka þær aftur, á morgnana og á kvöldin og eftir sirka þrjár vikur voru hitakófin horfin.
Valgerður segir að þessi viðbót hafi gjörbreytt upplifun hennar af breytingaskeiðinu og hún mælir hiklaust með Femarelle fyrir konur í svipuðum sporum.
Hormónalaus lausn
fyrir allar konur á breytingaskeiði
Fjöldi kvensjúkdómalækna í
Evrópu mæla með Femarelle sem fyrstu meðferð við einkennum breytingaskeiðsins, þar sem bætiefnalínan býður upp á hormónalausa lausn.
Femarelle býður upp á þrjár mismunandi vörur sem henta konum á ólíkum stigum breytingaskeiðsins.
Helsta innihaldsefnið er einkaleyfisvarið efnasamband, DT56a, sem örvar estrógenviðtaka í staðbundnum vefjum. Þetta efni er hannað til að draga úr einkennum tíðahvarfa án þess að hafa neikvæð áhrif á vefi í móðurlífi eða brjóstum.
Femarelle Rejuvenate hentar konum sem eru að upplifa fyrstu einkenni hormónabreytinga og áður en óregla kemst á blæðingar. Blandan inniheldur hörfræ sem stuðlar að betra hormónajafnvægi, B2- og B7-vítamín sem stuðlar að eðlilegum efnaskiptum ásamt viðhaldi eðlilegrar húðar, slímhúðar og hárs.
Femarelle Recharge er fyrir konur sem eru komnar á breytingaskeiðið, hafa óreglulegar blæðingar eða eru alveg hættar á blæðingum. Blandan inniheldur B6vítamín sem stuðlar að því að halda reglu á hormónastarfsemi og dregur úr þreytu og lúa.
Femarelle Unstoppable er fyrir konur sem komnar eru af breytingaskeiðinu eða þegar einkenni hætta. Blandan inniheldur B2- og B7-vítamín, kalk og D-vítamín sem stuðlar að viðhaldi eðlilegra beina.
Femarelle vörulínan er tilvalin fyrir konur á þessu margbreytilega tímabili, með lausnir sem henta ólíkum þörfum og stigum breytingaskeiðsins. ■
Lifrin er eitt mikilvægasta líffæri líkamans. Hún er stærsta innra líffærið okkar og gegnir fjölmörgum lífsnauðsynlegum hlutverkum. Lifrin vinnur stöðugt að því að halda líkamanum hreinum og í jafnvægi, en það krefst góðrar umönnunar til að hún starfi sem skyldi.
Hreinsun lifrarinnar er mikilvæg
Lifrin sinnir yfir 500 mismunandi störfum daglega, sem gera hana að einu af allra fjölhæfustu og mikilvægustu líffærum líkamans. Hér eru nokkur af helstu hlutverkum hennar:
- Afeitrar með því að brjóta niður skaðleg efni úr mat, lyfjum og öðru.
- Sér um sykur-, fitu- og próteinefnaskipti.
- Geymir vítamín (A, D, E, K og B12), járn og glýkógen.
- Framleiðir gall sem hjálpar við niðurbrot fitu.
- Brýtur niður og útskilur hormóna.
- Styður við ónæmiskerfið með því að fjarlægja sýkla úr blóðinu.
Þessi gríðarlega fjölbreyttu verkefni gera það að verkum að heilbrigði og hreinsun lifrarinnar er mikilvæg fyrir almenna vellíðan og jafnvægi í líkamanum.
1. Hafðu meltinguna í jafnvægi
Áður en hafist er handa við hreinsun lifrarinnar er mikilvægt að tryggja að meltingarstarfsemin sé í góðu lagi. Lifrin losar eiturefni í gegnum meltingarveginn, en ef meltingin starfar ekki eðlilega getur það leitt til þess að eiturefnin séu tekin upp aftur í líkamann í stað þess að skila sér út. Til að styðja við góða meltingu er mikilvægt að neyta nægilegs vökva og trefjaríkrar fæðu.
2.
Borðaðu fæðu sem styður lifrina
Fæða sem styrkir lifrina og styður hreinsunarferli hennar er rík af járni, svo sem rucola, túnfífill, brenninetlur, grænkál, steinselja, kóríander og önnur græn blöð. Einnig eru rauðrófur, sveskjur, fíkjur og rúsínur góð fæða fyrir heilsu lifrarinnar.
3.
Öflugur stuðningur frá náttúrunni
Mjólkurþistill er mild jurt sem styður við heilbrigða lifrarstarfsemi og er einstaklega öflug í hreinsun og verndun lifrarinnar gegn álagi. Hana má fá í vítamínhylkjum eða sem hluta af jurtablöndum sem styðja við
lifrina. Mælt er með að taka hana í þrjá mánuði samfleytt, taka sér mánaðarhlé og síðan endurtaka kúra eftir þörfum.
Túrmerik er þekkt fyrir bólgueyðandi eiginleika sína og getur stuðlað að hormónajafnvægi ásamt því að vera öflug andoxunarrík jurt. Það er auðvelt að bæta því við mataræðið daglega, til dæmis í te, drykki, matargerð eða sem bætiefni í hylkjum.
Túnfífill hefur hreinsandi áhrif á líkamann, sérstaklega á lifur og blóð. Túnfífils-te getur örvað starfsemi lifrarinnar, hjálpað til við að losa úrgangsefni úr líkamanum og aukið orku. Það er gott að nota teið annaðhvort sem hluta af daglegri rútínu eða sem tímabundna hreinsikúra.
4. Skapaðu lifrinni gott umhverfi
Eins og fram hefur komið gegnir lifrin lykilhlutverki í hreinsun líkamans, en vissir þú að hún tengist einnig tilfinningum, sérstaklega reiði og streitu? Til að styðja við heilbrigða lifrarstarfsemi er mikilvægt að minnka álag á hana.
„Lifrin er lykillinn að meiri orku og vellíðan“
Regluleg hreyfing, innri ró, hugleiðsla og jákvætt hugarfar geta hjálpað til við að draga úr streitu og bæta jafnvægi. Að auki skiptir góð svefnrútína, djúp slökun og meðvituð streitulosun sköpum fyrir bæði líkamlega og andlega vellíðan.
5. Lífsstíll sem styður við heilsuna
Forðastu reykingar, áfengi og unnin matvæli. Mundu að drekka nóg vatn –gott er að bæta smá sítrónuskvettu við til að fríska upp á bragðið og styðja við meltinguna. Borðaðu fjölbreytta og næringarríka fæðu. Hlustaðu á líkama þinn og leitaðu ráða hjá sérfræðingum ef þörf krefur.
Betri líðan með heilbrigðri lifur
Lifrin er ótrúleg vinnustöð líkamans sem endurgeldur umhyggju með aukinni orku, fallegri húð og betri meltingu. Að hreinsa lifrina er ekki aðeins líkamlegt ferli – það er líka andlegt skref í átt að jafnvægi og vellíðan.
Ef þú vilt fara dýpra í hreinsun lifrarinnar er hægt að mæla með bókinni The Amazing Liver Cleanse eftir Andreas Moritz. Þar er lýst skref fyrir skref hvernig má styðja við heilbrigða lifur og hreinsunarferlið.
Byrjaðu í dag! Litlar breytingar geta skilað miklum árangri. Líkaminn mun þakka þér fyrir! ■
Hekla Guðmundsdóttir hefur lengi glímt við meltingarvandamál og leitað lausna í formi bætiefna og lyfja. Þrátt fyrir margar tilraunir hefur fátt reynst henni jafn árangursríkt og Digest Gold meltingarensímin, sem hafa gjörbreytt lífsgæðum hennar.
Ensím gegna lykilhlutverki í öllum efnaferlum líkamans, þar á meðal í upptöku næringarefna og að umbreyta fæðu í orku. Þó líkaminn framleiði sjálfur meltingarensím, geta ýmsir þættir haft áhrif á framleiðsluna og
valdið því að hún verði ófullnægjandi. Skortur á meltingarensímum getur leitt til meltingarónota, en áhrifin geta verið enn víðtækari. Meltingarvandamál, húðvandamál, eymsli í liðum og jafnvel andleg vanlíðan eru meðal einkenna sem geta tengst skorti á ensímum. Heilbrigð melting er því ekki aðeins mikilvæg fyrir orku og nýtingu næringar, heldur hefur hún líka bein áhrif á almenna vellíðan og líkamlega sem og andlega heilsu.
geta stafað af skorti á ensímum
Meltingarensím í formi bætiefna geta verið frábær stuðningur fyrir líkamann, bæði til að koma í veg fyrir skort og til að draga úr óþægindum sem honum tengjast. Þau eru sérstaklega gagnleg fyrir fólk með fæðuóþol eða þá sem finna fyrir meltingartruflunum þegar borðaðar eru ákveðnar fæðutegundir. Ensímin hjálpa líkamanum að melta og nýta næringarefnin betur, sem getur dregið úr óþægindum og bætt líðan. Með því að taka inn meltingarensím má bæta meltinguna og hafa jákvæð áhrif á heildarheilbrigði með því að styðja við starfsemi líkamans á margþættan hátt.
Hekla Guðmundsdóttir, stofnandi og eigandi Bandvefslosunar og Body Reroll, hefur nýlega byrjað að taka inn Digest Gold meltingarensímin frá
Enzymedica. Hún segist strax finna mikinn mun á líðan og getur loksins notið þeirra veitinga sem eru í boði.
Finnur mikinn mun á líðan með Digest Gold
„Máltíðir eru stór hluti af okkar félagslífi, hvort sem er með vinum eða í vinnuumhverfi. Lífsgæði okkar geta orðið ansi skert þegar við finnum fyrir vanlíðan eftir máltíðir og það hef ég sjálf upplifað síðastliðin 27 ár. Segja má að ástandið hafi versnað rosalega eftir að gallblaðran var fjarlægð árið 2015, því þá þoldi ég svo illa bæði feitan mat og sterkan og mér leið í raun ekki vel nema ég fengi mér salatblöð og vatn úr krananum. Enginn getur lifað á því eingöngu.
Ég hef prófað ótal bætiefni og lyf sem áttu að hjálpa við vandamál eins og uppþembu, sýrumyndun, ónot í maga og mikinn brjóstsviða, oft með litlum árangri. Aukaverkanir lyfjanna gerðu það einnig að verkum að ég hætti á þeim en þær vógu mun þyngra en gagnsemi lyfjanna. Þá er ekki upptalinn kvíðinn við tilhugsunina tengdum jólahlaðborðum, kaffihúsum, vinnufundum á veitingastöðum og öðrum félagslegum aðstæðum, þar sem ég þurfti alltaf að hafa áhyggjur af því hvernig mér myndi líða eftir máltíðina.
Fyrir stuttu ákvað ég að prófa Digest
Gold meltingarensímin, þótt ég hafði ekki mikla trú á þeim eftir allar fyrri tilraunir. Munurinn var þó þvílíkur!
Einkennin minnkuðu um allt að 80% á stuttum tíma og nú get ég leyft mér að borða mat sem ég áður forðaðist í félagslegum aðstæðum. Áður hafði ég ýtt matnum til hliðar og aðeins fengið mér af honum rétt fyrir heimför, því það er erfitt að njóta matar þegar einkennin koma strax og eru svona mikil eins og ég upplifði. Nú get ég notið kaffi, súkkulaðis, pizzu, rjóma eða hvað sem er í boði hverju sinni. Digest Gold er alltaf með í veskinu mínu, tilbúið fyrir næstu máltíð.“
Gegn vægum meltingarvandamálum
- Stuðlar að bættri meltingu og nýtingu fæðunnar
- Lítil hylki og auðvelt að gleypa
- Hentar öllum aldri, líka börnum
Þróaðasta varan: Tvær vörur í einni
- Sérstaklega gott fyrir fólk sem glímir við fjölþætt meltingarvandamál
Náttúruleg ensím án aukaefna
Digest meltingarensímin frá Enzymedica eru öflugustu ensím sem völ er á og eru sérstaklega hönnuð til að draga úr eða jafnvel koma í veg fyrir óþægindi sem stafa af skorti ensíma. Enzymedica ensímin eru unnin með einkaleyfisvarinni aðferð sem kallast Thera-blend, sem blandar saman mörgum stofnum ensíma sem vinna á mismunandi pHgildum í líkamanum. Þetta tryggir skilvirkari meltingu á orkuefnum og hraðari verkun en hjá sambærilegum meltingarensímum. Digest meltingarensímin eru 100% náttúruleg og án allra aukaefna.
Ensímlína Enzymedica samanstendur af fimm mismunandi vörum sem bjóða upp á breytilegan styrkleika, þannig að hægt er að velja það sem hentar hverjum og einum. Aðeins eitt hylki af Digest ensímum fyrir máltíð getur létt á meltingunni, sérstaklega þegar mikið mæðir á henni. ■
Gegn þrálátum meltingarvandamálum
- Að jafnaði 20 sinnum sterkari en aðrar gerðir meltingarensíma
- Söluhæsta meltingarvaran í Bandaríkjunum
- Inniheldur ATPro sem samanstendur af ATP, magnesíum citrate, Q10 og Phytase
- Tvisvar sinnum öflugri ensímblanda en Digest Basic
- Fullkomin ensímblanda sem styður við meltinguna
Gegn fæðuóþoli
Gegn mjólkuróþoli
- Styður meltingu á laktósa og kaseini
- Nýjasta varan í Digest fjölskyldunni
- Hentar vel gegn ýmiskonar fæðuóþoli
- Styður meltingu á glúteni, laktósa, kaseini, próteini og fenóli
- Hentar allri fjölskyldunni
- Viðurkennt af Autism Hope Alliance
Hefurðu einhvern tímann velt fyrir þér hvað aðgreinir farsælt fólk frá öðrum? Er þetta fólk heppið að hafa fæðst með silfurskeið í munni, eða býr það yfir meðfæddum hæfileikum sem hafa lyft því á þann stað sem það er í dag? Svarið er einfalt: farsælt fólk veit hvað það vill, skilur mikilvægi sjálfsaga og hefur með tímanum þjálfað og styrkt „sjálfsagavöðvann“.
Sjálfsagi er afl sem breytir hugsjónum í veruleika og löngunum í árangur.
Sjálfsagi er ekki meðfæddur; hann er þjálfaður, rétt eins og vöðvar líkamans.
Sjálfsagi er hæfileikinn til að velja rétt þegar lífið býður upp á marga kosti.
Sjálfsagi - Leiðin frá draumum til veruleika
Sjálfsaga má líkja við vöðva. Því oftar sem þú notar hann, því sterkari verður hann. Ef þú sleppir æfingunum, veikist hann. Hvenær gafstu síðast upp á einhverju sem þú vissir að myndi gera þér gott? Það var nákvæmlega þá sem sjálfsagavöðvinn hefði þurft á styrk að halda. En góðu fréttirnar eru þær að með litlum, daglegum æfingum geturðu byggt hann upp.
skrefin – galdurinn á bak við stóru markmiðin
Of oft teljum við okkur trú um að stórir draumar þurfi stór skref. En sannleikurinn er sá að það eru litlu, reglubundnu skrefin sem breyta lífinu. Litlu skrefin, tekin aftur og aftur og aftur, skapa stórar breytingar með tímanum og það eru aðeins afsakanir sem geta staðið í vegi fyrir þér. Þetta er alfarið í þínum höndum, svo
„Þú þarft ekki að vera fullkomin/n til að byrja – þú þarft bara að byrja.“
hvað er að stoppa þig í upplifa þína drauma? Hverjar eru afsakanirnar? Hvaða sögur segir þú þér sem gætu verið að hindra framgang þinn? Hverjar af þessum sögum eru sannar? Og, ef þær eru ekki sannar, hvernig geturðu breytt þeim þannig að þær styðji við þig frekar en hindri?
stefnu – skipið þitt þarf áttavita
Ef þú veist ekki hvert þú stefnir, er líklegt að þú endir einhvers staðar sem þú vilt ekki vera. Ímyndaðu þér skip án áttavita. Það flýtur stefnulaust og lendir að lokum þangað sem straumarnir hafa dregið það. Sama gildir um líf þitt. Skilgreindu drauma þína og markmið. Skrifaðu þau niður. Þau þurfa ekki að vera fullkomin eða jafnvel raunhæf strax, þau þurfa bara að vera þín.
Veldu þér eitt markmið sem færir þig nær draumum þínum. Hvaða litla skref geturðu gert í dag til að komast nær markmiðinu? Þarftu að byrja á því að hugsa betur um sjálfan þig? Frábært! Hverju ætlarðu að byrja á?
Með hverju skrefi verður leiðin skýrari og árangurinn mun smám saman koma í ljós. Þú munt sjá hvernig lífið byrjar að breytast – ekki vegna einnar stórkostlegrar aðgerðar, heldur vegna samfelldra, lítilla aðgerða sem þú framkvæmir reglulega.
Eins og fram hefur komið er sjálfsagi grunnurinn að sjálfsstyrkingu og langtímaárangri en rútínur eru
áhrifaríkasta æfingatækið til að styrkja sjálfsaga. Rútínur eru eins og járnbrautarteinar fyrir sjálfsagann. Þær leiða þig í rétta átt, jafnvel þegar viljastyrkurinn er veikur. Skipulögð rútína hjálpar þér að standast freistingar og halda þér á réttri braut. Skipulagður morgun eða kvöldrútína getur haft ótrúlega góð áhrif á upplifun dagsins.
Mistök eru hluti af ferlinu. Ekki gefast upp þótt á móti blási. Það sem skiptir máli er að halda áfram. Sjálfsagi þýðir ekki fullkomnun, sjálfsagi þýðir framfarir.
Migréa er góðgerlablanda sem hefur það að markmiði að styðja við heilbrigða þarmaflóru og heilbrigt taugakerfi. Auk góðgerla inniheldur Migréa B6 vítamín og magnesíum.
Ef þú vilt upplifa alvöru breytingar er ekki eftir neinu að bíða, byrjaðu strax í dag. Hafðu í huga að sjálfsagi er afl sem býr innra með þér, tilbúinn til að vakna til lífsins. Með því að leggja þig fram og halda áfram í gegnum allar áskoranir sem munu vera á vegi þínum, getur þú náð ótrúlegum árangri. Ferðin er ekki alltaf auðveld, en verðlaunin eru ómetanleg – styrkur, sjálfstraust og árangur sem gerir lífið svo miklu innihaldsríkara.
Á næsta ári munt þú líta til baka og annað hvort fagna framförum eða sjá eftir því að hafa ekki byrjað. Hvað velur þú? Ekki vera að bíða eftir rétta tímanum – hann kemur aldrei. Rétti tíminn er núna! ■
Candéa inniheldur góðgerla, hvítlauk og greipaldinþykkni. Öflug blanda sem hefur það að markmiði að styðja við heilbrigða meltingu og að vernda viðkvæm svæði.
Pro-Cyan er góðgerlablanda sem hefur það að markmiði að styðja við heilbrigða meltingu og heilbrigt þvagfærakerfi. Inniheldur trönuberja þykkni og A vítamín.
Everyday er sérstaklega öflug góðgerlablanda sem hefur það að markmiði að bygg ja upp öfluga þarmaflóru og styðja við eðlilega starfsemi ónæmiskerfisins.
Mind inniheldur góðgerla, villt bláber og vínberja ekstrakt ásamt sinki. Blanda sem hefur það að markmiði að styðja við heilbrigða meltingu og hugræna virkni.
- Sjálfsagi opnar dyr að möguleikum sem þú hélst áður að væru óyfirstíganlegir. Þegar sjálfsagavöðvinn styrkist, verður þú afkastameiri, sjálfstæðari og fær um að takast á við öll verkefni lífsins. Þú þróar með þér sjálfsstjórn sem hefur jákvæð áhrif á heilsu þína, samskipti og líðan.
- Árangur snýst ekki aðeins um að ná markmiðum, heldur einnig að breyta sjálfsmyndinni. Spurðu þig spurninga á borð við; „Hvernig myndi skapandi einstaklingur haga deginum sínum?“ Þegar þú vinnur í samræmi við þá manneskju sem þú vilt verða, styrkirðu sjálfsmynd þína og trú á eigin getu.
- Í upphafi ferðar er gott að umkringja sig fólki sem trúir á þig og þín markmið, því gott stuðningsnet heldur þér við efnið og getur hjálpað þér að halda einbeitingu. Annað sem ber að hafa í huga er að byrja smátt og festa venjurnar í sessi. Til að festa venju þarf hún að vera einföld og aðgengileg.
- Markmið eru góð en þau eru aðeins leiðarljós, venjur og dagleg hegðun er það sem gerir þér kleift að ná þeim. Eitt lítið skref í einu.
- Umhverfið hefur mikil áhrif á hegðun þína. Ef þú vilt hætta að borða óhollt skaltu fjarlægja freistingar. Ef þú vilt skapa meira, gerðu vinnusvæðið þitt aðgengilegt og hvetjandi.
- Að setja markmið er frábært, en að finna gleði í daglegum venjum er það sem heldur þér gangandi. Lífið gerist á meðan þú stundar ferlið –njóttu þess að verða betri útgáfa af sjálfri/sjálfum þér á hverjum degi.
- Fullkomnun er ekki markmiðið, stöðugleiki er markmiðið. Ef þú gleymir einu sinni, þá skiptir mestu máli að halda áfram næsta dag. Það sem drepur venjur eru ekki mistök, heldur það að gefast upp –hætta þegar á móti blæs.
„Það er ekki stærðin á skrefunum sem skiptir máli, heldur stöðugleikinn sem er lykillinn að árangri“
Með hjálp Nutrilenk hafa hjónin Sigurborg og Jón Konráð fundið létti frá þrálátum óþægindum. Sigurborg fann lausn á liðeymslum eftir brjóstnám og nýtur nú daglegra athafna án ama, á meðan Jón Konráð á auðveldara með að rétta úr bakinu og byrja morgnana með léttari skrefum.
Liðirnir í líkama okkar gegna grundvallarhlutverki í hinum fjölbreyttu hreyfingum daglegs lífs. Þeir gera beinum og brjóski kleift að hreyfast og því er mikilvægt að huga vel að þeim. Margir þekkja Nutrilenk liðbætiefnin, sem hafa verið eitt mest selda liðbætiefni á Íslandi til langs tíma. Hér deila hjónin Sigurborg og Jón Konráð reynslu sinni af Nutrilenk.
Sigurborg segir Nutrilenk algerlega hafa bjargað sér
Sigurborg Sveinbjörnsdóttir hefur lengi glímt við óþægindi í liðum, en með tilkomu Nutrilenk hefur
líðan gjörbreyst. ,,Eftir skurðaðgerð og brjóstnám tók við margra ára meðferð. Ég varð undirlögð af óþægindum í liðum um allan líkamann, verst í hryggjarliðum, fótum og handleggjum, en allir vöðvar voru slæmir viðkomu. Læknirinn útskýrði fyrir mér að þessir kvillar væru algengir fylgifiskar. Ég kynntist Nutrilenk Gold fyrst í Danmörku sem hjálpaði mér mikið. Ég fann að það sló vel á óþægindin, ég átti auðveldara með að takast á við heimilisstörfin og gat loks farið í göngutúra. Við heimkomu til Íslands leitaði ég uppi Nutrilenk og ræddi við lækninn minn um hversu vel það hafði reynst mér. Ég hef prófað að taka pásu á inntöku en þá komu óþægindin fljótt aftur, svo nú tek ég Nutrilenk Gold að staðaldri og er alsæl. Það má með sanni segja að þetta bætiefni hafi algerlega bjargað mér.‘‘ segir Sigurborg um tilkomu Nutrilenk Gold í sína daglegu rútínu.
Jón Konráð fer nú áreynslulaust í þrjá göngutúra daglega
Jón Konráð Guðbergsson hafði lengi glímt við bakvandamál, en hefur fundið bót meina sinna með inntöku Nutrilenk.
Hann mælir með bætiefninu fyrir þá sem vilja styðja við liðheilsu sína.
„Áður en ég kynntist Nutrilenk átti ég í erfiðleikum með að rétta úr bakinu á morgnana. Það var mjög slæmt ástand,“ segir Jón. „Nú, eftir að hafa tekið inn Nutrilenk í nokkurn tíma, þarf ég ekki lengur að beita mig hörku til að fara framúr á morgnanna. Ég tek Nutrilenk daglega og fer nú í þrjá góða göngutúra á hverjum degi, sem er frábært.“ segir Jón Konráð og bætir við að Nutrilenk sé orðið ómissandi hluti af lífi hans og hann muni halda áfram að nota það til framtíðar.
Heilbrigðir liðir með
Nutrilenk
Nutrilenk Gold er unnið með sérhæfðri aðferð sem tryggir að líkaminn nýti virku innihaldsefnin á sem bestan hátt.
Helstu innihaldsefni þess eru kondrótín, kollagen og kalk, sem öll eru nauðsynleg fyrir viðhald heilbrigðra beina. Auk þess inniheldur formúlan D- og C-vítamín, sem stuðla að eðlilegri myndun kollagens fyrir heilbrigða starfsemi beina og brjósks, ásamt mangan, sem styður við viðhald heilbrigðra beina og eðlilega myndun bandvefja. ■
Það eru ekki allir mjólkursýrugerlar eins!
Er komið í nýjan búning
Stefán Pálsson treystir á Sore No More hita- og kæligelin, bæði fyrir og eftir æfingar. Með því að auka blóðflæði og vinna á aum svæði veita þau honum fullkominn stuðning til að ná enn lengra.
Stefán Pálsson er sannkallaður ævintýrahlaupari sem hefur tileinkað sér utanvegahlaup. Þrátt fyrir að hafa byrjað að hlaupa af hreinni ánægju og tilfinningu hefur hann nú tekið stórt skref og einbeitir sér að æfingum á fagmannlegum grunni með mjög skipulagðri þjálfun. Stefán lýsir því sjálfur að þetta ferðalag sé samblanda af ástríðu og metnaði, þar sem hann er að ná góðum árangri í bland við gleðina við hlaupin. Eitt sem er alltaf með í æfingatöskunni hans er Sore No More, sem hefur reynst honum ómetanlegt til að lina þreytu og stífleika í vöðvum við miklar álagsæfingar.
Stefán fékk það frábæra tækifæri að keppa í SkyRunning World Series 2024, sem er atvinnumannakeppni og jafnframt ein tæknilegasta grein utanvegahlaupa í heiminum. Þar keppti hann fyrstur Íslendinga, sem er glæsilegur árangur. Keppnisröðin samanstendur af yfir 20 hlaupum víðs vegar um heiminn. Stig eru veitt fyrir árangur í hverju hlaupi, en einungis fjögur bestu hlaupin telja í lokin, þegar keppninni lýkur á meistaramóti í haust.
Í apríl á síðasta ári braut Stefán bein í úlnlið eftir árekstur á hjóli og þurfti að vera í gifsi í sex vikur. „Að brjóta úlnlið setti æfingaplanið alveg á hliðina og ég losnaði ekki úr gifsinu fyrr en í júní, stuttu fyrir fyrstu keppni,“ segir Stefán. „Ég tel að ég hafi ekki náð þeim árangri sem ég ætlaði mér á síðasta tímabili. Í haust fékk ég mér því þjálfara sem heldur utan um þjálfunina, snjallvæðir hana og tryggir að ég nái hámarksárangri á réttum tíma. Í ár stefni ég á að vera miklu öflugri og gera enn betur.“
Lykillinn að betri endurheimt og hreyfigetu
„Undanfarna mánuði hef ég aukið æfingamagnið töluvert,“ segir Stefán.
„Síðasta haust byrjaði ég að nota Sore No More hita- og kæligelin í kringum æfingar og
kann virkilega að meta þau. Mér finnst gelin virka það vel að þau draga athyglina frá óþægindum, án þess að ég fari fram úr sjálfum mér og lendi í meiðslum til lengri tíma.“
Einn helsti kosturinn við gelin er hversu einföld þau eru í notkun. „Ég rúlla gelinu á þau svæði sem ég þarf að hita eða kæla hverju sinni og losna þannig við að fá gelið á hendurnar, sem er mikill plús,“ útskýrir Stefán. „Hitagelið nota ég oft fyrir æfingar á þau svæði þar sem ég finn fyrir þreytu, yfirleitt í kringum kálfa eða mjóbak og mjaðmir. Markmiðið er að vekja þau svæði sem eru aum og auka blóðflæði, sem gerir mig tilbúinn í æfinguna.“
Eftir æfingar skiptir kæling miklu máli fyrir Stefán. „Ég kæli fæturna reglulega eftir hlaupaæfingar. Þótt ég fari oft í kalt bað eftir æfingar, kemur það fyrir að ég hef ekki aðgang að baðinu strax og þá gríp ég kæligelið og rúlla því á þreytta fætur, sem veitir mér hvíld og hjálpar við endurheimt. Þannig er ég tilbúinn í næstu æfingu.“
Sore No More gelin eru ómissandi hluti af æfingabúnaði Stefáns. „Ég er alltaf með gelrúllurnar í íþróttatöskunni, hvort sem ég er á hlaupabrautinni eða við rætur fallegra fjalla. Þau eru stór partur af íþróttakittinu mínu,“ bætir hann við.
Sore No More gelin innihalda einstaka blöndu virkra plöntuefna, framleidd án alkóhóls, kemískra íblöndunareða geymsluefna. Með yfir 30 ára reynslu hefur Sore No More skapað sér traustan sess sem val fyrir þá sem vilja hámarka árangur án málamiðlana við náttúruna eða heilsuna. Framleiðslan er umhverfisvæn, laus við dýraafurðir og prófanir á dýrum, sem gerir vörurnar að frábærum kosti fyrir meðvitaða neytendur. Hita- og kæligelin eru hönnuð með það í huga að koma í veg fyrir stífa vöðva og stuðla að aukinni hreyfigetu með því að örva blóðrásina í líkamanum. Gelin eru með mildum, náttúrulegum ilm og eru einstaklega einföld í notkun, eins og Stefán lýsti. Gelin festast ekki í fötum né skilja eftir sig bletti. ■
„Sore No More rúllurnar eru stór partur af íþróttakittinu sem fer með mér á hlaupabrautina eða við rætur fallegra fjalla.“
Vítamín í formi munnspreyja frá BetterYou eru einföld og áhrifarík leið til að tryggja að börn fái öll þau helstu vítamín til þess að uppfylla daglega þörf og styðja við eðlilegan vöxt og þroska.
D400 junior
D400 junior er bragðgott munnsprey með piparmyntubragði sem hentar börnum eldri en 3 ára. D400 junior er hentugur valkostur fyrir börn sem eiga erfitt með að innbyrða töflur eða hylki.
D+K2 kids
D+K2 kids er munnsprey fyrir börn frá 12 mánaða aldri. Munnspreyið inniheldur D3 og K2 vítamín og er með bláberja- og tyggjókúlubragði.
Ráðlagður dagskammtur fyrir börn frá 1-8 ára er 1 sprey á dag en fyrir börn frá 9-13+ ára er 2 sprey á dag.
D400 infant
D400 infant er hugsað fyrir börn yngri en 3 ára en hvert munnsprey inniheldur ráðlagðan dagskammt af D- vítamíni fyrir börn sem jafngildir 10 míkrógrömmum/400alþjóðaeiningum á dag. Munnspreyið er bragðlaus og einstaklega þægilegt í notkun.
MultiVit junior
MultiVit junior er fjölvítamín í spreyformi ætlað börnum frá 1 árs aldri. Munnspreyið er með súkkulaði- og sykurpúðabragði og inniheldur öll þau 14 nauðsynlegu næringarefni sem líkaminn þarf á að halda. Inniheldur m.a. A, D, C, K og B vítamín ásamt fólínsýru, joð og selen.
Disney vítamín hlaupin innihalda öll þau helstu vítamín sem þörf er á fyrir börn, A, B6, B12, fólínsýru (B9), C, D-, E, bíótín, joð og sink sem allt hefur það að markmiði að stuðla að vexti og viðhaldi barna.
Náttúrulegt hindberja-, jarðarberja- og vatnsmelónubragð. kirsuberja-, vínberjaog appelsínubragð.
Það eru stundir í lífinu sem breyta öllu. Fyrir Hildi Ómarsdóttur, tveggja barna móður og byggingarverkfræðing, kom sú stund í janúar 2022 þegar hún fékk fréttir sem enginn er tilbúinn að heyra - hún var greind með Hodgkins eitilfrumukrabbamein.
„Það var eins og jörðin hrundi undan mér,“ segir Hildur. „Allt í einu var það ekki lengur fjarstætt að deyja.“ Greiningin varð áfall fyrir alla fjölskylduna, en Hildur hóf tafarlaust hefðbundna lyfjameðferð með von um bata. Þrátt fyrir mikla baráttu voru niðurstöðurnar í desember sama ár
sláandi. Krabbameinsvirknin hafði tekið sig upp á ný og hún aftur á byrjunarreit.
„Á þessum tímapunkti varð mér ljóst að ég þurfti að taka stjórnina í eigin hendur,“ útskýrir Hildur.
Þrautseigja og þor gera ómögulegt mögulegt
Saga Hildar er ekki aðeins saga um baráttu við sjúkdóm heldur líka um hugrekki að feta ótroðnar slóðir og finna nýjar leiðir. Í gegnum róttækar breytingar og þrautseigju hefur hún sýnt að það er hægt að breyta lífi sínu með ákvörðun, einbeitni og trú á eigin getu.
„Ég vil að saga mín veiti öðrum von,“ segir Hildur. „Það er erfitt að stíga út fyrir hið hefðbundna, en stundum þarf að taka stór skref til að endurheimta líf sitt.“
„Þegar lyfjameðferðin sem ég hafði gengið í gegnum virkaði ekki sem skildi, stóð ég frammi fyrir stórri ákvörðun. Ég þurfti að velja milli þess að fara í aðra, sterkari lyfjameðferð eða velja óhefðbundna leið, þar sem ég þyrfti alfarið að stóla á sjálfa mig. Þrátt fyrir óvissuna fann ég sterka trú á þeirri leið sem ég valdi, því ég var sannfærð um að ég myndi ekki lifa aðra lyfjameðferð af. Í þessum aðstæðum kikkar inn lífsbjargarþrautseigja – eitthvað djúpt innra með manni sem vill halda í vonina og finna bestu mögulegu lausnina. Þessi þrautseigja er að mínu mati innbyggð í okkur öll, en hún birtist skýrt þegar lífið er í húfi. Ég trúi að allir hafi þennan styrk, en fáir vita af öðrum valkostum en þeim sem boðið er upp á á spítalanum.“
Áður en sjúkdómurinn tók sig upp
á ný hafði Hildur þegar byrjað að skoða hvernig hún gæti styrkt líkama sinn eftir erfiða lyfjameðferð. Hún rakst á reynslusögur frá fólki sem hafði náð bata með því að nýta náttúrulegar aðferðir. Þetta vakti von í brjósti hennar.
„Ég ákvað að fara alla leið,“ segir hún. „Ég setti mér markmið um að tileinka mér lífsstílsbreytingar í þrjá mánuði og sjá hvort þær myndu skila árangri. Það var stór ákvörðun, en ég fann styrk í því að taka ábyrgð á eigin heilsu.“
Hildur breytti daglegu lífi sínu algjörlega. Hún hóf að borða eingöngu hreint hráfæði, drakk grænmetissafa daglega og tók inn jurtalyf. Hún innleiddi reglulegar föstur, nýtti sér svæðanudd og heilun og hlúði að taugakerfinu með djúpri slökun.
„Þetta var ekki auðvelt,“ viðurkennir hún. „En ég fann fljótt hvernig ég varð orkumeiri sem styrkti von mína og trú.“
Þegar hún mætti í skönnun eftir þrjá mánuði komu niðurstöðurnar á óvart: Æxlissvæðið hafði minnkað og virkni þess dregist saman. „Þetta var mín staðfesting á því að ég var á réttri leið og ég ákvað að halda ótrauð áfram á þessari vegferð,“ segir Hildur brosandi.
þættir kunna að triggera frumubilunina sem leiðir til sjúkdómsins. Lífsstíll snýst ekki lengur eingöngu um mataræði og hreyfingu, heldur umhverfisáhrif á borð við eiturefni, rafbylgjur, myglu, veirur, orku og tíðni sem við erum stöðugt útsett fyrir.
Áföll og hugsanamynstur eru einnig mikilvægir þættir í þessu samhengi. Ég hef eytt ótal klukkustundum í að skoða orsakir í mínu tilfelli og tel mig hafa fengið skýrari mynd af því sem gæti hafa orsakað sjúkdóminn. Ég kýs að halda þeirri niðurstöðu fyrir mig að svo stöddu, þar sem þessi rannsóknarvinna er mjög persónuleg“ segir Hildur.
„Mataræðisráðleggingar kunna að falla utan hefðbundinnar meðferðar hjá læknum“
Orsök krabbameinsins
„Ég er sannfærð um að lífsstíll spilar lykilhlutverk í þróun krabbameina. Í þeim flókna og hraðvirka heimi sem við lifum í er oft erfitt að greina hvaða
„Í dag eru liðin tvö ár frá því að ég hóf vegferðina að lækna mig náttúrulega af krabbameini,“ segir Hildur. „Þetta er langhlaup, ekki spretthlaup. Ég hef lært að bataferli er sjaldan beint eða línulegt, það fylgja alltaf óvæntar beygjur og bakslög.“
Hildur fer reglulega í skanna til að fylgjast með framvindu mála. „Í
febrúar í fyrra kom upp bakslag með tilheyrandi einkennum, sem var áfall, en nýjasti skanninn, gerður síðla sumars, sýndi að allt væri á réttri leið. Þessar niðurstöður styrktu mig enn frekar í þeirri trú að þrautseigja og stöðugleiki skili á endanum árangri.“
Hún bætir við: „Ég er sannfærð um að með tímanum mun þetta takast. Það krefst þolinmæði og trúar á ferlið – en það er vegferð sem er þess virði.“
„Ein stærsta áskorunin í bataferlinu hefur verið sú staðreynd að það er lítið viðurkennt innan heilbrigðiskerfisins að fara náttúrulega leið í átt að heilbrigði. Ég hef oft mætt tortryggni og fordómum, sem hefur stundum sært mig og kippt frá mér voninni og það getur reynst snúnara að sækja réttindi sín fari maður óhefðbundna leið sem bætir í óvissuna.
Mesta áskorunin hefur þó líklega verið að þurfa alltaf að stóla á sjálfa mig og skorturinn á sérfræðingum með þekkingu á náttúrulækningum við krabbameini sem geta einnig veitt eftirfylgni. Á meðan ég fór í gegnum lyfjameðferð fann ég mikinn stuðning í Ljósinu og gat speglað mig í öðrum sem gengu í gegnum sambærilega reynslu. En þegar ég valdi óhefðbundna leið fann ég að Ljósið var ekki lengur staður sem ég tengdi við og sú einangrun varð áskorun út af fyrir sig.
Þó að áskoranirnar hafa verið margar, þá höfum við sem fjölskylda alltaf tekið þær saman og tekist á við þær með samstöðu og styrk. Það hefur verið mér ómetanlegt að eiga þann stuðning.“
Varfærni í
opinberri umræðu
„Ég finn yfirleitt fyrir miklum áhuga frá fólki þegar ég tala um vegferð mína, en að mestu leyti hef ég kosið að halda mig innan minnar eigin búbblu,“ segir Hildur. „Ég hef deilt eitthvað af reynslu minni á Instagram og talaði opinberlega um þetta í fyrsta skipti í hlaðvarpi fyrir stuttu. Hins vegar hef ég reynt að halda mig til hlés, aðallega vegna þess að ég veit að það eru ólíkar skoðanir þarna úti.“
Hildur bætir við að sú ákvörðun sé bæði til að hlífa sér og öðrum. „Þar sem ég er enn að vinna mig í gegnum þetta verkefni, hef ég ekki viljað opna mig of mikið fyrir gagnrýni eða skoðunum annarra. Ég held að það sé mikilvægt að hlusta á eigið innsæi og vernda eigið rými meðan maður er í svo viðkvæmu ferli.“
Næring skiptir lykilmáli í baráttunni við krabbamein
„Það er staðreynd að næring getur spilað stórt hlutverk í bataferli þeirra sem greinast með krabbamein, þó hún fái stundum ekki þá athygli sem hún á skilið. Sjálf hef ég upplifað þessa áskorun þegar mér var sagt að mataræði skipti ekki miklu máli í minni meðferð. Hins vegar hefur reynslan kennt mér að það að næra sig vel er gríðarlega mikilvægt, ekki bara fyrir líkamann heldur einnig fyrir andann.
Mataræðisráðleggingar kunna að falla utan hefðbundinnar meðferðar hjá læknum, en það þýðir ekki að næring sé ekki mikilvæg. Að taka virkan þátt í eigin heilbrigði með hollu
mataræði getur verið valdeflandi og gefið von, sem er ómetanlegur þáttur í bataferlinu. Vonin er svo mikilvæg í svona stöðu. Hún veitir styrk til að takast á við áskoranir og sjá fram á bjartari tíma.
taugakerfið okkar. Langvarandi streita, óunnið áfall eða krónískur kvíði geta haft gríðarleg áhrif á heilsu okkar. Að hlúa að taugakerfinu og finna leiðir til að vinna úr streitu er mikilvægara en margir gera sér grein fyrir.“
„Það er staðreynd að næring getur spilað stórt hlutverk í bataferli“
Ég vil hvetja alla sem standa frammi fyrir lífsáskorunum, eins og alvarlegum sjúkdómum, að hlúa vel að líkama sínum og andlegu heilsu. Hvert skref í þá átt getur skipt öllu máli, bæði fyrir daglega líðan og fyrir langvarandi bata. Hver máltíð getur verið skref í átt að betri heilsu og von um bjartari framtíð.“
Litlu skrefin sem breyta lífi þínu
„Fyrsta skrefið í átt að bættri heilsu er að staldra við og spyrja sjálfan sig: „Er ég í streitu?“ Streita getur verið lúmsk og haft djúp áhrif á líkamlega og andlega líðan án þess að við áttum okkur á því“ segir Hildur.
Við tölum oft mikið um hvað við eigum að borða og hvernig við eigum að hreyfa okkur, en það er eitt sem fær oft ekki næga athygli og það er
Hún hvetur fólk til þess að byrja smátt þegar það er að gera lífsstílsbreytingar. „Það er svo mikilvægt að fara ekki of geyst. Veldu eina jákvæða breytingu og gerðu hana að vana áður en þú bætir við nýjum. Fyrir suma gæti fyrsta skrefið verið að minnka sykurneyslu, bæta við fersku grænmeti í mataræðið eða jafnvel drekka meira vatn. Þessar litlu breytingar, gerðar af alúð, geta samanlagt haft ótrúleg áhrif til lengri tíma.“
Hildur nefnir göngutúra í náttúrunni sem sína bestu leið til að tengjast líkama og sál. „Göngutúrarnir hafa haft meira að segja um heilsu mína en ég hefði nokkurn tíma haldið. Þeir eru ekki bara hreyfing heldur líka tími til að hreinsa hugann og vinna úr tilfinningalegum málum. Á göngu fæ ég stundum lausnir sem koma óvænt, eins og náttúran hjálpi mér að endurnýja mig. Ég var einu sinni sú sem skildi ekki af hverju fólk labbaði frekar en að hlaupa, en nú er þetta mín leið til að endurnýja jafnvægi og orku.“
Hildur leggur áherslu á að ferlið snúist ekki um fullkomnun heldur um stöðug skref í rétta átt. „Það mikilvægasta er að stíga eitt skref í einu, hlusta á sjálfan sig og finna það sem virkar fyrir þig. Það eru litlu hlutirnir, smáu skrefin, sem geta umbreytt lífi þínu – hvort sem það er með mataræði, göngutúrum eða því að gefa huganum rými til að anda.“
„Það er lítið viðurkennt innan heilbrigðiskerfisins að fara náttúrulega leið í átt að heilbrigði“
Erfiðasti en besti skóli lífs míns
”Þó þetta verkefni sé ekki að fullu lokið, þá hefur þessi vegferð veitt mér nýjan tilgang í lífinu. Stundum finnst mér líf mitt hafa skipst í tvo kafla, „lífið fyrir krabbameinsgreiningu“ og „lífið eftir krabbameinsgreiningu“.
Mitt helsta markmið er að ná því að vera krabbameinslaus. Á meðan ég hef ekki enn fengið hreinan skanna og er ekki alveg einkennalaus, þá fylgir mér alltaf ákveðinn skuggi.
Fyrir greininguna starfaði ég sem verkfræðingur og sú menntun mun ávallt nýtast mér. Hins vegar hafa áherslur mínar breyst. Nú dreymir mig um að hjálpa öðrum sem vilja taka virkan þátt í eigin bataferli við krabbamein. Mig langar að skapa þann vettvang sem ég sjálf saknaði á
mínum erfiðustu tímum, vettvang sem veitir von, leiðbeiningar og stuðning.
Einnig vil ég flétta þetta saman við ástríðuna mína fyrir matargerð og sköpun í eldhúsinu. Ég sé fyrir mér að sameina þessar tvær áherslur til að hjálpa öðrum á leið sinni til bata, bæði með praktískum lausnum og hvatningu. Þessi nýja vegferð fyllir mig af tilgangi og von um bjartari framtíð, sem er gott vítamín í lífið. Eins og við öll er ég mannleg og það koma dagar þar sem mér finnst þetta allt erfitt – dagar þar sem ég græt og óska að einhver gæti kippt mér út úr þessum veruleika. Þegar upp er staðið eru það þrautseigjan og vonin sem halda mér við efnið.
Þessi reynsla hefur verið mesti skóli lífs míns og líklega sá mikilvægasti fyrir mig. Helsti
lærdómurinn sem ég hef dregið er að lífið er svo sannarlega núna, það er ekki sjálfsagt. Þó þetta kunni að hljóma eins og klisja, þá hefur það að hægja á, hlúa að sjálfri mér og setja mig í fyrsta sæti skipt meira máli en ég nokkru sinni gat ímyndað mér. Þetta hefur gjörbreytt því hvernig ég nálgast daglegt líf og forgangsraða því sem skiptir mig raunverulega máli. ” segir Hildur að lokum. ■
„Þessi reynsla hefur verið mesti skóli lífs míns og líklega sá mikilvægasti“
Í umræðunni um heilsu og næringu er mikilvægt að muna eftir magnesíum. Þetta ofur steinefni er fjórða algengasta efnið í líkamanum og er sannarlega nauðsynlegt fyrir heilbrigða starfsemi hans. Magnesíum tekur þátt í yfir 300 lífefna- og lífeðlisfræðilegum ferlum í líkama okkar og er ómissandi fyrir jafnvægi og vellíðan. Magnesíum stuðlar meðal annars að eðlilegri starfsemi taugakerfisins, vöðvastarfsemi og próteinmyndunar, auk viðhaldi beina og tanna. Magnesíum er jafnframt nauðsynlegt steinefni fyrir hjarta- og æðakerfi, alla orkuvinnslu í líkamanum og blóðsykursjafnvægi.
Magnesíum getur haft mikil áhrif á almenna heilsu og vellíðan
Magnesíum gegnir lykilhlutverki í að viðhalda almennu heilbrigði og efla okkur andlega sem og líkamlega. Magnesíumskortur getur sýnt sig í ýmsum kvillum svo sem óeðlilegum hjartslætti, skjálfta eða krampa. Önnur merki geta
einnig komið fram í gegnum miðtaugakerfið, þar sem það tengist meðal annars svefnleysi eða eirðarleysi.
að betri svefni og minni streitu
Þegar magnesíum er í hæfilegu magni í líkamanum getur það meðal annars hjálpað til við að létta á spennu, bæta svefn og stuðlað að betri andlegri vellíðan. Magnesíum hefur róandi áhrif á taugakerfið, sem getur dregið úr streitu og stuðlað að slökun. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir svefninn, en með því að hjálpa líkamanum með slökun getur magnesíum bætt bæði gæði svefns og dregið úr svefntruflunum. Magnesíum hefur einnig mikilvæg áhrif á vöðvaslökun, sem getur m.a. minnkað líkur á vöðvakrömpum og fótapirring.
Að bæta magnesíum við mataræðið, hvort sem er með magnesíumríku fæði eða í formi bætiefna, getur haft gríðarlega jákvæð áhrif á líkamlega og andlega heilsu. ■
Magnesíum fyrir dýpri svefn
Magnesíum Citrate frá New Nordic styður við heilbrigða meltingu með því að hafa losandi
áhrif á ristil og getur því reynst þeim vel sem þurfa að koma á hreyfingu í þarmana.
Það er einnig þekkt fyrir að hafa góð áhrif á sinadrætti og fótapirring.
Magnesíum Glycinate frá New Nordic er sérlega gagnlegt til að styðja við heilbrigt svefnmynstur vegna amínósýrunnar glýsín sem stuðlar að betri svefni. Auk þess hefur
Magnesíum Glycinate slakandi áhrif á taugakerfið og getur stuðlað að léttu skapi og betri andlegri heilsu.
Magnesíum Malate frá New Nordic er sérstaklega þekkt fyrir að hafa jákvæð áhrif á orkuvinnslu líkamans, vöðvaþreytu og að styðja við heilbrigði beina. Magnesíum Malate stuðlar sérstaklega að því að draga úr þreytu og lúa og bæta almennt orkuna.
FYRIR SLÖKUN
FYRIR MELTINGU
FYRIR ORKU
Í upphafi árs dynja á okkur alls kyns upplýsingar um hvernig bæta megi heilsuna, hvort sem það snýst um hreyfingu, mataræði eða aðrar leiðir til að efla vellíðan. En hvernig greinum við hvað er satt og gagnlegt? Í stað þess að elta skammvinnar tískubylgjur ættum við að spyrja: Hvernig getum við gert varanlegar breytingar sem endast?
Lykillinn er gagnrýnin hugsun og færni í heilsulæsi. Ef eitthvað hljómar of gott til að vera satt, er það oftast þannig. Með því að taka meðvitaðar ákvarðanir, byggðar á innsæi og
hlustun á eigin líkama, leggjum við grunn að varanlegri vellíðan.
Við höfum vald til að hefja breytingar strax í dag. Hér eru fimm einföld ráð fyrir fyrstu skrefin.
Töfralausnir og skyndilausnir skila sjaldan árangri. Taktu eitt skref í einu og breyttu smám saman til að ná varanlegum árangri. Byrjaðu á svefnrútínu með því að fara að sofa á sama tíma á hverju kvöldi. Góður svefn auðveldar allt annað.
Bættu hreyfingu inn smátt og smátt, til dæmis með stuttum göngutúrum sem þú lengir og fjölgar smám saman. Veldu hreyfingu sem þér finnst skemmtileg og skipulegðu hana inn í daginn. Ef erfitt er að byrja, prófaðu félagsskap eða námskeið.
Þegar svefn og hreyfing eru orðin hluti af rútínunni er auðveldara að einbeita sér að mataræði og öðrum jákvæðum breytingum.
2. Leggðu daglega inn í heilsubankann
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin skilgreinir heilsu sem líkamlega, andlega og félagslega vellíðan, ekki bara fjarveru sjúkdóma. Þótt margt í lífinu sé utan okkar stjórnunar, getum við haft áhrif á mataræði, hreyfingu, svefnrútínu, félagslega samveru og skipulag.
Með því að leggja reglulega inn í "heilsubankann" með hollum venjum og þolinmæði byggjum við upp varasjóð fyrir veikindi eða áföll, svipað og fjárhagslegan sparnað, en fyrir heilsuna.
Líkamleg, andleg og félagsleg
næring daglega tryggir góða innistæðu. Stöðugleiki, frekar en skammtímalausnir, er lykillinn að árangri. Gott að leita til fagaðila í upphafi vegferðar.
Daglegar venjur eru grunnurinn. Með stöðugum innlögnum í heilsubankann höfum við svigrúm til að fara stundum út af sporinu án þess að missa jafnvægið.
3. Fækkaðu blóðsykursveiflum
Í upplýsingaóreiðu nútímans keppa alls kyns mataræði og aðrar ráðleggingar um athygli okkar. Í stað þess að villast í upplýsingaóreiðu ættum við að einblína á grunnatriðin: næringarríkt mataræði sem styður stöðuga orku og heilsu. Með góðu mataræði getum við haft mikil áhrif á líðan og forðast heilsufarsvandamál.
Blóðsykur hækkar við neyslu kolvetna, sérstaklega einfaldra eins og sælgætis og gosdrykkja, sem getur valdið sveiflum, orkuleysi og pirringi. Með því að draga úr þessum sveiflum má bæta orku og líðan.
Morgunverður, sem „brýtur“ föstu næturinnar, hefur áhrif á daginn fram undan. Með því að bæta próteini, fitu eða trefjum við kolvetnin í morgunmatnum, þar sem við „klæðum kolvetnin í kápu“ getum við minnkað blóðsykursveiflur. Dæmi er að smyrja hnetusmjöri á banana eða bæta hnetum og fræjum út á hafragraut. Þannig hægist á upptöku glúkósa og blóðsykursveiflur verða minni.
Langvarandi blóðsykursveiflur geta leitt til þyngdaraukningar, sykursýki 2 og hjarta- og æðasjúkdóma. Með reglulegum venjum sem minnka þessar sveiflur tökum við stór skref í átt að bættri heilsu.
Félagsleg heilsa er jafn mikilvæg og andleg og líkamleg heilsa. Ef einn þáttur þessara þriggja er vanræktur skapast ójafnvægi, líkt og kollur með þrjá fætur, ef einn fóturinn brotnar, dettur kollurinn. Þessir þrír máttarstólpar heilsunnar styðja hver annan og öll vellíðan byggist á jafnvægi þeirra.
Oft leggjum við meiri áherslu á líkamlega og andlega heilsu á kostnað félagslegrar heilsu. Við forðumst til dæmis að mæta í boð vegna óhollra veitinga eða svefnrútínu. Hins vegar er mikilvægt að forgangsraða félagslegri þátttöku, því hún hefur bein áhrif á almenna vellíðan og jafnvægi heilsunnar.
5. Minnkaðu streitu
Streita er algeng orsök heilsufarsvandamála og tengist oft vinnuálagi og daglegu stressi. Að draga úr streituvöldum er grundvallaratriði fyrir góða heilsu.
Leiðir til að minnka streitu eru regluleg hreyfing, nægur svefn, slökun, hugleiðsla, félagsleg tengsl og að forðast að taka of mikið að sér. Mikilvægt er að setja mörk og sýna sjálfum sér þolinmæði og mildi þegar unnið er að breytingum.
Hollt mataræði er ekki aðeins fyrir útlitið heldur stuðlar það að heilbrigðu sambandi milli líkama og huga. Með því að halda blóðsykri stöðugum, forðast upplýsingaóreiðu og finna jafnvægi leggjum við grunninn að betri líðan.
Taktu lítil, markviss skref og hlustaðu á líkamann. Þú hefur vald til að móta eigin heilsu og berð ábyrgð á sjálfum
þér. Vertu jáhrifavaldur í eigin lífi og góð fyrirmynd fyrir aðra.
Greinina skrifaði Erla Guðmundsdóttir, betur þekkt sem HeilsuErla. Erla er þriggja barna móðir, íþróttafræðingur, heilsumarkþjálfi og kennari við Menntaskólann við Hamrahlíð. Hún hefur rekið Ungbarnasund Erlu í Hafnarfirði í 18 ár og stuðlað að tengslum og vellíðan fjölskyldna í gegnum sundkennslu. Auk þess heldur hún úti vinsæla hlaðvarpinu „Með lífið í lúkunum“, þar sem hún deilir fræðslu og innblæstri um heildræna heilsu og vellíðan. ■
Hér koma 10 ráð HeilsuErlu til að næra sig vel
1. Byrjum daginn vel
2. Borðum mat, ekki matarlíki
3. Veljum hollari kostinn
4. Sköpum góðar venjur
5. Aukum grænmetisneyslu
6. Minnkum sykurneyslu
7. Veljum lítið unna fæðu
8. Borðum okkur södd og minnkum nart
9. Hugum að þarmaflórunni
10. Stjórnum blóðsykri
Ágúst Ingi Davíðsson, landsliðsmaður Íslands í fimleikum og keppandi fyrir Gerplu, hefur nýtt vörur frá Natures
Aid til að styrkja líkamann og styðja við endurheimt líkamans með frábærum árangri.
Ágúst Ingi hefur unnið sér inn athygli fyrir frábæran árangur á keppnisvellinum. Meðal helstu afreka hans á árinu 2024 eru Íslandsmeistaratitill á gólfi, fjórða sæti á gólfi og fimmta sæti á tvíslá á heimsmeistaramótinu, brons í liðakeppni á Norðurlandamótinu og níunda sæti í Norður-Evrópu. Markmið Ágústs er skýrt – að ná hæstu hæðum í fimleikum. Stóra drauminn ætlar hann að láta rætast með þátttöku á Ólympíuleikunum 2028.
Sem afreksíþróttamaður tekst Ágúst
Ingi daglega á við mikla líkamlega áreynslu og leggur ríka áherslu á endurheimt eftir æfingar. Til að hraða endurheimt líkamans hefur hann notað vörurnar Beetroot og Glucosamine frá Natures Aid og finnur augljósan mun.
„Ég finn fyrir hraðari endurheimt í líkamanum en áður,“ segir Ágúst.
„Auk þess er ég með meiri liðleika í úlnliðum, olnbogum og öxlum.
Sem fimleikamaður verð ég fyrir
miklu líkamlegu álagi og það er lykilatriði fyrir mig að huga vel að endurheimtinni. Hröð endurheimt gerir mér kleift að viðhalda því æfingaálagi sem ég vil hafa.“
Náttúrulegur stuðningur fyrir liðheilsuna
Glúkósamín- og kondrótín formúlan frá Natures Aid er sérhönnuð til að styðja við liðheilsu og draga úr óþægindum í liðum. Glúkósamín, sem
er náttúrulegt efni í líkamanum, gegnir lykilhlutverki í viðgerð og viðhaldi liða. Viðbót glúkósamíns í formi bætiefna getur aukið framboð þess og eflt viðgerðarhæfni líkamans.
Formúlan sameinar glúkósamín og kondrótín súlfat, sem er mikilvægt byggingarefni brjósks og saman geta þessi efni haft jákvæð áhrif á heilsu liðanna. Að auki inniheldur formúlan engifer og túrmerik, sem eru
hátt. Þær eru sneisafullar af A-, B6og C-vítamínum, ásamt fólínsýru, kalíum, magnesíum og trefjum. Auk þess innihalda rauðrófur öflug andoxunarefni sem geta stuðlað að betri endurheimt líkamans og áhuginn á notkun þeirra sem bætiefni hefur aukist jafnt og þétt. Rauðrófur eru þekktar fyrir að bæta súrefnisupptöku og auka blóðflæði, sem getur haft jákvæð áhrif á snerpu,