Bíó Paradís Dagskrárblað jan.-feb. 2012

Page 1

Rebecca Hall í The Awakening Sýnd í febrúar

DAGSKRÁ

JANÚAR/FEBRÚAR 2012 B Í Ó PA R A D Í S E R A Ð I L I A Ð E U R O PA C I N E M A S


2 BÍÓ PARADÍS

Gaman í myrkrinu

EFNI: NÝJAR MYNDIR:

Við óskum öllum kvikmyndaunnendum gleðilegs nýs árs og þökkum fyrir móttökurnar á nýliðnu ári. Okkur hlakkar til að sjá ykkur á því spennandi bíóári sem er að hefjast. Það er rífandi gangur í Bíó Paradís og sem dæmi um það má nefna að aðsóknin hefur aukist um þriðjung á haustmánuðum miðað við sama tímabil í fyrra þegar við hófum starfsemi. Nýr framkvæmdastjóri, Hrönn Sveinsdóttir (sem m.a. gerði Edduverðlaunamyndina Í skóm drekans) hefur tekið til starfa. Við bjóðum hana hjartanlega velkomna um leið og við óskum fráfarandi framkvæmdastjóra, Lovísu Óladóttur, velfarnaðar í nýju starfi. Nýjar myndir í janúar og febrúar koma frá Danmörku, Frakklandi, Írlandi, Bretlandi og Íslandi, auk Grænlands! Þar á bæ er hafin framleiðsla kvikmynda og við sýnum aðra bíómyndina sem þaðan hefur komið, hörku spennumynd með hrollvekjuívafi sem slegið hefur í gegn í heimalandinu. Sérstök athygli er vakin á hátíðarsýningu á kvikmyndinni Benjamín dúfa, sem haldin er í minningu tónskálds myndarinnar, Ólafs Gauks, en hann lést í fyrra. Þá eru og hafnar reglulegar sýningar á perlum kvikmyndanna fyrir börn og unglinga.

SUBMARINE .................................3 THE GUARD ...................................3 QUQQAT ALANNGUI ......................4 ALLE FOR ÉN ................................4 ÉG ER EKKI SVO FALLEGT LANDSLAG ................................... 5 THE AWAKENING ...........................5 PARIS ...........................................6 A DANGEROUS METHOD .............6

VIÐBURÐIR: BÍÓBRJÁLÆÐI-KATRINA DEL MAR .7 LJÓSVAKALJÓÐ ............ ...............8 BENJAMÍN DÚFA - Í MINNINGU ÓLAFS GAUKS ..............................9 SKÓLASÝNINGAR ........................10 KVIKMYNDIR TILNEFNDAR TIL EDDUVERÐLAUNA .......................11

FASTIR LIÐIR: SÝNINGALISTI .............................11

Vertu fastagestur! Allt að 35% afsláttur með aðgangskortum.

Góðar stundir í Bíó Paradís!

Bíó Paradís er rekið af sjálfseignarstofnuninni Heimili kvikmyndanna ses. Stjórn: Ari Kristinsson, form., Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Ragnar Bragason, Lovísa Óladóttir. Aðsetur: Hverfisgata 54,101 Reykjavík. Sími: 412 7712. Vefur: www.bioparadis.is. Framkvæmdastjóri: Hrönn Sveinsdóttir hronn@bioparadis.is. Dagskrárstjóri: Ásgrímur Sverrisson asgrimur@bioparadis.is. Rekstrarstjóri: Guðmundur Lúðvíksson mummi@bioparadis.is. Dagskrárráð: Anna María Karlsdóttir, Friðrik Þór Friðriksson, Halla Kristín Einarsdóttir, Ottó Geir Borg, Vera Sölvadóttir. Miðasala: Opnar hálftíma fyrir fyrstu sýningu. Sími: 412 7711. Miða er einnig hægt að kaupa á midi.is. Margskonar afsláttarkjör eru í boði á bioparadis.is/adgangskort. Kaffihús/bar: Opnar hálftíma fyrir fyrstu sýningu. Kaffi, léttvín, bjór, léttar veitingar. Einnig er úrval mynddiska til sölu. Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar. Sýningatíma dagsins og vikunnar má sjá á forsíðu vefsins: www.bioparadis.is. Bíó Paradís er rekið með stuðningi Reykjavíkurborgar og Kvikmyndamiðstöðvar Íslands. Meðlimur í Europa Cinemas.


NÝJAR MYNDIR

3

NÝJAR MYNDIR:

Submarine er fyrsta mynd breska leikstjórans Richard Ayoade og hefur fengið afbragðs viðtökur víða um heim.

SUBMARINE (KAFBÁTUR) BRETLAND/2010 GAMANMYND. 97 MIN. LEIKSTJÓRI: RICHARD AYOADE. AÐALHLUTVERK: CRAIG ROBERTS, YASMIN PAIGE, SALLY HAWKINS, NOAH TAYLOR, PADDY CONSIDINE. ÍSLENSKUR TEXTI.

Hinn 15 ára gamli Oliver Tate á sér tvö markmið: að missa sveindóminn fyrir næsta afmælisdag og rústa sambandi móður sinnar við elskhuga sinn. Myndin hefur fengið frábæra dóma og er með stigagjöf uppá 87% á Rotten Tomatoes. Roger Ebert skrifar: "Þetta er ekki froðukennd unglingamynd heldur skemmtilega stílfærð frásögn án þess að reyna of mikið. Sem fyrsta mynd Ayoade lýsir hún miklu sjálfstrausti. Craig Roberts og Yasmin Paige eru afar aðlaðandi í hlutverkum sínum, við finnum til sterkrar samkenndar með þeim og gerum okkur um leið grein fyrir að alltof margar unglingamyndir eru gerðar á forsendum þeirra sem miklu eldri eru." SÝND FRÁ:

20. JANÚAR 2012

THE GUARD (LAGANNA VÖRÐUR) ÍRLAND/2011 GAMANMYND. 96 MIN. LEIKSTJÓRI: JOHN MICHAEL MCDONAGH. AÐALHLUTVERK: BRENDAN GLEESON, DON CHEADLE OG MARK STRONG. ÍSLENSKUR TEXTI.

Gerry Boyle er laganna vörður í írskum smábæ. Hann er ögrandi og háðskur, hallar sér að vændiskonum og á móður sem liggur fyrir dauðanum. Þegar hinn ferkantaði Wendell Everett, útsendari Bandarísku alríkislögreglunnar, leitar hjálpar hans til að uppræta alþjóðlegan eiturlyfjasmyglhring, gæti Boyle ekki staðið meira á sama. Þessi húrrandi írska gamanmynd hefur fengið frábærar viðtökur og var tilnefnd til Golden Globe verðlauna. SÝND FRÁ:

27. JANÚAR 2012


4 NÝJAR MYNDIR

Skuggarnir í fjöllunum hefur algerlega slegið í gegn á Grænlandi, þar sem yfir 18.000 manns hafa séð hana af um 50.000 íbúum.

QAQQAT ALANNGUI (SKUGGARNIR Í FJÖLLUNUM) GRÆNLAND 2011 SPENNUMYND. 127 MIN. LEIKSTJÓRI: MALIK KLEIST. AÐALHLUTVERK: UJARNEQ FLEISCHER, EQALUK HØEGH OG JEFF JOENSEN. KVIKMYNDATAKA: FREYR LÍNDAL SÆVARSSON. ENSKUR TEXTI.

Hópur grænlenskra ungmenna fer í frí í skála fjarri mannabyggðum. Brátt verða þau þess áskynja að þau eru ekki ein og hefst þá barátta upp á líf og dauða. Þær eru teljandi á fingrum annarrar handar, bíómyndirnar sem Grænlendingar hafa gert sjálfir, þessi er önnur í röðinni. Hún hefur slegið í gegn í heimalandinu þar sem yfir 18.000 manns hafa séð hana af um 50.000 íbúum. Þessi hressandi og hrollvekjandi spennumynd var mynduð af íslenska tökumanninum Frey Líndal Sævarssyni. SÝND FRÁ:

27. JANÚAR 2012

Allir fyrir einn var ein af vinsælustu myndum Dana á síðasta ári.

ALLE FOR ÉN (ALLIR FYRIR EINN) DANMÖRK/2011 GAMANMYND. 81 MIN. LEIKSTJÓRI: RASMUS HEIDE AÐALHLUTVERK: JON LANGE, JONATAN SPANG, RASMUS BJERG, MICK ØGENDAHL OG RUTGER HAUER. ÍSLENSKUR TEXTI.

Fjórir pörupiltar og æskuvinir standa frammi fyrir vandamáli; þeir eru beggja vegna laga og réttar. Martin er lögreglumaður en Nikolai, Ralf og Timo bera litla virðingu fyrir eignarréttinum. Þegar þeir félagar lenda í óvæntu klandri neyðast þeir til að snúa bökum saman gegn sameiginlegum óvini, herra Niemeyer (sem leikinn er af engum öðrum en Rutger Hauer). Ein allra vinsælasta myndin í Danmörku á síðasta ári! SÝND FRÁ:

3. FEBRÚAR 2012


NÝJAR MYNDIR

5

Þetta er fyrsta heimildamynd Ítalans Emiliano Monaco sem búsettur hefur verið á Íslandi í nokkur ár.

THE AWAKENING

ÉG ER EKKI SVO FALLEGT LANDSLAG

SPENNUMYND. 107 MIN. LEIKSTJÓRI: NICK MURPHY. AÐALHLUTVERK: REBECCA HALL, DOMINIC WEST OG IMELDA STAUNTON. ÍSLENSKUR TEXTI.

ÍSLAND/2011 HEIMILDAMYND. 63 MIN. STJÓRNANDI: EMILIANO MONACO.

Sigfús og Hjalti hafa verið nánir vinir í áratugi. Í fimmtíu ár sóttu þeir saman sjóinn og nú þegar þeir eru komnir á eftirlaun, halda þeir áfram þeirri iðju sinni. Þrátt fyrir að nú sé fiskeríið tómstundagaman bera þeir sig eins að, nota sömu handbrögðin og byggja á sömu einbeitingunni. Hvað fær þá til að halda áfram að fiska, færa aflann heim og gera að honum dögum saman? Þetta er fyrsta langa heimildarmynd Ítalans Emiliano Monaco, sem búið hefur á Íslandi um árabil og meðal annars sinnt kennslu í kvikmyndafræðum við Háskóla Íslands. Hann hefur unnið að þessari mynd undanfarin sex ár. SÝND FRÁ:

3. FEBRÚAR 2012

(HIN HORFNU) BRETLAND/2011

1921. England er í sárum eftir ólýsanlegar hörmungar fyrri heimsstyrjaldarinnar. Vísindakonan Florence Cathcart, sem sérhæfir sig í að feykja burt hindurvitnum og bábiljum, er fengin til að varpa ljósi á meintan draugagang í heimavistarskóla. En þegar "hin horfnu" taka að sýna sig byrjar allt sem hún trúir á að molna niður... Mögnuð spennumynd sem vakið hefur gríðarlega athygli að undanförnu. Rebecca Hall var tilnefnd sem besta leikkonan á British Independent Film Awards nýlega og Nick Murphy var tilnefndur sem besti byrjandinn á kvikmyndahátíðinni í London í nóvember s.l., en þetta er fyrsta mynd hans í fullri lengd. SÝND FRÁ:

10. FEBRÚAR 2012


6 NÝJAR MYNDIR

A DANGEROUS METHOD (SÁLARHÁSKI) BRETLAND/ÞÝSKALAND/ KANADA/2011

PARIS (PARÍS) FRAKKLAND/2008 GAMANDRAMA. 90 MIN. LEIKSTJÓRI: BENT HAMER. AÐALHLUTVERK: NINA ANDRESEN BORUD, TROND FAUSA AURVAGG, ARIANIT BERISHA. ÍSLENSKUR TEXTI.

Pierre er dansari sem á við alvarlegan hjartasjúkdóm að stríða. Meðan hann bíður eftir hjartaígræðslu (sem gæti hugsanlega bjargað lífi hans) getur hann ekki hugsað sér neitt þarfara að gera en að fylgjast með fólkinu í nágrenninu af svölum sínum. Elise systir hans, flytur til hans ásamt þremur börnum sínum til að sjá um hann. Hún reynir að fá hann til að láta af þessari iðju en fyrir Pierre opnast nýr heimur með því að fylgjast með samferðafólki sínu. Frábært rómantískt gamandrama þar sem París glitrar og glóir. Myndin var sýnd í Bíó Paradís einu sinni í haust en fer nú í almennar sýningar í kjölfar fjölda áskorana. SÝND FRÁ:

17. FEBRÚAR 2012

DRAMA. 118 MIN. LEIKSTJÓRI: DAVID CRONENBERG. AÐALHLUTVERK: MICHAEL FASSBENDER, KEIRA KNIGHTLEY OG VIGGO MORTENSEN. ÍSLENSKUR TEXTI.

Myndin gerist í Vín og Zurich við upphaf fyrri heimstyrjaldar og er innblásin af sönnum atburðum. Upprennandi sálfræðingur, Carl Jung, á í stormasömu sambandi við lærimeistara sinn Sigmund Freud. Deilur þeirra hverfast um gullfallega en sinnisveika konu, Sabinu Spielrein. Í skugga metnaðar og blekkinga lýstur þeim saman en útkoman mun hafa gríðarleg áhrif á nútímann. Þetta er þriðja myndin sem Cronenberg gerir með Viggo Mortensen á skömmum tíma. Hún hefur þegar fengið ýmis verðlaun og tilnefningar. SÝND FRÁ:

23. FEBRÚAR 2012


VIÐBURÐIR

7

VIÐBURÐIR: afar litla peninga en einkennast af ástríðu og krafti, þetta eru nútíma ævintýri með skvettu af ljótum raunveruleika sem glóir eins og gimsteinn í kórónu hreinnar fantasíu. GANG GIRLS 2000 25:20 Stelpugengismyndin sem olli straumhvörfum! Fjórar dúndurgellur þeysa um á mótórhjólum á Lower East Side í New York og á strönd Coney Island. Film Threat kallaði þetta "snilldarmynd" og gaf henni fjóra og hálfa stjörnu.

Bíóbrjálæði: grjótharðar gellur Katrinu Del Mar 25. janúar kl. 20 Bandaríska költ-leikstýran Katrina Del Mar sýnir þrjár mynda sinna og svarar spurningum gesta á eftir. Katrina Del Mar hefur verið kölluð óskilgetið afkvæmi Russ Meyer (með viðkomu í Larry Clark) fyrir fyndnar, fjörugar og grófar myndir sínar um eldhressar lesbíur sem tæta og trylla á mótórhjólum og rétta manni og öðrum einn á lúðurinn ef því er að skipta. Myndirnar eru gerðar fyrir

SURF GANG 25 min. Ungar systur neyðast til að sjá um sig sjálfar. Önnur hverfur í hafið en hin stofnar stelpugengi í New York. Gengið þarf að kljást við illskeyttan mafíósa og verja sig með öllum tiltækum ráðum, milli þess sem þær sörfa í sjónum. Hlaut verðlaun sem besta tilraunamyndin á Planet Out Short Movie Awards. HELL ON WHEELS; GANG GIRLS FOREVER!! 35 min. Stelpugengismyndin sem lokar költmyndaþríleiknum! Katrina Del Mar ræðir Allir eru á við bíógesti. hjólum hvert sem litið er; lesblindir mótórhjólatöffarar, heimilislaust hjólabrettalið, skellinöðrugengi í veðmálum eða ökuþórar á ofur-köggum! Allir eru stjörnur og rokkið dunar.


8 VIÐBURÐ VIÐBURÐIR ÐIR I

Ljósvakaljóð 28. janúar frá kl. 13 Stuttmyndahátíð fyrir kvikmyndagerðarmenn á aldrinum 15- 25 ára. Samstarfsaðilar hátíðarinnar eru Zik Zak kvikmyndir, Bíó Paradís og Reykjavíkurborg. Aðgangur er ókeypis. sinni í tveimur flokkum: 15-20 ára og 21-25 ára. Þá verða einnig veitt 20.000 kr. peningaverðlaun ásamt fleiri vinningum fyrir besta innsenda og óframleidda stuttmyndahandritið. Í dómnefnd stuttmynda eru: Reynir Lyngdal leikstjóri (Okkar eigin Osló, Hamarinn, Frost (í tökum)). Harpa Þórsdóttir framleiðandi (Vaktarseríurnar, Bjarnfreðarson, Heimsendir). Hilmar Guðjónsson leikari (Á annan veg, Bjarnfreðarson). Hrafnhildur Gunnarsdóttir formaður Félags kvikmyndagerðarmanna. Í dómnefnd handrita eru:

Hin árlega stuttmyndahátíð ungra kvikmyndagerðarmanna fer fram í sjötta skiptið laugardaginn 28. janúar. Dagskráin hefst kl. 13:00 með málþingi með þekktum aðila úr kvikmyndabransanum sem kynnt verður síðar. Kl. 16:00 hefst stuttmyndakeppnin. Valdar verða 6-10 stuttmyndir úr innsendum myndum til að keppa um aðalverðlaunin, 50.000 kr. peningaverðlaun, en keppt verður að þessu

Hafsteinn G. Sigurðsson handritshöfundur og leikstjóri (Skröltormar Á annan veg) Margrét Örnólfsdóttir handritshöfundur (Réttur, Svartir englar, Pressa).

Nánar um dagskrá, reglur og fyrirkomulag má finna á www.ljosvakaljod.is.


VIÐBURÐIR

9

Benjamín dúfa: í minningu Ólafs Gauks 12. febrúar kl. 20 Sérstök hátíðarsýning á þessari einstöku kvikmynd í minningu Ólafs Gauks Þórhallssonar, tónskálds myndarinnar. Helstu aðstandendur myndarinnar verða viðstaddir sýninguna. Gísli Snær Erlingsson leikstjóri, sem nú starfar í Singapore, minnist Ólafs Gauks og samstarfs þeirra (sýnt af myndbandi).

Ólafur Gaukur.

Þessi frábæra kvikmynd, sem hefur unnið til fjölmargra alþjóðlegra verðlauna, er byggð á skáldsögu Friðriks Erlingssonar og telst ein af helstu perlum íslenskrar kvikmyndasögu. Myndin segir frá fjórum vinum og viðburðaríku sumri í lífi þeirra. Regla rauða drekans er stofnuð og þeir Róland dreki, Andrés örn, Baldur hvíti og Benjamín dúfa hafa nóg fyrir stafni í baráttu sinni gegn ranglæti. Lífið virðist vera óslitið ævintýri, en það koma brestir í vináttuna, ævintýrið breytir um svip og kaldur raunveruleikinn ryðst inn í líf félaganna.

DRAMA, 1995. 91 MÍN. LEIKSTJÓRI: GÍSLI SNÆR ERLINGSSON. HANDRIT: FRIÐRIK ERLINGSSON. FRAMLEIÐANDI: BALDUR HRAFNKELL JÓNSSON. KVIKMYNDATAKA: SIGURÐUR SVERRIR PÁLSSON. LEIKMYND: KARL ASPELUND. TÓNLIST: ÓLAFUR GAUKUR ÞÓRHALLSON. AÐALHLUTVERK: STURLA SIGHVATSSON, GUNNAR ATLI CAUTHERY, HJÖRLEIFUR BJÖRNSSON, SIGFÚS STURLUSON.

Ólafur Gaukur Þórhallsson (1930-2011) var einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar. Hann lauk prófi í tónsmíðum og kvikmyndatónlist frá Grove School of Music í Los Angeles á níunda áratug síðustu aldar, þar sem hann stúderaði meðal annars með meisturum á borð við Lalo Schifrin (Mission Impossible stefið, Bullit, Dirty Harry). Tónlistin við Benjamín dúfu er fyrsta verk Ólafs Gauks á því sviði, áhrifamikið og blæbrigðaríkt verk sem meðal annars kinkar kolli til eins helsta snillings kvikmyndatónlistar, Georges Delerue (myndir Francois Truffaut, Jean-Luc Godard ofl.).


10 VIÐBURÐIR

Skólasýningar fyrir börn og unglinga Febrúar-mars Sýningar fyrir börn og unglinga á ýmsum af perlum kvikmyndanna fara fram í febrúar og mars undir stjórn Oddnýjar Sen kvikmyndafræðings. Kvikmyndafræðsla fyrir börn og unglinga fer fram á hverjum fimmtudegi frá 9. febrúar og stendur í sex vikur. Sýningar fyrir börn eru klukkan 10:30 og sýningar fyrir unglinga klukkan 13:00. Verkefnisstjóri er Oddný Sen, kvikmyndafræðingur. Tilgangurinn með sýningunum er kvikmyndafræðsla fyrir börn og unglinga í grunnskólum landsins. Börn og unglCharles Chaplin í Modern Times (Nútímanum). ingar fá möguleika á að kynnast kvikmyndum sem hafa alþjóðlega gæðastimpla, eru ýmist klassískar perlur frá öllum skeiðum kvikmyndasögunnar og/eða eru lykil kvikmyndir sem hafa skapað sér sess innan kvikmyndasögunnar. Þannig verða sýndar myndir frá Bandaríkjunum, Evrópu, Norðurlöndum, Austurlöndum, Íslandi og öllum heimsins hornum. Á undan hverri sýningu er haldinn fyrirlestur til að auðvelda áhorfendum að greina kvikmyndina ásamt hugmyndum að ritgerðum og umsögnum barnanna um kvikmyndirnar. Leitast verður við að skoða margvísleg temu eins og unglingsárin, tengsl nútíma kvikmynda við kvikmyndasöguna, úrvinnslu tilfinninga, félagsleg tengsl, samfélagsleg tengsl, einelti, listsköpun, sjónarhorn og uppsetningu svo fátt eitt sé nefnt.

MYNDIRNAR ERU: FYRIR BÖRN: THE CIRCUS (CHARLES CHAPLIN, 1928) E. T. (STEVEN SPIELBERG, 1982) TOY STORY 3 (LEE UNKRICH, 2010) WIZARD OF OZ (VICTOR FLEMING, 1939) MODERN TIMES (CHARLES CHAPLIN, 1936) CITY LIGHTS (CHARLES CHAPLIN, 1931) VALIN BROT ÚR ÍSLENSKUM KVIKMYNDUM. FYRIR UNGLINGA: HÆVNEN (SUSANNE BIER, 2010) JAWS (STEVEN SPIELBERG, 1975) SMULTRANSTALLET (INGMAR BERGMAN, 1957) REMEMBER ME (ALLEN COULTER, 2010) THE PIANO (JANE CAMPION, 1993) BABEL (ALEJANDRO GONZÀLES INÀRRITU, 2006) VALIN BROT ÚR ÍSLENSKUM KVIKMYNDUM.


SÝNINGARSKRÁ

11

ÍSÝNINGALISTI BRENNIDEPLI / IM FOKUS / IN FOCUS: LISTI Í TÍMARÖÐ YFIR ÞÆR MYNDIR SEM SÝNDAR ERU Í JANÚAR OG FEBRÚAR 2012. BIRT MEÐ FYRIRVARA UM BREYTINGAR. SÝNINGARTÍMA DAGSINS OG DAGSKRÁNA FRAMUNDAN MÁ SJÁ Á BIOPARADIS.IS.

KVIKMYND

DAGSKRÁ

SÝND

Submarine

Nýjar myndir

Frá 20. janúar

Bíóbrjálæði (Katrina Del Mar)

Viðburður

25. janúar

The Guard

Nýjar myndir

Frá 27. janúar

Qaqqat Alanngui (Skuggarnir í fjöllunum)

Nýjar myndir

Frá 27. janúar

Ljósvakaljóð (stuttmyndahátíð ungs fólks)

Viðburður

28. janúar

Alle for én

Nýjar myndir

Frá 3. febrúar

Ég er ekki svo fallegt landslag

Nýjar myndir

Frá 3. febrúar

Skólasýningar fyrir börn og unglinga

Viðburður

Frá 9. febrúar

The Awakening

Nýjar myndir

Frá 10. febrúar

Kvikmyndir tilnefndar til Edduverðlauna

Viðburður

10.-16. febrúar

Benjamín dúfa: í minningu Ólafs Gauks

Viðburður

12. febrúar

Paris

Nýjar myndir

Frá 17. febrúar

A Dangerous Method

Nýjar myndir

Frá 24. febrúar

Kvikmyndir tilnefndar til Edduverðlauna 2012 10.-16. febrúar Edduverðlaunin fara fram í þrettánda sinn laugardaginn 18. febrúar. Verðlaunaafhendingin verður í Gamla bíói líkt og í fyrra og mun Stöð 2 sjónvarpa beint og óruglað frá viðburðinum. Dagana 10.-16. febrúar mun Bíó Paradís sýna þær bíómyndir, heimildamyndir og stuttmyndir sem hljóta tilnefningu til Eddunnar í ár. Ekki er enn ljóst hvaða myndir þetta verða, en tilnefningar verða kynntar í byrjun febrúar. Sýningarnar eru haldnar í tengslum við kjör meðlima Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar (ÍKSA) á myndum ársins en allir eru velkomnir á þær. Venjulegt miðaverð gildir, en meðlimir ÍKSA fá frítt inn.


Bíóhneigð  Nýjar kvikmyndir  Klassískar kvikmyndir  Kvikmyndakúríósur  Kvikmyndahátíðir  Viðburðir  Fyrirlestrar  Skólasýningar  Bar/café


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.