BÍÓ:DOX hátíð 2012

Page 1


BÍÓ:DOX HÁTÍÐ Fimm frábærar heimildamyndir 9.-15. nóvember í Bíó Paradís

BÍÓ:DOX klúbburinn stendur fyrir heimildamyndahátíð í Bíó Paradís dagana 9.-15. nóvember í samvinnu við Græna ljósið og Myndform. Sýndar verða fimm sjóðheitar heimildamyndir sem vakið hafa mikla athygli að undanförnu. Þema BÍÓ:DOX hátíðarinnar er List en myndirnar á hátíðinni eiga það sameiginlegt að gefa okkur innsýn í líf listamanna og lista. MYND-LIST:

Wonder Women (Ofurkonur) 2012 | Lengd: 62 mín. | Land: Bandaríkin | Stjórn: Kristy Guevara-Flanagan. Um þróun og arfleifð hinnar stórkostlegu ofurhetju Wonder Woman, allt frá tilurð teiknimyndahetjunnar um 1940 til nútíma vinsælda hennar. Í myndinni er kannað hvernig birtingarmyndir kraftmikilla kvenna endurspegla hræðslu samfélagsins við aukin réttindi þeirra. Myndin kafar undir yfirborðið með Lyndu Carter, Lindsay Wagner, gamanhöfundum og listamönnum og einnig með raunverulegum kvenofurhetjum eins og Gloriu Steinem, Kathleen Hanna og fleirum, sem bjóða upp á upplýsandi og skemmtilega andstæðu við karllægan heim ofurhetja. GJÖRNINGA-LIST:

Marina Abramovic: The Artist is Present (Marina Abramovic: Listamaðurinn er við) 2012 | Lengd: 106 mín. | Land: Bandaríkin | Stjórn: Matthew Akers, Jeff Durpe | Fram koma: Marina Abramovic, Ulay, Klaus Biesenbach. Serbneska listakonan Marina Abramovic hefur verið kölluð „amma gjörningalistarinnar“. Myndin fylgir henni eftir


þar sem hún undirbýr yfirlitssýningu á verkum sínum á MoMA nýlistasafninu í New York. Marina gerir upp líf sitt og störf, jafnframt sem hún reynir að svara spurningu sem hún hefur verið spurð aftur og aftur í meira en fjörtíu ár: Er gjörningur list? KVIKMYNDA-LIST:

Woody Allen: A Documentary (Woody Allen: Heimildamynd) 2012 | Lengd: 113 mín. | Land: Bandaríkin | Stjórn: Robert B. Weide | Fram koma: Woody Allen, Letty Aronson, Marshall Brickman, Josh Brolin, Dick Cavett, Penélope Cruz, John Cusack, Larry David. Í þessari mynd leyfir goðsagnakennda persónan Woody Allen fólki að fylgjast með lífi sínu í fyrsta sinn í heimildamynd. Emmy-verðlaunahafinn Robert Weide fylgir meistaranum eftir í tæp tvö ár til að ná þessari einstöku ævisögu í kvikmynd. Í myndinni er fylgst með daglegu lífi Allen og samskiptum hans við leikara. Þá byggir myndin á viðtölum við leikara, fjölskyldu og vini Allen sem varpa ljósi á áhugaverða ævi snillingsins. MATARGERÐAR-LIST:

Jiro Dreams of Sushi 2011 | Lengd: 81 mín. | Land: Bandaríkin/Japan | Stjórn: David Gelb | Fram koma: Jiro Ono, Yoshikazu Ono. Jiro Ono er líklega besti sushi-kokkur í öllum heiminum. Jiro er 85 ára gamall en vinnur sleitulaust dag hvern frá sólarupprás til sólarlags að því að fullkomna sushigerðarlist sína. Veitingahúsið hans er hálffalið í neðanjarðarlestarstöð í Tokyo og tekur aðeins 10 manns í sæti en skartar þrátt fyrir það heilum 3 Michelin-stjörnum og fólk ferðast yfir heiminn þveran til að borða hjá Jiro. Áhorfandinn fær innsýn í ævistarf Jiros og flókið samband hans við son sinn og arftaka Yoshikazu, sem aldrei nær að blómstra í skugga föður síns. TÓN-LIST:

Searching for Sugar Man (Leitin að Rodriguez) 2012. | Lengd: 86 mínútur. | Land: Svíþjóð, Bretland. | Stjórn: Malik Bendjelloul. | Fram koma: Malik Bendjelloul, Sixto Rodriguez. Sixto Rodriguez var efnilegur tónlistarmaður frá Detroit sem tókst að heilla tvo plötuútgefendur upp úr skónum árið 1968. Þeir töldu sig hafa fundið nýjan Bob Dylan og gáfu út plötu hans, Cold Fact. Platan seldist hins vegar hörmulega og Rodriguez hvarf af sjónarsviðinu. Á meðan sögur gengu um versnandi geðheilsu Rodriguez, og um dramatískt sjálfsmorð, varð hann að óvæntri stórstjörnu hinum megin við Atlantshafið… í Suður-Afríku.


Í tilefni BÍÓ:DOX hátíðarinnar verður verslunin Iða með listabækur til sölu í Bíó Paradís helgina 9-11. nóvember en þema heimildamyndahátíðarinnar er List.

SÝNINGARTÍMAR: FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER

KL.

Jiro Dreams of Sushi

18:00

Searching for Sugar Man + opnunarpartí

20:00

Woody Allen: A Documentary

22:00

LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER

KL.

Woody Allen: A Documentary

18:00

Wonder Women

20:00

Searching for Sugar Man

22:00

SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER

KL.

Searching for Sugar Man

18:00

Marina Abramovich: The Artist is Present

20:00

Woody Allen: A Documentary

22:00

MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER

KL.

Jiro Dreams of Sushi

18:00

Searching for Sugar Man

20:00

Woody Allen: A Documentary

22:00

ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER

KL.

Woody Allen: A Documentary

18:00

Marina Abramovich: The Artist is Present

20:00

Searching for Sugar Man

22:00

MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER

KL.

Jiro Dreams of Sushi

18:00

Wonder Women

20:00

Marina Abramovich: The Artist is Present

22:00

FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER Wonder Women

KL. 18:00

Woody Allen: A Documentary

20:00

Jiro Dreams of Sushi

22:00


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.