4 minute read

Sjómannadagur 2022

Enn á ný er kominn Sjómannadagur. Sjómenn um land allt fagna og skemmta sér og sínum. Það sem upp úr stendur er sú staðreynd að enginn sjómaður hefur farist við störf sín fimm ár í röð frá árinu 2017. Öryggisvitund og öryggismenning til sjós kemur þar mjög við sögu. Með tilkomu Slysavarnaskóla sjómanna 1985, hefur grettistaki verið lyft í öryggismálum sjómanna. Þegar stefnan var sett á 0 dauðaslys til sjós voru nokkrar efasemdarraddir sem sögðu að það væri ekki hægt. Hilmar Snorrason skólastjóri Slysavarnaskólans blés á þessar raddir ásamt sjómannaforustunni. Það á að vera regla, ekki undantekning að sjómenn komi heilir heim af sjónum. Nú er sannað að þetta er hægt. Höldum áfram á sömu braut og útrýmum einnig slysum til sjós. Það gengur hægt og bítandi að fækka þeim. Betur má ef duga skal. Fyrrgreindur Hilmar hefur látið þess getið að hann hætti sem skólastjóri þegar slysin verða komin í núll. Þannig að ef menn vilja Hilmar á eftirlaun, er um að gera að útrýma slysunum.

Öryggishandbók

Nú eru mörg útgerðarfyrirtæki að taka í notkun öryggisstjórnunarkerfi sem byggir á að fræða sjómenn um öryggismál og hvetja til æfinga og skrá öll slys og næstum því slys. Öryggistrúnaðarmenn eru á mörgum skipum og öryggisstjórar hjá útgerðunum. Markmiðið með öryggishandbókinni er að allir vinni saman að einu markmiði, að allir komi heilir heim. Sumum finnst þetta mikið efni og óþægilegt að læra þetta allt. Með æfingunni verður þetta partur af daglegu rútínunni og öryggisvitundin og menningin verður greipt í huga sjómannanna. Ég skora á sjómenn að taka þessu fagnandi og nýta sér þær fræðsluleiðir sem eru í boði á hverjum tíma. T.d. er Rannsóknarnefnd samgönguslysa komin með nýtt skráningarkerfi slysa, Atvik. Þar geta sjómenn og útgerðir skráð slys og næstum því slys á netinu. Ég hvet sjómenn til að kynna sér Atvik og virkni þess.

Björgunarför Íslendinga

Því ber að fagna og hrósa sem vel gengur. Nú hafa tekist samningar um að endurnýja nánast allan björgunarskipakost Landsbjargar. Þarft verk og löngu tímabært. Þyrlumálin eru okkur til háborinnar skammar. Hér eru þrjár þyrlur. Samt kemur fyrir að engin þyrla er til taks eða áhöfn ekki til staðar. Hvað er í gangi kæru stjórnmálamenn? Ef slys verða til sjós utan við 20 sjómílur frá landi og ein þyrla er til taks fer hún ekki lengra en það. Mér hefur verið tjáð að tæpt hafi staðið með líf og limi sjómanna vegna þessa ástands. Nú þurfa stjórnvöld að girða sig í brók og veita nægu fé til LHG svo sómi sé að. Þetta ástand er algerlega óþolandi. Við sem þjóð treystum á sjávarútveginn sem okkar helstu stoð til að afla í þjóðarbúið en þegar kemur að mannslífum og heilsu sjómannanna okkar er kíkirinn settur fyrir blinda augað.

Kjaramálin

Nú hafa samningar sjómanna verið lausir frá 1. desember 2019. Lítið hefur þokast í samkomulagsátt þegar þetta er skrifað þrátt fyrir marga fundi. Tilboð kom frá útgerðinni í vor þar sem settar voru fram nýjar kröfur þannig að sjómenn myndu sjálfir greiða fyrir þær kjarabætur sem sjómenn fara fram á. Alltaf er slegið úr og í og ekkert gengur. Sjómenn hafa sammælst um 3,5% í tilgreinda séreign í lífeyrissjóði komi til sjómanna sem og annara launþega. Ef einhver atvinnugrein hefur efni á þessu er það útgerðin. Afkomutölurnar ljúga ekki. Aðrar kröfur okkar eru hófsamar og kosta útgerðina lítið sem ekkert. Minni á að úterðin hefur fengið afslátt af tryggingagjaldi eins og aðrir atvinnurekendur. Einnig hefur kauptrygging ekki hækkað síðan 1. maí 2019. Það telur líka í kassann hjá þeim. Við viljum breyta mælieiningu skipa úr brúttó rúmlestum í skráningarlengd í metrum. Sátt virtist vera komin á þau mál. Svo kom krafa um að færa allar skiptaprósentur niður þegar þetta yrði gert og þar með lækka laun sjómanna umtalsvert. Það virðist stefna í átök með haustinu ef ekki fer að ganga saman. Við fórum í gegn um Covid í sæmilegri sátt saman fyrir utan örfáar undantekningar. Höfum hækkað fiskverð mikið þrátt fyrir bölspár um verðfall á sjávarafurðum. Hrós fá sjómenn fyrir að fórna sínum frítíma til að halda flotanum á sjó. Kæru sjómenn, fjölskyldur og landsmenn allir, gleðilega Sjómannadagshátíð. Gangið hægt um gleðinnar dyr. Komum öll heil heim.

Valmundur Valmundsson formaður sjómannsambands Íslands

Til hamingju með daginn sjómenn!

Til hamingju með daginn sjómenn