3 minute read

Ég elska íbúðina mína

Rúnar Gíslason lögreglumaður, 4. sæti á lista Vinstri grænna í Suðurkjördæmi

Ég elska íbúðina mína. Mig hafði langað í mína eigin íbúð lengi, ég safnaði mér fyrir útborgun í henni og neitað mér um ýmislegt til þess að ná takmarkinu. Ég er mikil félagsvera, á miklu fleiri vini en ég á skilið, frábæra fjölskyldu, tek þátt í félagsstarfi og vinn á skemmtilegum vinnustað. Ég get alltaf hitt fólk og farið í heimsóknir því ég veit að í enda dagsins kem ég heim til mín, í íbúðina mína. Íbúðina sem ég hef skreytt og hannað í huganum, í símanum fram og til baka eftir mínu höfði. Eftir hverja einustu breytingu sem ég geri þá get ég ekki beðið eftir að ljósmynda íbúðina og sýna vinum og vandamönnum hvað frábæra íbúðin mín er orðin betri í dag en hún var í gær.

Advertisement

Íbúðin er vissulega bara dauður hlutur, svarar mér ekki og hún er gerð úr steypu. Hún er hinsvegar heimilið mitt og þar er ég öruggur. Ég fann líka fyrir öryggi þegar ég bjó hjá foreldrum mínum og tengi líklega meira en margir við slagorðið ,,heima er best‘‘. Það er algjör forsenda alls, að mínu mati, að finna fyrir öryggi heima hjá sér og með fólkinu sínu enda er heimilið og heimilisfólkið grunnurinn, stroffið, deigið, rótin og allar þær samlíkingar. Heima hjá mér er ég öruggur.

Það á að vera algjört forgangsmál að tryggja að allir finni til öryggis heima hjá sér. Að verða fyrir ofbeldi á heimili sínu og/eða í nánum samböndum hefur alvarleg og langvarandi áhrif, ekki bara á þolendur heldur allt þeirra umhverfi. Í slíkum málum berum við öll ábyrgð, við sem samfélag. Við eigum að skipta okkur af fólki sem upplifir ofbeldi í nánum samböndum, aðstoða og tilkynna á viðeigandi staði og við eigum að krefjast þess að til sé nægur og vel þjálfaður mannskapur til að málin vinnist hratt og vel í réttarvörslukerfinu.

Sjálfur rannsaka ég heimilisofbeldismál alla daga og hef margar hugmyndir um hvernig við getum hlúð betur að brotaþolum og unnið með gerendum. Vandinn er samt stærstur á einum stað, sami vandi og hamlar allri starfsemi lögreglu og það er að það vantar fleiri lærða lögreglumenn.

Vaktir lögreglu eru undirmannaðar og ófaglært fólk ber þær uppi meira og minna allt árið. Á sama tíma hrannast upp mál, til að mynda mál sem varða ofbeldi í nánum samböndum og oftar en ekki inn á heimilum þeirra sem fá engan veginn viðeigandi meðferð vegna skorts á mannafla, þjálfuðum mannafla. Það skiptir mjög miklu máli að brugðist sé hratt og vel við þegar upp koma ofbeldismál í nánum samböndum. Það skiptir öllu til að lágmarka skaðann eins og hægt er.

Vandinn er mikill. Í lögregluna vantar fólk og okkur vantar þjálfað og faglært fólk. Forgangsröðum verkefnum, fjölgum lærðum lögreglumönnum og lyftum upp þessum gríðarlega mikilvæga málaflokki sem baráttan gegn heimilisofbeldi er. Ef annar hvati dugar ekki til þá má líta á það sem samfélagslega fjárfestingu því við spörum á svo mörgum öðrum stöðum ef við getum komið í veg fyrir/ eða minnkað skaðann af ofbeldismálum. Fyrsta skrefið er að fjölga lærðum lögreglumönnum.

Ég elska íbúðina mína. Ég finn fyrir öryggi heima hjá mér. Ég óska þess að allir geti fundið fyrir öryggis heima hjá sér.

52

Orða gátan

U R A G N I N S O K N N J J

E J R I S L E R F N E V K A S Ö L I Ð E F G H I R U I F

J F O S N I G E S N I H F N Ö N F V M F A J F R N R R R J U T S G F H N U S G J E É U Ð L R F R A S R Á A J V T

A U A U E F M V J S V R H T

R R G F E G I I N N N U M I

U I S R E E N N U F V Ð U K E V V N F M G S R N N I F U A R Á S Ú K J T G R J R R H E U N A A T A R N R Ö F S M R V J J S N E I T U M F F N

Finndu 10 orð svör á blaðsíðu 69

This article is from: