Stefna Listahátíðar 2017 2020

Page 1

STEFNA

2017-2020


[Mynd?]

LED ZEPPELIN Á FYRSTU LISTAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK 1970 LJÓSMYNDARI GVA


EFNISYFIRLIT

5 INNGANGUR 6 HLUTVERK LISTAHÁTÍÐAR 8 LISTRÆN SÝN 11 MARKMIÐ OG STEFNA 12 ÁHORFENDASTEFNA 14 KYNNINGARSTEFNA 18 STEFNA INNRA STARFS LISTAHÁTÍÐ 2017 ÁBYRGARMAÐUR: VIGDÍS JAKOBSDÓTTIR HÖNNUN OG ÚTLIT: DÖÐLUR


[Mynd?]

LA FURA DELS BAUS Á LISTAHÁTÍÐ 2011 LJÓSMYNDARI STEINUNN ÞÓRHALLSDÓTTIR


INNGANGUR

V

el heppnuð hátíð skapar tímabundið ástand þar sem allt fær nýjan blæ. Kastljósinu er beint í óvæntar áttir og mörk samfélagslegrar aðgreiningar verða þokukenndari og mást jafnvel út. Í aldanna rás hafa hátíðir þjappað hópum saman utan um ákveðnar hefðir, venjur og menningu og þannig styrkt samfélög og fólkið sem þau mynda.

Vart þarf að taka það fram hversu miklum breytingum reykvískt og íslenskt menningarlíf hefur tekið á þeim áratugum sem hátíðin hefur verið við lýði. Listahátíð hefur haft afgerandi og mótandi áhrif á íslenskt menningarlíf allt frá upphafi þegar hátíðin galopnaði dyrnar út í heim þannig að ekki varð aftur snúið.

Í sífellt brotakenndari heimi gegna hátíðir enn fjölbreyttara og mikilvægara hlutverki en áður og gildir það ekki síst um listahátíðir. Sameiginleg listupplifun gleður hjörtu, þenur mörk, dýpkar skilning og brúar bil.

Stefnan sem hér er kynnt, og ég stend stolt að baki, er sú fyrsta sinnar tegundar sem er gerð fyrir Listahátíð í Reykjavík og mun varða leiðina allt til ársins 2020. Stefnan er unnin í samstarfi við KPMG veturinn 2016-2017 og að henni hafa komið tugir fólks á ýmsum stigum; stjórn og starfsfólk Listahátíðar, fulltrúaráð hátíðarinnar, listafólk, menningarstjórnendur og fulltrúar ýmissa þjóðfélagshópa. Kann ég þeim öllum bestu þakkir fyrir þeirra góða framlag.

Listahátíð í Reykjavík, sem var fyrst haldin árið 1970, hefur frá fyrstu tíð verið alþjóðleg hátíð. Hún býr að langri og farsælli sögu, jákvæðri ímynd, jafnt innanlands sem utan og á sér bakland í öllum helstu menningarstofnunum landsins, þvert á listgreinar.

VIGDÍS JAKOBSDÓTTIR LISTRÆNN STJÓRNANDI LISTAHÁTÍÐAR Í REYKJAVÍK


HLUTVERK LISTAHÁTÍÐAR „Markmið Listahátíðar er að efla menningar- og listalíf á Íslandi, almenningi til heilla. [...] Hlutverk Listahátíðar er að skipuleggja og standa að listahátíðum í Reykjavík á sviði tónlistar og söngs, leik- og danslistar, bókmennta, myndlistar, hönnunar og fleiri listgreina annað hvert ár. Hafa skal metnaðarfulla listsköpun að leiðarljósi og kappkosta að tefla fram framúrskarandi listafólki af hinu alþjóðlega sviði og því besta sem býr í listmenningu þjóðarinnar. Sérstaka áherslu ber að leggja á nýsköpun og aðra þá þætti íslenskrar menningar sem skapa henni sérstöðu í samfélagi þjóðanna. “ (Skipulagsskrá Listahátíðar í Reykjavk, 2. Gr.)

DANSHÓPURINN FLEXN FRÁ BROOKLYN OG MANCHESTER Á LISTAHÁTÍÐ 2016



LISTRÆN SÝN Í síkviku menningarlandslagi er Listahátíð í Reykjavík í einstakri aðstöðu til þess að vera aflvaki nýsköpunar og samstarfs í íslensku listalífi. Rætur hennar liggja djúpt og teygja sig víða, jafnt innan lands sem utan. Hátíðin er gátt og vettvangur fyrir listsköpun í hæsta gæðaflokki frá öllum heimshornum en hún á líka í kraftmiklu og lifandi sambandi við almenning og leitast við að virkja sem flesta til þátttöku. Menning og listir eru ekki forréttindi fárra heldur réttindi allra. Hátíðin er vettvangur samtals og samstarfs þvert á listgreinar og þvert á

landamæri. Hún leitast við að koma stöðugt á óvart, endurspegla fjölbreytileika mannlífsins, vera sýnileg í borginni og teygja sig jafnframt út fyrir borgarmörkin. Við verkefnaval er faglegur metnaður, kjarkur og stórhugur hafður að leiðarljósi og ætíð leitast við að viðburðir hafi slagkraft og gildi fyrir íslenskt listalíf og samfélag. Stuðst er við skýrt þema fyrir hverja hátíð sem talar beint inn í samtímann og skapar merkingarbært samhengi fyrir listafólk sem að hátíðinni kemur, sem og gesti hennar.

RISESSAN Á LISTAHÁTÍÐ 2007



GESTIR Á OPNUN SÝNINGAR BERLINDE DE BRUYCKERE Á LISTAHÁTÍÐ 2016


MARKMIÐ OG STEFNA

LISTRÆN SÝN LISTAHÁTÍÐAR Í REYKJAVÍK ER LEIÐARLJÓS OG UNDIRSTAÐA ALLRA ÞRIGGJA KAFLA STEFNUNNAR: ÁHORFENDASTEFNU, KYNNINGARSTEFNU OG STEFNU INNRA STARFS.


ÁHORFENDASTEFNA

AÐ LISTAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK NÁI TIL FJÖLBREYTTS HÓPS ÁHORFENDA OG EIGI Í OPNU OG KRAFTMIKLU SAMTALI VIÐ SAMFÉLAGIÐ. Listahátíð í Reykjavík er ein stærsta listahátíð landsins, með rekstrarfé bæði frá ríki og borg og því er mikilvægt að hún sé aðgengileg sem fjölbreyttustum hópi áhorfenda. Áhersla er lögð á að ná til ólíkra aldurshópa, að hátíðin teygi sig út fyrir miðborgina og að aðgengi jaðarsettra þjóðfélagshópa

að viðburðum Listahátíðar verði tryggt með ýmsum hætti. Unnið verður markvisst að samstarfi við ferðaþjónustuna til að ná til þeirra ferðamanna sem eiga leið um Reykjavík á meðan á hátíðinni stendur.


MEÐAL AÐGERÐA Fjölga ókeypis viðburðum m.a. í almenningsrými. Endurvekja Klúbb Listahátíðar sem opna og lifandi miðstöð fyrir hátíðina. Bjóða upp á úrval smærri viðburða í tengslum við stærri viðburði hátíðarinnar sem setja þá í samhengi og dýpka. Kynna hátíðina sérstaklega fyrir fólki af ólíkum menningarlegum uppruna. Tryggja að hver hátíð bjóði upp á úrval viðburða sem henta börnum og ungmennum.

Hafa aðgengismál til hliðsjónar við skipulag hátíðarinnar. Beita rafrænum miðlum til að ná til þeirra sem ekki hafa tök á að sækja hátíðina í eigin persónu. Taka upp samstarf við ferðaþjónustuna til að ná til erlendra ferðamanna. Efla enskan hluta heimasíðunnar og merkja viðburði sérstaklega sem eru líklegir til að höfða til erlendra gesta. Safna upplýsingum um samsetningu gesta hátíðarinnar 2018 og greina hvaða þjóðfélagshópa hátíðin er ekki að ná til og grípa til sérstakra aðgerða til að ná til þeirra hópa 2020.


KYNNINGARSTEFNA

AÐ KYNNA HÁTÍÐINA Á MARKVISSAN HÁTT MEÐ GÓÐUM FYRIRVARA OG MEÐ FJÖLBREYTTAN ÁHORFENDAHÓP Í HUGA. Áhorfendastefna og kynningarstefna standa þétt saman og eru samofnar listrænni sýn hátíðarinnar. Til að ná megi til fjölbreyttari hóps áhorfenda þarf að gera kynningarefni þannig úr garði að það höfði til ólíkra hópa. Einfalda þarf aðgengi að miðasölu hátíðarinnar og gera hátíðina sýnilegri í borginni á meðan á henni varir.


MEÐAL AÐGERÐA Kynna nokkra helstu viðburði að minnsta kosti 6 mánuðum fyrir hátíð og heildardagskrá eigi síðar en 3 mánuðum fyrir hátíð. Kynna staka viðburði jafnt og þétt yfir veturinn í aðdraganda hátíðar. Skilgreina markhópa fyrir alla viðburði og miða kynningu við þá. Varða leiðina í kynningarefni og á heimasíðu hátíðarinnar þannig að auðvelt sé að sjá hvaða viðburðir henta t.d. fjölskyldum, eru ókeypis, þarfnast ekki tungumálaskilnings o.s.frv. Nýta samfélagsmiðla markvisst í markaðssetningu hátíðarinnar.

Tryggja að hægt verði að nálgast miða á alla viðburði beint af heimasíðu hátíðarinnar. Bæta upplýsingar á heimasíðu fyrir erlenda gesti. Eiga gott samstarf við ferðaþjónustuaðila og dreifa kynningarefni á ensku í gegnum þá. Huga að sýnileika hátíðarinnar í borginni jafnt í miðborg sem og í úthverfum hennar með áhugaverðu kynningarefni og óvæntum uppákomum. Nýta Klúbb Listahátíðar sem vettvang til að miðla upplýsingum um dagskrá hátíðarinnar á lifandi hátt.


EDDA EFTIR ROBERT WILSON - FYRIRHUGUÐ Á LISTAHÁTÍÐ 2018 LJÓSMYNDARI LESLIE-SPINKS



STEFNA INNRA STARFS

AÐ AUKA FJÁRMAGN SEM NÝTIST BEINT Í DAGSKRÁ OG VIÐBURÐI LISTAHÁTÍÐAR Í REYKJAVÍK ÁSAMT ÞVÍ AÐ TRYGGJA JAFNVÆGI Í REKSTRI. Stefna innra starfs snýst um það að styrkja rekstrarlegar grunnstoðir hátíðarinnar. Ábyrg fjármálastjórnun og gagnsæi í rekstri eru lykilatriði í stefnu innra starfs. Tryggja skal stöðugleika í rekstri Listahátíðar með

yfirvegaðri ákvarðanatöku, samningagerð, innkaupum og mannaráðningum. Gripið verður til aðgerða til að auka bæði tekjur af miðasölu og fjármagn frá styrktaraðilum sem renna mun beint í dagskrárgerð hátíðarinnar.


MEÐAL AÐGERÐA Tryggja markvissa áætlanagerð, bæði til lengri tíma og fyrir einstök verkefni. Setja á fót reglubundna endurskoðun á áætlunum með hagræðingu að leiðarljósi. Taka þátt í samstarfsverkefnum sem falla að listrænni stefnu hátíðarinnar og geta m.a. laðað að sér erlent styrkfé. Leita til fyrirtækja eftir styrkjum. Tryggja greitt aðgengi komandi stjórnenda og starfsfólks Listahátíðar að sögulegum gögnum um rekstur og starfsemi hátíðarinnar.

Leita leiða til að koma á hvatakerfi fyrir þá sem kaupa miða á fleiri en einn viðburð hátíðarinnar og/eða kaupa miða með löngum fyrirvara. Ráða starfsfólk sem getur átt samleið með Listahátíð til lengri tíma þó ekki sé hægt að bjóða full stöðugildi nema tímabundið. Gera lengri samninga við birgja, samstarfsaðila og styrktaraðila (2018-2020) til að ná fram hagstæðari samningum.

javí Stef hátí nu i ákv verð tara Með eins

græ leið

hátí geta

List

fleir

tím hæg



Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.