Starsm namsv haust 2015 net

Page 1

VETUR 2015-2016

Nám og þjónusta við stofnanir


Fræðslusetrið Starfsmennt býður opinberum starfsmönnum upp á starfstengda símenntun og veitir stofnunum heildstæða þjónustu á sviði starfsþróunar. Þjónusta Starfsmenntar er sérsniðin að þörfum þátttakenda um allt land í krafti faglegs samstarfsnets og öflugs vefkerfis. Starfsmennt er samstarfsvettvangur starfsmanna og stjórnenda þar sem unnið er að þróun þekkingar og þjálfunar í þágu einstaklings og samfélags. Fræðslusetrið Starfsmennt býður opinberum starfsmönnum upp á starfstengda símenntun og veitir stofnunum heildstæða þjónustu á sviði starfsþróunar. Þjónusta Starfsmenntar er sérsniðin að þörfum þátttakenda um allt land í krafti faglegs samstarfsnets og öflugs vefkerfis. Starfsmennt er samstarfsvettvangur starfsmanna og stjórnenda þar sem unnið er að þróun þekkingar og þjálfunar í þágu einstaklings og samfélags.

2

VETUR 2015-2016

smennt.is

Fræðslusetrið Starfsmennt · Skipholti 50b, 105 Reykjavík · Sími 550 0060


UM STARFSMENNT

Efnisyfirlit Fræðslusetrið Starfsmennt .......................................................................................................... 4 Nám og þjónusta Starfsmenntar ........................................................................................... . . . ...... 4 Starfsfólk og stjórn .............................................................................. ..... ............................... . . . 5 NÁM FYRIR ALLA ......................................................................................................................... 6 • Árangursrík framsögn og tjáning • Danska – þjálfun í talmáli á léttum nótum • Fjármál og rekstur • Verkefnastjórnun – vinnulag sem virkar • Vönduð íslenska, tölvupóstar og stuttir textar • Ég og starfið • Nám fyrir starfsfólk í stjórnunareiningum • Talsmaður breytinga • Lífsbraut • Jákvæð sálfræði og styrkleikaþjálfun (e. coaching) • Rekspölur 1 og 2 • Að tjá sig án kvíða • Upplýsinga- og skjalastjórnun • 20 góð ráð í þjónustusímsvörun • 8 lyklar að árangursríkum tölvupóstsamskiptum • Mannauðsmál hjá ríkinu – stjórnunarréttur og starfsskyldur • Enska um allt land • Vaktavinna og lýðheilsa • Jafnlaunastaðall- jafnlaunavottun • Tölvunám – 9 vefnámskeið NÁM STOFNANA .................................................................................................................... ... 12 • Yfirlit yfir námsleiðir Starfsmenntar • Starfsnám stuðningsfulltrúa • Launaskólinn • Þróttur – námsleið fyrir starfsfólk íþróttamannvirkja • Farandfyrirlestrar og sérsniðin námskeið STARFSMENNTUN Á FRAMHALDSSKÓLASTIGI ............................................................................ 16 RÁÐGJÖF OG ÞJÓNUSTA ............................................................................................................ 18

Allar nánari upplýsingar og skráning á vefsíðu Starfsmenntar

·

w w w. s m e n n t . i s

3


UM STARFSMENNT UM STARFSMENNT

Fræðslusetrið Markmið • Að efla símenntun starfsmanna og stofnana • Að stuðla að markvissri starfsþróun starfsmanna og auka hæfni þeirra til að takast á við fjölbreytt verkefni • Að auka möguleika stofnana á að þróa starfsemi sína til samræmis við kröfur á hverjum tíma • Að vera samstarfsvettvangur stjórnenda og starfsmanna þar sem unnið er að þróun þekkingar og þjálfunar

Fræðslusetrið Starfsmennt er samstarfsvettvangur fjármála- og efnahagsráðuneytisins og flestra aðildarfélaga BSRB um starfstengt nám, starfsþróun og ráðgjöf. Nám á vegum setursins er því starfsmönnum ríkis og bæja að kostnaðarlausu en opið öðrum gegn gjaldi. Félagsmenn eftirtalinna stéttarfélaga eiga aðild að setrinu í gegnum kjarasamningsbundin réttindi til starfsþróunar:

• SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu • KJÖLUR - stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu • Félag starfsmanna stjórnarráðsins • Félag flugmálastarfsmanna ríkisins • Starfsmannafélag Garðabæjar • Starfsmannafélag Suðurnesja • Starfsmannafélag Kópavogs Samflot bæjarstarfsmannafélaga: • Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi • Starfsmannafélag Hafnarfjarðar • Starfsmannafélag Vestmannaeyja • Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum • Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi • Starfsmannafélag Dala- og Snæfellssýslu • Starfsmannafélag Húsavíkur • Starfsmannafélag Fjarðabyggðar • Starfsmannafélag Fjallabyggðar • Starfsmannafélag Skagafjarðar • Starfsmannafélag Mosfellsbæjar • Starfsmannafélag Seltjarnarness

Sama rétt eiga ríkisstarfsmenn innan: • Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar Samningar um stofnananám hafa verið gerðir við: • Mannauðssjóð Kjalar • Mannauðssjóð Samflots • Mannauðssjóð KSG • Ríkismennt/Sveitamennt

4

Leiðir • Að hanna, þróa og meta starfstengt nám í samstarfi við stjórnendur, starfs menn og fræðsluaðila • Að hafa umsjón með og votta vinnu- tengt nám og þjálfun • Að veita stofnunum ráðgjöf á sviði menntunar og mannauðs • Að taka þátt í stefnumótun á sviði símenntunar og leiða nýjungar í starfsþróunarverkefnum

Nám og þjónusta Starfsmenntar

Hér er að finna helstu upplýsingar um nám og þjónustu Starfsmenntar veturinn 2015-2016. Þó er aðeins stiklað á stóru þar sem stór hluti náms er settur upp í samstarfi við stofnanir og starfshópa og sésniðið að þeirra þörfum. Bæklingurinn nýtist þó bæði starfsmönnum og stjórnendum til að skipuleggja nám með góðum fyrirvara og nýta þannig möguleika til starfsþróunar enn betur. Náminu er skipt í fjóra flokka eftir því hverjum það er ætlað.

• Nám fyrir alla eru opin námskeið sem efla almenna og sértæka starfshæfni. • Nám stofnana sem stofnanir bjóða starfsfólki sínu og er oftast sérsniðið. • Nám starfsgreina er ætlað tilteknum fagstéttum og störfum, þvert á stofnanir. • Nám um kjör og velferð eru námskeið sem styðja við kjarasamninga viðsemjenda.

Auk opinna námskeiða og sérsniðinna námslausna veitum við stofnunum heildstæða þjónustu á sviði mannauðs- og starfsþróunarmála ásamt því að veita stjórnendum faglegan stuðning í málaflokknum. Ráðgjafar okkar vinna með stjórnendum og starfsfólki að sérsniðnum úrræðum sem mæta þörfum stofnana í hvívetna og leggja áherslu á sveigjanleg, hagnýt og fagleg vinnubrögð. Þjónustan er stofnunum að kostnaðarlausu að því gefnu að hún nýtist félagsmönnum aðildarfélaga Starfsmenntar. Þá hafa einnig verið gerðir samstarfssamningar við fræðslu- og mannauðssjóði annarra stéttarfélaga og stofnunum þannig auðvelduð heildstæð nálgun á ráðgjafavinnunna. Allar nánari upplýsingar og skráning í nám má finna á vefsíðu Starfsmenntar.

smennt.is

Fræðslusetrið Starfsmennt · Skipholti 50b, 105 Reykjavík · Sími 550 0060 · smennt@smennt.is


Hulda Anna Arnljótsdóttir Björg Valsdóttir

Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir

Marta Gall Jörgensen

Sólborg Alda Pétursdóttir

UM STARFSMENNT

Starfsfólk og stjórn Starfsmenn Hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt starfa sex starfsmenn en auk þess er margskonar stoðþjónusta aðkeypt. Framkvæmdastjóri er Hulda Anna Arnljótsdóttir, Björg Valsdóttir er skrifstofustjóri og Bergþóra Guðjónsdóttir og Sólborg Alda Pétursdóttir eru verkefnastjórar náms. Þá sér Marta G. Jörgensen um mannauðsráðgjöf til stofnana og Guðrún H. Sederholm veitir náms- og starfsráðgjafaviðtöl. Starfsfólk setursins hefur allt umtalsverða starfsreynslu og fjölbreytta menntun að baki, m.a. sem kennarar, í stjórnun- og stjórnsýslufræðum, félags- og fjölmiðlafræðum, vinnusálfræði, upplýsingatækni og námsog starfsráðgjöf. Þessi bakgrunnur nýtist vel í nýsköpunar-, fræðslu- og þróunarstarfi setursins á sviði símenntunar og starfsþróunar. Stjórn Starfsmenntar skipa tveir fulltrúar frá stéttarfélögunum og tveir frá Kjara- og mannauðssýslu ríkisins auk varamanna. Stjórnin fundar reglulega og tekur ákvarðanir varðandi rekstur, verkefni og framtíðarsýn setursins.

Guðrún Helga Sederholm

Árni Stefán Jónsson

Stjórn Starfsmenntar Aðalmenn:

Guðmundur H. Guðmundsson

Arna Jakobína Björnsdóttir

Ásgeir M. Kristinsson

Jóhanna Þórdórsdóttir

Einar Mar Þórðarson

Þórveig Þormóðsdóttir

Árni Stefán Jónsson formaður SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu, formaður Guðmundur H. Guðmundsson sérfræðingur hjá Kjara- og mannauðssýslu ríkisins, varaformaður Arna Jakobína Björnsdóttir formaður KJALAR - stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu Ásgeir M. Kristinsson sérfræðingur hjá Fjársýslu ríkisins

Varamenn: Jóhanna Þórdórsdóttir fræðslustjóri SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu Einar Mar Þórðarson sérfræðingur hjá Kjara- og mannauðssýslu ríkisins Þórveig Þormóðsdóttir deildarstjóri hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu

smennt.is Allar nánari upplýsingar og skráning á vefsíðu Starfsmenntar

·

w w w. s m e n n t . i s

5


FYRIR ALLA NÁM FYRIRNÁMALLA

Nám fyrir alla

Nám fyrir alla eru þverfagleg, starfstengd námskeið sem eru opin öllum, óháð starfi og stéttarfélagsaðild. Hér má finna fjölbreytt úrval náms sem eflir grunnfærni og almenna starfhæfni á vinnumarkaði. Einnig sérhæft nám sem stuðlar að umbótum og styður við átaksverkefni aðila á vinnumarkaði. Námskeiðin, stutt eða löng, eru þróuð með það í huga að koma til móts við síauknar kröfur sem gerðar eru til starfsmanna en í dag teljast margir þættir sem áður voru álitnir sérhæfð þekking til almennrar færni. Kennt er um allt land í samstarfi við fjölmarga fræðsluaðila og kostir upplýsingatækni eru nýttir til fulls:

Fjarkennsla: Fyrirlestrar og tímar eru sendir beint út á vefnum í rauntíma og geta þátttakendur fylgst með og tekið þátt beint úr tölvunni heima. Í flestum tilfellum er notast við forritð Adobe Connect en þá þurfa þáttakendur ekki að hlaða neinu niður í sínar tölvur. Vefnámskeið: Nám fer alfarið fram á vefnum en þátttakendur fá sent kennsluefni og eru í samskiptum við kennara í gegnum síma og tölvupóst. Allt nám er aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu.

smennt.is Árangursrík framsögn og tjáning

NÝTT

Finnst þér erfitt að koma fram, halda fyrirlestur, stýra fundum eða kynna efni? Þá er þetta námskeið eitthvað fyrir þig. Með markvissum æfingum öðlast þátttakendur meira öryggi í framkomu og læra að byggja upp sinn persónulega frásagnarstíl. Námskeiðið byggir á verklegum æfingum, samtali og raunverulegum verkefnum sem þátttakendur hverju sinni eru að fást við.

Danska – þjálfun í talmáli á léttum nótum Hvort sem þú þarft að bæta dönskukunnáttuna eða halda henni við er þetta frábært námskeið. Hér er unnið með talað og ritað mál, hlustun, málfræði og danska menningu. Þar sem allt fer fram á dönsku er ekki hægt að komast hjá því að læra eitthvað.

Fjármál og rekstur

NÝTT

Ef þú berð ábyrgð á stýringu verkefna og fjármagns í starfi er þetta nám eitthvað fyrir þig. Hér er lögð áhersla á hagnýta þekkingu og leiðir til að halda utan um verkefni, kostnað og nýtingu fjármagns. Fjárhagsáætlanir, greiningar, eftirlit og arðsemi eru meðal umfjöllunarefna og þátttakendur vinna m.a. raunhæf verkefni til að dýpka þekkingu sína. Hér bætir þú grunnfærni þína í rekstri.

Verkefnastjórnun - vinnulag sem virkar Stutt og hagnýtt námskeið í verkefnastjórnun þar sem farið er yfir helstu hugtök og grunnatriði þessarar nálgunar. Þáttakendum er veitt góð yfirsýn yfir uppbyggingu verkefna, hlutverk verkefnastjóra og hvernig skuli virkja samstarfsfélaga.

6

• 22. og 25. sept. / 16. og 19. nóv. 2015 • Kl. 13 – 16 /16.15-19:15 • 6 klst. • Kennt í staðnámi

• 14. sept.- 1. okt. 2015 • Mán. og fim. kl. 20:00 - 22:00 (6x) • 12 klst. • Kennt í staðnámi

• 25. sept.- 12. des. 2015 • Fös. kl. 16:15-19:15 / lau. kl. 9:30-12:30 • 60 klst. / 10 vikur • Kennt í fjar- og staðnámi

• 7. okt. -11 nóv. 2015 / 9. feb. – 15. mars 2016 • Miðvikudagar í nóv. / þriðjudagar í feb. kl. 13.00-15.50 (x6) • 16 klst. • Kennt í fjar- og staðnámi

Fræðslusetrið Starfsmennt · Skipholti 50b, 105 Reykjavík · Sími 550 0060 · smennt@smennt.is


NÝTT

Hér er námskeið sem hentar öllum sem vilja ná betri tökum á rituðu máli, hvort sem það er í tölvupóstum, fréttabréfum, greinaskrifum, skýrslum eða á vefnum. Farið er yfir nokkur lykilatriði sem hafa verður í huga þegar skrifa skal texta, s.s. málfar, birting, bygging og þekking á viðfangsefninu. Þátttakendur fá leiðsögn og spreyta sig í að semja stutta texta fyrir ólíka miðla.

Ég og starfið Spennandi og uppbyggilegt námskeið þar sem fjallað erum mikilvægi sjálfstrausts í leik og starfi. Kenndar eru aðferðir til að takast á við erfið samskipti, streitu og spennu, efla sjálfstraust og styrkja liðsheild. Þetta hefur verið eitt vinsælasta námskeiðið okkar frá upphafi og ekki að ástæðulausu. Námið hentar öllum sem vilja styrkja sig og efla sjálfstæði, forgangsröðun og skipulag, ásamt því að fá kynningu á samskiptahæfni og leiðtogafræðum.

Nám fyrir starfsfólk í stjórnunareiningum Einstaklega hagnýtt nám þar sem áherslan er á að efla leiðtogafærni, skipulögð vinnubrögð og lausnamiðaða nálgun. Markmiðið er að þátttakendur læri hagnýtar aðferðir til að takast á við og halda utan um fjölbreytt og flókin verkefni, forgangsröðun og skipulag. Einnig er fjallað um samskiptahæfni og leiðtogafræði. Námið hentar öllum sem vilja styrkja stjórnunar- og leiðtogafærni sína.

Talsmaður breytinga Fjölbreytt nám sem hentar öllum sem vilja hafa áhrif á sínum vinnustað. Áhersla er á mikilvægi frumkvæðis, umbótavilja, jákvæðni og vilja til að skapa nýtt vinnulag. Talsmaður breytinga er þjálfaður til að taka að sér hlutverk þess sem hvetur samstarfsfólk til náms og ráðleggur hvernig efla megi mannauð. Auk þessa fá þátttakendur góða þjálfun í að standa fyrir máli sínu og koma fram.

Lífsbraut Fróðlegt og skemmtilegt nám sem er tilvalið fyrir alla sem vilja kynnast málefnum er varða uppbyggingu samfélags og samskipta og velta hlutunum fyrir sér í víðara samhengi. Fjallað er um heimspekileg, siðferðileg, efnahagsleg og félagsleg álitamál og rætt um helstu áhrifavalda sem móta umhverfi okkar og samfélagsgerðir. Gefið er fræðilegt yfirlit yfir valda málaflokka og þátttakendur hvattir til að taka þátt í umræðum til að skoða hvaða hugmyndir, lífsstefnur og verðmæti hafa verið ráðandi og áhrifavaldar í eigin lífi.

Jákvæð sálfræði og styrkleikaþjálfun (e. coaching)

NÝTT

Hér læra þátttakendur leiðir til þess að njóta lífsins til fulls og taka virkan þátt í samfélaginu. Unnið er útfrá hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði þar sem áherslan er á styrkleika fólks og það sem það gerir vel, jákvæðar tilfinningar og jákvæð samskipti. Ávinningur þessa námskeiðs gæti verið meiri ánægja og gleði í daglegu lífi ásamt aukinni sjálfsþekkingu og bættum samskiptum.

• 13. okt. 2015 • Kl. 13.00-16.00 • 3 klst. • Kennt í staðnámi

MÁM FYRIR ALLA

Vönduð íslenska, tölvupóstar og stuttir textar

• 21. okt. - 18. nóv. 2015 / 17. febrúar - 16. mars. 2016 • Mán./mið. kl. 13.00- 16.00 • 24 klst. • Kennt í fjar- og staðnámi

• 26. okt. - 9. des. 2015 / 22. febrúar - 18. apríl 2016 • Mán./mið. kl. 09.00- 11.50 • 40 klst. • Kennt í fjar- og staðnámi

• 30. okt. – 18. mars 2016 • Fös. kl. 09.00-12.00 • 51 klst. • Kennt í fjar- og staðnámi

• 2. nóv. – 29. feb. 2016 • Mán. kl. 13.00-16.00 • 40 klst. • Kennt í fjar- og staðnámi

• • • •

2. -30. nóv. 2015 / 8. - 15. apríl 2016 Mán. kl. 19.30-21.30 10 klst. Kennt í staðnámi

2. -30. nóv. 2015 / 8. - 15. apríl, 2016.

Rekspölur 1 og 2

Rekspölur 1

Líklega langlífustu námskeiðin okkar hingað til. Rekspölur er fjölbreytt og fræðandi nám þar sem fjallað er um einstaklinginn, stöðu hans og stefnu. Fjallað er um bæði hindranir lífsins og sigra og hvernig einstaklingurinn getur byggt sig upp til að taka því sem að höndum ber. Rekspölur hentar öllum sem vilja styrkja persónulega hæfni sína, en námskeiðið hefur reynst góður grunnur að frekar námi og þátttöku í ýmiss konar félagsstarfi. Rekspölur 1 verður kenndur á haustönn en Rekspölur 2 á vorönn og nánari upplýsingar má sjá á vefnum.

• 13.-20. nóv. 2015 / kl. 08.30-16.00 • 45 klst.

Allar nánari upplýsingar og skráning á vefsíðu Starfsmenntar

Rekspölur 2 • • •

8.-15. apríl. 2016 / kl. 08.30-16.00 45 klst. Kennt í fjar- og staðnámi

·

w w w. s m e n n t . i s

7


NÁM FYRIR ALLA

Að tjá sig án kvíða Margir eiga erfitt með að tala fyrir framan hóp af fólki. Þrátt fyrir að vilja tjá sig þá brestur fólk kjark. Þetta námskeið er fyrir þá en einnig fyrir aðra sem vilja bæta framsögn sína og ná betur til áheyrenda. Á námskeiðinu verður farið í undirstöðu góðrar raddbeitingar og framsagnar s.s. öndun, líkamsstöðu og notkun talfæra. Augnsamband verður æft og framsetning mælts máls og farið sérstaklega yfir það hvernig hægt er að takast á við stress og yfirvinna það.

• 18., 19., 25. og 26. feb. 2016 • kl. 13.30-16.00 • 10 klst. • Kennt í staðnámi

Upplýsinga- og skjalastjórnun

• • • •

20 góð ráð í þjónustusímsvörun

• 30 sept. og 28. okt. 2015/ 27. jan. og 2. mars 2016 • 10 klst. • Vefnámskeið

Einstaklega hagnýtt og hnitmiðað nám þar sem farið er yfir lykilþætti í upplýsinga- og skjalastjórn. Meðal efnis eru íslensk lög og reglugerðir er varða málaflokkinn, tenging við gæða- og þekkingarstjórnun, skjalaflokkunarkerfi, málalyklar, geymslu- og grisjunaráætlanir og ISO 15489. Einnig verður fjallað um ólíkan hugbúnað sem nýtist við skipulagningu, vistun og endurheimt gagna. Frábært nám fyrir alla sem þurfa að auka þekkingu sína á efninu.

Flott vefnámskeið þar sem farið er yfir ráð til þess að stýra samtölum á markvissan hátt. Þátttakendur horfa á stutt, leikin myndskeið og vinna verkefni úr efninu. Meðal verkefna er að útbúa einfaldan gátlista yfir mikilvægustu þætti í eigin þjónustu. Skilafrestur er 4 vikum eftir að námskeið hefst.

8 lyklar að árangursríkum tölvupóstsamskiptum Margir senda tugi tölvupósta á degi hverjum. Það er því mikilvægt að tryggja að þeir séu rétt skrifaðir og fram settir. Á þessu vefnámskeið er farið yfir helstu lykilþætti sem hafa ber í huga í tölvupóstsamskiptum. Þátttakendur horfa á stutt, leikin myndskeið og vinna verkefni úr efninu.

Mannauðsmál hjá ríkinu - Stjórnunarréttur og starfsskyldur

NÝTT

Hér er gefið stutt yfirlit yfir starfsmannarétt, eins og hann snýr að starfsmönnum ríkisins og ríkinu sem vinnuveitanda. Fjallað er um réttarstöðu, ráðningu og starfslok auk almennra lagaákvæða um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Skoðuð verða stjórnsýslulög, upplýsingalög, ákvæði stjórnarskrárinnar og ýmsar ólögfestar reglur stjórnsýsluréttarins.

23. og 24. nóv. 2015/ 10. og 11. mars 2016 kl. 13-16 og kl. 9-12 6 klst. Kennt í fjar- og staðnámi

• 30 sept. og 28. okt. 2015/ 27. jan. og 2. mars 2016 • 10 klst. • Vefnámskeið

• 18. og 19. nóv. kl. 13-17 • 8 klst. • Kennt í staðnámi

Enska um allt land Það þykir sjálfsagt í dag að allir kunni eða geti bjargað sér á ensku og á það við bæði í vinnu og einkalífi. Í samstarfi við fræðslumiðstöðvar um land allt bjóðum við enskunám þar sem áhersla er á að auka orðaforða og bæta málskilning. Allar nánari i upplýsingar um skráningar og tímasetningar er að finna á vefnum okkar.

smennt.is 8

Fræðslusetrið Starfsmennt · Skipholti 50b, 105 Reykjavík · Sími 550 0060 · smennt@smennt.is


MÁM FYRIR ALLA

smennt.is Vaktavinna og lýðheilsa

NÝTT

Fræðslusetrinu Starfsmennt hefur verið falið að halda utan um nýtt nám um vaktavinnu og lýðheilsu í samstarfi við fjölmarga aðila. Áhrif vaktavinnu á lífsgæði og heilsu eru talin ótvíræð og vaktavinnustörfum fjölgar jafnt og þétt. Til að sporna við mögulegum og óæskilegum langtímaáhrifum vaktavinnufyrirkomulags á heilsu og líðan starfsmanna hafa aðilar á vinnumarkaði sameinast um fræðslu og þjálfun á þessu sviði. Markmiðið er að bjóða upp á heildstætt og hagnýtt nám um vaktavinnu og lýðheilsu sem hentar bæði stjórnendum sem skipuleggja vaktir og starfsfólki sem gengur vaktir. Ætlunin er að miðla nýrri þekkingu á vaktstörfum og vaktskrám út frá rannsóknum á heilsu, einstaklingsmun, lífshlutverkum, vinnuumhverfi, félagslegri stöðu og þekkingu á kjarasamningsbundnum réttindum. Einnig verður veitt þjálfun í skráningu og notkun vaktkerfa og fjallað um forvarnir sem styðja við persónulega uppbyggingu og lýðheilsufræðileg markmið. Skipulag námsins er eftirfarandi og verður að ljúka námslotu 1 áður en farið er í næstu lotu. Boðið verður upp á námið nokkrum sinnum veturinn 2015-2016 og sjá má allar upplýsingar á vefsíðu.

Námslota 1: Lýðheilsa og vaktir

Tími

Lengd

1.1. Vaktavinna og lífsgæði

2. nóv. kl. 10-16.40

4 klst.

1.2. Tengsl vaktavinnu og heilsu

2. nóv. kl. 10-16.40

3 klst.

1.3. Svefn og endurheimt

3. nóv. kl. 9-15.40

2 klst.

1.4. Streita og bjargráð

3. nóv. kl. 9-15.40

3 klst.

9. nóv. kl. 10-16.40

6 klst.

Námslota 2: Umgjörð kjarasamninga

2.1. Umgjörð kjarasamninga

Námslota 3: Vaktavinnufyrirkomulag og vinnumenning

3.1. Vaktkerfi og skráning

16. nóv. kl. 10-17

6 klst.

3.2. Starfsbragur og kynjuð sýn

17. nóv. kl. 9-16

6 klst.

Jafnlaunastaðall- Jafnlaunavottun

NÝTT

Fræðslusetrinu Starfsmennt hefur verið falið að halda utan um námskeið til að auðvelda innleiðingu jafnlaunastaðalsins hjá fyrirtækjum og stofnunum. Kyndbundinn launamunur er enn viðvarandi vandi og ekki hefur gengið nægilega vel að eyða óútskýrðum launamun. Staðall um launajafnrétti hefur verið gefinn út, (ÍST 85:2012, Jafnlaunakerfi) sem heildarsamtök launafólks, atvinnurekenda og stjórnvalda áttu frumkvæði að. Markmið jafnlaunastaðalsins er að auka gagnsæi og gæði í launaákvörðunum og auðvelda atvinnurekendum að koma á og viðhalda launajafnrétti kynja. Þróað hefur verið nám sem ætlað er öllum þeim sem hafa áhuga á að innleiða jafnlaunastaðalinn. Námið er ætlað forstöðumönnum, mannauðsstjórum, gæðastjórum og öðrum þeim sem ætlað er að stýra eða gegna ábyrgðarhlutverki við innleiðingu jafnlaunastaðalsins. Um er að ræða fjögur sjálfstæð námskeið sem heppilegt er að taka í tímaröð. Á fyrsta námskeiðinu er staðallinn kynntur og farið er yfir helstu forsendur og kröfur fyrir innleiðingu jafnlaunakerfis. Það námskeið hentar því vel þeim sem hafa áhuga á að innleiða jafnlaunastaðalinn og kynna sér hvað felst í því ferli. Hin námskeiðin henta þeim sem hafa tekið ákvörðun um innleiðingu, hvort sem að sú vinna er á byrjunarreit eða þegar hafin. Námið er alls 12 klukkustundir og sett saman úr fjórum námskeiðum.

Lengd

Námskeið Tími I. Kynning á jafnlaunastaðli og inngangur

16. sept. kl. 9-12

3 klst.

II. Starfaflokkun

23. sept. kl. 9-12

3 klst.

III. Launagreining

30. sept. kl. 9-12

3 klst.

IV. Gæðastjórnun og skjölun

7. okt. kl. 9-12

3 klst.

Allar nánari upplýsingar og skráning á vefsíðu Starfsmenntar

·

w w w. s m e n n t . i s

9


NÁM FYRIR ALLA

Starfsmennt í skýjunum

Nýi námsvefurinn okkar nýtist á margan hátt

... að skoða, skruna, spjalla og safna þekkingu ...

Ertu kennari? • Námsgögn á netið • Stýrir umræðum • Skilaboð og spjall • Rafrænn mætingalisti • Yfirlit yfir kennsluferil • Myndrænt mat á kennslu • Lokað vinnusvæði • Samstarf sýnilegt

Ertu starfsmaður? • Snjall vefur • Lykilorð með Íslykli • Lokaðir námshópar • Rafræn námsgögn • Kennslumyndbönd • Spjall, skilaboð og fréttir • Yfirlit yfir námsferil • Rafræn þátttökuskjöl • Þitt álit á þjónustunni • Örugg meðferð persónu upplýsinga

Ertu stjórnandi? • Lokuð vefgátt stofnunar • Samræmd umgjörð náms • Sérsniðin markaðssetning • Auðveld skráning • Myndræn þjónustukönnun

• Námsskeiðssaga stofnunar • Vinnusvæði teyma • Fundargögn á lokuðu svæði • Tenging við önnur náms- og mannauðskerfi

• Tenging við önnur kerfi og samfélagsmiðla

smennt.is

Fræðslusetrið Starfsmennt / Ofanleiti 2, 5. hæð, 103 Reykjavík / Sími 550 0060 / smennt@smennt.is

10

Fræðslusetrið Starfsmennt · Skipholti 50b, 105 Reykjavík · Sími 550 0060 · smennt@smennt.is


Almennt tölvunám – grunnur

Frábært alhliða tölvunámskeið þar sem farið er yfir alla helstu þætti er varða almenna tölvunoktun. Námskeiðið er sérstaklega sniðið að þörfum þeirra sem hafa litla reynslu en vilja efla þekkingu sína á rafrænu umhverfi. Þetta er vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er en námsefni er sent til þátttakenda bæði rafrænt og í pappírsformi.

• 15. sept. 2015 / 2. feb. 2016 • 60 klst. / 10 vikur • Vefnámskeið

Outlook –

Verkefna- og tímastjórnun – Outlook

• 15. sept. 2015 / 2. feb. 2016 • 18 klst. / 3 vikur • Vefnámskeið

Excel – framhald

• 6. okt. 2015 / 23. feb. 2016 • 18 klst. / 3 vikur • Vefnámskeið

Power Point – Margmiðlun og kynningar

• 6. okt. 2015 / 23. feb. 2016 • 18 klst. / 3 vikur • Vefnámskeið

Upplýsingamiðlun - Publisher

• 27. okt. 2015 / 15. mars 2016 • 18 klst. / 3 vikur • Vefnámskeið

Outlook er ekki bara póstforrit. Margir sem nota forritið átta sig ekki á margþættum kostum þess þegar kemur að tíma- og verkefnastjórnun. Hér er áhersla á að kenna hvernig nota má Outlook til þess að halda utan um verkefni, tíma og samskipti við viðskiptavini og aðra tengiliði.

Þetta námskeið er sérsniðið að þörfum þeirra sem hafa einhverja þekkingu og reynslu af Excel en vilja læra að nýta kosti þess til fulls. Allt efni hefur verið uppfært í samræmi við Office 2013 en kennt er á eldri kerfi fyrir þá sem þess óska.

PowerPoint býður upp á marga möguleika til þess að útbúa vönduð og eftirtektarverð gögn á einfaldan hátt, hvort sem það eru skjásýningar, glærur eða námsgögn. Farið er yfir möguleika og virkni forritsins og hvernig best má nýta það. Allt efni hefur verið uppfært í samræmi við Office 2013 en kennt er á eldri kerfi fyrir þá sem þess óska.

Þetta námskeið er sérstaklega sniðið fyrir þá sem vilja búa til fjölbreytt og vandað kynningarefni, s.s. fréttabréf, auglýsingar, kort, nafnspjöld og námsefni.

Fjársjóður Google og vefgerð

• 27. okt. 2015 / 15. mars 2016 • 18 klst. / 3 vikur • Vefnámskeið

Myndvinnsla og myndavélar

• 27. okt. 2015 / 15. mars 2016 • 18 klst. / 3 vikur • Vefnámskeið

Hugarkort – Mind Mapping

• 17. nóv. 2015 / 5. apríl 2016 • 18 klst. / 3 vikur • Vefnámskeið

Word – framhald

• 17. nóv. 2015 / 5. apríl 2016 • 18 klst. / 3 vikur • Vefnámskeið

Hér eru fjölmörg vinsæl og öflug verkfæri, á borð við Google Sites, - Docs og - Apps, frá Google kynnt fyrir þátttakendum. Áhersla er á raunhæfa notkun þessara forrita í leik og starfi.

Í dag eru allir orðnir ljósmyndarar. Við göngum með fínar vélar í vasanum, í símanum okkar, hvert sem við förum. En það er ekki nóg að taka myndir, það þarf líka að geyma þær og stundum laga aðeins til. Hér eru kenndar leiðir til að halda utan um, lagfæra og vinna með stafrænar myndir.

Hugarkort má nýta bæði í leik og starfi. Þau eru frábær leið til að greina stór og smá viðfangsefni, þróa hugmyndir, halda utan um upplýsingar og draga fram áherslur.

Hér er farið í flóknari hluta Word og þátttakendum kennt að nýta forritið til fulls og láta það vinna fyrir sig og einfalda verklag. Auk skilvirkni er megin áhersla á tengingu við önnur forrit og sjálfvirkni við vinnu. Allar nánari upplýsingar og skráning á vefsíðu Starfsmenntar

·

w w w. s m e n n t . i s

MÁM FYRIR ALLA

Tölvunám – vefnámskeið

11


NÁM STOFNANA

Nám stofnana

Starfsmennt býður stofnunum og starfshópum upp á sérsniðnar starfstengdar námsleiðir þar sem bæði er gætt að fagmennsku og sveigjanleika. Námsleiðirnar mynda heildarnámskerfi stofnana eða faghópa og geta verið allt frá 20 að 240 stundum. Náminu er ýmist skipt upp í sjálfstæð námskeið eða stærri námslotur sem starfsmenn velja úr í samræmi við eigin fræðsluþarfir og framtíðarsýn stofnana. Stýrihópar starfa innan hverrar námsleiðar og eiga þar sæti jafnmargir starfsmenn og stjórnendur. Stýrihóparnir ráða hraða, framboði og fyrirkomulagi náms. Þeir geta einnig breytt áherslum og inntaki náms ef breytingar verða á starfsumhverfi og tryggt þannig að námið sé ávallt í takt við tímann. Námsleiðir Starfsmenntar eru þróaðar í samræmi við starfsmarkmið stofnana og eru rauði þráðurinn í fræðslustarfi þeirra. Starfsfólk hefur því yfirsýn yfir símenntunarkerfi stofnunar í heild og getur valið þau námskeið sem því hentar. Fræðsluþarfir starfsmanna eru mismunandi og verklag Starfsmenntar tekur mið af því. Öflugt vefkerfi Starfsmenntar býður upp á gott utanumhald og rafræna umsýslu náms sem haldið er í samstarfi við vinnustaði, skóla og símenntunarmiðstöðvar um land allt. Haldið er utan um námsferil

hvers einstaklings á lokuðu nemendasvæði, svo auðvelt er að fylgjast með og halda utan um námsframvindu. Á vef Starfsmenntar má einnig sjá námskrár og starfstengdar námsleiðir sem hannaðar hafa verið fyrir einstaka stofnanir og starfsgreinar. Þar skrá þátttakendur sig til leiks og fá upplýsingar um efnistök, fyrirkomulag, stað og stund. Hver stofnun eða starfsgrein hefur sína eigin gátt á vefnum þar sem allt námsefni er sett fram og sér Starfsmennt um að senda reglulega út rafrænar kynningar og veffréttabréf til að minna á nám og fylgja því eftir. Það er því mikið hagræði fyrir stofnanir að nýta sér rafrænt utanumhald Starfsmenntar til að votta starfstengt nám. Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir helstu námsleiðir Starfsmenntar. Allar nánari upplýsingar má svo nálgast á vefnum, þar sem einnig er ýmiskonar fróðleikur um símenntunarkerfi og fræðsluáætlanir. Lesendur eru hvattir til að skoða vefinn, leita fyrirmynda í fyrri verkefni og koma eigin hugmyndum að námi á framfæri við starfsfólk Starfsmenntar.

smennt.is

Yfirlit yfir starfstengdar námsleiðir: • Á fjölunum – námsleið fyrir leiksviðstækna • Á vettvangi – námsleið fyrir læknaritara • Áfangar I og II – námsleiðir fyrir fangaverði • Brúarnám fyrir verðandi heilbrigðisritara • Brúarnám fyrir verðandi félagsliða • Brúarnám í félagsmála- og tómstundafræðum • Forystufræðsla ASÍ og BSRB – námsleið fyrir starfsfólk og stjórnir stéttarfélaga • Fríhafnarskólinn • Heilsa – námsleið fyrir starfsfólk á heilbrigðissviði • Hæfni – námsleið fyrir heilbrigðisritara • Jafnlaunastaðall – námsleið um innleiðingu jafnlaunastaðals • Járnsíða – námsleið fyrir starfsmenn sýslumannsembætta • Launaskólinn – námsleið fyrir launafulltrúa o.fl. • Lausnir – námsleið fyrir lyfjatækna • Skil – námsleið fyrir starfsfólk á innheimtusviði tollstjóra 12

• Sótthreinsitæknar – námsleið fyrir sótthreinsitækna á Landspítalanum • Starfsnám stuðningsfulltrúa – grunnnám • Starfsnám stuðningsfulltrúa – framhaldsnám • Stoð – námsleið fyrir starfsfólk á velferðarsviði • Tryggingastofnun • Vaktavinna og lýðheilsa – námsleið um áhrif vaktavinnu • Viðbótarnám fyrir félagsliða • Vinnumálaskólinn – námsleið fyrir starfsfólk Vinnumálastofnunar • Vísdómur – námsleið fyrir starfsfólk dómstóla • Þróttur – námsleið fyrir starfsfólk íþróttamannvirkja

Fræðslusetrið Starfsmennt · Skipholti 50b, 105 Reykjavík · Sími 550 0060 · smennt@smennt.is


Hér er á ferðinni nám fyrir alla sem starfa með fötluðum og sjúkum eða vilja færa sig yfir á þann vettvang. Markmið með náminu er að auka þekkingu og færni starfsfólks og bæta þjónustu við skjólstæðinga þess. Þetta er heildstætt starfsnám þar sem fjallað er um starfsvettvanginn og nýjungar í starfi þeirra sem vinna t.d. á heimilum, sambýlum og innan íbúðakjarna eða sérsniðinna þjónustuúrræða. Hægt er að fá námið metið upp í félagsliðabrú hjá Borgarholtsskóla.

Í grunnnáminu er þátttakendum veitt innsýn í heim fatlaðra og sjúkra, og meðal þess sem fjallað er um eru orsakir og flokkar fötlunar, lýðheilsa, óheðfbundin tjáskipti, áföll, virðing, trúnaður og siðfræði.

• 1. feb. - 23. maí 2016 • 122 klst. / 162 kst. • Kennt er aðra hvora viku frá 8.30-12 • Kennt í fjar- og staðnámi

Í framhaldsnáminu er fjallað enn frekar um líf og aðstæður fatlaðra og sjúkra og þekkingin dýpkuð. Meðal efnisþátta eru mannréttindi þessa hóps, geðsjúkdómar, fíkn, kynfræði, hreyfihamlanir, heyrnarskerðing og blinda.

• 12. okt. - 27. nóv. 2015 • 63 klst. / 84 kst. • kennt er aðra hvora viku frá 8.30-12 • Kennt í fjar- og staðnámi

Launaskólinn

Þema 4 verður kennt 11., 12. og 13. nóv. 2015. Önnur námskeið verða auglýst síðar.

Launaskólinn er frábært nám fyrir launafulltrúa og alla sem koma að starfsmanna- og kjaramálum hjá ríki og bæ. Mikil ábyrgð fylgir starfinu og lítið má út af bregða vegna hagsmuna launþega. Því er mikilvægt að allir sem koma að launavinnslu þekki sem best umhverfið og lagarammann og hafi vettvang til að deila vinnulagi og ræða verkferla og túlkanir ákvæða. Námið svarar einnig aðkallandi fræðsluþörf á þessu sviði þar sem starfsþjálfun hefur oft að miklu leyti farið fram á vinnustað.

NÁM STOFNANA

Starfsnám stuðningsfulltrúa

Náminu er skipt upp í fjögur þemu: 1. 2. 3. 4.

Opinber vinnumarkaður, ráðning, starfslok og starfsskyldur Vinnutími og afgreiðsla launa Fjarvera frá vinnu Mannauður og hæfni

Þróttur Þróttur er námsleið sem miðar að því að efla starfsfólk íþróttamannvirkja, auka fagþekkingu og mæta auknum kröfum sem gerðar eru til þessa hóps í starfi. Meðal þess sem fjallað er um eru ólíkar hliðar starfsins, starfsmaðurinn, samskipti við ólíka hópa, skólabörn, kennara, ferðamenn og aldraða, viðburðastjórnun, ábyrgð og þjónustustjórnun. Einnig er gefin innsýn í vaxandi möguleika afþreyingar- og frístundaiðnaðarins. Með aukinni fagþekkingu er vonast til að efla vinnubrag og starfsánægju, draga úr starfsmannaveltu og gefa starfsmönnum færi á að þróa starfshæfni sína og þjónustu enn frekar. Náminu er skipt upp í þrjú þemu sem hvert og eitt tekur á ákveðinni hlið starfsins. 1. Samskipti og sjálfstyrking 2. Samskipti við skóla 3. Starfið og starfsumhverfið

smennt.is Allar nánari upplýsingar og skráning á vefsíðu Starfsmenntar

·

w w w. s m e n n t . i s

13


FARANDFYRIRLESTRAR NÁM STOFNANA

Farandfyrirlestrar og sérsniðin námskeið Námskeiðin hér fyrir neðan er að finna í námskrám Starfsmenntar sem unnar hafa verið í samstarfi við fjölmargar stofnanir. Stofnanir á vegum ríkis og bæja geta óskað eftir að fá valda námskeiðstitla til sín heim í hús sem sérsniðin verða að þeirra starfsvettvangi. Framkvæmdin er með þeim hætti að stjórnendur panta námskeið og Starfsmennt heldur utan um skráningar og rafrænar kynningar og finnur heppilegan kennara/leiðbeinanda. Þátttakendur skrá sig á vef Starfsmenntar og geta sótt þangað þátttökuskjöl, metið námið og haldið

Kynningarmennt Miðlun og framsetning upplýsinga • Miðlun upplýsinga og þjónustulund • Markviss nýting tölvupósts • Flutningur máls og myndræn framsetning • Skilvirkir fundir og fundastjórnun • Ritun fundargerða • Framsögn og framkoma • Markviss ritun og meðferð íslensks máls • Uppsetning og gerð skýrslna • Skriflegar samantektir • Heimildaleit og meðferð gagna • Vistun og málaskrár • Atvika- og dagbókarskráning • Upplýsinga- og skjalastjórnun • Að leita upplýsinga á netinu • Boðleiðir og upplýsingamiðlun • Að tjá sig án kvíða • Móttaka og svörun erinda • Markaðssetning vöru og þjónustu • Vönduð íslenska

Stjórnunarmennt Nýsköpun, frumkvæði og verkefnavinna

14

• Að vinna að framgangi hugmynda • Nýsköpun og frumkvæði • Verkefnastjórnun- vinnulag sem virkar • Stefnumótun • Tímastjórnun • Gæðastjórnun • Breytingastjórnun • Þekkingarstjórnun • Þátttökustjórnun • Þjónustustjórnun

utan um námsframvindu sína á persónulegu vinnusvæði. Kennsla fer fram innan stofnana eða í samstarfi við símenntunarmiðstöðvar eða aðra fræðsluaðila. Starfsmennt stendur straum af kostnaði fyrir félagsmenn aðildarfélaganna en á einnig í samstarfi við marga fræðslusjóði sem taka þátt í verkefninu eða endurgreiða fyrir þátttöku sinna félagsmanna. Stofnanir greiða fyrir þá starfsmenn sem standa utan allra samninga.

• Viðburðastjórnun • Fundarstjórnun • Hugkort og rafræn skipulagning • Að stýra jafningjum • Samningatækni • Hópefli og hóphlutverk • Skilvirkir vinnufundir • Innsýn í leiðtogafræði • Viðtalstækni • Stjórnun í erfiðu umhverfi

Samskiptamennt Árangursrík samskipti og samvinna • Starfsandi og samstarfsvilji • Sjálfsmat og gæði samskipta • Jafningjasamstarf og vinna í teymum • Að takast á við erfiða einstaklinga • Að takast á við breytingar • Að efla liðsheild • Að takast á við álag og streitu • Samspil starfs og einkalífs • Félagslegur margbreytileiki og fjölþjóðlegir vinnustaðir • Samtalstækni og samningatækni • Einelti og áreitni á vinnustað • Vellíðan á vinnustað • Virk hlustun og félagastuðningur • Streita og starfsþrot • Samskipti á (kvenna)vinnustað • Gott viðmót – góð þjónusta • Að leysa ágreining • Ótilhlýðileg háttsemi á vinnustað • Um vinnupersónuleika • Árangursrík framsögn og tjáning • Að takast á við fordóma

Fræðslusetrið Starfsmennt · Skipholti 50b, 105 Reykjavík · Sími 550 0060 · smennt@smennt.is


fyrir millistjórnendur

símenntun er heillaspor Tungumálamennt Starfstengd tungumálakunnátta • Fagorðaforði stofnana • Talþjálfun og orðanotkun • Hagnýt málfræði • Enska fyrir atvinnulífið • Lagaenska

Vinnustaðarmennt Almenn fræðsla um mikilvægt innra starf Vinnustaðarbundin hæfni • Hlutverk og regluverk stofnunar • Innra net og heimasíða stofnunar • Starfsumhverfi og stefna stofnunar • Réttindi og skyldur starfsmanna • Skipurit, stjórnun og boðleiðir • Saga, sýn og gildi stofnunar • Vinnustaðarmenning • Námsumhverfi og jafningjafræðsla

Fagbundin hæfni • Hlutverk, verksvið og ábyrgð starfs • Siðfræði og fagmennska í starfi • Trúnaður og lagaumhverfi fagsins/starfsins • Samstarfsaðilar • Réttindi neytenda • Þjónustulund og jákvætt viðmót • Framþróun fagsins og framtíðarsýn • Matsaðferðir • Tölfræði og gagnavinnsla • Stjórnunarhæfni eftir sérsviðum • Fjármál og rekstur

Verkbundin hæfni • Vinnuferlar • Verkferlar við símsvörun og upplýsingagjöf • Meðferð tækja • Tækniþekking og tölvufærni • Fjarkennd tölvunámskeið • Starfsþjálfun og handleiðsla • Öryggi og álag • Lífstíll og heilsuefling • Líkamsbeiting

• Kenningar í mannauðsstjórnun • Hvað er markviss mannauðsstjórnun? • Stefnumiðuð mannauðsstjórnun • Starfsmannastefna • Starfsmannaval og ráðningar • Starfsgreiningar/hæfnilýsingar • Starfsþróun og starfsánægja • Undirbúningur starfsmannasamtala • Lærdómsstofnunin • Stjórnunarstílar og leiðtogahæfni • Stjórnun og samhæfing verkferla • Talsmaður lærdóms • Meistari og nýliði • Stjórnun við erfið skilyrði • Leiðsögn og ráðgjafafærni • Réttindi og skyldur starfsmanna • Mælingar á árangri mannauðsmála

NÁM STOFNANA

Mannauðsmennt

Starfsþróunarmennt Starfshæfni og menntun Sjálfsefling og þekking • Að efla sjálfstraust og öryggi • Að takast á við breytingar • Hagfræði skynseminnar • Hollusta og heilbrigði • Áföll og viðbrögð við vá • Að geta talað máli sínu • Um gagnrýna hugsun • Sjálfstyrking í starfi • Ákveðniþjálfun • Persónuleg markmiðssetning • Að greina áhugasvið sitt • Gerð færnimöppu/náms- og starfsferilskrá • Að auka persónulegan styrk sinn • Jákvæð sálfræði og styrkleikaþjálfun

Símenntun og vinnumarkaður • Námsráðgjöf og starfsval • Kynning á menntamöguleikum og styrkjum • Þróun starfa og símenntun • Að hvetja til náms og efla áhuga • Námstækni og hæfileikinn til að læra • Hvatning og seigla á óvissutímum • Að sækja um starf og fá starf • Frá orðum til athafna • Félagsleg virkni og tengslanet • Námsnálgun fullorðinna

smennt.is

Allar nánari upplýsingar og skráning á vefsíðu Starfsmenntar

·

w w w. s m e n n t . i s

15


STARFSMENNTUN Á FRAMHALDSSKÓLASTIGI

Starfsmenntun á framhaldsskólastigi Starfsmennt greiðir fyrir þátttöku aðildarfélaga sinna í fjölbreyttu starfstengdu námi í samstarfi við framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu. Yfirleitt er hægt að velja um stað- og dreifnám og því ætti námið að nýtast öllum hvar sem þeir búa á landinu. Hér til hliðar er yfirlit yfir helstu námsleiðir

næsta vetrar. Allar nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er svo hægt að nálgast á vefnum okkar, en ásamt því að skrá sig hjá Starfsmennt þarf einnig að sækja um hjá viðkomandi skóla.

smennt.is Fræðslusetrið Starfsmennt · Skipholti 50b, 105 Reykjavík · Sími 550 0060 · smennt@smennt.is


Nám á félags- og tómstundabrú hjá Borgarholtsskóla hentar öllum sem hafa áhuga á að starfa að tómstundum, hvort sem það er fyrir börn, ungmenni, fatlaða, aldraða eða aðra hópa. Boðið er uppá bæði stað- og dreifnám í Borgarholtsskóla.

Heilbrigðisritarabrú Brúarnám fyrir heilbrigðisritara við Fjölbrautaskólann við Ármúla er frábær leið fyrir þá sem hafa starfað sem heilbrigðisritarar og vilja öðlast full réttindi á því sviði. Brúin er í boði bæði í dagskóla og fjarnámi fyrir þá sem uppfylla inntökuskilyrðin.

Félagsliðar – Brúar- og framhaldsnám Í samstarfi við Borgarholtsskóla bjóðum við bæði brúar- og viðbótarnám fyrir félagsliða. Brúarnámið felur í sér mat til styttingar á námi á félagsliðabraut, og þarf að uppfylla þrjú skilyrði til að komast í brúnna. Viðbótarnáminu er ætlað að koma til móts við síauknar kröfur sem gerðar eru til menntaðra félagsliða. Viðbótarnámið er alls 36 einingar og eru þrír áfangar kenndir í vali hverja önn.

Skrifstofubraut

STARFSMENNTUN Á FRAMHALDSSKÓLASTIGI

Félags- og tómstundabrú

Skrifstofubrautin hjá Menntaskólanum í Kópavogi hefur notið mikilla vinsælda hjá okkur enda frábær leið fyrir alla sem starfa eða hafa áhuga á almennum skrifstofustörfum. Um er að ræða 33 eininga nám sem skipt er í þrjár brautir. Brautin er kennd bæði í stað- og fjarnámi og ætti búseta því ekki að hafa áhrif á möguleika til þátttöku. Umsóknir fyrir næstu vorönn þurfa að berast í desember 2015.

Sótthreinsitæknabrú Sótthreinsitæknabrú er ætluð þeim sem vilja fá starfsreynslu og óformlegt nám metið til styttingar á námi á sótthreinsitæknabraut. Skilyrði til innritunar eru að umsækjandi sé orðinn 22 ára og framvísi staðfestingu frá vinnuveitanda um a.m.k. 4 ára starfsreynslu og sé enn starfandi við sótthreinsun og dauðhreinsun á heilbrigðissviði. Auk þess þarf viðkomandi að hafa lokið starfstengdum námskeiðum á vegum stéttarfélaga eða stofnana/fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu sem hafa það að markmiði að auka kunnáttu og færni til sótthreinsunar og dauðhreinsunar á heilbrigðissviði.

Viðurkenndur bókari Starfsmennt býður aðildarfélögum sínum að greiða innritunar- og einingagjöld í námi til viðurkenningar bókara á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins skv. 43. grein laga nr. 145/1994 um bókhald. Námið er boðið í samstarfi við Menntaskólann í Kópavogi, Opna háskólann í HR og Endurmenntun Háskóla Íslands en þessir fræðsluaðilar kenna á mismunandi tímum. Nemendur greiða próftökugjald sjálfir. Sótt er um nám í framhaldsskólum að vori fyrir nám sem hefst á haustönn og í desember fyrir nám sem hefst í janúar.

símenntun ... á þínu færi Allar nánari upplýsingar og skráning á vefsíðu Starfsmenntar

·

w w w. s m e n n t . i s

17


OG ÞJ´´ÓNUSTA RÁÐGJÖFRÁÐGJÖF OG ÞJÓNUSTA

Nám stofnana Ráðgjöf og þjónusta Fræðslusetrið Starfsmennt veitir stofnunum fjölbreytta þjónustu til að greiða leið lærdóms á vinnustað og efla mannauð. Um er að ræða Ráðgjafa að láni og farandfyrirlestra til stofnana en náms- og starfsráðgjöf fyrir einstaklinga. Þá stýrir Starfsmennt fjölmörgum þróunarverkefnum sem ætlað er að innleiða nýjungar og efla

smennt.is Ráðgjafi að láni Stofnunum stendur til boða að fá Ráðgjafa að láni frá Starfsmennt. Rágjafinn vinnur að ákveðnum verkefnum með stofnunum að mannauðs- og starfsþróunarmálum og styrkir þannig grunn að markvissri mannauðsstjórnun. Ráðgjafarnir veita stofnunum aðgang að sérfræðiþekkingu og reynslu og aðstoða við að finna leiðir til að auka ánægju starfsmanna, skilvirkni og árangur. Ráðgjafi að láni vinnur einnig með stýrihópum stofnana að hugmynda- og þróunarvinnu á sviði menntunar og starfsþróunar. Einnig geta ráðgjafarnir komið að innleiðingu jafnlaunastaðals á næstu misserum. Verkefni ráðgjafanna eru öll á sviði mannauðseflingar og starfsþróunar og kostar Starfsmennt vinnuna að því gefnu að hún nýtist félagsmönnum aðildarfélaganna. Þá hafa verið gerðir samningar við fjölda fræðslu- og mannauðssjóða annarra stéttarfélaga til að auðvelda stofnunum heildstæða nálgun á ráðgjafarvinnuna. Helstu verkefni: • Mótun mannauðsstefnu • Vinnustaðagreiningar • Stefnumiðuð starfsþróun • Hæfnigreining starfa • Greining fræðsluþarfa og sérsniðið nám • Virk starfsmannasamtöl • Gerð starfsþróunaráætlana • Innileiðing jafnlaunastaðals

Samstarfsnet sérfræðinga Starfsmennt býður sérfræðingum og fagfólki á sviði menntunar og mannauðsmála aðgang að sameiginlegu þekkingar- og umræðusvæði á vefnum. Markmiðið er að byggja upp tengsl og þekkingu innan hópa og auðvelda þeim að halda til haga gögnum og umræðum á lokuðu svæði. Vefsvæðið getur einnig 18

frumkvæði í námi opinberra starfsmanna. Þjónustan er án endurgjalds fyrir félagsmenn aðildarfélaga og ef forsvarsmenn stofnana hafa áhuga á að nýta sér tilboðin þá eru allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu Starfsmenntar.

nýst til að þróa nýja þekkingu, setja upp verkefni eða fá ráðgjöf frá jafningjum. Mannauðsstjórar á sama vettvangi geta þannig stofnað hóp og valið sér hópstjóra sem miðlar gögnum og stýrir aðgangi inn á svæðið þar sem síðan má nálgast allar upplýsingar um verklag, þróun og samstarf ásamt því að taka þátt í umræðum.

Náms og starfsráðgjöf Einstaklingar og stofnanir geta leitað þjónustu náms- og starfsráðgjafa sem aðstoða við að finna nám við hæfi og efla vitund um hæfileika, viðhorf og áhuga. Með þessu er fólki auðveldað að velja rétta stefnu í lífi og starfi og það hvatt til sjálfsábyrgðar og virkrar þátttöku í uppbyggingu eigin færni. Ráðgjöfin hentar öllum, óháð aldri og stöðu. Einstaklingsviðtöl eru í boði fyrir alla aðildarfélaga Starfsmenntar, auk þess sem mögulegt er að fá ráðgjafa út á stofnanir. Náms- og starfsráðgjafi veitir þér aðstoð við að: • átta þig á áhuga þínum og tengja við nám og störf. • þekkja veikleika og styrkleika og efla starfshæfni. • vega og meta hin ýmsu störf og starfssvið. • útbúa ferilskrá og atvinnuumsókn. • leita að áhugaverðu tómstundastarfi eða námi. • efla sjálfstraust eftir áföll í námi eða starfi. • bæta samskipti og samstarfshæfni. • læra að setja mörk og stjórna tilfinningum í starfi. • forgangsröðun, skipulag og tímastjórnun. Viðtölin fara fram hjá Starfsmennt á hefðbundnum skrifstofutíma en stofnanir geta þó óskað eftir að fá ráðgjafa til sín til að ræða við starfsfólk. Ráðgjöfin er án endurgjalds fyrir alla aðildarfélaga okkar.

smennt.is

Fræðslusetrið Starfsmennt · Skipholti 50b, 105 Reykjavík · Sími 550 0060 · smennt@smennt.is


símenntun varðar þig

Útgefandi: Fræðslusetrið Starfsmennt Útgáfuár: 2015 Ritstjóri: Bergþóra Guðjónsdóttir Prófarkalestur: Sólborg A. Pétursdóttir Ábyrgðarmaður: Hulda Anna Arnljótsdóttir Útlit, umbrot, teikningar og ljósmyndir: Atarna – Kristín María Ingimarsdóttir Prentun: Prentmet – umhverfisvottuð prentsmiðja


VETUR 2015-2016

smennt.is

Fræðslusetrið Starfsmennt / Skipholti 50b, 105 Reykjavík / Sími 550 0060


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.