Grafarvogsbladid 6.tbl 2006

Page 1

6. tbl. 17. รกrg. 2006 - jรบnรญ

40% afslรกttBilastjarnan_02_001.ai

18.11.2004

15:18:40

55 44444

410 4000

Dreift รณkeypis รญ รถll hรบs รญ Grafarvogi

ร smundur Arnarsson, รพjรกlfari 1. deildarliรฐs Fjรถlnis รญ knattspyrnu, hefur nรกรฐ frรกbรฆrum รกrangri meรฐ liรฐiรฐ รพaรฐ sem af er sumri. Viรฐ rรฆรฐum viรฐ ร smund um stรถรฐuna og framhaldiรฐ รญ miรฐopnu. GV-mynd PS

ur af sรณttum pizzum

ร SLENSKA AUGLร SINGASTOFAN/SIA.IS LBI 27159 01/2005

Grafarvogsblaรฐiรฐ

Eitt nรบmer

$KHTGKร CUMQร WP )TCHCTXQIK 1RKร QI ร ร ยฑ Hร U

)[NHCHNร V 5ร OK

Komdu beint til okkar! - og viรฐ tjรณnaskoรฐum รญ hvelli รพรฉr aรฐ kostnaรฐarlausu Bรญlastjarnan ehf. ยท Bรฆjarflรถt 10 ยท 112 Reykjavรญk ยท Sรญmi 567 8686

I oo jb ย agpbo

q`mfaยนmd odg ย ]ย \f\pk\

ร `dia\g_\md g`d \ ย ]ย \f\pkph Bm`d ngph\o ย i`odip Gย inphnย fi ย i`odip


2

GV

Fréttir

Grafarvogsblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: skrautas@simnet.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Netfang Grafarvogsblaðsins: gv@centrum.is Ritstjórn og auglýsingar: Bíldshöfða 14 - Sími 587-9500 / 698-2844. Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: Sólveig Jóna Ögmundsdóttir, Stefán Kristjánsson. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur. Grafarvogsblaðinu er dreift ókeypis í öll hús og fyrirtæki í Grafarvogi. Einnig í Bryggjuhverfi og öll fyrirtæki í póstnúmeri 110.

Nýr meirihluti Nýr meirihluti er tekinn við stjórnartaumunum í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þetta eru vissulega mikil tímamót eftir samfellda 12 ára stjórnartíð R-listans sáluga. Ýmissa hluta vegna hefur oft gætt mikillar óánægju og gremju hér í Grafarvogi með fyrrverandi valdhafa. Á síðasatliðnum tólf árum hafa komið upp mörg mál þar sem okkur Grafarvogsbúum hefur mislíkað. Hér má fara aftur í tímann og nefna mikil átök og seinagang varðandi breikkun Gullinbrúar, yfirganginn allan varðandi Hallsveginn, Landssímalóðina, Áburðarverksmiðjuna og svona mætti lengi telja. Oftar en ekki hefur samráð við íbúa í Grafarvogi verið í algjöru lágmarki þegar stór og mikilvæg mál voru annars vegar. Og þrátt fyrir að öllu fögru hafi verið lofað. Til allrar hamingju eigum við Grafarvogsbúar afar öflug íbúasamtök. Störf þessara mikilvægu samtaka hafa vakið mikla athygli á undanförnum árum. Nú síðast hefur framganga Íbúasamtaka Grafarvogs varðandi Sundabrautina vakið athygli og meira að segja aðdáun ýmissa stjórnmálamanna fyrir kosningar. Í raun má segja að viðhorf fyrrverandi meirihluta í Reykjavík til úthverfa eins og Grafarvogs hafi oft hleypt illu blóði í fólk. Talað hefur verið í tíma og ótíma um þéttingu byggðar og auðvitað muna allir Grafarvogsbúar eftir því þegar fyrrverandi borgarstjóri lagði það til í gamni eða alvöru að flytja alla súlustaði borgarinnar austur fyrir Elliðaár og losa þannig 101 svæðið við þennan ósóma. Upp úr stendur þó nánast algjör skortur á samráði við íbúana í stórum málum. Samráði sem þó hafði verið lofað. Nú kemur væntanlega að því fljótlega að nýtt Hverfisráð Grafarvogs verði skipað. Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka Stefáni Jóni Hafstein, fráfarandi formanni ráðsins, fyrir gott samstarf á liðnum árum. Hann hefur reynst okkur á Grafarvogsblaðinu afar vel og fyrir það þökkum við hér með. Og halda skal því til haga sem vel hefur verið gert. Fráfarandi meirihluti hefur vissulega komið mörgu góðu til leiðar og þar stendur Miðgarður og öll sú mikla starfsemi sem þar fer fram upp úr eins og klettur úr hafi. Stefán Kristjánsson

gv@centrum.is

Lóðir á spottara Nýr meirihluti í Reykjavík er tekinn við völdum. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson orðinn borgarstjóri og Steinunn Valdís Óskarsdóttir horfin á braut. Þegar litið er yfir síðustu 12 árin sem fráfarandi meirihluti var við völd er margs að minnast er varðar Grafarvoginn sérstaklega. Og þó margt hafi verið vel gert eru þeir nargir sem fagna nýju fólki í ráðhúsinu og nýjum vinnubrögðum sem boðuð hafa verið. Af ýmsum ástæðum eru mér lóðamálin sérstaklega hugleikin. Ég hef til margra ára verið að líta eftir lóð undir einbýishús í höfuðborginni en hún hefur einfaldlega ekki verið í boði. Vitanlega tekur maður ekki þátt í uppboðum á lóðum sem á endanum kosta um 20 milljónir. Sem betur fer er þessum skrípaleik nú lokið og til valda eru komnir menn og konur sem lofað hafa lóðum strax á næsta ári á kostnaðarverði. Þegar þessi uppboð byrjuðu lýsti Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þá borgarstjóri, því yfir að hækkun lóðaverðs myndi ekki koma sér illa fyrir hinn almenna kaupanda og alls ekki hækka fasteignaverðið. Hvað gerðist? Svari nú hver fyrir sig. Árangur Samfylkingarinnar kom mörgum á óvart í nýafstöðnum kosningum í Reykjavík. Það er mín skoðun að rang-

ur maður hafi verið í efsta sætinu. Ég er sannfærð um að ef Stefán Jón eða Steinunn Valdís hefðu leitt lista Samfylkingar þá hefði útkoma flokksins orðið önnur og betri en hún varð. Stefán Jón er heiðarlegur og hreinskilinn stjórnmálamaður.

þessa leið: ,,Fólk í Reykjavík í dag vill byggja sér lítið einbýishús. Það vill fá sinn sólpall með sínu grilli og bílskúr. Hvað varðar þessar kröfur fólks höfum við alls ekki verið að standa okkur nægilega vel.” Þessi ummæli Stefáns Jóns segja meira en mörg orð. Fleiri en þeir sem eru í byggingahugleiðingum mega eiga von á góðu. Nýir valdhafar í

Svarthöfði skrifar

Geldinganesið er fagurt byggingaland. Hér verður úthlutað lóðum á næsta ári á kostnaðarverði ef kosningaloforðin standast.

Mér er og verður alltaf minnisstætt svar hans á framboðsfundi fyrir prófkjör Samfylkingarinnar. Þar var verið að ræða lóðamálin í Reykjavík og Stefán Jón sagði eitthvað á

Reykjavík lofa miklu átaki á málefnum aldraðra. Og var nú tími til kominn. Nýir valdhafar lofa breytingum við stjórn borgarinnar strax. Við sjúm hvað setur. Svarthöfði

Símanúmer GV er 587-9500

Sumarið er komið hjá okkur Full búð af nýjum vörum Sumarblóm í miklu úrvali Blóm og skreytingar við öll tækifæri Spönginni - Sími: 567-7800 Opið: 10-21 alla daga nema sunnudaga - Opið sunnudaga 10-19


m u l l i n r a G sam

Svartir tómatar

GOTT Á GRILLIÐ

Steinselju rót

GOTT Á GRILLIÐ

Zucchini

GOTT Á GRILLIÐ


4

Matgoggurinn

GV

Snittubrauð, kjúklingasúpa og blaut súkkulaðikaka - að hætti Soffíu og Ragnars Hér koma einfaldir og góðir réttir frá þeim Soffíu Gísladóttur og Ragnari Magnússyni, Garðsstöðum 15.

Soffía Gísladóttiur og Ragnar Magnússon ásamt börnum sínum.

GV-mynd PS

Forrréttur: Hvítlauksristað snittubrauð með parmaskinku, sólþurrkuðum tómötum og fetaosti. Aðalréttur: Kjúklingasúpa Fyrir ca 4 2 kjúklingabringur. 1 sæt kartafla. 2 laukar. 2 paprikur (rauð,græn gul eftir smekk). 1 ms.k olía. 2-3 tsk. karrý. 3 msk hveiti.

urstóra bita. Þetta sett í pott og léttsteikt í olíu. Vatn sett út í ásamt karrý,kjúklingaten.,mangochutney og hveiti og látið sjóða í uþb 20 mín. Kjúklingabringur skornar í bita og settar út í ásamt möndlum. Soðið áfram í 10 - 20 mín. Súpan er síðan borin fram á diskum með 1 msk sýrðum rjóma út á. Blaut súkkulaðikaka í eftirrétt 4 egg 2 dl flórsykur 300 gr suðusúkkulaði 200 gr smjör 1/2 dl sigtað hveiti 1/2 tsk lyftiduft Smjör og súkkulaði brætt saman, egg og flórsykur þeytt saman. Súkkulaðibráðinni blandað var-

Olga og Davíð næstu matgoggar Soffía Gísladóttiur og Ragnar Magnússon, Garðsstöðum 15, skora á Olgu B. Gísladóttur og Davíð Gunnarsson, Bakkastöðum 33, að koma með uppskriftir í næsta blað. Við birtum frá þeim girnilegar uppskriftir í næsta blaði sem kemur út þann 6. júlí.

Nýtt hjá okkur ! Þær á myndinni eru allar með hárlengingu frá Balmain Paris. Það tekur aðeins 2 tíma og kostar minna en þú heldur 6 mánaða ábyrgð á hárinu. Kíktu á nýtt og flott pöntunarkerfi á www.stubbalubbar.is

1 líter vatn. 2 kjúklingateningar. 1 msk. mangó chutney. 1/2 dl möndlur. 1 dós sýrður rjómi. Kartöflur skrældar og skornar í teninga, laukur afhýddur og skorinn frekar smátt (ekki brytjaður) og paprikur skornar í fing-

lega saman við eggjafroðuna. Sigtað hveiti og lyftidufti blandað saman við með sleif. Bakað í ofni í 25 mín við 175 gráður. Borin fram með léttþeyttum rjóma eða ís og jarðaberjum. Verði ykkur að góðu. Kveðja Soffía og Raggi


LANDSBANKINN FÆRIR ÞÉR HM 2006 Á

HORFÐU Á HM 2006 Í LANDSBANKANUM.


Fréttir frá Miðgarði:

Hera Hallbera Björnsdóttir, frístundaráðgjafi Miðgarði, þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness hera.hallbera.bjornsdottir@reykjavik.is

,,Virkjum okkur’’

Samstarf Miðgarðs og Hróa Hattar Starfsfólk Miðgarðs og pizzustaðarins Hróa hattar við tiltekt.

Til hamingju Grafarvogsbúar Fyrir nokkrum árum var það fastur liður að lokum samræmdra prófa var fagnað með áfengisdrykkju og hópasöfnun í miðbæ Reykjavíkur. Undanfarin ár hafa foreldrar, skólar og félagsmiðstöðvar unnið saman að því að skipuleggja ferðir og atburði fyrir 10. bekkinga strax að loknum samræmdum prófum. Þátttaka í slíkar ferðir hefur verið góð og sífellt stærri hópur unglinganna heldur af stað í einhvers konar ferðir strax að loknum samræmdum prófum ásamt kennurum, foreldrum og starfsmönnum félagsmið-

stöðva. Hefur verið almenn ánægja með framkvæmdina og unglingarnir átt góðar stundir og allir skemmt sér vel í þessum ferðum. Í vor stóðu allir skólar í Grafarvogi fyrir 2ja - 4ra daga ferðum. Fjölmenni var í ferðirnar og mikil ánægja með þær allar. Athvarfsvaktir voru skipulagðar í hverfinu í kringum lok samræmdra prófa og helgina þar á eftir. Skemmst er frá því að segja að ekki var um neina hópasöfnun eða ölvun meðal unglinganna að ræða. Allt gekk vel fyrir sig og voru unglingarnir

til fyrirmyndar. Oft hefur verið um það talað að sumarið frá því unglingarnir klára 10. bekk að vori og byrja í framhaldsskóla að hausti sé sá tími sem stór hópur þeirra stígur sín fyrstu spor í neyslu á tóbaki, áfengi og öðrum vímuefnum og hafa innlendar rannsóknir sýnt fram á að svo sé. Samkvæmt rannsóknum sem Rannsóknir & greining gerðu meðal nemenda í 10. bekk vorið 2004 og meðal nemenda í framhaldsskólum haustið 2004 kemur fram að í 10. bekk hafði rúmlega fjórðungur (26%) 15-16

ára nemenda orðið ölvuð síðastliðna 30 daga en um haustið átti slíkt hið sama við um rúmlega helming (53%) 15-16 ára framhaldsskólanema. Því má með sanni segja að þónokkuð stór hópur unglinga hefur vímuefnaneyslu sína sumarið frá því grunnskóla lýkur að vori og þar til framhaldsskóli hefst að hausti. Það er því vert að hafa það í huga að foreldrar bera ábyrgð á börnum sínum fram til 18 ára aldurs og því við hæfi að benda foreldrum á að sleppa ekki hendinni af börnum sínum við lok 10. bekkjar.

Vökult auga á ungmennum á sumrin Heildstæð forvarnastefna fyrir Reykjavíkurborg sem nær til barna frá fæðingu til tvítugs var nýlega gefin út. Í forvarnastefnunni er lögð rík áhersla á heilbrigðan lífsstíl og möguleika barna og unglinga til þátttöku í íþróttum og uppbyggilegum tómstundum. Rannsóknir hafa sýnt fram á að þau ungmenni sem eru þátttakendur í slíku starfi eru síður líkleg til að leiðast út í neyslu vímuefna eða aðra sjálfseyðileggjandi athafnir. Þegar talað er um forvarnir má ekki gleyma því að mestu áhrifavaldar barna og unglinga eru foreldrar og fjölskylda þeirra. Nú þegar sól hækkar á lofti er vert að hafa í huga að foreldrar bera ábyrgð á börnum sínum til a.m.k. 18 ára aldurs. Vorið, prófalok, Hvítasunnan, fyrsta útborgunin í Vinnuskólanum, 17. júní, Verslunarmannahelgin og Menningarnótt eru þeir atburðir sem foreldrar þurfa að vera sérstaklega vakandi fyrir. Rannsóknir hafa sýnt fram á að stór hópur unglinga stígur sín fyrstu skref út í neyslu í kringum atburði sem þessa og því mikilvægt að foreldrar séu vakandi fyrir því að senda börnin sín ekki eftirlitslaus á útihátíðir og fylgist vel með því sem krakkarnir eru að gera. Sumarið er oft sá tími þegar hve mest lausung er á hlutunum hjá krökkunum. Þá er enginn skóli, félagsmið-

stöðvarnar eru lokaðar og tími krakkanna því minna skipulagður. Þá hafa rannsóknir sýnt fram á að sumarið milli loka 10. bekkjar og fyrsta árs í framhaldsskóla er sá tími sem stór hluti unglinga stígur sín fyrstu skref í áfengis- og vímuefnaneyslu. Með tilkomu GSM síma hafa boðleiðir milli barna og unglinga breyst verulega og fréttir af samkvæmum berast nú með leifturhraða, t.d. með SMS skilaboðum. Dæmi eru um að allt að 100 unglingar hafi mætt í slík samkvæmi og gestgjafarnir misst tökin á ástandinu. Með því að leyfa eftirlitslaus partý er verið að leggja þunga ábyrgð á herðar unglinga, ábyrgð sem þau hafa sjaldnast forsendur til að axla. Stærsti hluti þeirra unglinga sem neyta áfengis neytir þess heima hjá öðrum og á sú neysla sér oftast stað í eftirlitslausum partýjum og fer sá hópur sem slíkt á við stækkandi. Foreldrar eru einnig hvattir til að taka þátt í foreldrarölti í hverfinu og að standa saman að því að útivistarreglur séu virtar. Fjöldi rannsókna hafa verið gerðar sem sýna fram á að þau ungmenni sem eru í góðum tengslum við foreldra sína og fjölskyldu eru mun ólíklegri til að hefja vímuefnaneyslu, beita aðra ofbeldi eða leiðast út í annars konar frávikshegðun

en þau sem eru í litlum tengslum við foreldra sína og fjölskyldu. Gæðatíminn svokallaði, sem margir foreldrar hafa í gegnum tíðina skýlt sér á bakvið og fólst einkum í því að samverustundirnar voru ekki svo ýkja margar en þeim mun meira gert þegar fjölskyldan var saman, er ekki að skila sama árangri, a.m.k. hvað forvarnir varðar. Hefðbundnar og jafnvel innihaldslitlar samverustundir skila meiru en foreldrar halda. Einfaldir hlutir líkt og að horfa saman á sjónvarpið vega mun þyngra en "gæðatíminn" þegar forvarnir almennt eru skoðaðar. Þá er veigamikill þáttur í samskiptum foreldra og barna það aðhald og eftirlit sem foreldrar veita börnum sínum en rannsóknir hafa sýnt fram á að þeir unglingar sem neyta vímuefna eiga frekar foreldra sem hafa lítið eftirlit með þeim og veita þeim lítið aðhald. Því viljum við hvetja foreldra til að eyða tíma með börnunum sínum og veita þeim gott aðhald - það er besta forvörnin. Að lokum viljum við beina því til foreldra að kaupa hvorki áfengi né tóbak fyrir börnin sín því með því er um leið verið að samþykkja að börnin reyki og neyti áfengis. Eins viljum við beina því að afgreiðslufólki verslana að fara að lögum og selja ekki börnum undir 18 ára aldri tóbak.

Miðvikudaginn 26. apríl síðastliðinn hélt föngulegur hópur starfsmanna Miðgarðs, þjónustumiðstöðvar Grafarvogs og Kjalarness, og pizzustaðarins Hróa hattar af stað til að fegra umhverfi sitt. Hópurinn fékk afhenta hanska, poka, kústa o.fl. svo hægt væri að hreinsa og fegra nánasta umhverfi Langarima 21 þar sem Miðgarður og Hrói höttur eru til húsa. Var þetta liður í hreinsunarátaki Reykjarvíkurborgar ,,Virkjum okkur’’. Hópurinn tíndi upp allt það rusl sem á vegi þeirra varð og sópaði stéttar og göngustíga af miklum móð. Með þessu vildu starfsmennirnir leggja sín lóð á vogarskálarnar til að fegra höfuðborgina. Eru aðrir hverfisbúar hvattir til að fylgja fordæmi þessa föngulega hópa og hreinsa og fegra um hverfi sitt með því t.d. að tína rusl og sópa stéttar og göngustíga. Til að hvetja starfsmennina til dáða var keppt um titilinn ,,Ruslatínari Miðgarðs’’ og fékk sigurvegarinn afhentan veglegan eignabikar. Stefnt er að því að keppt verði um titilinn á hverju ári héðan í frá. Með þrifnaðarkveðju, starfsfólk Miðgarðs og Hróa hattar

Anna Sólveig Pétursdóttir, með bikarinn góða.



8

GV

Fréttir

Hugleiðingar eftir kosningar:

Það er rétt, að hafa rangt fyrir sér

Þarft þú að losna við köngulær?

Ég las það í einhverri bók þar sem haft var eftir Gunnar Dal, að það sé beinlínis einkenni mannlegrar skynsemi að hafa rangt fyrir sér. Menn hins gullna meðalvegar boða þá kenningu, að hver maður eigi rétt á því að fá að halda sjálfsvirðingu sinni. Að menn virði ólíkar skoðanir og reyni að skilja að einkenni mannlegrar skynsemi sé að menn hafi rangt fyrir sér í vísindum, trúmálum, heimspeki og stjórnmálum. Því ef menn hefðu ekki rangt fyrir sér myndi þróunin stöðvast. Við þurfum því að hafa allar skoðanir okkar og þekkingu, í sífelldri endurskoðun. Þróun gerir það óhjákvæmilega að verkum að töluvert mikill hluti þess sem menn trúðu á og héldu að væri rétt, úreldist á mislöngum tíma. Við erum í raun nýbyrjuð að hugsa, höfum aðeins hugsað í brot af sekúndu, af heimsdeginum.

átt gott samstarf með öllum þeim flokkum sem hvert verkefni krafðist hverju sinni. Ég veit þess vegna, að í öllum flokkum leynast frábærir einstaklingar, sem bera hagsmuni heildarinnar, ofar eigin hagsmunum. Það kann ég vel að meta. Þetta vita þeir einnig, sem best til mín þekkja. Ég sendi því þetta ,,blaður" aftur til föðurhúsanna því ég hef alltaf haft að leiðarljósi, setningar sem skrifaðar eru á vegg munaðarleysingjaheimilis á Indlandi þar sem Móðir Theresa vann um árabil. Þar stendur m.a. .....Fólk getur verið ósanngjarnt óskynsamt og eigingjarnt,,,, Elskaðu það, hvað sem því líður. Og að ,,,,, Áralangt uppbyggingarstarf þitt getur verið kollvarpað á einni nóttu,,,, Byggðu hvað sem því líður!

Versta gagnrýni sem ég hef fengið!

Fyrir hönd íbúa Grafarvogs vil ég senda fráfarandi fulltrúum í hverfaráði Grafarvogs kærar þakkir. Ég vil því á þessum tímamótum þakka Stefáni Jóni Hafstein, sem hefur á síðasta kjörtímabili verið formaður hverfaráðs Grafarvogs og Jóhannesi Bárðarsyni fyrir gott samstarf og þakka allt það sem vel hefur verið gert fyrir hverfið og íbúa Grafarvogs á tímabilinu. En síðast en ekki síst vil ég þakka Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir, einstakt og frábært samstarf í gegnum tíðina. Eða alveg frá því að ég hitti hann fyrst, þá er ég var fulltrúi foreldra í Leikskólaráði 1998 og hann sem fulltrúi minnihlutans. Á þessu tímabili voru erfiðleikatímar fyrir foreldra leiksskólabarna þegar blasti jafnvel við að foreldrarnir misstu vinnuna vegna þess að geta ekki mætt til vinnu. Þeim var gert að skrifa undir samþykki um að börn þeirra gætu verið send heim fyrirvaralaust. Guðlaugur Þór var þá betri en enginn í þessum skelfilegu aðstæðum þar sem við börðumst með foreldrum sem kröfðust réttlætis og lausnar á vandanum. Síðan lágu leiðir okkar Guðlaugs

Nú eftir kosningar þurfum við að staldra aðeins við og gefa okkur stuttan tíma í að velta fyrir okkur hvar við erum stödd, til að endurmeta aðstæður og taka stefnuna á ný. Það hefur verið talað um að kosningabaráttan hefði farið seint af stað og að ekki hafi verið mikið um átök milli flokkanna. Stefnur þeirra og áherslumál hefðu verið mjög keimlík og litlaus. Það sem stendur eftir hjá mér, eru aftur á móti þær undarlegu ásakanir, einstaka fulltrúa Samfylkingar, skellt fram eins og í örvæntingu, eins og að snjallt væri að efast um trúverðugleika formanns Íbúasamtaka Grafarvogs. Trúverðugleika gagnvart hverjum? Það gekk allt í einu, fjöllunum hærra að formaðurinn væri hugsanlega litaður ,,skelfilegum" lit og ætti hann því allt vont skilið. Og ég sem er óflokksbundin, og hef ekki selt sálu mína neinum flokki, stóð allt í einu frami fyrir ásökunum um ótrúverðugleika. Ég vissi að verið var að ræða um mig og hugsanlega afstöðu mína jafnvel með níði, á einhverjum ,,blog" síðum framboðanna. Í öll þau ár sem ég hef unnið í sjálfboðavinnu fyrir íbúa, foreldra og börn hverfis og borgar, hef ég borið hag þeirra fyrir brjósti og lagt kapp á að vinna heiðarlega. Ég tel mig hafa

Þakkarskuld er eina skuldin sem göfgar manninn

saman hér í Hverfaráði Grafarvogs, þar sem ég var fulltrúi íbúa og hann fulltrúi minnihlutans. Guðlaugur Þór, er maður sem ég ber mikla virðingu fyrir, maður sem hefur sýnt og sannað að hann hefur mikinn áhuga, skilning og getu til að taka á hinum ýmsu málum er snerta samfélagið. Það er aðeins einn galli sem ég hef fundið á honum, það er að hann heldur með enska fótboltaliðinu ,,Liverpool’’ sem ég tel vera frekar lélegt lið, liðsmenn bæði innskeifir og hjólbeinóttir. Þrátt fyrir þetta þá sannaðist með Guðlaugi Þór og Jóhannesi Bárðarsyni, hve mikilvægt það er fyrir okkur íbúa hverfisins, að í hverfaráði sitji fulltrúar flokkanna sem jafnframt eru íbúar hverfisins því þeir hafa stutt við bakið á okkur í mjög mörgum mikilvægum málum íbúa, óháð stefnum flokkanna. Það er eftirsjá í Guðlaugi Þór úr borgarmálunum, en við óskum honum gæfu gengis og blessunar í störfum hans á alþingi í framtíðinni, auðvitað okkur íbúum landsins til heilla.

Við horfum björtum augum fram á veginn Við óskum nýjum borgarstjóra

Elísabet Gísladóttir, formaður Íbúasamtaka Grafarvogs, skrifar:

Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni og borgarstjórninni til hamingju og biðjum þeim blessunar og velfarnað í komandi framtíð með von um gott samstarf. Margt hefur áunnist á síðustu árum en margt þarf að endurskoða, framkvæma og fullkomna. Nú á næstu dögum stendur til að stjórn Íbúasamtaka Grafarvogs, fari á fund hins nýja borgarstjóra, til að ræða og koma með tillögur að enn frekara og skilvirkara samstarfi með virkri þátttöku íbúa í hverfinu. Þetta er spennandi og á eftir að koma í ljós, hvort eða hverju það skilar okkur, í átt til aukins íbúalýðræðis. Elísabet Gísladóttir



11

10

GV

Fréttir

Fréttir

Rimaskóli bestur í frjálsum íþróttum sjötta árið í röð

Hlauparar úr skokkhóp Fjölnis hlaupa um víðan völl:

Mikið afrek þriggja Grafarvogsbúa Í apríl s.l. fór tæplega 30 manna hópur frá Íslandi til Suður-Afríku til að hlaupa í hálfu maraþoni og hinsvegar í 56 km Ultra-maraþoni. Hlaup þetta er kallað ,,Two Oceons Marathon’’ og var hlaupið frá Höfðaborg til Indlandshafs og þaðan yfir skagann að Atlantshafinu og með standlengjunni til baka til Höfðaborgar. Þetta hlaup þykir nokkuð erfitt enda mikið um erfiðar brekkur, eftir að hlauparar eru búnir að ljúka við fyrstu 42 kílómetrana. Hlauparar voru úr nokkrum hlaupahópum á Reykjavíkursvæðinu og meðal annars þrír úr Fjölnishópnum þ.e. Erla Gunnarsdóttir, Stefán Stefánsson og Karl Jón Hirst. ,,Þetta var mjög erfitt. Hátt í 30 stiga hiti og þegar venjulegu maraþoni var lokið eftir 42 kílómetra tóku við miklar brekkur. Tíminn hjá okkur var um 5 klukkustundir en ég held að við höfum verið ánægðust með að komast í markið,’’ sagði Karl Jón Hirst í samtali við Grafarvogsblaðið. Þremenningarnir æfðu nær daglega frá áramótum og afrekið er glæsilegt.

Karl Jón Hirst, Erla Gunnarsdóttir og Stefán Stefánsson komin í mark.

Hópur Íslendinga skoðar sig um við Góðravonarhöfða.

GV

Beðið með mikilli eftirvæntingu eftir hlaupinu.

Nemendur Rimaskóla reynast sigursælir þegar frjálsíþróttakeppnir eru annars vegar. Krakkarnir í 5. - 8. bekk skólans fjölmenntu á frjálsíþróttamót grunnskóla sem haldið var í hinni nýju og glæsilegu Laugardalshöll í maí. Frjálsíþróttamót grunnskóla felst í árgangakeppni og keppni um titilinn "Besti grunnskólinn í frjálsum íþróttum". Rimaskóli vann að þessu sinni keppnina með yfirburðum og í sjötta skiptið í röð. Skólinn vann einnig árgangakeppnina í 6. og 7. bekk en fékk annað sætið í 5. bekk. Miklir afreksmenn í frjálsum íþróttum eru og hafa verið í Rimaskóla og má þar nefna okkar efnilegustu landsliðsmenn, þau Írisi Önnu Skúladóttur, Svein Elías Elíasson og Kristínu Birnu Ólafsdóttur. Tíu nemendur skólans fengu afhentan gullpening í ár fyrir sigur í einstökum greinum, hlaupi, stökki eða kúluvarpi. Íþróttakennarar skólans þau Jónína Ómarsdóttir, Eyrún Ragnarsdóttir og Hallgrímur Jónasson fylgdu nemendum á keppnisstað og hvöttu þá til dáða. Við verðlaunaafhendingu í hátíðarsal skólans þakkaði Helgi Árnason skólastjóri nemendum og kennurum fyrir þennan glæsilega árangur í frjálsum íþróttum og hvatti alla nemendur til að hreyfa sig og

styrkja. Rimaskóli hefur lagt áherslu á frjálsar íþróttir í langan tíma og Foreldrafélag skólans hefur staðið fyrir Rimaskólahlaupinu ár hvert.

Fjölmennur hópur nemenda Rimaskóla tók þátt í Frjálsíþróttakeppni grunnskóla og tryggði skólanum sigur sjötta árið í röð.

Þessir drengir í 5. bekk Rimaskóla urðu öruggir sigurvegarar í 4 x 100 metra hlaupi.

Sveinn Aron lyftir bikarnum fyrir hönd 7. bekkinga Rimaskóla.

ÞAU ERU KOMIN! Þegar þú kaupir gjaldeyri fyrir 20 þúsund krónur eða færð þér MasterCard kreditkort færðu stórt og fallegt handklæði í kaupbæti. Farðu í fríið með fjármálin á þurru: • Kreditkort - þægilegasti og öruggasti greiðslumátinn í útlöndum. • Netbankinn - yfirsýn og helstu bankaaðgerðir hvar sem er í heiminum. • Reglulegur sparnaður - leggðu drög að næsta fríi. • Greiðsluþjónusta - láttu okkur sjá um að borga reikningana.

Þú færð nánari upplýsingar hjá þjónustufulltrúum í útibúum Glitnis, í þjónustuveri í síma 440 4000 og á www.glitnir.is


13

12

GV

Fréttir

GV

Fréttir

Fjölnir á fljúgandi siglingu - Fjölnir vann stórsigur á Þór frá Akureyri í fyrstu deild karla á sunnudag

Ásmundur Arnarsson er vitanlega mjög sáttur við frammistöðu sinna manna í Fjölni til þessa í 1. deild karla í knattspyrnu. Fjölnir vermir annað sætið í deildinni og þetta er byrjun sem enginn hafði þorað að láta sig dreyma um. Vonandi að framhald verði á þessu góða gengi Fjölnismanna og að Grafarvogsbúar fjölmenni á leikina og hvetji sitt lið.

Byrjun Fjölnis í 1. deild karla í knattspyrnu framar öllum vonum:

,,Mætti halda að það byggju um 200-300 manns í Grafarvogi’’ - segir Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis sem er ósáttur við áhugaleysi Grafarvogsbúa Núna í upphafi sumars hefur gott gengi Fjölnis í 1. deild karla í knattspyrnu glatt margan Grafarvogsbúann. Það er sýnd veiði en ekki gefin fyrir liðin að standa sig í þessari deild og stefna þeirra flestra er að blanda sér í baráttuna um sæti í úrvalsdeildinni. Að loknum fimm umferðum er Fjölnir í öðru sæti, tveimur stigum á eftir efsta liðinu Fram. Liðið hefur enn ekki tapað leik og hefur góð samheldni og sterk spilamennska vakið athygli og má af frammistöðu liðsins ráða fram til þessa að Ásmundur Arnarsson þjálfari liðsins sé að gera býsna góða hluti með þetta unga og spræka Grafarvogslið. Ásmundur tók við Fjölnisliðinu í fyrra en þar áður þjálfaði hann Völsung frá Húsavík í tvö ár. Hann lék á sínum tíma sem knattspyrnumaður, fyrst með Þór, Völsung, Fram og lítið eitt með Breiðabliki. Ásmundur er sjúkraþjálfari að mennt. - Grafarvogsblaðið hitti Ás-

mund í vikunni og lék forvitni á að vita hvort hann væri ekki kátur með gengi liðsins til þessa? ,,Jú, ég get ekki verið annað en nokkuð sáttur með frammistöðuna. Gengið á liðinu er ívið betra en ég þorði að vona fyrir tímabilið. Engu að síður er ég með höndum nokkuð breiðan hóp þó að reynslan sé kannski ekki mikil. Það er meiri breidd í liðinu en í fyrra og við vonumst eftir að gera betur en í fyrra, alla vegana er það stefnan hjá okkur. Í fyrra vorum við að fá á okkur allt of mikið af mörkum og áherslan núna er að laga þann þátt verulega. Í upphafi mótsins var stefnan einnig sú að taka inn fleiri stig en 22 og ennfremur að fá á okkur færri mörk en 34 eins og raunin varð á síðasta tímabili. Sá þáttur er fyrst og fremst að ganga eftir því við erum búnir að fá á okkur tvö mörk í fyrstu fimm leikjunum en á sama tíma í fyrra voru þau orðin 12 talsins. Í ár eru aðrir leikmenn að leika miðvarðarstöðunnar og þeir leysa

það verkefni vel úr hendi. Haukur Lárusson kemur mjög sterkur inn en hann er ennþá að leika með 2. flokki félagsins. Þá er sonur Ásgeir Sigurvinssonar, Ásgeir Aron, að leika mjög vel og hefur hann greinilega erft leikskilninginn frá föður sínum. Ekki má heldur gleyma þætti Ögumundar í markinu en hann hefur til þessa verið að verja fanta vel,” sagði Ásmundur. - Sýnist þér deildin vera svipuð að styrkleika og undanfarin ár? ,,Það er afskaplega erfitt að meta það en svona í fljótu bragði sýnist mér hún vera ósköp svipuð. Í fyrra spilaðist þetta þannig að þrjú lið stungu af og hin liðin sem komu á eftir voru í einum hnapp. Fyrir síðustu umferðina í fyrra gátum við annað hvort fallið í níunda sætinu eða endað í fjórða sæti sem varð hlutskipti okkar. Í sumar á líklega eitt lið eftir að skilja sig frá öðrum og á ég þar við Framarana en annar gangur í deildinni getur þróast

með hvaða hætti sem er.” - Það er hægt að kætast yfir genginu þessa dagana en það er aðeins þriðjungi lokið af mótinu og mikið eftir? ,,Mikið rétt. Við eigum erfiða leiki eftir í fyrri umferðinni gegn liðum í efri hluta deildarinnar. Ég er samt hvergi banginn á framhaldið og vonandi að liðið nái að fylgja eftir þessari góðri byrjun. Það er markmið okkar allra hið minnsta,” sagði Ásmundur. - Hvað segir þú um stuðninginn sem þið fáið á heimavelli hér í Grafarvoginum? ,,Miðað við þá mætingu áhorfenda á völlinn myndi ég telja að það byggju um 200-300 manns í Grafarvogi. Mætingin á völlinn er mjög döpur og okkur þætti mjög vænt um að fá fleira fólk á völlinn til að styðja við bakið á okkur. Eins væri nauðsynlegt að fá fleiri til starfa í kringum félagið. Ef félagið á að getað tekið einhver skref upp

á við og orðið alvöru klúbbur þá þarf meiri mannskap að félaginu. Annars eru aðstæður að öðru leyti þokkalegar en gervigrasvöllur myndi breyta miklu fyrir okkur og félagið í heild.” - Ertu annars ekki bara sáttur í þessu starfi? ,,Þessi vera mín í Fjölni hefur komið mér skemmtilega á óvart. Það er mun skemmtilegra að starfa í félaginu en ég þorði að vona þegar ég tók liðið að mér fyrir röskum tveimur árum síðan. Það hefur náðst saman góður kjarni af leikmönnum og andrúmsloftið innan liðsins sem utan getur varla verið betra. Það er gaman að vera í kringum þetta starf en hópurinn á bak við liðið er allt of fámennur. Ég vil bara nota tækifærið og hvetja alla þá sem áhuga hafa á að vinna með deildinni að koma og gefa kost á sér,” sagði Ásmundur Arnarsson þjálfari í lokin.

Lokatölur leiksins urðu 5-0. Fjölnir var mun betri aðilinn í þessum leik og átti sigurinn fyllilega skilið. Það var Gunnar Már Gunnarsson sem opnaði markareikning Fjölnis í þessum leik á 26. mínútu. Hann átti skot að marki frá vítateig sem lenti í varnarmanni Þórs og sveif í boga yfir markvörðinn og í markið. Á 44. mínútu skoraði síðan Ágúst Þór Ágústsson stórglæsilegt mark utan teigs sem hafnaði efst í markhorninu. Algerlega óverjandi fyrir markvörðinn og mörkin gerast ekki mikið fallegri. Þriðja mark Fjölnis kom síðan á 65. mínútu eftir darraðardans í vítateig Þórs þar sem hver leikmaðurinn á fætur öðrum hitti ekki boltann sem barst síðan til Sigmundar Péturs Ástþórssonar sem skoraði auðveldlega í hornið. Eftir þetta mark komst Þór aðeins meira inn í leikinn og áttu norðanmenn nokkur færi sem ekki nýttust og varði Ögmundur Rúnarsson nokkrum sinnum ágætlega. En á 77. mínútu skoraði Ólafur Páll Johnson mark beint úr hornspyrnu. Aðeins var farið að hvessa á þessum tíma og hjálpaði vindurinn til. Síðasta mark leiksins kom á lokamínútu leiksins eftir fasta fyrirgjöf Ingimundar Óskarssonar sem varnarmenn Þórs réðu ekki við og skoruðu sjálfsmark.

allt of stórt tap miðað við gang leiksins því Fjölnir átti prýðilega spretti inni á milli en það voru Framarar sem nýttu sín færi vel og sigruðu.

Fjölnir hefur byrjað mótið frábærlega og er sem stendur í efsta sæti deildarinnar. Fjölnir hefur ekki tapað leik á í deildinni á tímabilinu og þarf að leita aftur til ársins 1994 til að finna betri byrjun að því leyti í deildarkeppni.

Stuðningsmenn liðsins eru að sjálfsögðu í skýjunum eftir þessa góðu byrjun því engum datt í hug að opinbera vonir sínar um byrjun sem þessa. Markmiðin sem sett voru fyrir þetta tímabil voru þau að gera betur á ýmsum sviðum s.s. að vera búnir að næla sér í fleiri stig á ákveðnum tímapunkti, fá á sig færri mörk og svo framvegis. En eftir svona góða byrjun þá er nauðsynlegt að halda sér á jörðinni og gera sér ekki fyrirfram vonir um dýrðardaga í sumar því enn á eftir að spila 13 erfiða leiki áður en mótið er úti. Hlutirnir eru fljótir að breytast um leið og leikir tapast því öll liðin ætla sér að berjast fyrir sínu.

Eins og greint var frá í síðasta Grafarvogsblaði þá vann Fjölnir fyrsta leikinn á móti Stjörnunni og var leikið í Garðabæ. Síðan þá hefur Fjölnir spilað 4 leiki í deildinni. Fyrsti heimeikurinn var á móti Haukum og endaði með jafntefli 1-1. Það var alger óþarfi að vinna ekki þann leik en því miður þá varð niðurstaðan jafntefli. Næsti leikur var á móti Þrótti og var spilað á Valbjarnarvelli. Fjölnir skoraði mark á 10. mínútu leiksins og átti í vök að verjast mest allan leikinn eftir það. Þetta var líklega erfiðasti leikurinn til þessa og geysilega mikilvæg 3 stig sem fengust úr þeim leik. Eftir þessa þriðju umferð voru Fjölnir og Fram efst og jöfn í deildinni og mættust þessi lið þá í Vísa bikarkeppninni. Fjölnir var þar að spila sinn fyrsta leik á þjóðarleikvangi okkar Laugardalsvelli. Það eru ekki neitt sérstaklega skemmtilegar minningar frá þeim leik því hann tapaðist 0-4. Reyndar var þetta

Þá tók við ferðalag á Snæfelsnes og spilað á móti Víkingi frá Ólafsvík. Þetta var mikill slagsmálaleikur og hvorki færri né fleiri en 12 gulum spjöldum var veifað í þeim leik og einu rauðu. 10 af gulu spjöldunum voru á Víkinga og einnig það rauða. Af þessum tölum má sjá að mikið hefur gengið á en völlurinn var blautur og menn réðu illa við rennslið þegar þeir fóru í tæklingar. Fjölnir misnotaði víti í þessum leik og varð niðurstaðan markalaust jafntefli en eitt stig var svo sem ágætt því Ólafsvíkingar eru geysilega erfiðir heim að sækja. Leikur fimmtu umferðar var síðan leikurinn á móti Þór sem áður er getið. Þessi sigur sem vannst á Þór var alveg geysilega mikilvægur fyrir framhaldið og gefur liðinu mikið sjálftraust. Þegar þetta er skrifað þá er Fjölnir í efsta sæti deildarinnar með 11 stig eftir fimm umferðir en einum leik þó ólokið á milli Hauka og Fram. Fram þarf að vinna þann leik til að endurheimta efsta sætið því markahlutfall Fjölnis er mjög gott eftir stórsigurinn á sunnudag.

Í síðasta Grafarvogsblaði impraði ég lítilega á spá þjálfara deildarinnar um lokastöðuna í haust. Í þeirri spá var Fjölni spáð 6. sæti og fer vel á því að vera ofar en sú spá sagði til um. En það eru tvö lið sem hunsa þessa spá algjörlega en eru væntanlega misánægð með stöðuna. Þessi lið eru Leiknir, sem segja má að sé spútnik lið fyrstu fimm umferðanna og síðan Þór. Leikni var spáð falli í aðra deild en þeir eru sko aldeilis á öðru máli. Þeir hafa verið að ná góðum úrslitum í leikjum sínum og þeir hafa skorað flest mörk allra liða í deildinni, einu meira en Fjölnir.

Bónus auglýsir á öllum búningum Fjölnis Nú á næstu dögum verður undirritaður stór samningur á milli Bónuss og Fjölnis og markar þessi samningur nokkur tímamót í sögu Fjölnis. Bónus gerði heildarsamning við Fjölni og verður með aug-

lýsingar á öllum búningum í handknattleik, knattspyrnu og körfuknattleik. Eins og áður sagði er hér um mjög stóran samning að ræða og kemur sér ákaflega vel fyrir rekstur þessara þriggja deilda innan Fjölnis.

Þetta er rausnarlegt framtak hjá Bónus sem eftir verður tekið í Grafarvogi. Við fylgjumst með undirskrift samningsins og greinum nánar frá í næsta blaði sem kemur út þann 6. júlí.

Þór var spáð úrvalsdeildarsæti á næstu leiktíð en þeir verða aldeilis að spýta í lófana ef þeir ætla ekki að taka sæti Leiknis í spánni og leika í annari deild að ári.

mæta á þennan mikilvæga leik og hvetja Fjölni og ég lofa skemmtilegum leik. Kristinn Daníelsson

Næsti leikur Fjölnis er á útivelli miðvikudaginn 21. júní kl 20 gegn HK og spilað verður á Kópavogsvelli. HK er sem stendur um miðja deild og mun selja sig dýrt því þeir ætla sér stóra hluti.

Staðan í 1. deild karla 11. júní

Næsti heimaleikur Fjölnis er síðan viku seinna eða miðvikudaginn 28. júní kl 20. Þá tökum við á móti Fram og þá er aldeilis tækifæri til að hefna bikarleiksins. Reyndar verður þetta fyrsta viðureign liðanna í deildarkeppni meistaraflokks og því söguleg stund að því leyti. Ég hvet alla sem vettlingi geta valdið að

Fjölnir Leiknir R. Fram Þróttur R. HK KA Haukar Stjarnan Þór Víkingur Ó

5 3 2 0 5 3 1 1 4 3 2 0 5 3 0 2 5 2 0 3 5 2 0 3 4 1 2 2 5 1 1 3 5 1 1 3 5 0 3 2

9:2 10:5 5:1 7:6 7:7 6:9 2:5 4:7 3:9 7:9

11 10 10 9 6 6 4 4 4 3 Gunnar Már Gunnarsson skoraði fyrsta mark Fjölnis í burstinu gegn Þór frá Akureyri.

Sumar Tilboð Nýttu sumarið til góðra verka tveir fyrir einn á mánaðarkortum

aðeins 5.900 kr. þú þarft ekki að hafa áhyggjur af HM Við erum með boltann í beinni

Frábærir opnir tímar:

Sumarið er tíminn

Alhliða líkamsrækt og sjúkraþjálfun Egilshöllinni Simi: 594 9630

www.orkuverid.is


Pylsa, kók í gleri og Hraun á aðeins

350,-

Gildir frá 15. - 22. júní

Barnaís á aðeins

99,-

Gildir frá 15. - 22. júní


Fjölskyldutilboð: 4 hamborgarar, 2 lítrar af Kók Sósa, franskar og heill kassi af Æði bitum á aðeins

Gildir frá 15. - 22. júní

1999,-

Þökkum frábærar móttökur Við hjá Gullnesti viljum þakka Grafarvogsbúum fyrir frábærar móttökur frá því að við opnuðum aftur í Grafarvogi á nýjum og betri stað við Gylfaflöt.

Grillið í Grafarvogi - 567-7974


16

GV

Stangaveiði

Vissir þú?

Nýjustu og fallegustu flugurnar fást á www.Krafla.is

Að elstu flugurnar sem eru til sölu á Krafla.is eiga stórafmæli á þessu ári. Voru hannaðar árið 1966 og verða því fertugar í sumar. Sjón er sögu ríkari á Krafla.is Að Kristján Gíslason, sem hannaði allar laxaflugurnar sem seldar eru á Krafla.is veiddi á annað þúsund lax á sínum langa ferli sem fluguveiðimaður og alla laxana veiddi hann á sínar eigin flugur sem hann hannaði og hnýtti. Að flugur frá Krafla.is fást meðal annars í Arkó veiðibúðinni í Árbæjarhverfi. Þar ræður Guðmundur Guðmundsson ríkjum og leiðbeinir veiðimönnum um val á flugum og öðrum búnaði til fluguveiða. Nú styttist mjög í að Grímsá í Borgarfirði verði opnuð þetta árið. Í fyrra veiddust tveir fyrstu laxarnir í þessari fallegu veiðiá á appelsínugula Kröflu.

Litla snotra bleikjuáin fyrir vestan þar sem laxinn hafði allt í einu tekið völdin. Laxarnir fjórir lágu í dýpinu vinstra megin við stóru torfuna.

Krafla orange. Að allar flugur sem nefndar verða í veiðiþætti Grafarvogsblaðsins fást í netversluninni á Krafla.is Þar er stöðugt verið að auka við úrvalið. Á Krafla.is er einnig að finna mjög mikið efni sem tengist fluguveiði, magnaðar veiðisögur og ýmsna fróðleik. Að á Krafla.is eru seldar bestu íslensku silungaflugurnar á markaðnum í dag. Silungaflugurnar eru hannaðar af Gylfa Kristjánssyni og heita Beygla. Krókurinn, Mýsla og Beykir. Þá eru einnig margar af flugum Kristjáns Gíslasonar til í stærð 16 og 18 en flugur Kristjáns hafa ekki síður reynst vel í bleikjuveiði en laxveiði.

Beygla hefur reynst mjög vel. Að allar flugur sem seldar eru á Krafla.is eru með fjórlökkuðum haus og því afar sterkar. Lakkið er sérblandað og níðsterkt. Að handbragðið á flugum á Krafla.is er með því allra besta sem gerist. Þess má geta að örsmáar flugur, númer 16 og 18, þar sem uppskirftin segir til um tvílitan haus þá er hausinn tvílitur þrátt fyrir að flugurnar séu agnarsmáar.

Erfið bið eftir fyrsta túrnum

Allir veiðimenn þekkja erfiða bið eftir fyrsta veiðitúr sumarsins. Að þessu sinni vígir maður græjurnar í Munaðarnesi við Norðurá í Borgarfirði. Við hjónin fórum á þennan fallega stað í fyrra. Fengum tvo fallega laxa og misstum aðra tvo. Fengum að auki nokkrar tökur en laxinn tók grannt þennan júnídag í fyrra. Laxarnir tveir sem náðust tóku báðir rauðan Elliða. Þeir tveir sem höfðu betur tóku báðir bláa Grímu en báðar þessar flugur eru til sölu í netversluninni Krafla.is Kröflur í ýmsum litum voru einnig að vekja áhuga laxanna en tökurnar voru grannar eins og áður sagði. Eins og sjá má á myndinni hér til hliðar var vatn mjög lítið í fyrra og reyndar í sögulegu lágmarki. Nú rignir sem aldrei fyrr og alveg eins er líklegt að vatnsmagnið beri okkur veiðimennina ofurliði eftir nokkra daga. Sem dæmi um mikla vatnavexti í Norðurá síðustu daga má nefna að malartanginn á myndinni

Hann er á. Lax hefur tekið bláu Grímuna á Munaðarnessvæðinu í fyrra. Eftir stranga baráttu skellti tveggja ára laxinn sér niður fyrir malaroddann og nokkrum mínútum síðar var viðureigninni lokið og laxinn hafði betur og átti skilið að sleppa. Svo klókur var hann. hér að ofan var allur á kafi þann 1. júní sl. Og mikið hefur vaxið í ánni frá því á opnunardaginn. Norðurá er afar fljót að vaxa og minnka. Einn morgun fyrir skömmu hafði rignt stanslaust um nóttina. Frá því að veiðimenn hófu veiðar um morguninn og til hádegis hafði vatnsborð Norðurár lækkað um hálfan meter, 10 cm á klukkustund.

Að í netversluninni Krafla.is er boðið upp á ýmsan greiðslumáta. Hægt er að greiða fyrir flugur með kreditkortum, með millifærslu í heimabanka og einnig er hægt að fá flugurnar sendar í póstkröfu. Að ekki er hægt að bjóða upp +á öruggari viðskipti á netinu en gert er á Krafla.is Þar er boðið upp á Veri Sign öryggi sem er það besta í heiminum í dag að flestra mati. Að í veiðiþættinum hér í Árbæjarblaðinu munum við segja skemmtilegar veiðisögur og birta flottar myndir af veiðimönnum með fallega veiði. Við skorum á veiðimenn að fylgjast með gangi mála hér í blaðinu og á Krafla.is

Tveir fallegir laxar komnir á land. Báðir tóku þeir rauðan Elliða í Munaðarnesi í fyrra. Rauði Elliðinn er ein sterkasta laxaflugan á markaðnum í dag og fæst á Krafla.is

Laxinn að taka völdin?

Vötn og veiði er allt í senn, tímarit, fréttaveita og veiðibók. Gamli og nýi tíminn þræddir saman. Ritstjóri er Guðmundur Guðjónsson einn sá reyndasti í stangaveiðimálefnum, með rúmlega 26 ára reynslu sem stangaveiðisérfræðingur Morgunblaðsins og ritstjóri Íslensku stangaveiðiárbókarinnar frá upphafi hennar árið 1988.

votnogveidi.is FRÍTT VEFRIT UM STANGAVEIÐI

Þrátt fyrir að gaman sé í laxveiði er bleikjuveiði eiginlega toppurinn á þessu öllu saman. Víða virðist þó bleikjan eiga undir högg að sækja og á því kunna menn engar skýringar. Það er margt sem við Íslendingar vitum ekki þegar hegðun laxins er annars vegar en þegar kemur að bleikjunni kárnar fyrst gamanið. Í sumum tilfellum er laxinn einfaldlega að hafa betur en þessir fiskar eiga ekki mikla samleið í straumvatninu. Mér er í fersku minni skemmtilegur veiðidagur í fyrra í lítilli en snotri bleikju á fyrir vestan. Þrátt fyrir mikla birtu og lítið vatn í ánni var bleikjan að taka litlar flug-

ur. Þegar ég kom hins vegar að veiðistað neðarlega í ánni (sjá mynd) varð ekki vart við bleikju. Skýringin kom í ljós skömmu síðar. Fyrir miðjum hylnum lágu fjórir nýgengnir laxar og áttu svæðið. Þannig háttaði til að mjög erfitt var að koma flugunni að löxunum í góðu rennsli og tóku þeir því vonandi þátt í því sl. haust að fjölga í laxastofni árinnar. Það eru margir skemmtilegir bleikjutúrar framundan í sumar hjá mér og mínum. Með boxin hlaðin af smáum Kröflum, Beyki, Mýslu, Beyglu og Króknum ásamt Grímunni í mörgum litum verður gaman að takast á við þann erfiða fisk sem bleikjan er. Fyrir því er hægt að færa gild rök að bleikjuveiði sé í raun mun erfiðari en laxveiði. Í lokin vil ég benda fluguveiðimönnum á að fara á vefinn Krafla.is og skoða þar mikið úrval af fallegum, sterkum og gjöfulum flugum fyrir lax- og silungsveiði. Ég fullyrði að þar er að finna fallegustu og sterkustu flugurnar sem í boði eru í dag og flestar með áratuga reynslu að baki.


Verslun fluguveiðimanna er á www.Krafla.is Vorum að bæta við mörgum nýjum flugum

Kröflurnar í öllum litum sem keilutúpur í fyrsta sinn á Íslandi

Gríma blá

Hófí

Grænfriðungur

Iða

Venus

Marbendill

Gríma rauð

Gríma gul

Fjölbreytt úrval af íslenskum laxaflugum - tvíkrækjur/þríkrækjur - Flugur með reynslu

Beykir

Mýsla

Krókurinn

SilungaKrafla rauð

SilungaKrafla bleik

SilungaKrafla Orange

,,Landsliðið’’ þegar íslenskar silungflugur eru annars vegar Besta vörnin í netverslun í dag Framleiðandi Skrautás ehf - Bíldshöfða 14 - Sími: 587-9500 / 698-2844

Beygla


18

GV

Fréttir

Torghátíðin haldin hátíðleg Þann 20. maí síðastliðinn var hin árlega Torghátíðin í verslunarmiðstöðinni Foldatorg í Hverafoldinni haldinn hátíðleg enn á ný og þótti hún einstaklega vel heppnuð. Mikið var um að vera þar sem meðal annars var boðið upp á grillað kjöt frá Nóatúni, ís frá Emmess í Foldaskálanum og mörg góð tilboð í verslunum og hjá þjónustuaðilum Foldatorgs. Þá var boðið upp á ýmsa afþreyingu fyrir börn á öllum aldri s.s. fjöltefli á vegum Hróksins og Fjölnis, hoppukastala, hjólaþotur, reiðhesta, andlitsmálningu og veltibíl Sjóvá. Í tilefni dagsins var dregið úr innsendum nöfnum og hlaut sú heppna, Sigríður M. Þorfinnsdóttir, gasgrill að verðmæti 30 þúsund krónur í verðlaun.

Hrund

Anní

Verðlaunahafinn Sigríður M. Þorfinnsdóttir ásamt Skæring í Smíðabæ og Óskari í Foldaskálanum við grillið góða.

Kristín

Bára

Jónína

Kæru viðskiptavinir! Í júní fá þeir sem koma í lit og strípur vaxmeðferðina parafin fyrir hendurnar Starfsfólk Höfuðlausna

Hársnyrtistofan Höfuðlausnir Foldatorginu - Hverafold 1-3 112 Reykjavík Sími: 567-6330 - www.hofudlausnir.is Opið: Mán 08.00-18.00 - þri - fim 09.00-18.00 fös 08:00-18:00 og lau frá 10:00-14:00

Pöntunarsími: 567-6330



20

FrĂŠttir

GV


Chevrolet gæði - frábært verð !

Aveo

Aukahlutir á mynd: Álfelgur

Vel búinn Chevrolet Aveo LS á aðeins kr. 1.499.000,-

Bílabúð Benna - Tangarhöfða 8-12 Sími 590 2000 - www.benni.is

Umboðsaðilar: Bílasalan Ós Akureyri s. 462-1430 - Bílahornið hjá Sissa Keflavík s. 420 3300


22

GV

Fréttir

100 hitaeingar - og hvað með það?

Frá vinstri, efri röð: Íris Anna Skúladóttir, Fjölni, Sveinn Elías Elíasson, Fjölni, Dagrún Inga Þorsteinsdóttir, Ármanni, Halla Björnsdóttir, Ármanni. Neðri röð. Stefanía Hákonardóttir, Fjölni og Ásdís Hjálmsdóttir, Ármanni.

Valin í landsliðið í frjálsum

Þann 17. og 18. júní næstkomandi fer fram keppni í 2. deild Evrópubikarkeppni Landsliða í Slóvakíu. Tvær ungar stúlkur frá Fjölni hafa verið valdar í Landsliðið í þetta skipti, en það er Íris Anna Skúladóttir, sem er valin í 1500 m. hlaup og Stefanía Hákonardóttir sem er valin í 400 m., 800 m. og 4 x 400 m. hlaup. Stefanía er að fara í sína fyrstu

ferð, en Íris er orðin sjóaðri í þessu, en þetta er 3. sumarið sem hún keppir með landsliðinu. Sveinn Elías Elíasson, gaf ekki kost á sér til keppni með landsliðinu í Slóvakíu, en hann keppir sömu helgi á Norðurlandameistaramóti í fjölþrautum unglinga. Sú keppni fer fram í Moss í Noregi. Á myndinni eru æfingafélagarnir

úr Fjölni og Ármanni, sem hafa verið valin til keppni með landsliðinu og unglingalandsliðinu um næstu helgi. Þau æfa saman undir stjórn Stefáns Jóhannssonar og Freys Ólafssonar. Við óskum þeim öllum góðs gengis á mótunum og munum flytja fréttir af gengi þeirra á heimasíðu Fjölnis www.fjolnir.is/frjalsar

EUROCONFORTO HEILSUSKÓRNIR SMELLPASSA Á 17. JÚNÍ

Ef neysla okkar er 100 hitaeiningum meiri en brennsla á dag í eitt ár fitnum við og þyngjumst um u.þ.b. 5 kg á ári. Fæst okkar vilja þyngjast um 5 kg á ári. Þetta dæmi er nefnt hér til þess að leggja áherslu á að neysla og brennsla er í fínu jafnvægi ef við höldum stöðugri þyngd. Ef við þyngjumst er neyslan meiri en það sem við brennum og ef við léttumst er neyslan minni. Þetta er í raun einfalt reikningsdæmi. Hvað mikið af mat þarf að innbyrða til þess að neyta 100 hitaeininga? Jú það getur verið eitthvað af eftirfarandi; 64 rúsínur, 1/3 venjulegt Snickers, 1 ½ soðið egg, 1 stór bökuð kartafla, 7 meðalstórar franskar kartöflur (takið eftir samanburði á þessum kartöflum), ½ sandkökusneið, 1 bolli bjór eða ½ bolli léttvín. Ef við sem sagt bætum þessu við hæfilega neyslu, daglega í 1 ár, án þess að auka við hreyfinguna þá þyngjumst við um 5 kg á ári. Aftur á móti getum við brennt 100 hitaeiningum með röskri göngu eða samsvarandi hreyfingu í 10-15 mínútur. Þetta er góða hliðin á dæminu. Við þurfum að vera vakandi fyrir því hvað við borðum um leið og við njótum hverrar stundar og látum okkur líða vel.

Sumarið og grillið Sumarið er komið sem þýðir að grilltíminn er kominn. Margar ánægjustundir eigum við framundan með fjölskyldu og vinum við grillið. Grillin hafa farið stækkandi og e.t.v. máltíðirnar líka en hvað ger-

að leiðarljósi í lífinu. Til þess að svo megi verða þarf að viðhafa reglusemi í umgengni við líkamann alveg eins og alla aðra hluti hvort sem það er vinnan, skólinn, heimilið, fötin okkar eða bíllinn. Við viljum líta vel út og koma vel fyrir og líða vel, þetta gildir um "allan pakkann", þ.e. líkamann, líkamsburð, framkomu, fötin o.fl.

Útivera og heilsurækt Sumartíminn er sá tími þegar við viljum vera sem mest úti við njóta góðra daga og fá roða í kinnar. Hreyfing og heilsurækt utan dyra er því nærtækust. Hér þarf hver að velja fyrir sig og sinn smekk s.s. göngutúra, sundferðir, hjólaferðir, stafagöngu, fjallgöngu eða jafnvel leikfimi úti undir berum himni eins og kínverjar hafa stundað í hundruði ára. Þetta snýst ekki um hvaða hreyfingu við stundum heldur það að stunda hreyfingu. Flestum er kunnugt um að hæfileg hreyfing er flestra meina bót og snýst ekki bara um að brenna hitaeiningum. Vöðvar, sinar, liðamót, bein, hjarta, lungu og æðakerfi verða sterkari og heilbrigðari ef þau eru látin vinna hæfilega mikið. Gagnsemi hreyfingar hefur þó fleiri hliðar og t.d. batnar svefn þeirra sem hreyfa sig hæfilega mikið og kvíði og verkir geta minnkað. Hér er til mikils að vinna.

Af stað nú! - sumarið er komið! Íslendingar, eins og íbúar meira og minna í öllum heiminum eru að

Heilsuskórnir eru til í 10 fallegum litum, einnig Gull og Silfri

Verslanir sem selja skóna: - Valmiki Kringlunni - Euroskór Firðinum - B-Young Laugavegi 83 - Nína Akranesi - Heimahornið Stykkishólmi - Mössubúð Akureyri - Töff föt Húsavík - Okkar á milli Egilsstöðum - Galenía Selfossi - Jazz Vestmannaeyjum

Verð: 4.400 - Stærðir: 35-44

Jakobína Sigurðardóttir. ist þá? Erum við að bæta á okkur nokkur hundruð hitaeiningum í hvert skipti sem grillað er? Það er ekki vanþörf á að vera vakandi og hugleiða aðeins hvað við erum að gera í heilsufarsmálum á grilltímanum. Til okkar í Hreyfigreiningu hafa komið einstaklingar sem segja "ég þarf að taka mér tak fyrir sumarið, ég þyngist alltaf á sumrin, jú grillmaturinn er svo góður". Það er jú gott og blessað að taka sér tak, en er það rétta leiðin?

,,Í átaki’’ Til þess að halda góðri heilsu þarf að huga að henni alltaf, alla daga. Ekki bara þegar viðkomandi er "í átaki". Hugsunin að vera "í átaki" lýsir því í raun að heilsan mætir afgangi og hugað er að henni í skorpum, en það er ekki það sem gefur bestan árangur til lengdar. Best er að gera hreyfingu og hollan lífsstíl

fitna. Þetta á við bæði um börn og fullorðna. Nú er tækifæri til þess að nota sumarið og mildara veðurfar til hreyfingar. Ávinningur af því er bæði styrking líkamans, útrás fyrir streitu og kvíða og síðast en ekki síst aukin brennsla. Gildir það hér eins og áður er sagt að lítið er miklu meira en ekkert. Mesta átakið er að koma sér af stað og um leið og því er náð er bara að halda áfram. Það sem skiptir þó mestu máli er að hreyfa sig eitthvað og að byrja ekki of geyst. Ef líkamlegir eða andlegir kvillar hindra hreyfingu þá geta sjúkraþjálfarar eða aðrir vel menntaðir þjálfarar aðstoðað. Gangi ykkur vel og njótið sumarsins. Jakobína Sigurðardóttir Sjúkraþjálfari. Hreyfigreiningu Sjúkraþjálfun og heilsurækt

GV auglýsingasími 587-9500



Þú færð allt í veiðiferðina hjá okkur - kíktu við og kynntu þér úrvalið Kasthjól frá 1990 kr. - Fluguhjól frá 4990 kr.

Nielsen flugu og kaststangir

Hodgman - Showbee og Chotavöðlur á konur og karla í miklu úrvali. Mikið úrval af vöðluskóm

Nú erum við komnir með hinar vinsælu Kröfluflugur Kristjáns Gíslasonar í mjög miklu úrvali

Spúnar frá 250 kr stk.

Arkóveiði Veiðihöllinni. Krókhálsi 5 G Sími 587 5800 - 893 7654 www.arko.is


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.