Arbaejarbladid 1.tbl 2008

Page 1

Árbæjarblaðið 1. tbl. 6. árg. 2008 janúar

Fréttablað íbúa í Árbæ og Grafarholti

Opið virka daga frá kl. 9-18.30 Laugardaga frá kl. 10–14

Fjör hjá Árbúum í Englandi

Hraunbæ 102B – 110 Rvk. Sími 567–4200 Fax 567–3126 Netfang: arbapotek@internet.is

Pantið tíma í síma 511–1551 Skátar úr skátafélaginu Árbúum í Árbæjarhverfi tóku þátt í Alheimsleikum skáta sem fram fóru í Englandi. Eins og sést á þessari mynd var mikið fjör á mótinu en á myndinni sem er frá strandpartýi eru þær Inga, Hanna, Katrín og Drífa. Nánar frá mótinu á bls. 8 og 9

Hársnyrting Villa Þórs Lynghálsi 3

Frábær gjöf fyrir veiðimenn Falleg flugubox með vinsælum laxa- og silungaflugum frá Krafla.is Tilvalin afmælisgjöf fyrir kröfuharða fluguveiðimenn

Kannaðu málið á Krafla.is eða í síma 587-9500

Gröfum nöfn veiðimanna og lógó fyrirtækja á boxin


2

Fréttir

Árbæjarblaðið

Árbæjarblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: skrautas@simnet.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Bíldshöfða 14 - símar 587– 9500 og 698–2844. Netfang Árbæjarblaðsins: abl@centrum.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: Sólveig Jóna Ögmundsdóttir, Stefán Kristjánsson. Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur. Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll hús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti, Bryggjuhverfi, Norðlingaholti og einnig er blaðinu dreift í öll fyrirtæki í póstnúmeri 110 (660 fyrirtæki).

Gleðilegt ár Við sem stöndum að Árbæjarblaðinu í núverandi mynd erum nú að hefja sjötta árið með blaðið. Í upphafi voru margir sem spáðu því að blaðið ætti ekki langlífi fyrir höndum en við erum enn að og blöðin á þessu ári verða tólf talsins eins og endranær. Útgáfa Árbæjarblaðsins er eingöngu fjármögnuð með tekjum af auglýsingum. Sem betur fer fjölgar þeim fyrirtækjum sem gera sér ljóst að hér er kominn öflugasti og mest lesni fjölmiðillinn í hverfinu. Auglýsendur sem hyggjast ná til sem flestra íbúa í Árbæjarhverfi (Árbæ, Grafarholti og Norðlingaholti) ættu því að nýta sér blaðið í enn meiri mæli en þeir hafa gert til þessa. Sömu sögu er að segja varðandi þá sem vilja koma að efni og skilaboðum til íbúanna. Til þess er ekki betri leið til en Árbæjarblaðið. Hverfisblöð eru af allt öðrum toga en hin venjubundnu dagblöð. Þau eru meira lesin og oftar og líftími þeirra er mun lengri en annarra blaða. Þá safna margir blöðunum ár eftir ár. Ég vil hvetja lesendur blaðsins til að skipta við þá aðila sem auglýsa í Árbæjarblaðinu. Aðila sem koma skilaboðum sínum þráðbeint til lesenda og styrkja um leið útgáfu blaðsins. Og margir hverjir blað eftir blað og ár eftir ár. Af hverju skildi það nú vera? Einnig vil ég hvetja Árbæinga til að senda okkur hugmyndir að efni í blaðið og við minnum á að blaðið stendur öllum opið varðandi greinaskrif. Á því sviði hafa íbúar í Árbæ staið sig illa undanfarin ár og viljum við skora á áhugasama íbúa að senda okkur greinar ef þeim liggur eitthvað merkilegt á hjarta. Að lokum óskum við Árbæingum öllum gleðilegs árs um leið og við þökkum liðin ár. Stefán Kristjánsson, ritstjóri Árbæjarblaðsins

abl@centrum.is

Herrakvöld Fylkis 25. jan. Árlegt Herrakvöld Fylkis fer að venju fram í Fylkishöllinni á bóndadaginn sem að þessu sinni er föstudagurinn 25. janúar. Útlit er fyrir afar skemmtilegt kvöld. Veislustjóri verður Gísli ,,Út og suður’’ Einarsson og ræðumaður kvöldsins er Bjarni Harðarson alþingismaður. Báðir eru þessir menn þekktir fyrir það hversu skemmtilegir þeir eru og mega gestir því búast við miklu fjöri. Aðal skemmtikraftur kvöldsins verður Jóhannes Kristjánsson eftirherma og eins og menn vita

klikkar hann aldrei. Þá verður hið árlega málverkauppboð á sínum stað að borðhaldi loknu. Allir stuðningsmenn Fylkis eru hvattir til að mæta á Herrakvöldið og taka með sér gesti. Miðaverð er aðeins 4.900 krónur og eru miðar aðeins seldir í Fylkishöllinni. Menn eru beðnir að vera tímanlega á ferðinni og við minnum á að í fyrra komust færri að en vildu. Húsið verður opnað kl. 19.00 en borðhald hefst stundvíslega kl. 20.15.

Einstaklingar sem hreyfa sig reglulega draga ekki aðeins úr líkunum á fá ýmsa sjúkdóma heldur stórauka þeir líkurnar á að lifa lengur sjálfstæðir, heilbrigðara og hamingjuríkara lífi.

Mikilvægi hreyfingar

eldri borgara

Í félagsmiðstöðinni Hraunbæ 105 er boðið upp á fjölbreytta dagskrá alla daga allan ársins hring og er öllum velkomið að nýta sér það sem er þar í boði. Markmið félagsmiðstöðvarinnar er að bjóða íbúum Árbæjar og Grafarholts upp á félagsstarf og afþreyingu þeim til ánægju og með það að leiðarljósi að efla félagsvitund hvers og eins. Hluti af starfseminni, ætlað íbúum Grafarholts, fer fram í salnum að Þórðarsveig 3. Hingað til hefur félagsstarfið tekið mið af þörfum eldri borgara en eins og áður sagði er öllum velkomið að nýta sér það sem er í boði ef það hentar. Á síðastliðinu ári hefur verið lögð aukin áhersla á þátt heilsueflingar í félagsstarfinu. Aukið var við framboð hreyfingar, m.a. boðið upp á kennslu í almennri líkamsrækt í samstarfi við Árbæjarþrek, boðið upp á kennslu í stafgöngu, auk þess sem haldið var úti starfi í boccia og leikfimi. Boðið var upp á gönguferðir, pútt, kubb og sundleikfimi. Í ár ætlum við að endurtaka leikinni og gera jafnvel enn betur og bjóða aftur upp á kennslu í líkamsrækt í samstarfi við Árbæjarþrek, kennslu í stafgöngu, sundleikfimi o.fl. Sjá nánar auglýsingu um þetta hér í blaðinu.

Skiplögð tilboð veita stuðning Þar sem félagslegur stuðningur er einn af mikilvægum áhrifaþáttum hreyfingar veita skipulögð tilboð fólki aðhald til að stunda reglulega hreyfingu, viðhalda félagslegum tengslum, mynda ný vinatengsl og draga þannig úr líkunum á einsemd, ekki síst meðal þeirra sem eldri eru. Aukin styrkur, jafnvægi og liðleiki geta einnig dregið úr líkunum á föllum hjá eldra fólki, einni helstu orsök skertrar færni í þessum aldurshópi Aukið framboð og aðgengi að skipulögðum hreyfitilboðum fyrir fullorðna og aldraða er því mikilvægt sóknarfæri til að stuðla að aukinni hreyfingu í þessum aldurshópum.

mögulegt er að efla og viðhalda líkamsgetu, þar á meðal afkastagetu hjarta- og æðakerfis og lungna, vöðvastyrk, beinþéttni, liðleika, snerpu og samhæfingu ásamt því að stuðla að skilvirkari efnaskiptum. Hreyfing getur einnig hjálpað okkur að stuðla að æskilegri líkamssamsetningu, þ.e. auka hlutfall vöðva á kostnað fitu. Regluleg hreyfing getur þannig minnkað líkurnar á mörgum lífsstílstengdum sjúkdómum, svo sem hjartaog æðasjúkdómum, sykursýki af tegund 2, ofþyngd, beinþynningu, sumum tegundum krabbameina, þunglyndi, streitu og kvíða. Af þessu má vera ljóst að það er mikilvægt fyrir alla að leitast við hreyfa sig reglulega, óháð aldri, kyni eða holdafari. Eldri borgarar sem stunda líkamsrækt eiga að fylgja sömu meginreglum og aðrir hópar en þó verður að taka tillit til líkamlegs ástands hvers og eins. Ef grunur leikur á að gæta þurfi að einhverjum þætt heilsufars í tengslum við líkamsrækt er réttara að hafa samband við lækni áður en byrjað er.

Öll hreyfing er betri en engin En hvað þarf að hreyfa sig mikið til að það hafi góð áhrif á heilsuna? Öll hreyfing er betri en engin hreyfing en almennar ráðleggingar miða við að fullorðnir hreyfi sig rösklega í minnst 30 mínútur samtals daglega. Hreyfing til heilsubótar þarf því ekki að vera tímafrek en aukinni hreyfingu fylgir aukinn ávinningur. Mestur ávinningur er í húfi fyrir kyrrsetufólk sem fer að hreyfa sig meira.

Kristinn J. Reimarsson, Verkefnisstjóri Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts, skrifar:

Ávinningur reglulegrar hreyfingar Einstaklingar sem hreyfa sig reglulega draga ekki aðeins úr líkunum á fá ýmsa sjúkdóma heldur stórauka þeir líkurnar á að lifa lengur sjálfstæðir, heilbrigðara og hamingjuríkara lífi. Með fjölbreyttri hreyfingu er

Árbæjarblaðið

Nánari upplýsingar um tilboðin er að finna á heimasíðu Þjónustumiðstöðvar Árbæjar og Grafarholts, www.reykjavik.is/arbaer og/eða www.reykjavik.is/grafarholt. Kristinn J. Reimarsson Verkefnisstjóri Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts

Auglýsingar og ritstjórn 587-9500


398

498 20%

afslรกttur

559 998

129

98

598

98

498

59

798


4

Matur

Árbæjarblaðið

Ýsuflök með ostasvuntu eða ,,Vigdísarfiskur’’ - að hætti Guðbjargar og Gunnars ,,Þetta er gömul uppskrift frá móður minni sem hún hafði einhverntíman fengið eða séð í blaði frá matráði Bessastaða og hefur því jafnan gengið undir nafninu ,,Vigdísarfiskurinn’’ á okkar heimili, þó ég telji líklegra að hann sé frá stjórnartíð Kristjáns Eldjárns að Bessastöðum. Rétturinn heitir allavega ,,Ýsuflök með ostasvuntu’’ og er mjög góður,’’ segja þau Guðbjörg Eggertsdóttir og Gunnar Jónasson, Heiðarási 1, en þau eru matgæðingar okkar að þessu sinni.

Matgæðingarnir Guðbjörg og Gunnar með hundinn sinn Dívu.

ÁB-mynd PS

2 stk. meðalstór roðflett ýsuflök (má gjarnan vera þorskur). Hveiti. Salt. Pipar. 2 stk. brytjuð epli. 100-200 gr. bacon (gjarnan magurt). 1 stk. rauð paprika brytjuð í litla bita. Camembert ostur (má vera annað-

½ hvítlaukur. Ólífuolía. Salt og pipar. Furuhnetur. Fersk jarðaber og balsamic syrup (má sleppa hvorutveggja). Hitið hvítlaukinn með hýðinu í ofninum á meðan fiskurinn steikist. Þá er auðvelt að þrýsta rifjunum út úr hýðinu, saxa í minni bita og setja í salatskál. Hellið c.a. 2 msk. af ólífuolíu yfir, salti og pipar. Veltið því næst hreinu spínatinu upp úr olíunni og blandið niðursneiddum jarðaberjum og furuhnetunum saman við. Ef notuð eru jarðaber þá er sem sagt gott að setja nokkra dropa af balsamic sýrópi með.

Mulningsberjapæja í eftirrétt 500-600 gr. frosin ber, gjarnan

Skora á Helgu og Þröst Gunnar Jónasson og Guðbjörg Eggertsdóttir, Heiðarási 1, skora á Helgu Guðjónsdóttur og Þröst Helgason, Vesturási 11 að koma með upppskriftir í næsta blað. Við birtum uppskriftir þeirra í næsta blaði í febrúar. hvort Höfðingi eða hvítur Castello). Rifinn ostur eða ostasneiðar. Paprikuduft.

Vegna mikillar sölu undanfarið vantar allar gerðir bifreiða á skrá Gylfaflöt 5 S: 567-2700 www.arnarbilar.is

Fiskurinn er skorinn í hæfilega bita, þeim velt upp úr hveiti sem kryddað er með salti og pipar. Léttbrúnaður á pönnu við vægan hita (ca 2 mín á hvorri hlið). Fiskurinn er því næst settur í eldfast mót. Eplin, baconið og paprikan léttbrúnuð á pönnunni. Stingið litlum bitum af Camembert osti í fiskstykkin og setjið eplablönduna yfir ásamt rifnum osti. Stráið að lokum paprikudufti yfir og hitið í ofni í 20 - 25 mínútur við 180° hita. Meðlæti Með þessu er síðan hægt að hafa soðnar ferskar kartöflur og salat. Hugmynd að vinsælu salati frá þessum bæ er spínatsalat (sem hægt er að borða á undan eða með): 1 lítill pakki spínat.

berjablanda eða það sem til er í frystinum. 2 ½ dl. (125 gr.) hrásykur. 125 gr. smjör. 1dl. (30 gr.) haframjöl. 2 dl. (60 gr.) hveiti. Smá kardemommuduft (má sleppa). Hitið ofninn í 200° hita. Dreifið berjunum í pæform og dreifið ½ dl. af hrásykri yfir. Bræðið smjörið í potti, bætið 2 dl. af hrásykrinum í, haframjöli og hveiti, kardemommu og hrærið vel í. Dreifið deiginu í bútum yfir berin í forminu. Bakið í ca 25 mínútur við 180° hita eða þar til bak an hefur fengið gylltan blæ. Berið fram með annaðhvort, hreinni lífrænni jógúrt, vanilluís eða þeyttum rjóma. Bon appetitt! Guðbjörg og Gunnar


VORNÁMSKEIÐIN HEFJAST Í FEBRÚAR

Söng- leik- og dansnámskeið fyrir börn og unglinga! ATH: Nú er hægt að nota Frístundakortin til að greiða niður námskeið hjá Tónvinnsluskólanum*

Barna- og unglinganámskeið sem er undirbúningur að skemmtiþætti fyrir sjónvarp Þetta námskeið vakti mikla lukku hjá okkur á síðustu önn og verður afraksturinn í sjónvarpinu fljótlega á þessu ári.

25.000 kr. niðurgreiðsla fyrir þá sem geta notað Frístundakort ÍTR* *Nánari upplýsingar á www.itr.is um möguleika Frístundakortsins

Nemendur fá að syngja, dansa og leika í mörgum mismunandi atriðum undir handleiðslu krafmikilla leiðbeinanda í 10 vikur. Þegar atriðin eru fullæfð er farið í myndver og gerður sjónvarpsþáttur upp úr afrakstrinum og allir fá að vera með. Birgitta Haukdal verður umsjónarmaður þáttarins.

Nú hafa Tónvinnsluskóli Þorvaldar Bjarna og Dansskóli Birnu Björnsdóttur tekið höndum saman um framhald á þessu stórskemmtilega námskeiði.

Námskeiðin hefjast í febrúar. Kennt verður í Kópavogi og Grafarvogi í Snælands- og Foldaskóla eftir að venjulegum skólatíma líkur.

Birgitta Haukdal

Nú verður einnig kennt í Lækjarskóla í Hafnarfirði. Skráningar á heimasíðunni www.tonvinnsluskoli.is eða í síma 534 9090

Sponsored Digidesign School


6

Fréttir

Árbæjarblaðið

Snjór við frístundaheimilið Víðisel Loksins, loksins kom snjórinn. Við í frístundaheimilinu Víðiseli lentum í vandræðum því ekki voru til neinar rassaþotur til að fara að renna sér á. Þá var brugðið á það ráð að redda því í hvelli og voru plaspokar klipptir til og pappakassar skornir niður. Krakkarnir voru nú voða hissa á því. En þegar þau vorum komin upp í brekku og sáu hvað þetta virkaði vel voru þau mjög ánægð. Hér á myndum má sjá að bæði börn og starfsfólk skemmtu sér mjög vel. Kveðja frá öllum í frístundaheimilinu Víðseli við Selásskóla!

Árbæjarblaðið

Þessi unga dama renndi sér niður brekkuna með pappaspjaldið pakkað inn í plastpoka og ,,græjurnar’’ virkuðu mjög vel.

Auglýsingar og ritstjórn

Sími:

587-9500

Fljótlega myndaðist flughál brekka og krakkarnir skemmtu sér konunglega þó að þoturnar væru af frumstæðari gerðinni.

Kæru viðskiptavinir! Nýtt ár og ný andlit hjá okkur á Höfuðlausnum! Vonumst til að sjá sem flest ykkar á komandi ári!

Hársnyrtistofan Höfuðlausnir Foldatorginu - Hverafold 1-3 112 Reykjavík Sími: 567-6330 - www.hofudlausnir.is Opið: Mán 08.00-18.00 - þri - fim 09.00-18.00 fös 08:00-18:00

Pöntunarsími: 567-6330



9

8

Fréttir

Árbæjarblaðið

Fréttir

Árbæjarblaðið

Árbúar - á Alheimsmóti skáta í Englandi. Árbæjarblaðið birtir ferðasöguna

Í sumar fór fram 21. alheimsmót skáta en í ár eru 100 ár liðin frá stofnun skátahreyfingarinnar og því var afar mikið lagt í mótið að þessu sinni sem haldið var á Hylands Park í Englandi. Þema mótsins var ,,Einn heimur - eitt heiti’’ sem vísar til þess að skátar alls staðar að úr heiminum vinna sama skátaheit þar sem þeir m.a. lofa að stuðla að umburðarlyndi og friði í heiminum. Þátttakendur og starfsmenn mótisins voru 43 þúsund talsins frá 159 löndum en til gamans má geta að það eru fleiri þjóðir en taka þátt í Ólympíuleikunum. Frá Íslandi fór glæsilegur hópur 430 skáta og í þeim hópi voru 10 skátar úr Árbúum í Árbæjarhverfi. Voru allir sammála um að ferðin hefði verið eitt mesta ævintýri lífs þeirra og mótið yrði seint toppað!

Klifurturninn.

Elva, Erla, Margrét og Alexandra í strandpartýinu.

43 þúsund mættu Flogið var til London eldsnemma að morgni. Á flugvellinum biðu okkar rútur sem fluttu okkur á mótssvæðið. Allt gekk það vel fyrir sig og við vorum komin á mótssvæðið í eftirmiðdaginn. Þá var strax hafist handa við að koma upp heimili okkar fyrir næstu 10 dagana. Tjalda tjöldum, koma upp eldhúsi og svo framvegis. Það var alveg ótrúlegt að sjá hvernig mótssvæðið breyttist úr því að vera risastórar grasflatir yfir í að vera 43 þúsund manna samfélag með verslunum, bönkum, pósthúsi, veitingastöðum, sjúkrahúsi og heilsugæslustöðvum, kirkjum, hofum og svo framvegis. Íbúarnir komu frá öllum löndum, voru af öllum kynþáttum og úr öllum trúarbrögðum. Allir hjálpuðust að og skemmtu sér frábærlega saman, það skipti engu máli hvaðan þeir komu, hvernig þeir voru á litinn eða á hvað þeir trúðu. Nágrannar okkar komu frá Tævan, Japan, Belgíu, Bretlandi, Tanzaníu og fleiri löndum. Opnunarhátíð mótsins var svo daginn eftir en Vilhjálmur Bretaprins og Edward hertoginn af Kent heiðruðu okkur með nærveru sinni og settu mótið. Tveir Árbúar voru í hópi skáta sem fyrr um daginn tóku þátt í sérstakri konunglegri athöfn þar sem þeir hittu kóngafólkið og æðsta fólk skátahreyfingarinnar og gáfu Vilhjálmi prinsi íslenskan skátakút.

Guðrún og Gunnar Björn í mótshliðinu, neðst til hægri. þjóðdansa eins og Hollenska klossadansa og riverdans og svo mætti endalaust telja. Annar dagskrárliður var ,,Trash’’ eða ,,Rusl’’ þar sem við bjuggum til hljóðfæri og listaverk úr rusli og fræddumst um endurvinnslu. Við fórum líka í Vatnaveröld þar sem farið var út á alls konar báta og fleka. Í Gilwell Park var farið í klifur og sig, frábæra þrautabraut, alls konar skátaföndur og fleira skemmtilegt. Síðan kom 100 ára afmæli skátahreyfingarinnar og þann dag var sérstök sólrisuhátíð sem hófst kl. 8 að morgni með sér-

stakri hátíðarathöfn. Eftir hádegið þann dag var svo kallað ,,Food Festival’’ þar sem allar þjóðir buðu upp á matarsmakk frá sínu landi og kenndu leiki eða gerðu eitthvað skemmtilegt frá sínu landi.

Íslensk kjötsúpa Við buðum uppá íslenska kjötsúpu og lummur en einnig vorum við með Ópal og Lýsi. Lýsið fékk misjafnar móttökur og var oft gaman að sjá svipinn á fólki þegar það kyngdi! Loks fengum við heimsókn frá Hr. Ólafi Ragnari Grímssyni og Dorrit. þau hittu okkur í dagskránni og kynntust

mótssvæðinu. Að 10 frábærum dögum loknum var komið að lokahátíðinni og svo þurfti að pakka saman. Síðustu nóttina gistum við undir eldhússkýlinu okkar í grenjandi rigningu því við tókum niður tjöldin kvöldið áður meðan þau voru enn þurr. Eftir mótið fórum við í heimagistingu og vorum hjá fjölskyldum í útjaðri London og kynntumst þannig bresku fjölskyldulífi. Loks héldum við svo heim á leið eftir mesta ævintýri lífs okkar!! Nú stefnum við bara að því að taka þátt í næsta Alheimsmóti skáta sem verður í Svíþjóð árið 2011.

Hr. Ólafur Ragnar og Dorrit heimsóttu okkur á mótið. Brynja, Sædís og Þórunn í stuði.

Óli Jón, Drífa og Árni í rennibrautinni á Gilwell Park.

Guðný, Baldur, Elsí, Gaui og Helga grilla sér hækbrauð.

Sædís, Margrét, Þórunn, Elva, Erla og Brynja í eldhúsinu.

Árbúar heimsækja Arabatjaldið. Þeir voru bara hressir.

5 mínútur í tjalbúðarskoðun!!

Á sólrisuhátíðinni.

Gervifætur vöktu athygli Dagskrá mótsins var byggð upp á nokkrum dagskrársvæðum og sem dæmi um dagskrárlið var ,,Heimsþorp’’ þar sem hægt var að læra um menningu annarra þjóða. Þarna kenndu íslenskir skátar t.d. rúnaletur og glímu og gervifætur frá Össuri vöktu líka mikla athygli. Aðrar þjóðir buðu t.d. uppá tyrkneska barnaleiki, indverskt brúðkaup, finnskt sauna, ýmsa

Stelpurnar tilbúnar í flekabardaga.

Borðstofan okkar.


10

Fréttir

Árbæjarblaðið

Vinavika sunddeildar Ármanns í Árbænum Sunddeild Ármanns hefur boðið upp á sundæfingar í Árbæjarlaug í 13 ár. Buslugangur áhugasamra iðkenda og vaskleg framganga þjálfara ætti því ekki að hafa farið framhjá gestum laugarinnar. Auk þess er boðið upp á æfingar fyrir byrjendur í sundlaug Árbæjarskóla. Þeir eru ófáir Árbæingarnir sem hafa náð góðum tökum á sundíþróttinni undir leiðsögn þjálfara Ármanns. Sunddeildin hefur ætíð kappkostað að tefla fram reyndum og vel menntuðum þjálfurum og hefur árangurinn verið góður eftir því. Nú í vetur hafa þær Þórunn Guðmundsdóttir og Hulda Bjarkar séð um æfingar í Árbænum, fyrir krakka á aldrinum 6-10 ára. Í næstu viku (21. - 25. janúar) verður vinavika hjá Ármanni. Þá gefst sundkrökkunum tækifæri á að bjóða vinum sínum á æfingar endurgjaldslaust. Ekki er þó þörf á að bíða eftir formlegu boði til að mæta á æfingar, því að allir sem hafa áhuga á að koma og prófa eru hjartanlega velkomnir. Í lok vikunnar verður svo pizzuveisla fyrir allan hópinn. Í Árbæjarlauginni æfa tveir hópar, byrjendur (brons) 6 - 8 ára og lengra komnir (silfur) 8 - 10 ára. Í þessum hópum eru kennd undirstöðuatriði í

sundi og sundkeppni. Farið er eftir getu hvers og eins og stigin fyrstu skrefin í keppni þegar og ef sundiðkendurnir eru tilbúnir til þess. Sundæfingar í Árbæjarlaug eru á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum kl. 16.00 til 16.45 (brons) og kl. 16.45 til 17.45 sömu daga (silfur). Í sundlaug Árbæjarskóla er æfingar fyrir 6-7 ára byrjendur á mánudögum og miðvikudögum kl. 17-18. Meðfylgjandi myndir eru frá jólasundmóti Ármanns í Laugardalslaug, 15. desember sl. Þar komu saman allir hópar deildarinnar, en starfræktir eru hópar í Laugardalslaug, Árbæjarlaug og sundlaug Árbæjarskóla. Þarna ríkti mikill glaumur og gleði en sunddeildin hefur það að leiðarljósi að allir fái að njóta sín og hafa gaman af. Þarna voru margir að stíga sín fyrstu skref í keppni. Allir fengu síðan eitthvað að narta í og jólaglaðning í lokin og fóru glaðir heim. Við hvetjum alla sem langar að prófa að mæta á sundæfingar til að koma á vinavikuna, eða hafa samband við Þuríði yfirþjálfara í síma 691-7959.

Stund á milli stríða og gott að fá sér holla næringu fyrir átökin.

Efnilegt sundfólk úr Árbænum en krakkar í hverfinu æfa sund hjá Ármanni í Árbæjarlaug þar sem engin sunddeild er enn starfandi hjá Fylki hvað sem síðar verður.

Hvatning í gangi í harðri keppni í lauginni.

Átaksverkefni þegar borið árangur Jens Kjartansson, yfirlæknir á lýtalækningadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss telur að átaksverkefnið Stillum hitann hóflega hafi nú þegar borið árangur með fækkun brunaslysa af völdum heits vatns. Áfram er unnið að verkefninu með því að byggingafulltrúar fylgja eftir kröfum reglugerðar um hitastig neysluvatns í nýju húsnæði, fræðsla iðnaðarmanna er efld og lagnaefnissalar bjóða upp á heildarlausnir til að lækka hita neysluvatns í húsum. Orkuveita Reykjavíkur ýtti síðastliðið vor úr vör átaksverkefninu í samstarfi við Sjóvá Forvarnarhúsið, byggingafulltrúann í Reykjavík og Lýtalækningadeild LSH. Fyrirtækið veitti fé til rannsóknar á fjölda og eðli slysa af völdum heits vatns. Þá hleypti OR af stokkunum vefnum www.stillumhitann.is Á honum er m.a. að finna helstu niðurstöður áðurgreindra rannsókna ásamt fræðsluefni af ýmsu tagi. Þá var gengist fyrir ráðstefnu og námskeiði í samstarfi við byggingafulltrúann í Reykjavík um leiðir til að draga úr hættunni af slysum, m.a. með bættum frágangi neysluvatnskerfa. Í kjölfarið hafa söluaðilar

lagnabúnaðar útbúið lausnir sem fáanlegar eru hvort heldur sem er fyrir nýtt húsnæði eða eldra.

Árangur þegar náðst Það er mat þeirra sem taka á móti fórnarlömbum brunaslysa á LSH að slysum hafi þegar fækkað. ,,Það er greinilegur munur,’’ segir Jens Kjartansson yfirlæknir. ,,Slysunum hefur fækkað umtalsvert og það rek ég beint til átaksins og viðbragða fólks við því.’’ Aðilar sem selja búnað sem lækkar hitastig neysluvatnsins hafa ekki síður orðið varir við aukna eftirspurn eftir honum. Þónokkur fyrirtæki hafa útbúið sérstakar heildarlausnir og má þar nefna Ísleif Jónsson, Tengi og Danfoss.

Sjóvá Forvarnarhúsið tekur við vefnum Í dag afhenti Orkuveitan Forvarnarhúsinu vefinn til eignar og umsjónar. Herdís Storgaard forstöðumaður Forvarnahússins veitti vefnum viðtöku ásamt 300 þúsund krónum til viðhalds hans og reksturs auk 300 þúsund króna styrks til almennra forvarna. Á vefnum getur almenningur og fagfólk nálgast

upplýsingar og tæknilegar lausnir til að sporna við því að fólk brenni sig á heitu vatni. Börnum og eldra fólki er hættast við bruna af völdum heits vatns og þá sérstaklega sjúklingum. Á vefnum er m.a. sögð saga Hjartar Inga Kristjánssonar, sem er óðum að ná sér eftir slæmt brunaslys. Hjörtur er flogaveikur og rak sig í baðkranann í kasti og skrúfaði þannig óvitandi frá brennheitu vatninu. Baðherbergið er einmitt varasamasti staðurinn samkvæmt rannsókn LSH á slysaskrám.

Námskeið fyrir iðnaðarmenn, hönnuði og byggingafulltrúa Í tengslum við verkefnið gengst nú Iðan fræðslusetur ehf, fyrir námskeiðum ætluðum hönnuðum, pípulagningamönnum og byggingafulltrúum. Orkuveitan átti frumkvæði að því að efnt er til námskeiðanna og er ávinningur þátttakenda m.a. að auka meðvitund sína um tíðni brunaslysa, öðlast innsýn í kröfur, staðla og leiðbeiningar um hámarkshita neysluvatns og fá dæmi um tengingar og leiðir til lækkunar hita á heitu neysluvatni.

Herdís Storgaard, forstöðumaður Forvarnahússins, til hægri, veitir vef og styrk viðtöku úr hendi Bryndísar Hlöðversdóttur, stjórnarformanns Orkuveitunnar.


Falleg gjöf fyrir einstaklinga og fyrirtæki Falleg flugubox úr léttum viði með glæsilegum og gjöfulum flugum eftir Kristján Gíslason. Mikið úrval. Sjá nánar á www.krafla.is

5 tegundir boxa - 26 laxaflugur - 18 laxaflugur - 20 Kröflur - 15 tvíkrækjur - 25 silungaflugur Framleiðandi: Skrautás ehf. - Sími: 587-9500 -

www.krafla.is

Árbæjarblaðið 1. tbl. 6. árg. 2008 janúar

Fréttablað íbúa í Árbæ og Grafarholti

Mikill meirihluti íbúa í Árbæjarhverfi les Árbæjarblaðið Mest lesni fjölmiðillinn í Árbænum? Auglýsingin þín skilar miklum árangri í ÁB

587-9500


12

Fréttir

Árbæjarblaðið

Byr fékk káta krakka í heimsókn

Fyrir jólin mættu fjörugir krakkar af leikskólum í Árbæ í útibú Byrs til að hitta jólasveinana. Krakkarnir og jólasveinarnir fóru á kostum og skapaðist skemmtileg jólastemning þegar jólalögin voru sungin hátt og snjallt. Eins og myndirnar sýna kunnu krakkarnir vel að meta það sem í boði var og skemmtu sér konunglega. Heimsókn leikskólakrakkanna er kærkomin tilbreyting frá hinu hefðbundna starfi á leikskólanum og í bankanum.

Hér var athyglin í lagi og greinilega eitthvað mjög skemmtilegt í gangi sem framkallaði bros hjá leikskólakrökkunum.

Jólasveinarnir voru með ýmis uppátæki.

Tvær vinkonur.

Krakkarnir skemmtu sér vel hjá BYR og fengu m.a. appelsínur að gjöf.

Er barnið þitt í

Hlustað með athygli á jólasveinana.

frístundastarfi? ,,Á hestbaki’’ á jólasveininum.

Frístundakortið 25.000 kr. fyrir árið 2008

Frístundakortið er styrkjakerfi í frístundastarfi fyrir 6-18 ára börn og unglinga í Reykjavík. Nánari upplýsingar á www.itr.is ÍTR · Bæjarhálsi 1 · 110 Reykjavík · Sími 411-5000 · www.itr.is · itr@itr.is Jólasveinarnir mættu með ýmislegt í pokhorninu.


Hreyfing fyrir alla Heilsuefling eldri borgara í Árbæ og Grafarholti Líkamsrækt: Félagsmiðstöðin Hraunbæ 105 í samvinnu við Árbæjarþrek býður nú eldri borgurum í Árbæ og Grafarholti upp á ókeypis 10 tíma kynningarnámskeið í almennri líkamsrækt í Árbæjarþreki. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 22. janúar. Kennt er tvisvar í viku á

Þorrablót eldri borgara

þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 09:00 - 10:00. Skráning og allar

Þorrablót eldri borgara í Árbæ og Grafarholti verður haldið í Félagsmiðstöðinni Hraunbæ 105 föstudaginn 1. febrúar n.k. Skráning og allar nánari upplýsingar í félagsmiðstöðinni eða í síma 411 2730. Síðasti dagur skráningar er mánudagurinn 28. janúar.

Stafgöngunámkeið:

nánari upplýsingar í Félagsmiðstöðinni Hraunbæ 105, sími 411 2730. Ókeypis 10 tíma námskeið í stafgöngu frá Félagsmiðstöðinni Hraunbæ 105. Kennt er tvisar í viku á þriðjudögum kl. 13:30 og á föstudögum kl. 10:00. Kennsla hefst þriðjudaginn 22. janúar. Skráning og allar nánari upplýsingar í Félagsmiðstöðinni Hraunbæ 105, sími 411 2730. Sundleikfimi: Í Árbæjarlaug er boðið upp á kennslu í sundleikfimi á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 12:05. Allar nánari upplýsingar í síma 411 5200.


X AUGL 35.$ PDF

14

.20'8 $ä �)$ 681'

FrĂŠttir

Ă rbĂŚjarblaĂ°iĂ°

Kmf\ ]j ebš_ _φ Yd`daĂśY ¹újÂśll k]e kYe]afYj dÂącYekjĂŒcl$ d]ac$ Y_Y g_ kdšcmf& @Âťf ]j ]afklYcdaf_k¹újÂśll Âą _φme ^­dY_kkcYh&

681''(,/' É50$116

`]^mj me ÂŚjYZad k­Ü me kc]eelad]_Y kmf\ĂşbÂŚd^mf Âą ˜jZĂŒbYj`n]j^a& ĂšbÂŚd^mfaf ]j eaĂśmĂś Âťl ^jÂŚ Yd\ja g_ _]lm `n]jk g_ ]afk& @Y^aĂś kYeZYf\a naĂś Ăšmj¹Üa$ q^ajĂşbÂŚd^YjY$ Âą kÂąeY .1)/1-1& =jme YĂśadYj YĂś ^jÂąklmf\Ycgjla ĂœLJ& @dšccme lad YĂś kbÂŚ YddY Y^lmj k]e `Y^Y n]jaĂś e]Ăś gccmj g_ ]afk føbY ^­dY_Y&

:QJB=F<MJ

KAD>MJ G? :JGFK@Ă H9J d]f_jY cgefaj! EÂŚfm\&g_ eaĂśnacm\Y_Y :JGFK2 EÂŚfm\Y_Y$ ĂşjaĂśbm\Y_Y g_ ^aeelm\Y_Y Âą kmf\dYm_ ˜jZĂŒbYjkcÂśdY cd2).&(( % ).&,- Âą ˜jZĂŒbYjkmf\dYm_ cd2)/&(( % )/&,- KAD>MJ2 EÂŚfm\Y_Y$ ĂşjaĂśbm\Y_Y$ ^aeelm\Y_Y ĂšbÂŚd^Yja @md\Y :bYjcYj cd2).&,- % )/&,- Âą ˜jZĂŒbYjkmf\dYm_ g_ eaĂśnacm\Y_Y cd2)02+( % )12+( Âą DYm_Yj\YdkdYm_ ĂšbÂŚd^Yja ڜjmff ?mĂśemf\k\Âśllaj

KB˜MEKL

NĂ˝ DVD mynd + ein eldri ĂĄ aĂ°eins kr. 400,-

FrĂĄ undirritun samningsins. Fremst eru Ăžorsteinn ĂştibĂşsstjĂłri Landsbankans Ă­ Ă rbĂŚ og GuĂ°rĂşn Ă“sk, formaĂ°ur fimleikadeildarinnar.

Landsbankinn í à rbÌ styrkir fimleikadeildina hjå Fylki Landsbankinn í à rbÌ hefur lÜngum stutt dyggilega starf �ÞróttafÊlagsins Fylkis og verður með endurnýjuðum samningi við fimleikadeild åfram helsti styrktaraðili deildarinnar.

Rekstur fimleikadeildar er kostnaðarsamur, fimleikaåhÜld eru dýr en Þrått fyrir Það hefur deildinni gengið vel að endurnýja Þau ma. með aðstoð Landsbankans í à rbÌ. à meðfylgjandi mynd eru fulltrú-

ar fimleikadeildar, GuĂ°rĂşn Ă“sk JakobsdĂłttir og Svanhildur Ă rnadĂłttir ĂĄsamt ĂştibĂşsstjĂłranum Ă­ Ă rbĂŚ, Ăžorsteini Ăžorsteinssyni og Ăžeim HĂłlmfrĂ­Ă°i ĂžorsteinsdĂłttur og Ă–nnu KristĂ­nu BirgisdĂłttur.

Skalli HraunbĂŚ 102 - SĂ­mi: 567-2880

ROPE YOGA NĂ MSKEIĂ? Ă? VEGGSPORT ĂžriĂ°jud.- -fimmtud. fimmtud.: ĂžriĂ°jud. Laugard.

frĂĄkl.kl.7:3009:008:30 - 10:00 15:45 - 16:45 kl.kl.9:00-10:30 kl.14:45-16:15 frĂĄ kl. 10:00-11:00 (opinn tĂ­mi.)

Opin tĂ­mi ĂĄ miĂ°vikud.

kl. 9:00-10:00

Nånari upplýsingar og skråning hjå Siggu Dóru gsm:692-3062


15

Fréttir

Árbæjarblaðið

Nepja á áramótabrennunni

Fjöldi Árbæinga lagði leið sína á áramótabrennuna í hverfinu sem kveikt var í að kvöldi fyrsta dags ársins í stað þess síðasta á gamla árinu eins og venjan er. Leiðinlegt veður varð þess valdandi að ekki var hægt að kveikja i brennunni á hefðbundnum tíma. Þrátt fyrir það mætti fjöldi fólks á brennuna. Þeirra á meðal var Einar Ásgeirsson ljósmyndari sem tók myndirnar sem hér fylgja fyrir Árbæjarblaðið.

Það logaði glatt í bálkestinum og þegar kalt er í veðri er eina ráðið að taka fram kuldagallann og vetrarfötin.

Viltu vinna í þínu hverfi Brennugestir voru á öllum aldri.

Lausar stöður í Árbæjarhverfi og Grafarholti Skapandi störf með skapandi fólki

.. ..

Leitað er eftir: Leikskólakennurum Starfsfólki með uppeldis- og háskólamenntun Starfsfólki með menntun eða reynslu á sviði lista Starfsfólki með fjölbreytta menntun og/eða starfsreynslu

Deildarstjóra Heiðarborg, Selásbraut 56, sími 557-7350 Kvarnaborg, Árkvörn 4, sími 567-3199 Rauðaborg, Viðarási 9, sími 567-2185 Gott var að horfa á brennuna í skjóli þeirra eldri.

Leikskólakennarar/leiðbeinendur Árborg, Hlaðbæ 17, sími 587-4150 Blásalir, Brekknaás 4, sími 557-5720 Geislabaugur, Kristnibraut 26, sími 517 2560 Heiðarborg, Selásbraut 56, sími 557-7350 Kvarnaborg, Árkvörn 4, sími 567-3199 Maríuborg, Maríubaug 3, sími 577-1125 Rauðaborg, Viðarási 9, sími 567-2185 Rauðhóll, Sandavaði 7, sími 517 2566 Reynisholt, Gvendargeisla 13, s. 5175560 Rofaborg, Skólabæ 6, sími 567-2290

Þessir vel búnu Árbæingar fylgdust vel með og skemmtu sér vel.

Sérkennsla/ atferlisþjálfi Árborg, Hlaðbæ 17, sími 587-4150 Kvarnaborg, Árkvörn 4, sími 567-3199 Rofaborg, Skólabæ 6, sími 567-2290

Aðstoð í eldhúsi Geislabaugur, Kristnibraut 26, sími 517 2560 Upplýsingar um lausar stöður veita leikskólastjórar í viðkomandi leikskólum og mannauðs ráðgjafar á Starfsmannaþjónustu Leikskólasviðs í síma 411-7000. Öll laus störf í leikskólum eru auglýst á www.leikskolar.is Ekki er um tæmandi upptalningu lausra starfa að ræða. Laun eru skv. kjarasamningi Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélög. Þessi fékk far með pabba og var í öruggum höndum.



Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.