Fjárhagsáætlanir sveitarfélaga 2015

Page 1

Samband íslenskra sveitarfélaga

Fjárhagsáætlanir sveitarfélaga 2015 Fréttabréf hag- og upplýsingasviðs 1. tbl. 2015


© Samband íslenskra sveitarfélaga Borgartúni 30 • Pósthólf 8100 128 Reykjavík Hönnun og umbrot: Ingibjörg Hinriksdóttir Ritstjóri og ábm.: Gunnlaugur A. Júlíusson Myndir: Ingibjörg Hinriksdóttir, Gunnlaugur Júlíusson, Óttar Guðjónsson ofl. 2015/03 Afritun og endurprentun er heimil svo fremi að heimildar sé getið.


Inngangur Sveitarstjórnir skulu samkvæmt sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011 afgreiða fjárhagsáætlun fyrir komandi ár og næstu þrjú ár þar á eftir eigi síðar en 15. desember ár hvert. Þegar sveitarstjórn afgreiðir fjárhagsáætlun fyrir komandi ár er ekki verið að setja upp lauslega áætlun um tekjur og gjöld fyrir komandi rekstrarár heldur er sveitarstjórnin að taka ákvörðun um fjárheimildir og hvernig þeim er ráðstafað til rekstrar og fjárfestinga. Einungis má bregða út frá heildarútgjöldum í afgreiddri fjárhagsáætlun með sérstakri ákvörðun sveitarstjórnar hverju sinni sem skal birt í viðauka. Ætíð skal vera tryggt að nýjum útgjöldum séu markaðar skilgreindar tekjur. Með því móti á að vera tryggt að hvert sveitarfélag sé ætíð rekið samkvæmt samþykktum fjárheimildum. Reglugerð um nákvæma framkvæmd viðauka hefur ekki verið sett enn þannig að útfærsla þeirra liggur ekki nægilega ljós fyrir. Þó er eðlilegt að skilja á milli viðauka sem varða heildarniðurstöður og viðauka sem varða millifærslur milli einstakra málaflokka eða deilda. Viðauka sem varða heildarniðurstöður skal senda ráðuneyti sveitarstjórnarmála en aðrir viðaukar eru miklu frekar til notkunar við innri fjármálastjórn sveitarfélagsins.

Sveitarfélög á Íslandi eru nú 74 talsins. Íbúafjöldi þeirra er afar misjafn, landfræðilegar aðstæður þeirra eru mismunandi, svo og ýmis önnur atriði sem skipta miklu máli við rekstur þeirra. Þannig segir heildarniðurstaða úr rekstri sveitarfélaga ekki nema hluta sögunnar þegar afkoma þeirra er metin. Vegna þessara breytilegu aðstæðna er sveitarfélögunum deilt upp í fjóra flokka til frekari glöggvunar þegar niðurstöður fjárhagsáætlana eru skoðaðar. Þeir eru sem hér segir:

Fjárhagsáætlun fyrir komandi rekstrarár er því mikilvægt stjórnunartæki við rekstur hvers sveitarfélags. Niðurstöður fjárhagsáætlana leiða í ljós mikilvægar upplýsingar um hvert stefnir í rekstri og efnahag sveitarfélaga á komandi ári.

Hér á eftir eru birtar upplýsingar úr fjárhagsáætlunum sveitarfélaga fyrir árið 2015. Í fyrri hluta samantektarinnar eru birtar niðurstöður fyrir A-hluta eins og skil þeirra voru um miðjan janúar. A-hluti sveitarsjóðs er fjármagnaður að mestu leyti með skatttekjum og hann ber endanlega ábyrgð á rekstri B-hluta fyrirtækja og stofnana ef þau búa við hallarekstur. Aftur á móti er miklum takmörkunum háð að flytja rekstrarafgang frá B-hluta fyrirtæki yfir til A-hluta sveitarsjóðs. Því skiptir rekstrarstaða og efnahagur A-hlutans höfuðmáli fyrir fjármálalega stöðu hvers sveitarfélags.

Í 64. grein sveitarstjórnarlaga eru fjármálareglur sveitarfélaga skilgreindar. Þær eru jafnvægisregla og skuldaregla og eru skýrðar út sem hér segir: 1. Samanlögð heildarútgjöld til rekstrar vegna A- og Bhluta í reikningsskilum skv. 60. gr. séu á hverju þriggja ára tímabili ekki hærri en sem nemur samanlögðum reglulegum tekjum. 2. Heildarskuldir og skuldbindingar A- og B- hluta í reikningsskilum skv. 60. gr. séu ekki hærri en nemur 150% af reglulegum tekjum. Þessar fjármálareglur hafa þegar haft veruleg áhrif á vinnu við gerð fjárhagsáætlana og eftirfylgni með framkvæmd þeirra hjá sveitarfélögunum.

• Reykjavíkurborg; • Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu án Reykjavíkurborgar; • Vaxtarsvæði; Sveitarfélög frá og með Borgarbyggð, suður um Reykjanes og til og með Sveitarfélaginu Árborg, Akureyrarkaupstaður, Fljótsdalshérað og Fjarðabyggð; • Önnur sveitarfélög; Þessi flokkun er einn valkostur af ýmsum fleirum sem hægt er að nota til að flokka sveitarfélögin. Hægt er að nota ýmsar aðrar breytur til að leiða fram ákveðinn eðlismun í þeim aðstæðum sem sveitarfélög búa við.

Í seinni hluta samantektarinnar eru birtar niðurstöður fyrir samantekin reikningsskil (A-hluta og B-hluta). Í samanteknum reikningsskilum koma fram heildarumsvif sveitarfélaganna, bæði A-hlutans og fyrirtækja sem falla undir B-hluta. Í töflu 1 kemur fram að niðurstöður úr fjárhagsáætlunum sveitarfélaga fyrir árið 2015 byggja á upplýsingum frá sveitarfélögum sem eru með 99,2% íbúa landsins. Það er mun hærra hlutfall en á síðasta ári. Í töflunni sést að það eru einkum sveitarfélög í flokknum „Önnur sveitarfélög“ sem hafa

3


ekki skilað niðurstöðum úr fjárhagsáætlun fyrir árið 2015 til sambandsins. Niðurstöður úr fjárhagsáætlunum þeirra sveitarfélaga sem hafa skilað upplýsingum eru færðar upp hlutfallslega innan hvers flokks með hliðsjón af íbúafjölda þannig að þær gildi fyrir öll sveitarfélög landsins. Þegar niðurstöður liggja fyrir frá sveitarfélögum með yfir 90% íbúa landsins þá er óhætt að segja að þær séu mjög marktækar fyrir heildina. Því gefur þessi heimta á fjárhagsáætlunum mjög góða mynd af heildarniðurstöðunum þó vitaskuld eigi markmiðið að vera 100% skil.

við niðurstöður fjárhagsáætlana fyrir árið 2014 þar sem niðurstöður ársreikninga fyrir árið 2014 liggja ekki fyrir. Í töflu 1 kemur m.a. fram íbúafjöldi í hverjum flokki, íbúafjöldi þeirra sveitarfélaga sem hafa skilað fjárhagsáætlunum svo og skil fjárhagsáætlana eftir einstökum flokkum. Skilin eru lökust í flokknum „Önnur sveitarfélög“ eins og fyrri ár. Einnig kemur fram í þessari töflu vegið meðaltal útsvarsprósentu í hverjum flokki svo og landsmeðaltal útsvarsálagningar. Útsvar er mikilvægasti tekjustofn sveitarfélaganna og því rétt að draga sérstaklega fram upplýsingar um álagningarhlutfallið.

Tafla 1: Skil fjárhagsáætlana

Hér á eftir verður farið yfir niðurstöður úr fjárhagsáætlunum fyrr árið 2015. Skil í einstökum flokkum koma fram í töflu 1. Þar sem niðurstöður fjárhagsáætlana fyrir árið 2015 eru bornar saman við fyrra ár þá er samanburðurinn gerður

4

Útsvarsálagningin hefur að jafnaði verið lægst á undanförnum árum hjá „Sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur“ og verður svo enn á árinu 2015.


Niðurstöður fjárhagsáætlana fyrir A-hluta árið 2015 Rekstraryfirlit Í rekstraryfirliti fjárhagsáætlunar er birt yfirlit um tekjur og gjöld sveitarfélaganna. Þar eru einnig tilteknar afskriftir, breytingar á lífeyrisskuldbindingum, fjármagnstekjur og gjöld ásamt óreglulegum liðum (tekjur/gjöld). Niðurstaða tekna og gjalda úr rekstraryfirliti fjárhagsáætlana er birt í töflu 2.

„Höfuðborgarsvæðið án Reykjavíkur“ og „Vaxtarsvæðum“ en lægst hjá „Reykjavíkurborg“.

Tafla 2: Niðurstaða rekstraryfirlits

Í töflu 2 koma fram niðurstöður fjárhagsáætlana um tekjur og gjöld sveitarfélaganna fyrir árið 2015. Hlutfall íbúa í hverjum flokki er birt til samanburðar. Breytingar á lífeyrisskuldbindingum eru færðar sem laun og launatengd gjöld og eru þannig hluti af rekstrarútgjöldum. Framlegð er reiknuð sem reglulegar tekjur að frádregnum rekstrargjöldum. Heildarframlegð sveitarfélaganna er áætluð vera 20,2 ma.kr. sem eru 8,3% af áætluðum heildartekjum. Það er heldur lægri niðurstaða en á síðasta ári en þá var hlutfallið 9,0%. Framlegð sem hlutfall af heildartekjum er hæst hjá flokknum

Í framhaldi af þessu er áhugavert að sjá þetta yfirlit sett upp miðað við niðurstöður á hvern íbúa. Þá fæst á ýmsan hátt raunhæfari samanburður á milli einstakra flokka. Í töflu 3 er birt yfirlit um tekjur og gjöld á hvern íbúa eftir einstökum flokkum svo og meðaltal fyrir landið allt. Skatttekjur eru hæstar á hvern íbúa í „Reykjavíkurborg“. Greiðslur úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á hvern íbúa eru langhæstar hjá „Öðrum sveitarfélögum“. Þar nokkru neðar kemur „Vaxtarsvæði“ en aðrir flokkar fá mun lægri greiðslur úr jöfnunarsjóðnum.

Tafla 3: Niðurstaða rekstraryfirlits, kr. á íbúa

5


Heildartekjur á íbúa eru hæstar í flokknum „Önnur sveitarfélög“ en „Vaxtarsvæði“ er þar nokkru neðar. Framlegð á hvern íbúa er enn lægst hjá „Reykjavíkurborg“. Þar á eftir koma „Önnur sveitarfélög“ en hjá hinum flokkunum er framlegð sem hlutfall af heildartekjum mjög áþekk. „Höfuðborgarsvæðið án Reykjavíkur“ hefur lægstan rekstrarkostnað á hvern íbúa. Minni munur er á rekstrarkostnaði sveitarfélaga á hvern íbúa hjá „Reykjavíkurborg“ og sveitarfélögum sem liggja utan höfuðborgarsvæðisins en fyrri ár. Hafa ber í huga í þessu sambandi að mögulegt er að færslur á framlögum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til einstakra sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk séu ekki færðar alls staðar á sambærilegan hátt. Hér hafa þessar greiðslur verið skilgreindar og færðar sem „Framlög jöfnunarsjóðs“ eftir því sem mögulegt er. Fyrir kemur að þær séu færðar sem „Þjónustutekjur og aðrar tekjur“. Því getur verið um eitthvað ósamræmi á milli einstakra sveitarfélaga hvað varðar hlutdeild Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga af heildartekjum en það hefur ekki áhrif á heildarniðurstöðu rekstraryfirlits. Tafla 4: Niðurstöður úr rekstraryfirliti sveitarfélaganna

Einnig ber á það að minna að í sumum tilvikum renna greiðslur vegna þjónustu við fatlað fólk úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga beint til byggðasamlaga eða þjónustusvæða sem annast framkvæmd verkefnisins. Þessar greiðslur koma ekki inn í ársreikninga sveitarfélaga og má því segja að í þessu sambandi sé ákveðin ónákvæmni til staðar.

6

Reiknaðir liðir skipta máli varðandi afkomu sveitarfélaganna, enda þótt þeir komi ekki til útgjalda á árinu. Þar er fyrst og fremst um að ræða afskriftir, breyting lífeyrisskuldbindinga og reiknaðir fjármagnsliðir. Niðurstaða úr rekstraryfirliti sveitarfélaganna eftir að tekið hefur verið tillit til afskrifta og fjármagnsliða kemur fram í töflu nr. 4. Í töflu 4 kemur fram að afkoma sveitarfélaganna, eftir að tekið hefur verið tillit til reiknaðra liða og fjármagnsliða, er jákvæð hjá öllum flokkum enda þótt gert sé ráð fyrir að hún sé aðeins lakari en í fjárhagsáætlunum fyrir árið 2014. Rekstrarniðurstaða sem hlutfall af heildartekjum er jákvæð sem nemur 0,3% þegar tekið er tillit til afskrifta og fjármagnsliða á móti 1,2% á síðasta ári. Mikill fjármagnskostnaður hefur veruleg áhrif á endanlega niðurstöðu. Hann samanstendur bæði af raunverulegum útgjöldum og tekjum en einnig af reiknuðum liðum, s.s. vegna gengisbreytinga og verðbóta. Rekstrarniðurstaða fyrir óreglulega liði er reiknuð sérstaklega út. Hún segir hver afkoma sveitarfélaganna er af hefðbundnum rekstri (hefðbundnum tekjustofnum og hefðbundnum útgjöldum) sveitarfélaganna. Þar til viðbótar koma óreglulegir liðir sem geta verið mjög

breytilegir frá einu ári til annars. Óreglulegir liðir geta verið tekjur vegna sölu eigna, sölu byggingarréttar og kostnaður vegna sérstakra aðstæðna, s.s. náttúruhamfara eða annað sem telst ekki til hefðbundinnar starfsemi sveitarfélaga.


Sjóðstreymisyfirlit Í sjóðstreymisyfirliti fjárhagsáætlunar kemur fram hve mikið lausafé er afgangs í rekstrinum þegar búið er að borga daglega reikninga, hve miklar fjárfestingar eru fyrirhugaðar, hve mikil fjárþörf er vegna fjárfestinga og afborgana af lánum og hvernig þessi fjárþörf er fjármögnuð. Þetta yfirlit er ekki síður mikilvægt til að átta sig á greiðsluhæfi sveitarfélags en rekstraryfirlitið. Veltufé frá rekstri er það fjármagn sem afgangs er frá daglegum rekstri og nýtist til að greiða afborganir lána og annarra skuldbindinga og standa þar að auki undir fjárfestingum. Í töflu 5 kemur fram yfirlit um áætlað sjóðstreymi sveitarfélaganna á árinu 2015 samkvæmt fjárhagsáætlunum þeirra. Við útreikning á veltufé frá rekstri er búið að bakfæra alla reiknaða liði úr uppgjöri rekstrarreiknings. Veltufé er góður

sveitarfélög“ og „Höfuðborgarsvæðið utan Reykjavíkur“ eru þar litlu neðar. „Reykjavíkurborg“ er með 6,8% hlutfall veltufjár frá rekstri af heildartekjum samanborið við 7,3% í fjárhagsáætlun fyrir árið 2014. Að jafnaði er þetta hlutfall 7,7% fyrir landið allt samanborið við 8,8% á síðasta ári. Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum eru áætlaðar samtals um 19,0 ma.kr. sem er hækkun um 0,7 ma.kr. frá fyrra ári. Þar af eru 7,4 ma.kr. hjá Reykjavíkurborg. Sala rekstrarfjármuna nemur óverulegum hluta af fjármögnun fjárfestinga í varanlegum rekstrarfjármunum. Ný lántaka er áætluð 15,6 ma.kr. samanborið við 10,5 ma.kr. árið 2014 sem er hækkun um 5,1 ma.kr. Hlutfallslega er lánataka mest hjá „Höfuðborgarsvæðinu án Reykjavíkur“. Áætlað að greiða niður langtímalán um 16,8 ma.kr. sem er hækkun frá fyrra ári um 3,4 ma.kr.

Tafla 5: Sjóðstreymisyfirlit

mælikvarði á hve auðvelt er fyrir rekstraraðila að standa undir áhvílandi skuldbindingum. Ef veltufé frá rekstri dugar t.d. ekki til að standa undir afborgunum langtímalána er fullrar varúðar þörf því þá verður að taka lán til að greiða afborganir og fjármagna framkvæmdir. Slíkt ástand getur einungis gengið í tiltölulega skamman tíma. Ef veltufé frá rekstri er neikvætt ættu allar viðvörunarbjöllur að hringja. Veltufé frá rekstri sem hlutfall af heildartekjum er hæst hjá „Vaxtarsvæðum“. „Önnur

Staða fjármögnunarhreyfinga gefur til kynna hvort sveitarfélög hafa náð að uppfylla fyrirsjáanlega fjárþörf í fjárhagsáætlun eða ekki. Þar sem fjármögnunarhreyfingar eru neikvæðar er ljóst að ekki liggur fyrir hvernig eigi að fjármagna fyrirsjáanlegar fjárfestingar og / eða afborganir lána. Því má síðan ekki gleyma að ekki er tryggt að öll sveitarfélög nái að uppfylla áætlaða lánsfjárþörf sína á árinu.

7


Efnahagsreikningur Í efnahagsreikningi er birt yfirlit um eignir sveitarfélaganna og hvernig þær eru fjármagnaðar. Eignum er skipt upp í fastafjármuni og veltufjármuni eftir því hve auðvelt er að losa það fjármagn sem bundið er í eignum. Skuldahlið efnahagsreiknings er skipt upp í skuldbindingar (sem eru fyrst og fremst lífeyrisskuldbindingar) og langtímaskuldir og skammtímaskuldir. Mismunur eigna og skulda er eigið fé. Í töflu 6 kemur sveitarfélaganna.

fram

yfirlit

um

efnahagsreikning

þessu sambandi að skoða efnahagsreikninginn í krónum á íbúa. Á þann hátt fæst betri möguleiki á að bera stöðuna saman milli einstakra flokka. Í töflu 7 kemur glöggt fram að skuldir og skuldbindingar á íbúa í A-hluta sveitarsjóða eru langlægstar hjá „Reykjavíkurborg“. Þær eru aftur á móti hæstar á íbúa á „Vaxtarsvæði“. Eiginfjárhlutfall „Reykjavíkurborgar“ er 57,2% á meðan það er 31,1% hjá „Höfuðborgarsvæði án Reykjavíkur“, 34,2% á „Vaxtarsvæði“ og 50,9% hjá „Öðrum sveitarfélögum“. Samkvæmt þessum

Tafla 6: Efnahagsreikningur

Heildarskuldir og skuldbindingar sveitarfélaga nema samtals um 269,1 ma.kr. Þær hafa hækkað um 1,9 ma.kr. frá fyrra ári. Athuga ber að hluti af veltufjármunum sveitarfélaganna geta verið viðskiptakröfur á B-hlutafyrirtæki þeirra, s.s. hafnir og félagslega íbúðarkerfið. Í ýmsum tilvikum er hæpið að þær kröfur verði greiddar. Því getur veltufjárstaðan verið ofmetin í einhverjum tilvika. Yfirleitt eru þó veltufjármunir verulega hærri en skammtímaskuldir sem segir að lausafjárstaða sveitarfélaganna sé í heildina tekið frekar góð. Fróðlegt er í Tafla 7: Efnahagsreikningur, kr. á íbúa

8

niðurstöðum er efnahagur sveitarfélaganna að jafnaði sterkur. Á það ber þó að minna að hér eru samandregnar niðurstöður fyrir einstaka flokka. Innan hvers flokks er iðulega til staðar töluverður breytileiki. Veltufjárhlutfall í hverjum flokki kemur fram í neðstu línu töflunnar. Það sýnir hlutfall milli veltufjármuna og skammtímaskulda. Þetta hlutfall á helst að vera jafnt eða hærra en 1,0. Það þýðir að veltufjármunir séu að lágmarki jafnháir skammtímaskuldum. Ef veltufjárhlutfallið er lægra en einn þá fer að byggjast upp hætta á að lausafé sé ekki


alltaf tiltækt þegar þarf að greiða reikninga. Það hefur t.d. í för með sér aukinn vaxtakostnað. Því lægra sem veltufjárhlutfallið er því meiri líkur eru á aukakostnaði vegna þessa með tilheyrandi erfiðleikum. Það er lægst hjá „Höfuðborgarsvæði

án Reykjavíkur“ eða 0,7 en hefur hækkað frá fyrra ári úr 0,4. Á landsvísu er það um 1,0 sem er nokkur lækkun frá fyrra ári en í jafnvægi í heildina tekið. Breytileiki þessarar kennitölu er hins vegar nokkuð mikill milli einstakra sveitarfélaga.

9


Niðurstöður fjárhagsáætlana A- og B-hluta sveitarfélaga 2014 Hér á eftir verður farið yfir niðurstöður úr fjárhagsáætlunum fyrir A- og B-hluta árið 2015. Í töflu 8 kemur m.a. fram íbúafjöldi í hverjum flokki, íbúafjöldi þeirra sveitarfélaga sem hafa skilað fjárhagsáætlunum svo og skil fjárhagsáætlana eftir einstökum flokkum.

Niðurstöður fjárhagsáætlana fyrir árið 2015 Rekstraryfirlit Í rekstraryfirliti fjárhagsáætlunar er birt yfirlit um tekjur og gjöld samstæðu sveitarsjóða og B-hluta fyrirtækja. Þar eru einnig tilteknar afskriftir, breytingar á lífeyrisskuldbindingum, fjármagnstekjur og gjöld ásamt óreglulegum liðum (tekjur/ gjöld). Niðurstöður úr rekstraryfirliti fjárhagsáætlana er birt í töflu 8.

Tafla 8: Niðurstaða rekstrar

10

Framlegð sem hlutfall af heildartekjum er hæst hjá samstæðu „Reykjavíkurborgar“ eða 23,5% sem er mjög góð afkoma. Hlutfall framlegðar samstæðureikninga sveitarfélaga er 18,5%. Það er hátt hlutfall þrátt fyrir að það sé heldur lægra en á árinu 2014. Stærstu B-hluta fyrirtækin í eigu sveitarfélaga er að finna hjá Reykjavíkurborg. Þar vega Orkuveita Reykjavíkur og Faxaflóahafnir þyngst en þau eru að langstærstum hluta í eigu „Reykjavíkurborgar“.


Tafla 9: Niðurstaða rekstraryfirlits, kr. á íbúa

Þegar niðurstöðum úr rekstrarreikningi samstæðu sveitarfélaga er deilt á hvern íbúa þá kemur í ljós að reglulegar tekjur samstæðunnar á hvern íbúa eru hæstar hjá „Reykjavíkurborg“ eða um 1,2 m.kr. „Vaxtarsvæði“ og „Önnur sveitarfélög“ eru með litlu lægri tekjur á íbúa eða um 1,0 m.kr. Framlegð á hvern íbúa af samstæðunni er langhæst hjá „Reykjavíkurborg“ eða 274 þús. kr.

hjá öllum flokkum. Rekstrarniðurstaða fyrir óreglulega liði, sem hlutfall af heildartekjum, er jákvæð fyrir heildina sem nemur rúmlega 4,2% þegar tekið er tillit til afskrifta og fjármagnsliða. Til samanburðar er rekstrarniðurstaða A-hluta um 0,3% af heildartekjum. Rekstrarniðurstaða samstæðu „Reykjavíkurborgar“ sem hlutfall af heildartekjum er langhæst allra flokka eða 7,3% sem er heldur hærra hlutfall en árið 2014.

Í töflu 10 kemur fram að afkoma sveitarfélaga, eftir að tekið hefur verið tillit til reiknaðra liða og fjármagnsliða, er jákvæð Tafla 10: Niðurstöður rekstraryfirlits sveitarfélaga

11


Sjóðstreymisyfirlit Í töflu 11 kemur fram yfirlit um áætlað sjóðstreymi samstæðureikninga sveitarfélaga á árinu 2015 samkvæmt fjárhagsáætlunum þeirra. Veltufé frá rekstri sem hlutfall af heildartekjum er hæst hjá „Reykjavíkurborg“ eða 21,1%. Þetta hlutfall er á bilinu 11,2%12,6%% hjá öðrum flokkum. Að jafnaði er það 15,8% fyrir landið allt sem er um 2 prósentustigum lægra hlutfall en árið 2014 þegar það var 17,8%.

Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum hjá A og B hluta eru áætlaðar samtals um 40,3 ma.kr. Það er um 5,4 ma.kr. hærri fjárhæð en árið 2014. Þar af eru fjárfestingar samstæðu hjá „Reykjavíkurborg“ 21,4 ma.kr. Sala rekstrarfjármuna nemur óverulegum hluta af fjármögnun fjárfestinga í varanlegum rekstrarfjármunum eða um 2,6 ma.kr. Ný lántaka er áætluð 29,8 ma.kr. Áætlað að greiða niður langtímalán um 41,7 ma.kr. sem er um 2,8 ma.kr. hærri fjárhæð en árið 2014. Ekki er tryggt að öll sveitarfélög nái að uppfylla áætlaða lánsfjárþörf sína á árinu.

Tafla 11: Sjóðstreymisyfirlit

Efnahagsreikningur Í efnahagsreikningi er birt yfirlit um eignir samstæðureikninga sveitarfélaganna og hvernig þær eru fjármagnaðar. Eignum er skipt upp í fastafjármuni og veltufjármuni eftir því hve auðvelt er að losa það fjármagn sem bundið er í eignum. Skuldahlið efnahagsreiknings er skipt upp í skuldbindingar (sem eru fyrst og fremst lífeyrisskuldbindingar), langtímaskuldir og skammtímaskuldir. Mismunur eigna og skulda er eigið fé. Í töflu 12 kemur fram yfirlit samstæðureiknings sveitarfélaga.

um

efnahagsreikning

Heildarskuldir og skuldbindingar A- og B-hluta sveitarfélaga nema samtals um 544,9 ma.kr. sem er um 20 ma.kr. lægri fjárhæð en árið 2014. Þar af eru um 276 ma.kr. hjá „Reykjavíkurborg“ samanborið við 300 ma.kr. á síðasta ári. Í þessu sambandi vegur hlutur OR þungt. Í öllum flokkum er hlutfall skammtímaskulda af heildarskuldum innan eðlilegra marka.

12


Í töflu 13 kemur fram að skuldir og skuldbindingar á íbúa í samstæðu sveitarsjóða eru hæstar hjá „Reykjavíkurborg“. Þær eru tæpar 2,3 m.kr. og eru töluvert hærri en landsmeðaltal sem er tæpar 1,7 m.kr. Þar á móti koma miklar eignir þannig að eiginfjárhlutfall er hátt hjá „Reykjavíkurborg“ eins og hjá öðrum flokkum. Samkvæmt þessum niðurstöðum er efnahagur samstæðureiknings sveitarfélaga að jafnaði nokkuð sterkur. Á það ber þó að minna að hér eru samandregnar niðurstöður Tafla 12: Efnahagsreikningur

fyrir einstaka flokka. Innan hvers flokks er iðulega til staðar töluverður breytileiki. Veltufjárhlutfall í hverjum flokki er reiknað út. Það sýnir hlutfall milli veltufjármuna og skammtímaskulda. Hlutfallið er lægst hjá „Sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur“ eða 0,6 samanborið við 0,3 á síðasta ári. Það hefur því batnað

töluvert milli ára. Á landsvísu er það um 0,9. Breytileiki þessarar kennitölu er hins vegar nokkuð mikill milli einstakra sveitarfélaga. Hlutfall milli heildarskulda og skuldbindinga annars vegar og samtölu reglulegra tekna hins vegar er fyrst reiknað út án nokkurra leiðréttinga. Síðan er það reiknað út á þann veg að veltufjármunir eru dregnir frá heildarskuldum og skuldbindingum áður en hlutfallstalan er reiknuð út skv. ákvæðum rgl. um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum

sveitarfélaga. Ekki er tekið frekara mið af öðrum ákvæðum reglugerðarinnar við útreikningana s.s. ákv. 12. gr. um veitufyrirtæki né ákvæði 14. gr. um leiguskuldbindingar frá ríkissjóði eða lífeyrisskuldbindingar þar sem eingöngu er unnið með tölulegar upplýsingar sem teknar eru beint úr fjárhagsáætlunum sveitarfélaganna.

Tafla 13: Efnahagsreikningur

13


Að lokum Fjárhagsáætlanir sveitarfélaga eru afgreiddar með hliðsjón af ákvæðum sveitarstjórnarlaga. Í sveitarstjórnarlögum er m.a. að finna ákvæði um fjármálareglur sveitarfélaga. Fjármálareglur sveitarstjórnarlaga kveða annars vegar á um jafnvægi í rekstri sveitarfélaga (A+B-hluti) yfir hvert þriggja ára tímabil og hins vegar á um að skuldir og skuldbindingar skulu ekki vera hærri en sem nemur 150% af heildartekjum. Sveitarfélögin hafa allt að 10 árum frá árinu 2011 til að aðlaga sig að markmiðum skuldareglunnar. Í fjárhagsáætlunum sveitarfélaga fyrir árið 2015 kemur fram að á árinu er veruleg áhersla lögð á niðurgreiðslu lána eins og síðustu ár. Ekki er annað að sjá en að árangur hafi náðst í þeim efnum. Staða sveitarfélaga er þó misjöfn hvað þetta varðar. Til að geta greitt af lánum þá þarf afkoma sveitarfélagsins að vera ásættanleg. Einnig er sýnilegt að sveitarfélögin gera ekki ráð fyrir mikilli aukningu fjárfestinga frá síðasta ári. Það er nokkuð áhyggjuefni með tilliti til atvinnulífs í landinu og atvinnustigsins almennt. Sveitarfélögin, rekstur þeirra og fjárfestingar skipta verulegu máli í rekstri þjóðarbúsins. Á hinn bóginn getur hver og ein sveitarstjórn ekki tekið aðrar ákvarðanir í þeim efnum en þær sem falla inn í fjármálastefnu sveitarfélagsins til framtíðar. Ákvarðanir um fjárfestingar hljóta þannig fyrst og fremst að ráðast af fjárhagslegri getu viðkomandi sveitarfélags hverju sinni.

14

Alltaf ríkir ákveðin óvissa um þróun ýmissa afgerandi þátta eins gengur þegar efnahagslegar forsendur eru breytingum háðar. Þar má til nefna þróun útsvarstekna, þróun ýmissa kostnaðarþátta í starfsemi sveitarfélaganna, hver verður þróun atvinnuleysis, þörf fyrir fjárhagsaðstoð og þannig mætti áfram telja. Þróun á gengi íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum hefur áhrif á rekstur sveitarfélaganna hvað varðar þróun á ýmsum rekstrarkostnaði svo og á fjármagnsliði. Verðbólga er annar þáttur sem skiptir miklu máli hvað varðar rekstur, efnahag og fjármagnsliði. Það er því ljóst að áframhaldandi varfærni og aðhald í rekstri sveitarfélaganna er óumflýjanlegt þrátt fyrir að margar fyrrtaldar breytur hafi þróast í jákvæða átt. Almennt má segja að samkvæmt niðurstöðum fjárhagsáætlana sveitarfélaga fyrir árið 2015 þá sé afkoma þeirra og fjárhagsstaða í heildina tekið jákvæð og stöðugt að þróast til betri vegar. Þó er rétt að benda á að framlegð hefur heldur lækkað miðað við tvö fyrri ár. Veltufé frá rekstri er ásættanlegt þótt svo að hlutfall þess af heildartekjum hafi heldur lækkað milli ára. Hafa ber vakandi auga á þeirri þróun. Kostnaðarsamir kjarasamningar marka óhjákvæmilega sín spor í rekstur sveitarfélaganna. Fjárfestingar sveitarfélaga munu vaxa nokkuð frá fyrra ári en engu að síður eru lán áfram greidd niður. Haldi þessi þróun áfram mun það leiða af sér að sveitarfélögin verða æ fjárhagslega sterkari og öðlast þannig aukna möguleika til að veita íbúunum góða þjónustu.


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.