ÍSLAND - Atvinnuhættir og menning 2010

Page 22

24 | Ísland – Atvinnuhættir og menning

samtök fjármálafyrirtækja www.sff.is

S

amtök fjármálafyrirtækja (SFF) eru heildarsamtök fjármálafyrirtækja á Íslandi. Tilgangur og meginverkefni samtakanna eru að vera málsvari fjármálafyrirtækja í hagsmunamálum þeirra og stuðla að því að starfskilyrði þeirra séu samkeppnishæf. SFF gæta hagsmuna aðildarfélaga samtakanna gagnvart stjórnvöldum, eftirlitsstofnunum, almenningi og atvinnulífi og aðstoða þau við að byggja upp heilbrigt og traust fjármálakerfi. Fulltrúar samtakanna taka virkan þátt í opinberri umræðu og beita sér fyrir því að koma sjónarmiðum aðildarfélaganna á framfæri sem og stuðla að upplýstri umræðu um mikilvægi fjármálakerfisins fyrir efnahagslífið og aukningu á skilningi á starfsemi fjármálafyrirtækja og hlutverki þeirra í hagkerfinu. Eitt stærsta verkefni SFF á næstu árum verður að styðja aðildarfélög sín í að byggja upp traust á fjármálakerfinu á ný. SFF taka virkan þátt í hagsmunagæslu á alþjóðavettvangi en samtökin eiga aðild að bæði Evrópsku bankasamtökunum (EBF) og Samtökum evrópskra tryggingarfélaga (CEA). Virk þátttaka í erlendu samstarfi skiptir miklu máli fyrir samtökin enda starfa íslensk fjármálafyrirtæki í alþjóðlegu umhverfi vegna mikilvægi útflutningsiðnaðar fyrir íslenska hagkerfið og hins evrópska lagaumhverfis sem gildir um starfsemi þeirra.

Skrifstofur SFF eru í Húsi atvinnulífsins við Borgartún 35.

Sumarið 2012 áttu 35 fjármálafyrirtæki aðild að SFF. SFF tóku formlega til starfa í janúarbyrjun árið 2007 en þau urðu til í nóvember 2006 þegar Samtök banka og verðbréfafyrirtækja (SBV) sameinuðust Sambandi íslenskra tryggingarfélaga (SÍT). Áður höfðu SBV orðið til við sameiningu Sambands íslenskra viðskiptabanka (SÍV), Sambands lánastofnana (SL) og Samtaka verðbréfafyrirtækja (SV) í desember 2000. Guðjón Rúnarsson hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra SFF frá stofnun samtakanna en hann var áður framkvæmdastjóri SBV. Stjórnarformaður SFF er Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka. Skrifstofur SFF eru í Húsi atvinnulífsins við Borgartún 35 í Reykjavík. Á skrifstofu SFF starfa sex manns við fjölbreytt og ólík úrausnarefni. Á vegum SFF er haldið úti fjölda sérfræðihópa um þau viðfangsefni sem eru á borðum samtakanna hverju sinni Allt starf SFF byggir á gildum samtakanna en þau eru liðsheild, fagmennska og traust.


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.