Bæjarstjórnarfundur nr. 1229

Page 1

Bæjarstjórn - 1229 FUNDARBOÐ 1229. fundur bæjarstjórnar verður haldinn í bæjarþingsalnum, Stillholti 16-18, 8. mars 2016 og hefst kl. 17:00

Dagskrá: Almenn erindi 1.

1505141 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2015 Bæjarráð samþykkti á 3175. fundi ráðsins viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun ársins 2015 fyrir tímabilið desember 2015. Viðaukinn felur í sér breytta áætlun þannig að afkoma A og B hluta lækkar um 9.741 þkr. Rekstrarafgangur A hluta lækkar úr 146.321 þkr. í 136.580 þkr. og í B hluta úr 61.444 í 51.703 þkr. Viðaukinn lagður fram til samþykktar.

2.

1602103 - Launalaus leyfi - reglur Bæjarráð samþykkti á 3175. fundi ráðsins endurskoðaðar reglur um launalaus leyfi starfsmanna Akraneskaupstaðar og vísaði þeim til samþykktar í bæjarstjórn.

3.

1510028 - Þjónustusvæði í málefnum fatlaðra Velferðar- og mannréttindaráð hefur lýst sig meðmælt því að sækja um undanþágu frá mannfjöldaviðmiðum laga um málefni fatlaðs fólks nr. 59/1992 á grundvelli undanþáguákvæða í 4. gr. laganna. Ákvörðuninni var vísað til bæjarráðs og tók ráðið undir bókun velferðar- og mannréttindaráðs á 3175. fundi sínum þann 25. febrúar sl. Málinu vísað til samþykktar í bæjarstjórn.

4.

1511208 - Deilisk. Ægisbrautar - Vallholt 5 Skipulags- og umhverfisráð samþykkti á 28. fundi sínum tillögu að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar við Vallholt 5 og leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

5.

1602244 - Aðalskipulagsbreyting - Vallholt 5 Skipulags- og umhverfisráð samþykkti á 28. fundi sínum, tillögu að breytingu aðalskipulags vegna lóðarinnar við Vallholt 5 og leggur til við bæjarstjórn að breyting á aðalskipulagi verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.


Fundargerðir til kynningar 6.

1601006 - Fundargerðir 2016 - bæjarráð 3175. fundargerð bæjarráðs frá 25. febrúar 2016.

7.

1601007 - Fundargerðir 2016 - velferðar- og mannréttindaráð 33. fundargerð velferðar- og mannréttindaráðs frá 17. febrúar 2016. 34. fundargerð velferðar- og mennréttindaráðs frá 2. mars 2016.

8.

1601009 - Fundargerðir 2016 - skipulags- og umhverfisráð 28. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 29. febrúar 2016.

9.

1601012 - Fundargerðir 2016 - Orkuveita Reykjavíkur 226. fundargerð stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 25. janúar 2016.

10. 1601013 - Fundargerðir 2016 - Höfði hjúkrunar og dvalarheimili 62. fundargerð Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis frá 16. febrúar 2016.

4. mars 2016 Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri.


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.