2
fimmtudagurinn 16. janúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR
LISTASAFN REYKJANESBÆJAR - NÝ SÝNING
-fréttir
pósturu vf@vf.is
ENDURFUNDIR
Samsýning Þórðar Hall og Kristbergs Ó. Péturssonar. Verið velkomin á opnun sýningarinnar föstudaginn 1. nóvember kl. 18 í sýningarsal Listasafnsins í Duushúsum. Sýningin stendur til 15. desember og er opin virka daga frá kl. 12-17 og helgar 13-17. Aðgangur ókeypis.
FORELDRANÁMSKEIÐ Ert þú að verða foreldri eða áttu barn yngra en þriggja ára? Gottman námskeiðið Að verða foreldri, verður haldið 2.-3. nóvember nk. í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju. Námskeiðið stuðlar að því að undirbúa verðandi foreldra og foreldra barna upp að þriggja ára til að takast á við foreldrahlutverkið. Á námskeiðinu er lögð áhersla á - að styrkja parsambandið í gegnum þær breytingar sem verða með tilkomu barns - að kenna aðferðir sem nýtast til að stjórna ágreiningi - áhrif þess að vera samstillt í uppeldishlutverkinu - að þekkja og virða tilfinningar barna - að vita hvert er hægt að leita eftir stuðningi og ráðgjöf þegar þörf er á Skráning og frekari upplýsingar eru á rbf@hi.is, s.5255200 http://www.rbf.is/sites/www.rbf.is/files/gottman_baeklingur_september.pdf
MÁLÞING UM BYGGINGAMÁL
Jarðskaut og rafsegulsvið, rakamyndun og mygla í mannvirkjum. Ástæður og áhrif á heilsufar íbúa. Byggingarreglugerðin í nútíð og framtíð. Framsaga: Sérfræðingar frá Mannvirkjastofnun og Nýsköpunarmiðstöð. Föstudaginn 1. nóvember kl. 13.00 – 16.30 Ráðstefnusal Íþróttaakademíunnar, Krossmóa 58. Fyrir fagaðila innan byggingargeirans, húseigendur og almenning. Þingstjóri er Sigmundur Eyþórsson Dagskrá á vefsíðu Reykjanesbæjar, reykjanesbaer.is Umhverfis- og skipulagssvið Reykjanesbæjar
Skyttur!
Fjölmennt var á Garðskaga um liðna helgi. Fólk sem naut útivistar taldi skyttur á rifi vera í vanda.13:07.
n Björgunarsveit kölluð út vegna manna í Lambarifi á Garðskaga:
Sjónarvottar töldu skarfaskyttur vera í hættu
B
jörgunarsveitin Ægir í Garði var kölluð út síðdegis á laugardag vegna manna sem taldir voru í vanda á rifi úti fyrir Garðskaga. Tilkynnt var um fólk sem væri hugsanlega í vanda í Lambarifi á Garðskaga. Neyðarlínan kallaði til lögregluna á Suðurnesjum og Björgunarsveitina Ægi. Þar var strax mannaður björgunarbátur sem sendur var að Lambarifi. Þar tóku hins vegar vopnaðir menn á móti björgunar-
sveitarmönnum. Þeir voru að skjóta fugla í rifinu og amaði ekkert að þeim. Það var fólk sem var að njóta góða veðursins á Garðskaga sem hafði séð til fólks í rifinu og taldi það í vanda og hafði því samband við Neyðarlínuna. Björgunarsveitarmenn sneru því við frá rifinu og veiðimennirnir komu sér sjálfir í land. VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson
VEIÐAFÆRASKÚR Í LEIRU Á LEIÐ ÚT Á HAF Á undanförnum vikum hafa margir „veðurhvellir “ gengið yfir landið. Veðrið hefur farið illa með margt og fastir hlutir í tilveru kylfinga hafa færst úr stað. Gríðarlegt brimrót var við Hólmsvöll í Leiru á dögunum og gekk sjór yfir æfingavöllinn Jóel að hluta til. Meðfylgjandi myndir sýna vel hvernig geymsluskúr sem hefur verið eitt af helstu e i n ke n nu m æ f i ng a vallarins Jóels er að fikra sig út í fjöruna. Gunn-
ar Jóhannsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Suðurnesja sagði að sjórinn hefði tekið skúrinn með sér einn óveðursdaginn eftir áramót. Ekki er ólíklegt að hann fara alla leið út í sjó í næsta óveðri nema eitthvað verði gert til að bjarga skúrnum. Eins og sjá má á myndunum er mikið af drasli inni á vellinum eftir að sjórinn gekk þar yfir.
Hundruð starfa við nýja kísilmálmverksmiðju í Helguvík uThorsil ehf. og Mannvit hf. skrifuðu í sl. viku undir samning um hönnun kísilmálmverksmiðju Thorsil sem rísa mun í Helguvík á næstu tveimur árum. Thorsil og Reykjanesbær skrifuðu í október 2013 undir samning um skilmála vegna 16 hektara lóðar undir verksmiðjuna sem Thorsil hyggst reisa á iðnaðarog hafnarsvæðinu í Helguvík. Vinna við umhverfismat stendur yfir og áætlað er að byggingarframkvæmdir hefjist síðar á árinu. Rúmlega 300 manns munu starfa við byggingu verksmiðjunnar og er stefnt að því að framleiðsla hefjist á þriðja ársfjórðungi ársins 2016. Þá skapast um 160 ný störf vegna starfseminnar auk afleiddra starfa, s.s. við flutninga, viðhald, verkfræðiþjónustu og fleira. Áætluð ársframleiðsla er um 54 þúsund tonn af kísilmálmi. Samkomulag um skilmála hefur verið gert við Landsvirkjun um kaup á 87 MW af raforku en gert er ráð fyrir að orkuþörf fyrirtækisins verði um 730 GWst á ári. Langtímasamningar um sölu á rúmlega helmingi af framleiðslu verksmiðjunnar til rótgróinna alþjóðlegra framleiðslufyrirtækja eru á lokastigi.