Æskan og skogurinn

Page 23

NÁM Í SKÓLAGARÐI - KAFLI 1

Fyrrgreind efni hverfa aftur til jarðar þegar grös sölna eða tré falla og fúna. Öðru máli gegnir þegar land er slegið eða beitt, tré felld og flutt brott úr skógunum. Þá fer jarðveginn að skorta sum þessara efna, einkum köfnunarefni, fosfór og kalí. En unnt er þá að bæta úr næringarskorti með áburði. Plönturnar verða veikbyggðar og hætta að vaxa, ef jarðveginn vantar steinefni eða köfnunarefni. Þess vegna er oft nauðsynlegt að gefa ungum trjám og runnum áburðarskammt en gæta verður þess að hafa hann ekki stóran. Of mikil áburðargjöf hefur skaðleg áhrif og getur grandað smáplöntum. Eitt hið vandasamasta við alla ræktun er því að skera úr um áburðarþörfina. Köfnunarefni eykur vöxt blaða og sprota. Fosfór og kalí örva rótarvöxt og flýta fyrir blómgun og aldinþroska. Tré, sem fá næga næringu, verja henni ekki eingöngu til vaxtar, heldur safna þau líka forðanæringu. Í sólríkum sumrum safnast mikil forðanæring í trjánum til næsta árs. Vöxtur þeirra fer því mjög eftir veðráttu undanfarins sumars.

Vöxtur trjánna Á hverju ári bætist við hæð trjánna. Þetta sést best á furu og greni, því að krans af greinum vex út úr stofninum þar sem ársvöxturinn byrjar. Þess vegna er auðvelt að geta sér til um aldur ungra trjáa með því að telja greinakransana. En á gömlum trjám eru neðstu greinarnar fallnar brott svo að þessi aldursákvörðun er ekki einhlít. Því er ókleift að segja til umaldur gamalla trjáa fyrr en þau hafa verið felld en þá má telja árhringana. Ljósir og dökkir hringar skiptast á í viðnum eins og sjá má þegar tré hafa verið felld. Þetta kemur af því að frumuskiptingin í vaxtarlaginu 21


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.