baeklingur2012

Page 11

taekwondo Taekwondo er ævaforn bardagalist, uppruninn á Kóreuskaga, með sögu sem teygir sig meira en 2000 ár aftur í tímann. Taekwondo er nútíma samblanda af mörgum af hinum fjölmörgu bardagalistum sem eru upprunnar í Kóreu. Taekwondodeild ÍR var stofnuð 1990 og er elsta starfandi Taekwondodeild á Íslandi. Eitt af því sem merkilegt er við Taekwondo er að oft byrja krakkarnir að æfa íþróttina en draga svo fjölskylduna með sér á æfingar. Taekwondo er þannig uppbyggt að allir geta byrjað að æfa íþróttina óháð aldri eða líkamlegu formi. Taekwondo er skemmtileg íþrótt og leiðinni góð sjálfsvörn. Endilega prófaðu að mæta á æfingu og athuga hvort Taekwondo sé ekki eitthvað fyrir þig.


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.