FERÐAIÐNAÐUR
FORDÓMAR
MENNING
Hýraugað talar við Ómar Inga Magnússon um hinsegin ferðaiðnað ... Bls. 3
Erum við sjálf Drottningar, ást með fordóma? og drama.La Hýrauganu beint Cage aux folles að innhverfum sem nú er sýnt á fordómum ... Broadway... Bls. 5 Bls. 2
ÍÞRÓTTIR
FRÁBÆR ÁRANGUR
19 gull, 3 silfur og 4 brons. Hýraugað hinsegin fréttabréf hittir hýrasta íþróttahóp FRÉTTABRÉF SAMTAKANNA ‘78 FÉLAGS HINSEGIN FÓLKS Á ÍSLANDI landsins ...
HÝRAUGAÐ // október 2010
01. TÖLUBLAÐ 01. ÁRGANGUR
Bls. 2
DREIFT FRÍTT Á RAFRÆNU FORMI TIL FÉLAGSMANNA SAMTAKANNA ‘78 OG ÁHUGAFÓLKS UM HINSEGIN MÁLEFNI
ENDURBÆTUR Á REGNBOGASAL Eins og fólk hefur eflaust tekið eftir er félagsmiðstöð Samtakanna ‘78 lokuð. Regnbogasalurinn hefur verið nær óbreyttur frá opnun fyrir rúmum áratug og því þótti kominn tími til að fríska upp á húsnæðið.
Ákveðið var að nota sumarið til þessa, enda rólegur tími og lítil starfsemi hefur verið á sumrin. Nær eingöngu hefur verið treyst á sjálfboðaliða við framkvæmdirnar. Stjórn S’78 kann öllum þeim sem hafa lagt hönd á plóg bestu þakkir. Formleg opnun Regnbogasals verður auglýst síðar.
Galakvöldverður & ball
Samtakanna 78
UNGLIÐASTARF
Ungliðahreyfingin sjálfstæð eining innan S’78 Nýverið voru gerðar breytingar á fyrirkomulagi ungliðahóps Samtakanna ‘78 í þá átt að gera hann að sjálfstæðari einingu undir hatti Samtakanna.
Ungliðar þjóni hinsegin táningum til 18 ára aldurs.
Til þessa hafa ungliðarnir tekið á móti ungu fólki upp að 20 ára aldri en nú er stefnt að því að
Þríréttuð máltíð :: Dansleikur Búrdívurnar úr La Cage aux Folles Allur ágóðu rennur til starfs S'78 >>> Upplýsingar & miðapantannir<<<
lækka þetta aldursþak niður í 18 ár. Síðustu ár hefur þróunin orðið sú að sífellt yngri krakkar hafa sótt fundi ungliðanna sem eiga fátt sameiginlegt með eldri krökkunum. Starfsemi ungliðanna í framtíðinni er ætlað að styðja betur við þessi ungmenni en stefnt er að því að fá fjárveitingu til þess að ráða ungmennafulltrúa sem myndi sjá um þetta starf og leiða hópinn.
Nýkjörin stjórn Ungliðahreyfingar S’78. Frá vinstri: Guðmundur Helgi Arnarson (alþjóða- og samskiptafulltrúi), Grímur Ólafsson (varaformaður), Steina Daníelsdóttir (formaður) og Linda Andrea Mikaelsdóttir Persson (ritari). Mynd frá Gender Bender-kvöldi Ungliðanna.
SAMTÖKIN ‘78 // FACEBOOK /// TWITTER /// FLICKR /// YOUTUBE
RITSJÓRNARSPJALL
Ekkert hinsegin óviðkomandi
VIÐTAL Hvað er IGLA? Alþjóðleg Sundsamtök Hinsegin fólks (Igla.org)
Ef við gefum okkur að lesendur séu almennt ekki með augu í hnakkanum þá ertu nú með Hýraugað fyrir framan þig, nýtt fréttabréf Samtakanna ‘78.
Hafdís Erla Hafsteinsdóttir,var kjörin í stjórn alþjóðafélagsins á síðasta aðalfundi. Sundíþróttamót IGLA er í Reykjavík 2012
Hugmyndin að fréttabréfinu komst á flug eftir opinn trúnaðarráðsfund Samtakanna í vor þegar nokkrir verðandi blaðamenn gáfu sig fram við stjórn og lýstu áhuga á að starfa á þessum vettvangi. Undirritaður tók að sér að leiða vinnuna og titlar sig því nú ritstjóra og skrifar fyrsta ritstjórnarpistil lífs síns. Fyrst um sinn stefnum við á að fréttabréfið komi út 3–4 sinnum á ári á rafrænu formi og verði sent til allra á póstlista S’78, auk þess sem nokkur eintök verða prentuð og látin liggja frammi á bókasafni og í Regnbogasal. Hýrauganu er ekkert hinsegin óviðkomandi og ætlum við að fjalla um hver þau málefni sem okkur finnst eiga erindi við lesendur með fjölbreytileikann að leiðarljósi. Auk þess hvetjum við fólk til þess að hafa samband ef það lumar á góðu efni. Fróðleikur og skemmtun, allt í sama pakka, framreitt af því fólki sem talið er upp hér að neðan. Njótið vel! Guðmundur Helgason, ritstjóri Hýraugans ÚTGEFANDI OG ÁBM: Samtökin ‘78 RITSTJÓRI: Guðmundur Helgason RITSTJÓRN Ásta Kristín Benediktsdóttir Atli Þór Fanndal Sigurður Júlíus Guðmundsson Hafsteinn Sverrisson HÖNNUN OG UMBROT Atli Þór Fanndal LJÓSMYNDIR Eva Ágústa hyraugad@samtokin78.is
2
Allur réttur áskilinn. Allar tilvitnanir og önnur notkun efnis úr blaðinu, þar með talin afritun, birting, fjölföldun og hvers kyns dreifing, er háð leyfi ritstjóra.
Það er hvað mest heillandi að sjá allra þjóða kvikindi á öllum aldri og öllum kynjum
Andrés segir að það hafi verið mjög gaman að sjá hvað íslenski hópurinn stóð vel saman en mikill og góður liðsandi var hjá íslensku keppendunum sem fékk verðskuldaða athygli í Köln. Hafdís, sem vann til 5 gullverðlauna á mótinu, segir að upplifunin hafi verið alveg frábær. „Það er hvað mest heillandi að sjá allra þjóða kvikindi á öllum aldri og öllum kynjum, allt samankomið í einni súpu“.
>>> Heimasíða Styrmis
SNARÖFUG
KEPPNI Í KÖLN Dagana 31. júlí til 7. ágúst voru haldnir Hinsegin leikar eða Gay Games í Köln. Íþróttafélagið Styrmir sendi hýran hóp til þátttöku sem náði stórkostlega góðum árangri. Sundhópurinn kom heim með 19 gullpeninga, 3 silfur og 4 brons en auk hans fóru blaklið og þónokkrir fótboltamenn til keppni.
STONEWALL 27. júní 1969 er merkur dagur í sögu hinsegin fólks. Þann dag reis hópur fólks upp gegn reglulegum ofsóknum lögreglu og yfirvalda.
Hýraugað hitti sundkappana Hafdísi Erlu Hafsteinsdóttur og Andrés Watjanarat til að komast að því hvernig upplifun þetta hafi verið. „Ég get ekki útskýrt það, þetta var bara ógeðslega gaman“ segir Andrés en hann fór í fyrsta skipti á alþjóðlegt stórmót, aðeins 10 mánuðum eftir að hann lærði að synda.
Sunddeild Styrmis, sem þjálfar nú tæplega 20 manns, setur stefnuna á Havaí á næsta ári og að sjálfsögðu Reykjavík 2012. Öllum er velkomið að taka þátt og breytir engu hvort um vant sundfólk er að ræða eða algjöra byrjendur. „Við erum oftast á braut 5,“ segir Hafdís, en æfingar eru haldnar í Laugardalslaug. En hvað er svo næst á dagskrá hjá Styrmi? „Slappa af“ segir Hafdís með vott af glensi, en mánaðarfrí var tekið frá reglulegum æfingum eftir Hinsegin leikana. >>> HORFA Á VIÐTAL Í FULLRI LENGD
Í kjölfar uppþotanna mynduðust hópar hinsegin aðgerða- sinna í New York og um allan heim. Dagblöð voru stofnuð til að tala fyrir mann réttindum hinsegin fólks. Fyrsta Gay pride var 27.06.70.
BLEIKAR KRÓNUR
HINSEGIN FERÐAÞJÓNUSTA Á ÍSLANDI
ÍÞRÓTTIR Alþjóðlegt hinsegin sundmót í Reykjavík 2012
Það er ekki nóg að skófla öllum upp í flugvél og til Íslands, það verður að vera eitthvað fyrir þá að gera hérna.
Árlegt sundíþróttamót IGLA verður haldið í Reykjavík árið 2012 en það var ákveðið á ársfundi IGLA í lok júlí. Búist er við allt að 1000 erlendum keppendum ásamt fylgdarfólki og mun verða keppt í garpasundi, víðavatnssundi, sundknattleik, dýfingum og samhæfðri sundfimi. Mótið, sem stendur í viku, verður haldið í lok maí og er stærsta sundmót sem haldið hefur verið á Íslandi til þessa. Íþróttafélagið Styrmir mun sjá um að halda mótið með dyggri aðstoð frá Sundsambandi Íslands og Íþróttasambandi Íslands. Mótið mun koma Íslandi og Styrmi rækilega á kortið og draga fjölda erlendra sundkappa og aðra ferðamenn til landsins. Gríðarmikil vinna er fram undan við undirbúning og framkvæmd mótsins en sundhreyfingin á Íslandi hefur gott orð á sér og góða reynslu af framkvæmd sundmóta sem mun nýtast vel fyrir þessa leika. Reykjavík mun svo sannarlega verða hýr á brá sumarið 2012 þótt vert sé að taka fram að ekki er nauðsynlegt að vera hinsegin til að taka þátt í keppninni.
>>> Ritgerð Ómars má lesa hér Erlendir ferðamenn sem koma til Íslands sækjast ekki allir eftir því sama og einn markhópur sem huga þarf að eru hinsegin ferðamenn. Hýraugað spjallaði við Ómar Inga Magnússon sem skrifaði BS-ritgerð við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst er ber heitið „Möguleikar Reykjavíkur sem ákjósanlegur áfangastaður fyrir samkynhneigða ferðamenn“. „„Bleika pundið“ eða „bleika efnahagssvæðið“ eru hugtök sem ferðaþjónustan hefur lengi notað yfir þá umfram peninga sem samkynhneigðir eiga og nota í annað en barnauppeldi og slíkt, en barneignir eru hlutfallslega færri hjá þeim en gagnkynhneigðum. Þessir fjármunir eru oft notaðir í munað eins og ferðalög og aðra afþreyingu,“ útskýrir Ómar. Á Íslandi hefur lítið verið stílað inn á að fá hinsegin ferðamenn til
Fastakúnnar Stonewall Inn til heyrðu lágstétt, jafnvel meðal samkynhneigðra. Dragdrottningar, stelpustrákar, ungir menn, transgend er og heimilis lausir unglingar. Myndaf forsíðu N.Y.D.N.29.06.1969
landsins en ljóst er fyrirtæki gætu grætt mjög á því að komast inn á bleika efnahagssvæðið. „Það sem hægt er að gera, og á að gera, er að höfða beint til samkynhneigðra sem markhóps,“ segir Ómar. „Sá sem ætlar sér að ná til samkynhneigðra þarf að þekkja þarfir þeirra og væntingar og koma með góðar lausnir til þess að uppfylla þær þarfir.“ Ómari finnst að Reykjavíkurborg ætti að taka beinan þátt í slíku verkefni, enda gæti hún stórgrætt á því til lengri tíma. „Ef við tökum sem dæmi Manchester í Englandi, þá markaði sú borg sér stefnu í þessum málum fyrir ca. 15 til 20 árum síðan. Þeir tóku fyrir ákveðið hverfi og settu þau skilyrði að allur rekstur þar skyldi vera „gay related“. Með árunum jókst straumurinn til borgarinnar svo mikið að þangað koma margar milljónir samkynhneigðra ferðamanna á ári. Þú getur rétt ímyndað þér tekjurnar sem borgin
fær í gegnum alla þá þjónustu sem þeir kaupa á meðan dvölinni stendur. Á Íslandi eru kjöraðstæður til þess að gera eitthvað svipað þessu. Hérna eru réttindi samkynhneigðra með þeim bestu sem gerist og í raun ekkert því til fyrirstöðu að byrja strax á svona átaki.“ Nú er ljóst að alþjóðlegt sundmót á vegum IGLA (International Gay and Lesbian Aquatics) verður haldið á Íslandi í maí 2012. Ómar sér mikla möguleika sem tengjast þeim viðburði en telur að ferðaþjónustuaðilar verði að undirbúa sig vel. „Það er ekki nóg að skófla öllum upp í flugvél og til Íslands, það verður að vera eitthvað fyrir þá að gera hérna. Þetta sundmót er góð landkynning en það þarf að fylgja þessu vel eftir og helst að reyna bjóða upp á eitthvað meira. Ef mikill fjöldi gesta kemur er hægt að vera með eins konar „mini pride“ bara í kringum mótið.“
Stonewall Inn, 27. júní 2010, á 41 árs afmæli uppþotanna og 40 ára afmæli fyrstu Gay pridegöngunnar. Hópur fólks safnast þar árlega saman á af mæli uppþotanna. Stonewall er einn þekktasti staður réttindabaráttunnar.
3
ÍTAREFNI
Leikritið La Cage aux Folles var frumsýnt 1. febrúar 1973 í Théâtre du Palais-Royal..
La Cage aux Folles
Flestir muna eftir bíómyndinni The Birdcage með Robin Williams og Nathan Lane í aðalhlutverkum en sú mynd kom á eftir leikritinu, frönsku bíómyndinni og söngleiknum. >>> SPILA MYNDBAND
Allar þrjár Broadwayuppsetningarnar af La Cage hafa unnið til Tony- og Drama Desk-verðlauna í hinum ýmsu verðlaunaflokkum. >>> SPILA MYNDBAND
Lagið „I am what I am“ eða „Ég er eins og ég er“ heyrðist fyrst í söngleiknum, flutt af George Hearn í hlutverki Albin/ Zaza. Diskóútgáfa Gloriu Gaynor af laginu kom út seinna sama ár og varð það fljótlega að þeim þjóðsöng hinsegin fólks sem við þekkjum. >>> SPILA MYNDBAND
„Les Cagelles“stelpurnar munu heiðra okkur á Galaballi Samtakanna ‘78 sem haldið verður í Iðnó 9. október 2010. >>> NÁNAR
4
DROTTNINGAR, ÁST OG DRAMA Nú er sýnd á Broadway í New York þriðja uppfærslan frá upphafi af söngleiknum La Cage aux Folles. Saga verksins hófst árið 1973 þegar út kom í Frakklandi leikrit með sama nafni eftir Jean Poiret. Eftir leikritinu var síðan gerð bíómynd árið 1978 sem margir hafa séð og seinna komu tvær framhaldsmyndir. Árið 1983 rataði verkið til Bandaríkjanna og upp á svið á Broadway en þá höfðu þeir Harvey Fierstein (handrit) og Jerry Herman (lög og söngtextar) samið þessa söngleikjaútgáfu sem síðan hefur verið sýnd víðs vegar um heiminn.
saman. George tók hliðarspor eitt sinn forðum og eignaðist soninn Jean-Michel sem hann ól upp ásamt Albin sem gekk stráknum í „móðurstað“. Nú hefur Jean-Michel fundið sér stúlku [!] til að giftast, og þá þurfa tengdaforeldrarnir að hittast. Foreldrar stúlkunnar, sem heitir Anne, eru mjög siðprúð og afturhaldssöm hjón, pabbinn er stjórnmálamaður hvers aðalstefnumál er að loka öllum sóðabúllum eins og La Cage. Upp hefst mikill feluleikur sem endar í skemmtilegum árekstrum tveggja menningarheima og jafnvel hommarnir þurfa að takast á við eigin fordóma og hræðslu við viðmót umheimsins.
Parið George (eigandi næturklúbbsins La Cage aux Folles) og Albin (dragdrottningin Zaza, aðalstjarna klúbbsins) hafa gengið í gegnum súrt og sætt
Sýningin er uppfull af skemmtilegum uppákomum, drottningum af bestu sort, ást og drama. Tónlist Jerrys Hermans er einstaklega grípandi, einfaldar
fallegar melódíur sem auðvelt er að fá á heilann. Aðalleikararnir tveir, Kelsey Grammer (Frasier), sem leikur George, og Douglas Hodge (Albin), voru báðir tilnefndir til Tony-verðlauna og Douglas fékk þau. Þeir hafa nýlega báðir undirritað samning um að leika áfram til 13. febrúar 2011. Allir í leikhús!
Sýningin er uppfull af skemmtilegum uppákomum, drottningum af bestu sort, ást og drama
HÝRAUGAÐ MÆLIR MEÐ: Bíókvöldi með popp og kók ... Hedwig and the Angry Inch
I love you Phillip Morris
To Wong Fu, Thanks for Everything, Julie Newmar
Segir frá klikkaðri ævi Hansels Schmidts, sem gerist Hedwig Schmidt eftir klúðraða kynleiðréttingaraðgerð. Rokkaður söngleikur með áhugaverðum ádeilum.
Saga loddara sem gerir allt til að gefa ástmanni sínum það sem hugurinn gæti girnst. Framsækin mynd með samkynhneigðri aðalpersónu. Kynhneigð hans er þó engan veginn í aðalhlutverki í myndinni.
Saga þriggja dragdrottninga sem ferðast þvert yfir Bandaríkin. Skemmtileg ádeila á hugarástand samkynhneigðra innan senunnar. Er senan okkar eina athvarf, eða hvað?
ÁHUGAVERT
/// ATBURÐIR & ÞJÓNUSTA hyraugad@samtokin78.is
BÓKASAFN S’78 LAUGAVEGUR 3
Opið virka daga frá 10.0016.00 og mánudags- og fimmtudagskvöld frá 20.00-23.00. Safnið geymir mikið og fjölbreytt efni sem varðar líf, sögu og menningu hinsegin fólks – bækur, tímarit, , blaðaúrklippur og kvikmyndir.
HÝRLINGARNIR
Lesendur Hýraugans eru aldrei kallaðir annað en hýrlingar. Gildir þar einu hvort átt er við þá sem fylgjast með Facebooksíðunni okkar eða væntanlega lesendur blaðsins. Í tilefni af fyrsta tölublaðinu deilum við tölfræðiupplýsingum Hýrauganu verður hér beint einstaklingum sem vildu segja um ykkur, hýrlingana ...
Erum við sjálf fordómafull?
Fyrirlestur Noams Chomsky frá RIFF, sem haldinn var í HÍ, er nú á netinu fyrir alla þá sem ekki komust. >>> NÁNAR
RAINBOW VISION 60+ LJÓSMYNDASÝNING
Ljósmyndarinn Laureen Greenfield hittir íbúa Rainbow Vision en það er hinsegin öldrunarheimili í Santa Fe, í Nýju-Mexíkó, Bandaríkjunum. Virkilega skemmtilegar ljósmyndir.
>>> NÁNAR
GALAKVÖLD SAMTÖKIN ‘78
Transfólk var lengi litið hornauga af samfélaginu. Sem betur fer hefur orðið mikil vakning í mál efnum þeirra. Eðlilegt þótti að transfólk hefði sig lítið í frammi og í raun var talað gegn sterkum
DANMÖRKU
NOREGI, BANDARÍKJUNUM,
Fordómarnir beinast ekki að eins gegn öðru hinsegin fólki. Við erum fullfær um að ofsækja okk
ÍRLANDI, HOLLANDI,
Fljótlega eftir að rétt arbætur hófust fór hinsegin fólk að afsaka þörf sína fyrir að tilheyra hinsegin tengslaneti
GRIKKLANDI,
ur sjálf og mörg okkar hafa farið tímabundið inn í skápinn. Viss ar aðstæður kalla eftir að kyn hneigðin sé falin og að við notum kynlaus orð um samböndin okkar. Við erum minna stolt hjá ömmu gömlu en annars staðar. Með þessum feluleik föllumst við sjálf krafa á fordóma. Innhverfir fordómar verða fast umfjöllunarefni í Hýrauganu og öllum er boðin þátttaka. Tillögur um efni, reynslusögur eða pistla má senda á hyraugad@samtok in78.is.
SVÍÞJÓÐ, SPÁNI, SVISS,
TÉKKLANDI, FINLANDI,
KANADA, ÞÝSKALANDI,
UNGVERJALANDI, PÓLLANDI, FRAKKLANDI
OG FILIPPSEYJUM.
& tala: íslensku,
ensku, dönsku, sjóræningjamál , sænsku, þýsku, grísku og spænsku
KYN & ALDUR SKILGREINA SIG EKKI
⚦♀ ⚦♀ 40%
2%
0.73 %
8.6 %
Hinsegin Löggan sérfræðingur Hýraugans 17 %
SKÁPURINN
finnst rosa gott að sofa í af því að hann er allt of stór á mig) og á bolnum stóð „I love lesbians“. Fokk. Fokkfokkfokk! Þetta var sem sagt dagurinn þegar ég kom út fyrir ömmu, alveg óvart. Oh well, þá er það a.m.k. búið...
7.3 %
5.1 %
45 - 54
>>> NÁNAR
Amma kom í heimsókn um síðustu helgi. Ég var ein heima á náttfötunum, opnaði fyrir henni og lét hana hafa dótið sem hún kom að ná í. Sú gamla kvaddi og fór, en mér fannst hún eitthvað skrýtin á svipinn. Þá varð mér litið í spegil og sá að ég var í bol sem vinur minn gaf mér (og mér
35 - 44
KOM ÚT Á NÁTTFÖTUNUM
1.1 %
55+
David Reimer fæddist karlkyns. Sex mánaða brendist hann illa á getnaðarlim. Dr. Money, sálfræðingur og sérfræðingur í kynleiðréttingum sannfærði foreldra hans um að breyta David í konu án vitundar hans. Afleiðingarnar voru skelfilegar.
25 - 34
SAGA DAVID REIMER HEIMILDAMYND
Tvíkynhneigðir hafa lengi þurft að berjast fyrir tilvistarrétti með al hinsegin fólks. Nokkur ár er síðan „diet-gay“ var samheiti yfir tvíkynhneigða. Lengi mátti hópurinn sætti sig við skráningu sem stuðningsmeðlimir í S’78 og um tíma ollu þessi mál og önnur klofningi innan samtakanna.
ÍSLANDI, Frá; , BRETLANDSEYJUM,
18 - 24
>>> NÁNAR
Fljótlega eftir að réttarbætur hóf ust fór hinsegin fólk að afsaka þörf sína fyrir að tilheyra hinsegin tengslaneti. Við hverja réttarbót heyrist að baráttan sé búin og þörf fyrir félagasamtök eins og S’78 sé engin. Hugsjónin er falleg en að mínu mati röng og hætt uleg. Mikil sjálfskoðun fylgir að koma út úr skápnum. Flestir læra af því umburðarlyndi og virðingu en auðvitað er það ekki algilt.
550 FYLGJENDUR RÚMLEGA
13 - 17
Laugardaginn 9. október halda Samtökin ‘78 Galaball til fjáröflunar. Í boði verður 3ja rétta málsverður. Skemmtanastjóri verður Tino the Tangolover og Búrdívur verða á staðnum með númer úr La Cage aux Folles. Viggó og Víoletta taka lagið og Daði Sverrisson leikur ljúfa tóna undir borðhaldi.
Ofsóknir á hendur fólki vegna kynhneigðar eru jaðarskoðanir. Íslenska þjóðin hefur í sameiningu tekið þá ákvörðun. Ég gef þó lítið fyrir hvers kyns hugmyndir um að baráttunni sé lokið.
>>> HÝRAUGAÐ Á FACEBOOK
58%
KONUR
NOAM CHOMSKY WWW
sína sögu. Þeim var talin trú um að með því að segja engum ættu þau möguleika á „eðlilegu“ lífi. Auðvitað viljum við helst gleyma þætti hinsegin fólks í því en við nánari skoðun má sjá dæmi um að verstu móttökurnar hafi trans fólk fengið frá hommum, lesbíum og tvíkynhneigðum. Mögulega var transbaráttan tafin um áratugi vegna innhverfra fordóma.
KARLAR
>>> NÁNAR
að innhverfum fordómum. Hugtakið er á ensku kallað „internalised homophobia“ og lýsir fordómum hinsegin fólks gagnvart sjálfu sér og öðru hinsegin fólki.
0.91 %
11 %
22 %
11 %
9.1 %
3.8 %
SAMTÖKIN ‘78 // FACEBOOK /// TWITTER /// FLICKR /// YOUTUBE
5
AFTURENDINN
Gleymum ekki sérstöðu okkar
Lokaorðin eru fengin að láni úr þakkarræðu Þorvalds Kristinssonar, handhafa mannréttindaverðlauna S’78. Ræðuna flutti hann við móttöku verðlaunanna 27. júní síðastliðinn.
Ert þú búin/n að borga félagsgjöldin? Það hefur sjaldan verið jafn mikilvægt og nú að passa uppá félagið okkar í yfirstandandi samdrætti... Ef allir borga félagsgjöldin getum við haldið úti öflugri starfsemi og jafnvel eflt hana enn frekar.
Lumar þú á
góðri hugmynd? Í vetur ætlum við að bjóða uppá dagskrá í Regnbogasalnum á fimmtudögum og er öllum frjálst að hafa samband og koma með uppástungur. Endilega hafið samband með tölvupósti skrifstofa@samtokin78.is
Lífsbaráttunni lýkur aldrei og baráttan sem nú er fram undan verður ekki síður erfið og flókin en sú sem við eigum að baki. Það er baráttan fyrir því að varðveita sérstöðu okkar. Það er eins og það liggi í náttúru samfélagsgerðarinnar að ríkjandi vald er aldrei í rónni nema því takist að fella lífsstíl og framkomu annarra að sínum eigin stíl og sínu eigin gildismati.
En gleymið því aldrei hvað það er dýrmæt gjöf að vera hinsegin og horfa á heiminn hinsegin augum. Þorvaldur Kristinsson
Sá réttur til fjölskyldulífs, sem við nú höfum unnið til fulls, er ómissandi forsenda þess að við getum lifað og dafnað sem frjálsar manneskjur, en allar þessar réttarbætur mega aldrei leiða til þess að við gleymum sérstöðu okkur, að við gleymum hvað það merkir að vera hinsegin. Þess vegna segi ég: Ræktið þann góða og fallega öfugugga sem býr í sál ykkar allra og verið óhrædd við að beita þessum ugga á sundi ykkar gegnum lífið! Ég á þá ósk ykkur til handa að þið megið taka virkan þátt í samfélagi manna hvern einasta dag og njóta þeirrar virðingar sem öllum mönnum ber, hvar sem þið komið og hvert sem þið farið. En gleymið því aldrei hvað það er dýrmæt gjöf að vera hinsegin og horfa á heiminn hinsegin augum. Megið þið eignast anda og kraft til að miðla þessu sérstaka augnaráði til annarra manna, kenna þeim að sjá veröldina frá því sjónarhorni sem móðir náttúra færði hommum, lesbíum og öðru hinsegin fólki í vöggugjöf af sínum alkunna rausnarskap.
SAMTÖKIN ‘78 // FACEBOOK /// TWITTER /// FLICKR /// YOUTUBE