25. mars 2011

Page 62

46

fermingar

Helgin 25.-27. mars 2011

Gjafakortið sem gildir alls staðar Þú velur upphæðina en viðtakandinn velur gjöfina.

F Fallegar gjafaumbúðir g Hentar öllum H Gildir hvar sem er G

Ármúla 13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is

Fötin voru gömul af pabba Gestirnir komu með stólana með sér í garðveislu Greips Gíslasonar. „Ég fermdist á svakalega fallegum hvítasunnudegi árið 1996 á Ísafirði. Það var glampandi sól og við ákváðum strax eftir athöfnina að það yrði garðveisla,“ segir Greipur Gíslason, verkefnisstjóri Hönnunarmars. Mamma hringdi í alla gestina og bað þá að koma með garðhúsgögn. Þetta var fjölmenn veisla sem heppnaðist gríðarlega vel. Fermingarmyndirnar voru teknar um kvöldið í kvöldsólinni þar sem fjölskyldan kom saman. Það var búið að ákveða að fara ekki til ljósmyndara vegna þess að maður er kannski ekki alveg í blóma lífsins á þessu aldursskeiði. Þessar fermingarmyndir þykir mér ægilega vænt um enn þann dag í dag. Fötin sem ég klæddist á fermingardaginn voru gömul föt af pabba sem hann hafði keypt um tvítugt. Þetta voru dökkfjólublá, teinótt föt, ótrú-

Fermingahringir frá kr. 7000.-

lega flott en var aðeins breytt í takt við tískuna fyrir fermingardaginn. Eftir athöfnina notaði ég þau oft, hvort sem það var saman eða sitt í hvoru lagi. Frábær fatnaður. Ég hafði ekki óskað mér neins sérstaks í fermingargjöf en fékk útilegudót, mikið af peningum og fallegar bækur. Það er ein bók sem ég held sérstaklega upp á. Það er matreiðslubók eftir Helgu Sigurðardóttur og mér þykir svakalega vænt um hana í dag þó að ég mæti hana kannski ekki alveg á fermingardaginn. Peningana sem ég fékk lagði ég til hliðar og notaði ekki fyrr en löngu síðar þegar ég stofnaði mitt fyrsta fyrirtæki ásamt vini mínum. Fyrirtækið stendur enn þann dag í dag, en liggur þó aðeins í dvala um þessar mundir.“ -kp

Hárgreiðslan heldur ýkt Embla valdi kjólinn í samráði við mömmu. „Mér fannst ég ekki tilbúin að ákveða hvort ég væri trúuð þegar ég var fjórtán ára,“ segir Embla Vigfúsdóttir vöruhönnuður sem fermdist borgaralega 1.apríl 2001. „Ferming er alþjóðleg og stundum heldur fólk að hún tengist aðeins kirkjunni. Þetta er vígsla inn í fullorðinsárin. Kjólinn sem ég klæddist valdi ég í samráði við mömmu. Við fórum í Kringluna og fundum vínrauðan flauelskjól. Hárgreiðslan var heldur ýkt og ég fór til hárgreiðslukonu sem vandaði hana vel. Þetta var í lok þess tíma sem fermingargreiðslur skiptu öllu máli. Blóm, krullur og allur pakkinn. Efst á óskalistanum var utanlandsferð til Bandaríkjanna. Mamma og

pabbi uppfylltu þá ósk og ég fékk í kjölfarið nóg af ferðadóti frá hinum og þessum. Svo fékk maður að sjálfsögðu mikið af skartgripum og peningum. Ég var mjög sátt við þetta allt saman.“


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.