24 maí 2013

Page 76

8

viðhald húsa

Helgin 24.-26. maí 2013

 Brynja járvöruverslun við laugaveg

Hjá Brynju er hægt að fá litlar bréfalúgur sem passa í gömul hús. Með tímanum hafa dagblöðin orðið stærri og bréfalúgurnar sömuleiðis. Ljósmynd/Hari.

Níutíu og fjögurra ára járnvöruverslun Verslunin Brynja var stofnuð árið 1919 og er elsta starfandi járnvöruverslun landsins. Gólfflötur Brynju er minni en flestra annarra byggingavöruverslana á Íslandi en vöruúrvalið er þó gott, allt frá skrúfum upp í trésmíðavélar.

a

ð sögn Haldors G. Haldorsen eru íbúar miðborgarinnar duglegir að gera hlutina sjálfir og hafa alltaf verið. „Það hefur ekki breyst eftir efnahagshrunið. Á þessu svæði býr allt frá fátækum námsmönnum upp í efnað fólk og allt þar á milli,“ segir Haldor, aðspurður hvort fólk reyni frekar að framkvæma viðhald sjálft eftir efnahagshrunið. Hjá Brynju er gott úrval af hurðarhúnum og sérpöntunarþjónusta á húnum sem er vinsæl. „Það virðist ekki vera mikið úrval af hurðarhúnum á markaðnum og við eigum og sérpöntum húna í eldri hús,“ segir Haldor. Hjá Brynju eru einnig á boðstólum ýmsar járnvörur, verkfæri, gluggalamir, hurðaskrár og raflagnaefni ásamt árstíðabundnum

vörum, eins og garðverkfærum og snjóskóflum. Að sögn Haldors getur verið vandkvæðum háð að finna bréfalúgur sem passa í gömul hús. „Í gamla daga voru bréfalúgur frekar litlar og stundum er því þannig háttað að umbúnaður í hurðum er þannig að erfitt getur verið að koma nýjum bréfalúgum fyrir. Við reynum því að eiga til þessar minni lúgur sem hægt er að nota í staðinn en þær er erfitt að fá. Blöðin hafa stækkað og lúgurnar með,“ segir Haldor. Þó gólfflötur Brynju sé minni en gengur og gerist hefur það ekki komið niður á vöruúrvalinu sem er svipað og hjá stóru búðunum, fyrir utan grófvöru eins og timbur, einangrun og slíkt. Lengi vel var verslunin með mesta úrval landsins af

trésmíðavélum og er enn með gott úrval af þeim í kjallara verslunarinnar.

Áratuga reynsla

Verslunin Brynja var stofnuð árið 1919 og var fyrst á nokkurra fermetra rými. Verslunin flutti svo í núverandi húsnæði, að Laugavegi 29, árið 1929. Brynjólfur Björnsson, framkvæmdastjóri Brynju, tók við rekstrinum af föður sínum árið 1993 en faðir hans hafði byrjað að starfa hjá Brynju sem sendisveinn á unga aldri og varð svo síðar bókari verslunarinnar og svo eigandi. Frá 1953 hefur Brynja verið í eigu fjölskyldu Brynjólfs. Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@frettatiminn.is

FjÁrmÁL HúsFéLaga

Hússjóður. Ákvörðun gjalda Samkvæmt fjöleignarhúsalögunum er skylt að stofna skuli hússjóð sé þess krafist af minnst ¼ hluta eigenda, annaðhvort miðað við fjölda eða eignarhluta. Aðalfundur ákveður fjárhæð hússjóðsgjalda á grundvelli áætlunar um útgjöld og reglna um kostnaðarskiptingu. Hússjóður getur verið rekstrarsjóður eða framkvæmdasjóður eða blandaður. Sé fyrst og fremst um rekstrarsjóð að ræða eru gjöld eigenda því sem næst jöfn enda skiptist rekstrarkostnaður að jöfnu. Sé sjóðurinn fyrst og fremst framkvæmdasjóður skiptast gjöldin að mestu eftir hlutfallstölum. Þegar árið er gert upp koma oftast í ljós einhver frávik miðað við álögð húsgjöld. Sé gjaldaáætlun vönduð og rétt kostnaðarskipting lögð til grundvallar eru frávikin yfirleitt smávægileg. Þau skal jafna við heildaruppgjör á hússjóðnum.

Vanskil. Lögveð

74,6% *konur 35 – 49 ára á höfuðborgarsvæðinu. Capacent jan - mars 2013 850 svör

... kvenna 35 - 49 ára á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*

Alltaf geta komið upp atvik og aðstæður hjá fólki sem gera því erfitt eða ómögulegt að standa í skilum. Hússjóðsgjöld eru tryggð með lögveði í íbúðum. Lögveðið gengur framar bæði eldri og yngri veðskuldum og fjárnámum. Lögveðið er vel að merkja tímabundið og fellur niður ári eftir gjalddaga. Húsfélag getur meðan lögveðið lifir litið fram hjá eigendaskiptum en þegar það fellur niður verður húsfélagið að beina kröfu að þeim sem var þinglýstur eigandi þegar krafan stofnast.

Vökul stjórn Stjórnin má ekki leyfa hússjóðsskuldum að hlaðast upp né glata hinu dýrmæta lögveði. Hún hefur ekki heimild til að veita langa og ítrekaða gjaldfresti þótt aðstæður séu bágar og brjóstumkennanlegar. Í

Hússjóður

slíkum tilvikum verða félagsmálayfirvöld eða lánastofnanir að koma til sögunnar en ekki hússjóðurinn. Við vanskil verða aðrir eigendur óhjákvæmilega að axla aukabyrði meðan krafan er innheimt. Þess vegna þurfa húsfélög að hafa borð fyrir báru þegar húsgjöld eru ákveðin.

Fjármál og bókhald Stjórn húsfélags fer með fjármál þess. Í fjöleignarhúsum með 6 eignarhlutum eða færri þarf ekki sérstaka stjórn og fara þá eigendur í sameiningu með verkefni hennar. Þeir skipta með sér verkum og geta falið einum eiganda að annast fjármálin. Stjórn húsfélags skal halda reikninga yfir tekjur og gjöld húsfélagsins. Skal hún innheimta hjá eigendum hlutdeild þeirra í sameignlegum kostnaði og henni ber að varðveita og ávaxta fjármuni húsfélagsins á tryggan og öruggan hátt.

Bókhaldsskylda Stjórnin skal sjá um að bókhald húsfélagsins sé fært og haldið á réttan og fullnægjandi hátt. Skal færa efnahags- og rekstrarreikninga og reikningsárið er almanaksárið. Samkvæmt bókhaldslögum er húsfélag bókhaldsskylt. Allar bókhaldsfærslur verða að byggjast á traustum og áreiðanlegum fylgiskjölum og þær skráðar á skýran, varanalegan hátt. Fylgiskjöl ber að varðveita með rekjanlegum hætti í númeraröð.

Ársreikningar Ársreikningar húsfélaga skulu vera í samræmi við bókhaldslög. Þeir eiga að samanstanda af rekstrarreikningi, efnahagsreikningi og skýringum. Í

rekstrarreikningi eiga að koma fram sundurliðaðar tekjur og gjöld þannig að hægt sé að bera saman reksturinn og áætlunina um álagningu húsgjalda. Efnahagsreikningurinn á að sýna eignir og skuldir í árslok. Í skýringum skal svo geta atriða sem þýðingu hafa við mat á rekstri og efnahag félagsins. Ársreikningurinn skal áritaður af þeim sem ábyrgð ber á bókhaldinu og rita yfirleitt allir stjórnarmenn undir hann. Stjórn húsfélags ber að leggja endurskoðaða ársreikninga fram á aðalfundi og skýra þá og bera þá upp til samþykktar að loknum umræðum og fyrirspurnum.

Endurskoðandi Á aðalfundi skal húsfélag kjósa sér endurskoðanda sem vera skal löggiltur sé þess krafist af minnst ¼ eigenda miðað við hlutfallstölur eða fjölda. Endurskoðandi skal hafa aðgang að öllu bókhaldi félagsins og stjórn er skylt að gefa honum allar þær upplýsingar um fjárhag, rekstur og starfsemi félagsins sem hann æskir. Endurskoðandi skal ganga úr skugga um og staðfesta að sameiginlegum kostnaði sé skipt samkvæmt fyrirmælum laga Hann áritar svo ársreikningana með eða án athugasemda.

Upplýsingaskylda Stjórn hefur mjög ríka upplýsingaskyldu gagnvart eigendum. Henni er skylt að gefa eigendum upplýsingar og skýringar um hvað eina sem snertir málefni húsfélags, rekstur þess, viðhald og fjármál. Í fjármálum húsfélags mega engin leyndarmál búa. Allt á að vera upp á borðinu, gegnsætt og aðgengilegt. Annað býður heim hættu á tortryggni, úlfúð og deilum. Húseigendafélagið


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.