Af berangri í Bútæknihús Brot úr tilrauna- og rannsóknasögu Ég sit við tölvu mína í BÚT-húsinu, sem svo er nefnt í daglegu tali, í skrifstofu sem ég hef haft til afnota í bráðum þrjá áratugi. Læt hugann reika til fyrri tíðar og til róta þessa húss. Margt hefur gerst. Viðhorf hafa breyst. Þarfir líka. Já, hugann, því hér rifja ég bara uppúr minni mínu en læt heimildarannsóknir að mestu bíða betri tíma. Verkfæratilraunir og –prófanir á vegum Verkfæranefndar höfðu farið fram hingað og þangað í sveitum suðvestanlands allt frá árinu 1927. Búnaðarfélag Íslands hratt starfinu af stað til þess að unnt væri að veita bændum ráð um skynsamleg verkfærakaup. Hóf það með merkilegum verktæknitilraunum í tengslum við Búsáhaldasýninguna í Reykjavík sumarið 1921. Ræktunarfélag Norðurlands hafði raunar með vissum hætti hafið slíkt starf þegar á fyrsta áratug aldarinnar. Starf Verkfæranefndar var slitrótt allt fram til ársins 1954 en þá komst það á fast form. Skipuð var ný Verkfæranefnd – Verkfæranefnd ríkisins – og fé hafði fengist á fjárlögum til þess að ráða henni starfsmann: Ráðinn var Jón Ólafur Guðmundsson frá Hvanneyri sem þá var nýkominn úr framhaldsnámi í bútæknifræðum við sænska landbúnaðarháskólann, SLU. Hann var ráðinn á fyrsta fundi nefndarinnar 10. maí 1954. Verkfæranefnd hafði í fyrstu skrifstofu í húsi við Austurstræti nr. 5 í Reykjavík. Ólafur hóf þegar störf að verkfæraathugunum og vinnurannsóknum víða um sveitir eins og fyrsta ársskýrsla nefndarinnar ber með sér. Fljótlega var miðstöð Verkfæranefndar flutt að Hvanneyri án þess þó að hún hlyti þar sérstaka aðstöðu lengi vel. Má segja að Bændaskólinn hafi skotið skjólshúsi yfir starfsemi nefndarinnar. Kom þar einnig til að framkvæmdastjórinn, Ólafur eins og hann var jafnan kallaður, var sonur Guðmundar skólastjóra. Þegar skrifarinn kom til starfa hjá Verkfæranefnd sumarið 1964, að vísu launaður af Tilraunaráði búfjárræktar, en á milli þessara tveggja stofnana var náið samstarf, hafði nefndin fyrir nokkrum mánuðum fengið góða starfsaðstöðu í Nýja Verkfærahúsinu sem svo var nefnt og um er fjallað í öðrum pistli. Var um að ræða skrifstofu og vænan verkstæðissal sem hvort tveggja stórbætti starfsaðstöðu nefndarinnar. Áður hafði starfið farið fram í ýmsu rými á vegum Hvanneyrarskóla það sem ekki var unnið á bændabýlum víðsvegar um landið. Ekki leið langur tími áður en Ólafur með fjölskyldu sinni fékk húsnæði kjallara Ráðsmannshúss en síðar í Svíra, sem var kennarabústaður á vegum skólans. Ólafur tók enda þátt í kennslu við skólann í sérgrein sinni. Smáskot hafði Ólafur til ráðstöfunar undir syðri súðinni í Syðra Verkfærahúsinu (áður Hestaréttinni). Man ég eftir dálitlu verkstæðisborði þar, nokkrum hillum og krókum þar sem hafa mátti lítilræði af því sem Ólafur var að vinna með hverju sinni í nafni Verkfæranefndar. Þar voru 142