Fletir

Page 1

Fletir


Sýningin Fletir í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19 21. mars – 26. júní 2015

Ragnheiður Jónsdóttir Ream Brávellir 1974 olía á striga 100 x 110 cm Í eigu Listasafns Íslands

Ragnheiður Jónsdóttir Ream Án titils gvass á pappír 29 x 23 cm Í einkaeign

Ragnheiður Jónsdóttir Ream Eldgos 1974 olía á striga 60 x 75 cm Í eigu Braga Guðlaugssonar

Ragnheiður Jónsdóttir Ream Fjallið eina 1975 olía á striga 79 x 99,5 cm Í eigu Arion banka


Ragnheiður Jónsdóttir Ream Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir Hugsteypan

Ragnheiður Jónsdóttir Ream Hofsvellir ca. 1974 olía á striga 80 x 100 cm Í eigu Þorláks Einarssonar

Ragnheiður Jónsdóttir Ream Collage 1964 samklipp 28 x 22 cm Í eigu Listasafns Íslands

Ragnheiður Jónsdóttir Ream Klettar 9 1965 olía á striga 106,5 x 96,5 cm Í eigu Listasafns Íslands

Ragnheiður Jónsdóttir Ream Grjót olía á striga 60 x 75 cm Í eigu Arion banka


Ragnheiður Jónsdóttir Ream Án titils ca. 1962 olía á striga 106 X 95,5 cm Í einkaeign

Ragnheiður Jónsdóttir Ream Undirlendi ca. 1967 olía á striga 107 x 122,5 cm Í eigu Arion banka

Ragnheiður Jónsdóttir Ream Skógareldur 1962 olía á striga 107 x 91 cm Í eigu Listasafns Íslands

Ragnheiður Jónsdóttir Ream Hvítgreni 1957 olía á striga 91 x 81 cm Í einkaeign

Ragnheiður Jónsdóttir Ream Ægisíða 1977 olía á striga 76 x 106,5 cm Í einkaeign


Ragnheiður Jónsdóttir Ream Brim 1964 olía á striga 81 x 107 cm Í eigu Ólafs Ísleifssonar

Ragnheiður Jónsdóttir Ream Rautt landslag 1967 olía á striga 107 x 127,5 cm Í eigu Braga Guðlaugssonar

Ragnheiður Jónsdóttir Ream Kvöldsól krít og blönduð tækni á pappír 53 x 66 cm Í eigu Arion banka

Ragnheiður Jónsdóttir Ream Líf þekjulitur á pappír 53 x 66 cm Í eigu Arion banka

Ragnheiður Jónsdóttir Ream Hálendi 1966 olía á striga 106 x 131,5 cm Í eigu Arion banka


Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir Samtal við RJR IV 2015 akrýlmálning, viður og nælon 312 x 750 x 100 cm

Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir (Ó)stöðugur hlutur VI 2014 akrýlmálning, viður og ull 45,5 x 46 cm

Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir (Ó)stöðugur hlutur III 2014 akrýlmálning og viður 35 x 54 cm


Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir Samtal við RJR I 2015 akrýlmálning, viður, ull og nælon 57 x 57 cm

Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir Samtal við RJR III 2015 akrýlmálning, viður, ull og nælon 57 x 57 cm

Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir Samtal við RJR II 2015 akrýlmálning, viður, og ull 57 x 57 cm


Hugsteypan Sviðsett málverk 09.01 2012 bleksprautuprent 100 x 150 cm Í eigu Nýlistasafnsins

Hugsteypan Sviðsett málverk 07.03 2012 bleksprautuprent 100 x 67 cm

Hugsteypan Sviðsett málverk 05.01 2012 bleksprautuprent 100 x 67 cm Í eigu Ragnars Björns Ragnarssonar

Hugsteypan Sviðsett málverk 01.01 2012 bleksprautuprent 100 x 67 cm


Hugsteypan Sviðsett málverk 01.02 2012 bleksprautuprent 100 x 67 cm

Hugsteypan Sviðsett málverk 07.01 2012 bleksprautuprent 100 x 100 cm Í eigu Magnesar Signýjar Ásgeirsdóttur

Hugsteypan Sviðsett málverk 07.02 2012 bleksprautuprent 100 x 100 cm

Hugsteypan Sviðsett málverk 02.01 2012 bleksprautuprent 100 x 150 cm


HIN KVIKA KOMPÓSISJÓN Í aldanna rás hafa listamenn og fræðimenn tekist á við form og eiginleika málverksins. Þeir hafa löngum glímt við og rannsakað þanþol hins hefbundna tvívíða miðils, þar sem unnið er með olíulitum á striga strekktan á blindramma. Í verkum þeirra þriggja höfunda sem hér eru leiddir saman er unnið með hugmyndafræði og útfærslu málverksins á ólíkan hátt. Verk Ragnheiðar Jónsdóttur Ream (1917-1977) á sýningunni Fletir eru flest hefðbundin málverk á striga þar sem landslagstúlkun dansar á mörkum hins óhlutbundna. Hún beitir óvenjulegu sjónarhorni og sterku samspili litaflata til að virkja myndflötinn. Þannig skapar hún umrót á fletinum sem hefur áhorfandann til flugs og felur honum að framkalla eigin mynd í huga sér eftir því hvert augað leitar. Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir (f. 1976) sýnir ný verk sem unnin eru í samtali við verk Ragnheiðar ásamt stærri innsetningu sem unnin er sérstaklega inn í rými Arion banka í Borgartúni 19. Samspil verks og rýmis við skynjun áhorfandans er hér sem fyrr í forgrunni í verkum Ingunnar Fjólu. Með því að víkka út tvívíðan flöt málverksins í önnur efni er stöðugleika miðilsins raskað og opnað á kvika skynjun áhorfandans í rýminu. Með hreyfingu býr hann sífellt til ný sjónarhorn, nýjar myndir og þar með nýja upplifun. Verk Ingunnar Fjólu á sýningunni endurspegla rannsókn á þanþoli miðilsins, þau eiga í innbyrðis samtali þar sem formfesta og óreiðukennd malerísk ummerki takast á.


Allt frá tilkomu ljósmyndatækninnar á 19. öld hefur ljósmyndin valdið deilum meðal listamanna og annarra um hvort líta megi á hana sem listrænan miðil eða eingöngu sem tæki til skrásetningar. Í ljósmyndaseríu Hugsteypunnar, Sviðsett málverk, er viðfangsefnið hið tvíbenta samband málverksins og ljósmyndarinnar. Hugsteypan er samstarfsverkefni Ingunnar Fjólu og Þórdísar Jóhannesdóttur (f. 1979). Í verkum sínum hefur Þórdís aðallega unnið með ljósmyndamiðilinn en Ingunn Fjóla á mörkum innsetninga og málverks. Í Sviðsett málverk vinna þær saman á rannsakandi hátt með eðli og skörun hvors miðils um sig. Sjónrænn leikur með liti, fjarvídd og fókuspunkt framkallar óræða mynd. Sjálft sköpunarferli málverksins er sett á svið og fest á filmu og með frystingu augnabliksins verður til yfirfærsla horfinnar frummyndar. Leikur höfunda með flöt málverksins framkallar töfra síbreytilegs myndmáls. Áhorfandanum er svo boðið til leiks þegar höfundar hafa valið ákveðin sjónarhorn. Eftir standa stök málverk - í formi ljósmynda. Hinn leikræni gjörningur sviðsettra málverka skilur þannig eftir sig vangaveltur um efnislega og líkamlega fjarveru málverksins. Í verkum þessara þriggja ólíku höfunda má greina sameiginlegan þráð þar sem kröftugt litasamspil, línur og formræn uppbygging eiga í dýnamísku sambandi og fanga athygli áhorfandans. Aldís Arnardóttir 2015



Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.