9.tbl

Page 9

VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagurinn 1. mars 2012

Til HAMINGJU með áfangann Yfir 1000 nemendur hafa verið útskrifaðir frá Keili á Ásbrú í Reykjanesbæ frá stofnun skólans í maí 2007. Sl. föstudag voru útskrifaðir 89 nemendur við hátíðlega athöfn í Andrews leikhúsinu. Eftir athöfnina hafa samtals 1022 nemendur útskrifast frá Keili og þar af rúmlega helmingur eða 604 nemendur af Háskólabrú. Útskrifaðir voru nemendur úr Háskólabrú, Flugakademíunni og Íþróttaakademíu Keilis. Af Háskólabrú og fjarnámi útskrifuðust 73 nemendur. Úr flugþjónustu útskrifuðust 5 nemendur. Úr ATPL útskrifuðust 3 nemendur. Úr flugrekstrarfræði voru 5 nemendur útskrifaðir. Tveir nemendur útskrifuðust sem ÍAKeinkaþjálfarar og einn sem ÍAK-íþróttaþjálfari.

9


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.