8.tbl

Page 15

15

VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagurinn 23. FEBRúar 2012

Undanfarið hefur verið smá umræða um náttúruleg sætuefni en reglulega bætast nýjar tegundir við og langar mig því að leiðbeina ykkur með hvaða sætuefni er sniðugt að nota. Því vissulega er okkur öllum hollt að gera okkur dagamun og fá okkur sætt við og við og manninum eðlislegt að njóta þess sæta en mikilvægt er þó að vanda valið og fullnægja sætuþörf okkar með náttúrulegum sætuefnum í stað sykurs og gervisætu. Náttúruleg sætuefni eru með lægri sykurstuðul en hvítur sykur og hafa því minni áhrif á blóðsykur og því hollari valkostur. Það er t.d. betra að gæða sér á dökku súkkulaði með háu kakóinnihaldi eins og

70-85% því það inniheldur mun minni sykur en mjólkursúkkulaði, einnig er sniðugt að prófa súkkulaði eða sætindi sem innihalda maltitol. Að því sögðu þá er hinn gullni meðalvegur bestur í þessu sem öðru og skynsamlegast að halda allri sætu í hófi. Þegar heilbrigð löngun í sætindi gerir vart við sig mæli ég með eftirfarandi sætuefnum í stað sykurs: Ferskir ávextir og ber Þurrkaðir ávextir Xylitol, maltitol Stevia Pálmasykur Agave sýróp Hlynsýróp Hunang Kanill, vanilla Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir.

Umsjón

Páll Orri Pálsson

pop@vf.is

n Magnús Dan Magnússon Hvað gerirðu eftir skóla? Fer á fótboltaæfingu og í tölvuna Uppáhalds áhugamál? Fótbolti Uppáhalds fag í skólanum? Íslenska Ef þú gætir hitt einhvern frægan í einn dag, hver væri það? Steven Gerrard Ef þú gætir fengið einn ofurkraft hver væri hann? Hlaupa mjög hratt Hvað er draumastarfið í framtíðinni? Atvinnumaður í fótbolta Hver er frægastur í símanum þínum? Bróðir minn Hver er frægust eða frægastur sem þú hefur hitt? Ronaldo Hvað myndirðu gera ef þú mættir vera ósýnilegur í einn dag? Stela pizzu, djók Í hvaða bekk ertu? 7. SS

n Oddný Svava Steinarsdóttir Hvað gerirðu eftir skóla? Fer heim og læri og fer á æfingar Uppáhalds áhugamál? Fimleikar Uppáhalds fag í skólanum? Saumur, af því að ég ætla að verða saumakona í framtíðinni Ef þú gætir hitt einhvern frægan í einn dag, hver væri það? Lady Gaga Ef þú gætir fengið einn ofurkraft hver væri hann? Að geta flogið Hvað er draumastarfið í framtíðinni? Fræg saumakona eða hárgreiðslukona Hver er frægastur í símanum þínum? Pabbi, Steinar Örn Sigurðsson Hver er frægust eða frægastur sem þú hefur hitt? David Boreanaz, sem leikur í Bones Hvað myndirðu gera ef þú mættir vera ósýnileg í einn dag? Ábyggilega hrekkja alla vini mína Í hvaða bekk ertu? 9. AHda

Daglega á vf.is

n Auglýsingadeild í síma 421 0001 n Fréttadeild í síma 421 0002 n Afgreiðsla í síma 421 0000

Fréttavakt allan sólarhringinn í síma 898 2222

FJÁRMÁL

Á MANNAMÁLI „Húsið okkar“ (K húsið) Hringbraut 108, 230 Keflavík Miðvikudaginn 29. febrúar 2012 kl.20-22 Ingólfur H. Ingólfsson kemur í heimsókn og verður með stutt námskeið um fjármál einstaklinga. Á námskeiðinu lærir þú: Að greiða hratt niður skuldir. Að hafa gaman af því að nota peningana. Að byggja upp sparnað og hvar öruggt er að spara. Allt þetta með þeim peningum sem þú átt nú þegar ! Stutt kynning á lífeyrismálum Íslendinga. Kynning á viðbótarlífeyrissparnaði Bayern.

Mjög áhugavert námskeið, sem er í senn stutt og hnitmiðað. Eftir námskeiðið mun öllum verða boðið að bóka einkatíma hjá ráðgjöfum Sparnaðar og er sú þjónusta án endurgjalds.

Miðaverð einungis kr. 500 - Greiðist við inngang


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.