Heimsferðir - Sumarbæklingur 2015

Page 1

Sumar

2015

Heimsferðir • Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 • heimsferdir.is Akureyri • Strandgötu 25 • Sími 461 1099

1


Bodrum & Marmaris – töfrum líkast í Tyrklandi

H

eimsferðir bjóða Íslendingum í sólarferðir til Bodrum og Marmaris í Tyrklandi, sem eru meðal eftirsóttustu áfangastaða Tyrklands. Tyrkland er stórbrotið land þar sem austrið mætir vestrinu og heimsálfurnar Evrópa og Asía mætast, enda er hjartsláttur austursins alltaf nálægur. Hér var eitt elsta menningarstórveldi heimsins og sagan drýpur af hverju strái. Tyrkir

taka vel á móti öllum ferðamönnum með sinni einstöku gestrisni sem þeir eru þekktir fyrir. Hér er verðlag hagstætt, fallegar smábátahafnir með iðandi mannlífi, brosandi fólk, fjörugt næturlíf, og heillandi markaðir.

Frá kr.

129.900 m/allt innifalið í 11 nætur Netverð á mann frá kr. 129.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi á Smartline Bitez Garden. Netverð á mann frá kr. 148.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi á Smartline Bitez Garden. 28. maí í 11 nætur.

2


Tyrkland

Bodrum Bodrum er ótrúlega fallegur hafnarbær en bærinn skartar fallegum hvítum húsum sem eru víða skrýdd blómum og þröngum heillandi götum sem bera fortíðinni vitni. Í bænum er endalaust úrval veitingastaða, bara, kaffihúsa, verslana og mikið nætur- og skemmtanalíf í boði en margir telja þessa fallegu tyrknesku borg koma þétt á hæla sjálfrar Istanbúl hvað varðar fjölbreytileika skemmtunar og næturlífs! Heimsferðir bjóða úrval gististaða á Bodrum í bæjunum Akyalrar, Bitez, Gumbet, Torba og Turgutreis.

Marmaris Marmaris er gamall fallegur bær sem hefur svolítið evrópskt yfirbragð en bærinn kúrir í vík, er umkringdur fjöllum og þykir með fallegri bæjum landsins. Hér er úrval veitingastaða í bænum, við ströndina og höfnina. Í Marmaris eiga allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi en Marmaris er svona ekta Íslendingastaður ef svo má að orði komast, hér er auðvelt að rata um, falleg og löng strandgata, iðandi „barstræti“ og skemmtilegar verslanir! Heimsferðir bjóða frábært úrval gististaða; góð íbúðahótel sem og glæsileg hótel í Marmaris.

Markaðir Markaðirnir í Tyrklandi heilla alla þá sem stoppa þar við. Þar upplifir þú ekta tyrkneskt andrúmsloft sem skapast af ýmsum ilmum, litum og röddum en þetta er staður þar sem þú getur fylgst með ómissandi hluta daglega lífsins í Tyrklandi. Svona opnir markaðir eru algengir og kallast „Pazar“ og finnast alls staðar um landið.

Tyrkneskt bað Njóttu þess að fara í tyrkneskt bað eða hamman eins og það er kallað. Tyrkneska baðið byrjar á slökun í heitu herbergi og baðendur geta síðan fært sig í enn heitara herbergi áður en þeir þvo sér uppúr köldu vatni. Eftir heilböðun og nudd þá færast baðendur í kælingarherbergið þar sem slakað er á.

Maturinn Tyrknesk matargerð er að miklu leyti afrakstur af sögulegum bakgrunni landsins. Eins og áður segir þá mætist hér austrið og vestrið og Tyrkjar hafa tekið það besta úr matarvenjum beggja vegna. Þeir sem koma til Tyrklands undrast sífellt mikið úrval grænmetis sem er í boði hér en ferskt grænmeti er í hávegum haft í tyrkneskum eldhúsum. Tyrkir hafa ekki farið varhluta af skyndibitamenningunni og Dönerkebab er afar vinsæll meðal landans.

3


Stórglæsilegur valkostur!

Xanadu Island – Bodrum Xanadu er stórkostlegt hótel með allri þeirri þjónustu sem hugsast getur, til þess að þú megir njóta þín sem best í sumarfríinu. Xanadu Island er staðsett eitt og sér á nesi, sem gefur því einstakt yfirbragð enda umlukið tærum sjónum. Á Xanadu dvelja allir í afar vel búnum svítum með svölum eða verönd. Xanadu býður uppá “high class all inclusive” en það er sérlega rausnaleg allt innifalið þjónusta. Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður og huggulegir veitingastaðir en þar á meðal eru 3 „à la carte“ staðir og 7 barir. Á hótelinu er 2 útisundlaugar og 1 innilaug, garður með sólbekkjum og sólhlífum, heilsulind, líkamsræktaraðstaða, tennisvöllur, barnaleiksvæði, skemmtidagskrá og næturklúbbur (disco) fyrir 16 ára og eldri. Einstaklega glæsilegt hótel og tilvalið fyrir þá sem kjósa heldur rólegheit í fríinu sínu!

Frábært verð Frá kr. 277.900 m/allt innifalið

Netverð á mann frá kr. 277.900 m.v. 2 fullorðna í Courtyard svítu. 8. júní í 10 nætur.

La Blanche Resort & Spa – Bodrum

Vinsælasti valkosturinn!

La Blanche Resort & Spa er glæsilegt lúxushótel sem er frábærlega staðsett við einkaströnd. Herbergin eru vel búin með svölum eða verönd. Sundlaugargarður með stórum sundlaugum, góðri sólbaðsaðstöðu og frábæru barnasundlaugarsvæði með vatnsrennibrautum. Á hótelinu er úrval veitingastaða, þar af 3 „à la carte“ staðir og 5 barir. Skemmtidagskrá í boði á daginn og á kvöldin. Á hótelinu er líkamsræktaraðstaða, tennisvellir, borðtennisborð, leiktækjasalur og margt fleira til afþreyingar. Glæsileg heilsulind er á hótelinu fyrir þá sem vilja nota tækifærið og láta dekra við sig í fríinu.

Frábært verð Frá kr. 177.900 m/allt innifalið

Netverð á mann frá kr. 177.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í fjölskylduherbergi. Netverð á mann frá kr. 209.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 8. júní í 10 nætur.

Nýr valkostur!

Azka Otel – Bodrum Glæsilegt hótel, staðsett í einungis um 1,5 km fjarlægð frá Bodrum bænum. Á hótelinu er fjölbreytt þjónusta í boði, til þess fallin að þér líði sem allra best í fríinu þínu. Í garðinum er góð sundlaug og barnalaug, sólbekkir og sólhlífar. Hér er sundlaugabar, strandbar, veitingastaðir og fleira skemmtilegt er í boði. Þá er hér einnig góð líkamsræktaraðstaða og heilsulind með innisundlaug. Herbergin eru vel búin og innréttuð í þessum dæmigerða klassíska hótelstíl en eru ekki alveg nýlega innréttuð, en þau eru nokkuð rúmgóð og ýmist með útsýni til sjávar eða út í garðinn.

Frábært verð Frá kr. 135.900

m/hálft fæði innifalið Netverð á mann frá kr. 135.900 m.v. 2 fullorðna og 1 barn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 156.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 8. júní í 10 nætur.

4


Fallegt og gott hótel í Bitez sem býður einstaklega góðan aðbúnað og þjónustu. Hótelið var endunýjað á smekklegan hátt fyrir um tveimur árum. Stutt er að ganga frá hótelinu bæði á ströndina og í miðbæinn. Hér er fallegur sundlaugargarður með sólbekkjum og sólhlífum, sundlaug, barnalaug og sundlaugarbar. Á hótelinu er veitingastaður, vínbar og bar. Herbergi á hótelinu eru smekklega innréttuð og með loftkælingu (gegn aukagjaldi), síma, öryggishólfi, sjónvarpi, baðherbergi með hárþurrku og svölum eða verönd. Þráðlaust internetaðgengi, sauna, tyrkneskt bað o.fl. fyrir gesti.

Frábært verð

Bodrum – Tyrkland

Smartline Bitez Garden – Bodrum

Góður valkostur!

Frá kr. 129.900 m/allt innifalið

Netverð á mann frá kr. 129.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 148.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 28. maí í 11 nætur.

Club Shark – Bodrum

Vinsæll valkostur!

Club Shark Hotel er í hjarta Gümbet bæjarins í göngufæri við bari, veitingastaði verslanir og ströndina. Á hótelinu eru 105 herbergi og eru þau smekklega innréttuð með gervihnattasjónvarpi, síma, loftkælingu, mini-bar, internettengingu, öryggishólfi og baðherbergi með sturtu og hárþurrku. Frá hótelinu er ágætis útsýni til sjávar og upp til fjalla og það eru ekki nema um 350 m á ströndina. Club Shark Hotel býður góða útisundlaug og barnalaug. Í garðinum eru sólbekkir, dýnur og sólhlífar og hér er bar og veitingastaður. Á þessu hóteli er allt innifalið, þ.e. matur og drykkir meðan á dvöl stendur. Einhverja þjónustu þarf að greiða aukalega fyrir og við biðjum ykkur að fá upplýsingar um það í móttöku hótelsins við komu. Hótelið er mjög líflegt og við mælum ekki með því fyrir fólk sem er að leita eftir rólegheitum, þar sem tónlist og fleira er í gangi í garðinum allan daginn. Gott hótel fyrir þá sem vilja líf og fjör í kringum sig og hafa stutt í skemmtanalífið.

Frábært verð Frá kr. 134.900 m/ allt innifalið

Netverð á mann frá kr. 134.900 m.v. 2 fullorðna og 1 barn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 152.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 28. maí í 11 nætur.

Risa Hotel – Bodrum

Góður valkostur!

Risa Hotel er nýlegt hótel í Bitez, staðsett í nálægð við fallega og rólega ströndina. Hótelið er smekklega innréttað á 3 hæðum, sem gerir andrúmsloftið hlýlegt og skemmtilegt. Garðurinn er skemmtilega hannaður, jafnframt notalegur en þar er sundlaug, buslulaug fyrir börn, sólbekkir og dýnur og tyrkneskir púðar til að liggjá í og slaka á. Herbergin eru frekar rúmgóð og vel búin. Hér er líkamsræktaraðstaða og hægt að komast í tyrkneskt bað.

Frábært verð Frá kr. 134.900 m/allt innifalið

Netverð á mann frá kr. 134.900 m.v. 2 fullorðna og 1 barn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 154.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 8. júní í 10 nætur.

Sjá fleiri gististaði á heimsferdir.is

5


Elegance Hotel – Marmaris

Glæsilegur valkostur!

Afar gott 5* hótel sem býður einstaklega fjölbreytta þjónustu. Öll herbergi eru fallega og hlýlega innréttuð. Garðurinn er fallegur, þar er stór og góð sundlaug og svæðið til þess fallið að slaka á við sundlaugabakkann. Hægt er að ganga út úr garðinum og yfir á litla bryggju hótelsins, þar er veitingastaður, dýnur og notalegir trykneskir púðar. Þá eru hér veitingastaðir, barir og snarlbar. Skemmtidagskrá í boði.

Frábært verð Frá kr. 201.900 m/allt innifalið

Netverð á mann frá kr. 201.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 8. júní í 10 nætur.

Golden Rock Beach – Marmaris

Glæsilegur valkostur!

Einkar glæsilegur valkostur sem opnaði árið 2012. Á hótelinu eru barir, sundlaugabar, snarlbar og veitingastaðir bæði hlaðborð og à la carte. Þá er starfræktur barnaklúbbur fyrir yngstu börnin. Herbergin eru fallega innréttuð á hlýlegan máta. Garðurinn er afar flottur, með stórri sundlaug, vatnsrennibraut og sér barnalaug. Þá eru hér sólbekkir og sólhlífar og örstutt á ströndina fyrir framan hótelið.

Frábært verð Frá kr. 178.900 m/allt innifalið

Netverð á mann frá kr. 178.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 8. júní í 10 nætur.

Green Nature Diamond – Marmaris

Fjörugur valkostur!

Afar stórt og fjörugt hótel sem býður ótrúlega fjölbreytta þjónustu. Garðurinn er stór og opinn og gengið er beint út á strandgötuna en í garðinum er mjög stór sundlaug ásamt buslulaug. Hér eru sólbekkir og sólhlífar, bar, snarlbar og barnaklúbbur. Herbergin eru þægileg og öll með svölum og loftkælingu. Hér eru veitingastaðir, kaffitería og barir og meðal annars er einn veitingastaður við ströndina sem tilheyrir hótelinu.

Frábært verð

Frá kr. 169.900 m/allt innifalið

Netverð á mann frá kr. 169.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 218.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 8. júní í 10 nætur.

6


Fjölskylduvænt!

Gott og ágætlega staðsett 4* hótel en sameiginleg aðstaða er hér til fyrirmyndar og hér ríkir líflegt og fjörugt andrúmsloft. Á hótelinu eru m.a. 2 sundlaugar, 2 vatnsrennibrautir, 2 barnalaugar og leiksvæði fyrir börnin. Mikið er lagt upp úr góðum barnaklúbb og skemmtidagskrá fyrir krakkana. Á hótelinu eru veitingastaðir og barir. Herbergin eru ágætlega búin, öll með loftkælingu. Fjörugur valkostur fyrir barnafólk.

Frábært verð

Marmaris – Tyrkland

Grand Cettia Hotel – Marmaris

Frá kr. 129.900 m/allt innifalið

Netverð á mann frá kr. 129.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 164.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 8. júní í 10 nætur.

Fjölbreytt þjónusta!

Pasa Beach Hotel – Marmaris Hagkvæmur 4* valkostur sem býður fjölbreytta þjónustu og er í einungis um 2 km fjarlægð frá miðbæ Marmaris. Herbergin eru hlýlega innréttuð í klassískum hótelstíl. Hér er falleg og björt móttaka, barnaklúbbur og góður garður með sundlaug, vatnsrennibraut og barnalaug. Hér eru veitingastaðir, kaffitería, bar, sundlaugabar, hárgreiðslustofa og verslun. Hagkvæmur kostur með fjölbreyttri þjónustu.

Frábært verð

Frá kr. 144.900 m/allt innifalið

Netverð á mann frá kr. 144.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 163.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 8. júní í 10 nætur.

Hotel Romance – Marmaris

Notalegur valkostur!

Þægilegt, lítið hótel, vel staðsett alveg við ströndina. Móttakan er notaleg og lobbýið er fallega innréttað m/ léttum innréttingum. Herbergin eru hlýlega innréttuð og öll búin loftkælingu. Garðurinn er þægilegur með góðri sundlaug og sundlaugabar. Þá er hér veitingastaður og snarlbarinn er staðsettur við ströndina. Gott hótel, sem býður góða og persónulega þjónustu til gesta sinna, tilvalið fyrir þá sem leita að rólegheitum í fríinu sínu.

Frábært verð Frá kr. 130.900

m/hálft fæði innifalið Netverð á mann frá kr. 130.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 146.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 28. maí í 11 nætur.

Sjá fleiri gististaði á heimsferdir.is

7


Krít

– seiðandi stemning!

H

eimsferðum er sönn ánægja að bjóða viðskiptavinum sínum aftur grísku eyjuna Krít. Þessi eyja grípur alla sem þangað koma með sinni einstöku menningu og sögu, landslagi og ekki síst viðmóti eyjarskeggja sem hafa sinnt ferðamönnum af sinni alkunnu snilld svo áratugum skiptir. Þá töfra eyjarskeggjar fram það besta úr hráefni sínu og sameina gríska og

Miðjarðarhafs matarmenningu af stakri snilld. Verðlag er nokkuð gott og hægt að gera vel við sig í mat og drykk. Hér skiptast á stórkostlegt fjalllendi með snæviþöktum fjallstoppum og dásamleg strandlengja og tær sjór sem ávallt heillar sólþyrstan ferðalanginn.

Frá kr.

119.900 í 11 nætur Netverð á mann frá kr. 119.900 á Helios m.v. 2 fullorðnir og 2 börn í íbúð. Netverð á mann frá kr. 135.900 á Helios m.v. 2 fullorðnir í stúdíó. 21. maí í 11 nætur.

8


Samaría glúfrið

Chania er önnur stærsta borg eyjunnar en þetta er lífleg

Gljúfrið er eitt helsta náttúruundur

borg með úrval verslana, veitingastaða, bara og fjörugt

Krítar og vinsælt meðal ferða- og

næturlíf. Þá er þar er mjög fallegur „Gamli bær“ sem

göngufólks en það er lengsta gljúf-

setur sinn sjarma á borgina. Út frá borginni liggur löng og

ur í Evrópu, tæpir 17 km að lengd.

falleg sandströnd og á henni eru margir litlir strandbæir

Gangan um glúfrið hefst í bænum

þar sem hótel Heimsferða eru staðsett. Á Krít er hæfi-

Xyloskalo á Omalossléttuni og er

legur fjöldi ferðamanna sem dreifist þægilega á hótel

gengið alveg niður að strandbæn-

og á strendur eyjunnar og það er ekki fyrr en komið er

um Agia Roumeli. Þar er tilvalið að

inní Chania að maður áttar sig á öllum mannfjöldanum

slökkva þorstann með nýkreistum

þegar ferðamenn safnast saman þar.

appelsínusafa, slappa af á ströndinni,

Krít

Chania

baða sig í sjónum eða setjast inná veitingastað áður en siglt er tilbaka. Á siglingunni má svo njóta fegurðar Miðjarðarhafsins.

Krítverska villigeitin Það er magnað að upplifa það að sjá krítversku villigeitina „kri kri“ þegar hún brunar fim og fótfrá upp og niður fjalllendið á ógnarhraða. Villigeitin heldur sig við Samaría gljúfrið en það er hennar afdrep. Í eina tíð var hún vinsæl veiðibráð en er nú alfriðuð og sjaldséð nema í Samaría. Í gljúfrinu má finna margar sjaldgæfar jurtategundir og einnig eru þar dýrategundir sem lítið sjást annars staðar.

Grísk matargerð

Elafonisi

Eyjaskeggjar töfra fram það besta úr hráefni sínu og

Það er tilvalið að leigja bíl og aka að Elafonisi ströndinni en þar má sjá

sameina gríska og miðjarðarhafs matarmenningu

bleikan sandinn og svo tæran sjóinn að hrein unun er að upplifa. Það má

af stakri snilld. Ferskmeti, kjöt, fiskur og grænmeti

leigja sólbekk á Elafonisi en einnig er upplagt að ganga út í eyjuna sem er

bragðast einstaklega vel með góðu víni og ostum

þarna og leggjast á handklæði þar og njóta kyrrðarinnar. Athugaðu að þú

þeirra eyjaskeggja. Verðlag er nokkuð gott og hægt

gætir þurft að vaða upp að mitti.

að gera vel við sig í mat og drykk, sérstaklega þegar komið er út fyrir aðalferðamannastaðina. Smakkaðu grillaðan fetaost og kolkrabba. Allir ættu einnig að fá sér amk einn Giros!

Santorini Ómissandi ævintýraferð til einnar fallegustu eyju Grikklands. Santorini er sannkölluð paradís og býr hún yfir einstakri fegurð sem skilur engann eftir ósnortinn. Saga eldfjallaeyjunnar spannar mörg þúsund ár og er hún sögð geyma leyndarmálið um hið horfna Atlantis. Það er magnað að sjá einkennandi hvítu húsin sem hafa verið byggð inn í klettana, allar fallegu hvítu kirkjurnar með bláu þökunum og stórkostlegu útsýni yfir gíginn. Það eru ófáir listamennirnir sem hafa heillast af þessum bæ og sest þar að. Einnig er hann mjög vinsæll á meðal verðandi brúðhjóna til þess að láta pússa sig saman.

9


Glæsilegur valkostur!

Cretan Dream Royal Cretan Dream Royal er fallegt hótel og býður góða og fjölbreytta þjónustu, staðsett í Kato Stalos og í um 7 km fjarlægð frá miðbæ Chania. Herbergin eru vel búin og fallega innréttuð með loftkælingu, síma, internetaðgengi, kæliskáp, sjónvarpi og svölum með sjávarsýn en baðherbergi eru ýmist með sturtu eða baði. Hér er veitingastaður og krá (tavern) ásamt gullfallegum sundlaugagarði með sundlaug sem rennur saman við sjóndeildarhringinn svo maður sér vart hvar laugin endar og hafið á upptök sín. Þá er bar við sundlaugina, sófar og setkrókar og sólbekkir og sólhlífar. Þá er hér leikherbergi með “pool” borði og tölvuspilakössum.

Frábært verð Frá kr. 171.900

m/hálft fæði innifalið Netverð á mann frá kr. 171.900 m.v. 2 fullorðnir og 2 börn í fjölskylduherbergi. Netverð á mann frá kr. 184.900 m.v. 2 fullorðnir í herbergi. 1. júní í 10 nætur.

Sirios Village

Fjölskylduvænt!

Mjög gott og fjölskylduvænt 4* hótel sem býður einstaklega fjölbreytta þjónustu. Hótelið er byggt upp eins og lítið þorp í Miðjarðarhafsstíl og dreifist um fallegan og gróðursælan garðinn. Hér er frábær aðstaða með 2 sundlaugum og 2 barnalaugum með skemmtilegum vatnsrennibrautum. Á svæðinu er tennis- og blakvöllur, barnaleiksvæði, líkamsræktaraðstaða og önnur afþreying. Úrvals valkostur - hér nýtur maður einfaldlega lífsins í botn!

Frábært verð Frá kr. 159.900 m/allt innifalið

Netverð á mann frá kr. 159.900 m.v. 2 fullorðnir og 2 börn í fjölskylduherbergi. Netverð á mann frá kr. 193.900 m.v. 2 fullorðnir í herbergi. 13. júlí í 10 nætur.

Góður valkostur!

Galini Sea View Hótelið stendur á fallegum stað upp á hæð og útsýnið yfir ströndina og hafið, í þorpi sem heitir Aghia Marina og í 8 km fjarlægð frá miðbæ Chania. Vert er þó að nefna að hótelið stendur hátt og nokkuð er um tröppur og brekkur, hentar því ekki þeim sem eiga erfitt með gang. Herbergin eru öll vel búin með hlýlegum húsgögnum, öryggishólfi, baðherbergi og herbergjum fylgir strandhandklæði, öll með svölum eða verönd. Hér er hlaðborðsveitingastaður og einnig à la carte staðir. Á hótelinu er lítill en fallegur garður með stórri sundlaug og barnalaug. Við laugina eru sólbekkir og sólhlífar og baðhandklæði fylgja herbergjunum. Hér er líkamsræktaraðstaða (lítil) og heilsulind með gufu- og tyrknesku baði (Hamam). Í einungis 200 m fjarlægð frá hótelinu er einkaströnd „Galini Beach“ þar sem gestir hótelsins fá frí afnot af bekkjum og sólhlífum.

Frábært verð Frá kr. 155.900 m/allt innifalið

Netverð á mann frá kr. 155.900 m.v. 2 fullorðnir og 2 börn í fjölskylduherbergi. Netverð á mann frá kr. 182.900 m.v. 2 fullorðnir í herbergi. 1. júní í 10 nætur.

10


Fjölskylduvænt!

Krít

Porto Platanias Village Gott hótel sem stendur nálægt ströndinni, eða í einungis 200 metra fjarlægð, rétt fyrir utan miðbæ Platanias bæjarins. Porto Platanias Village býður nýuppgerðar og vel búnar íbúðir með svölum eða verönd. Hótelið er góður kostur fyrir fjölskyldur en garðurinn og svæðið við sundlaugina er nýuppgert og tilvalið að njóta sólardaganna þar. Einnig er hér nýuppgerður veitingastaður fyrir gesti hótelsins.

Frábært verð Frá kr. 155.900 m/ allt innifalið

Netverð á mann frá kr. 155.900 m.v. 2 fullorðnir og 2 börn í íbúð. Netverð á mann frá kr. 195.900 m.v. 2 fullorðnir í stúdíó. 1. júní í 10 nætur.

Toxo Hotel & Apts

Frábær staðsetning!

Þetta er nýlegt, stílhreint og fallegt íbúðahótel með einungis 36 íbúðum. Heimsferðir bjóða hér farþegum sínum ýmist stúdíóíbúðir eða íbúðir með einu eða tveimur svefnherbergjum. Hótelið er staðsett í Platanias og þykir rólegt og fjölskylduvænt en býður fjölbreytta þjónustu fyrir gesti sína. Hér er snarlbar og lítill veitingastaður, tvær sundlaugar og barnalaug, barnaleiksvæði, líkamsræktaraðstaða með lítilli heilsulind.

Frábært verð

Frá kr. 123.900

Netverð á mann frá kr. 123.900 m.v. 2 fullorðnir og 2 börn í íbúð. Netverð á mann frá kr. 142.900 m.v. 2 fullorðnir í stúdíó. 24. ágúst í 10 nætur.

Íbúðahótel með allt innifalið!

Maleme Mare Þetta er gott og fjölskylduvænt íbúðahótel sem telur alls 62 rúmgóðar og vel búnar íbúðir, ýmist með einu svefnherbergi eða stúdíóíbúðir. Hér er góð aðstaða og í garðinum eru tvær sundlaugar, barnasundlaug og leikaðstaða fyrir börn. Á þessu hóteli er allt „innifalið“ sem þýðir að morgun-, hádegis- og kvöldverður ásamt léttu snarli og drykkjum (innlendum) er innifalið meðan á dvöl stendur.

Frábært verð Frá kr. 144.900 m/ allt innifalið

Netverð á mann frá kr. 144.900 m.v. 2 fullorðnir og 2 börn í íbúð. Netverð á mann frá kr. 169.900 m.v. 2 fullorðnir í stúdíó. 22. júní í 10 nætur.

Sjá fleiri gististaði á heimsferdir.is

11


Tenerife

– ævintýri fyrir alla!

H

eimsferðir bjóða til glæsilegra ævintýra á Kanaríeyjunni vinsælu Tenerife vikulega í allt sumar. Tenerife býður frábærar aðstæður fyrir ferðamanninn; fallegar strendur, glæsilega gististaði, fjölbreytta afþreyingu og stórbrotna náttúru. Í boði er fjölbreytt úrval vinsælla gististaða á vinsælustu svæðunum á einstökum kjörum. Hingað sækja einstaklingar, pör og

barnafjölskyldur til að njóta loftslagsins, frábærs strandlífs og fjölbreyttrar afþreyingar að ógleymdum góða matnum sem í boði er.

Frá kr.

82.900 í 7 nætur Netverð á mann frá kr. 82.900 á Parque de las Americas mv. 2 fullorðna og 2 börn. Netverð á mann frá kr. 101.900 á Parque de las Americas m.v. 2 fullorðna. 22. ágúst í 7 nætur í smáhýsi m/1 svefnherbergi

12


Tenerife

Mount El Teide Náttúran og landslagið á Tenerife er mjög fjölbreytt en El Teide, 3.718 m, hefur haft gífurlegt aðdráttarafl fyrir eyjuna í gegnum tíðina enda landslagið þar stórbrotið. El Teide er í einum fjölsóttasta þjóðgarði Spánar en garðurinn er á heimsminjaskrá UNESCO. Unnt er að taka kláf alla leið ásamt því að fjölmargar gönguleiðir eru á toppinn.

Masca dalurinn Skammt frá Costa Adeje er Masca dalurinn sem stórbrotið er að dvelja í um stund en í þorpinu á Masca er gullfallegt um að litast. Heimsferðir bjóða uppá hringferð um Tenerife eyjuna en í þeirri kynnisferð er einmitt komið við í Masca dalnum og dvalið þar um stund. Einnig er hægt að ganga frá Masca dalnum niður að strönd á eigin vegum en það er 3-4 klst. ganga en þó breytilegt eftir gönguhraða. Stórbrotin upplifun sem gleymist seint!

Matargerð Matur á Spáni er mjög góður og mikið úrval frábærra veitingastaða er að finna á Tenerife. Allir sem koma til Spánar verða að smakka þjóðarréttinn Paella og fá sér Tapas. Þá er ómissandi að prófa Papas Arrugadas eða Patatas Bravas, en það eru kanarískar kartöflur með sérstaklega góðri sósu!

Siam Park Siam Park er án efa einn allra flottasti vatnsrennibrautagarður veraldar. Þar er að finna vatnsrennibrautir við allra hæfi, fyrirmyndar sólbaðsaðstöðu og frábært vatnsleiksvæði fyrir yngstu kynslóðirnar. Risastór öldusundlaug er í garðinum og löng flúðasigling. Vatnrennibrautirnar henta bæði þeim sem vilja taka lífinu með ró og þeim sem vilja láta adrenalínið flæða aðeins um æðarnar!

Loro Parque Fyrir ofan miðbæinn í Puerto de la Cruz er dýragarðurinn Loro Parque staðsettur. Í garðinum er mikill fjöldi fugla og dýra, m.a. stærsta páfagaukasafn í heimi. Einnig má finna tígrisdýr, simpansa, górillur, krókódíla og margt margt fleira. Í garðinum eru tvær forvitnilegar byggingar. Önnur hýsir heim mörgæsanna og þar snjóar um 15 tonnum af snjó daglega. Hin hýsir sædýrasafnið þar sem hákarlar og aðrir fiskar synda fyrir ofan okkur í glergöngum. Í garðinum eru fjölmargar sýningar á dag þar sem sæljón, höfrungar og páfagaukar sýna listir sínar. Einnig er ævintýralegt barnaland þar ásamt páfagaukasafni og fjölmörgum veitingastöðum. Það er sannkölluð skemmtun að verja degi í Loro Parque, öll fjölskyldan finnur sér eitthvað við hæfi. Láttu ekki garðinn fara framhjá þér í fríinu!

13


Bahia Principe

Stórglæsilegur valkostur!

Sannkallað lúxushótel sem er byggt í glæsilegum stíl í anda Mexíkósks smábæjar. Hótelið skiptist í tvo hluta; Costa Adeje þar sem flestir búa í hótelherbergjum og Tenerife sem er með sína sérstöku veitingastaði og þar búa flestir í junior-svítum. Hótelið er staðsett fyrir utan Playa de las Americas og tekur um 15-20 mín að keyra þangað frá hótelinu, en hér er allt til staðar sem maður óskar sér í fríinu; stór og glæsileg sundlaugasvæði, fallegir garðar og verslanir. Í göngufjarlægð er síðan hinn fallegi smábær Playa Paraiso. Á hótelinu er ótrúlega fjölbreytt úrval þjónustu og afþreyingar í boði.

Frábært verð Frá kr. 149.900 m/allt innifalið

Netverð á mann frá kr. 149.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í junior-svítu. Netverð á mann frá kr. 165.900 m.v. 2 fullorðnir í herbergi. 27. júní í 7 nætur.

H10 Conquistador

Góður valkostur!

Glæsilegt og afar vel staðsett hótel á amerísku ströndinni, alveg við ströndina. Frábær aðbúnaður og fjölbreytt þjónusta í boði. Garðurinn er einstaklega fallegur með sundlaug og góðri sólbaðsaðstöðu. Í miðri sundlauginni er bar þar sem gott er að sitja og virða fyrir sér mannlífið. Á hótelinu eru nokkrir barir og veitingastaðir, innilaug og glæsileg heilsulind sem býður fjölbreytta þjónustu. Herbergin eru notaleg, ekki mjög stór, og vel búin með síma, sjónvarpi, öryggishólfi og svölum eða verönd. Ath. hægt er að bóka herbergi með sjávarsýn gegn aukagjaldi.

Frábært verð Frá kr. 149.900

m/hálft fæði innifalið Netverð á mann frá kr. 149.900 m.v. 2 fullorðnir í herbergi. 13. júní í 7 nætur.

Frábær valkostur!

Hotel Jacaranda Hotel Jacaranda er á mjög góðum stað á Costa Adeje, aðeins um 500 metra frá Fanabé ströndinni. Hér eru tveir glæsilegir sundlaugargarðar með góðri sólbaðsaðstöðu og fjölda sundlauga. Fallegur foss tvinnar saman efra og neðra sundlaugarvæðið. Á fossbrúninni er fallegur sundlaugarbar. Skemmtidagskrá og dans á hverju kvöldi. Nóg er einnig við að vera fyrir börnin; barnaklúbbur og diskótek, úti- og innileiksvæði auk þriggja barnasundlauga. Herbergi eru með gervihnattasjónvarpi, síma, minibar (leiga), baðherbergi og svölum eða verönd og þau rúma allt að þrjá fullorðna eða tvo fullorðna og tvö börn.

Frábært verð Frá kr. 109.900

m/hálft fæði innifalið Netverð á mann frá kr. 109.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 131.900 m.v. 2 fullorðnir í herbergi. 27. júní í 7 nætur.

14


Góður valkostur!

Gott 4* hótel sem er staðsett í hjarta amerísku-strandarinnar. Umhverfis hótelið er fallegur garður og einungis er um 1 km niður á ströndina. Herbergin eru öll rúmgóð og vel búin með svölum eða verönd. Garðurinn er fallegur með sundlaug og sólbekkjum. Hér er hægt að spila tennis, borðtennis og fara í mini-golf. Hér er bar og veitingastaður og þá er skemmtidagskrá fyrir börnin alla daga og mini-disco á kvöldin. Gott og vel staðsett hótel sem óhætt er að mæla með.

Tenerife

Bitacora

Frábært verð Frá kr. 119.900

m/hálft fæði innifalið Netverð á mann frá kr. 119.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í fjórbýli. Netverð á mann frá kr. 139.900 m.v. 2 fullorðnir í herbergi. 29. ágúst í 7 nætur.

Vinsælasti valkosturinn!

Parque Santiago – íbúðir Parque Santiago er ákaflega skemmtilegt og líflegt íbúðahótel með stórum og afar barnvænum garði með mikilli afþreyingu og þjónustu. Farþegar Heimsferða dvelja ýmist í byggingu III eða IV en Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega á hótelinu. Hótelið er staðsett á besta stað á Playa Las Americas alveg við ströndina, verslunarmiðstöðvar, veitingastaði og bari. Hér eru studíóíbúðir, íbúðir með einu svefnherbergi og íbúðir með tveimur svefnherbergjum í boði. Garðurinn er flaggskip hótelsins með endalausum möguleikum til afþreyingar fyrir fjölskylduna.

Frábært verð Frá kr. 87.900

Netverð á mann frá kr. 87.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð m/1 svefnherbergi. Netverð á mann frá kr. 104.900 m.v. 2 fullorðnir í stúdíó íbúð. 22. ágúst í 7 nætur.

Góð íbúðahótel meðal heimamanna!

Tenerife Sur & Cristian Sur Góð íbúðahótel sem eru vel staðsett í hinum ljúfa bæ, Los Cristianos. Á Tenerife Sur bjóðast stúdíó íbúðir og íbúðir með einu svefnherbergi en á Christian Sur eru stærri íbúðir með tveimur svefnherbergjum. Hér er öll aðstaða úti fyrir mjög góð fyrir fjölskyldufólk. Hótelið er þó ekki besti kosturinn fyrir þá sem eiga erfitt með gang. Þá er fiskimannaþorpið Los Cristianos aðdráttarafl í sjálfu sér og ljúft andrúmsloft ríkir yfir öllu svæðinu. Einfaldur kostur, en með góðri aðstöðu í sundlaugagarðinum.

Frábært verð Frá kr. 92.900

Netverð á mann frá kr. 92.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð á Tenerife Sur. Netverð á mann frá kr. 107.900 m.v. 2 fullorðnir í íbúð á Tenerife Sur. 20. júní í 7 nætur.

Sjá fleiri gististaði á heimsferdir.is

15


Benalmádena á Costa del Sol

C

osta del Sol er tvímælalaust einn vinsælasti sólaráfangastaður Íslendinga, enda býður staðurinn upp á glæsilegt úrval gististaða, veitingastaða og skemmtunar. Strandbærinn Benalmádena á Costa del Sol liggur við hlið bæjarins Torremolinos. Á Benalmádena er að finna fallegar strendur, spennandi mannlíf, úrval veitinga- og skemmtistaða, tívolí og síðast en ekki síst glæsilegu snekkju-

bátahöfnina Puerto Marina. Þangað ættu allir að fara og upplifa einstaka stemningu, með því að fara út að borða á frábærum veitingastöðum, kíkja á fjörugt næturlífið eða skoða heillandi mannlífið, glæsilegar snekkjur og margt annað sem snekkjubátahöfnin býður upp á.

Frá kr.

107.900 í 10 nætur Netverð á mann frá kr. 107.900 á Vistamar m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð m/1 svefnherbergi. Netverð á mann frá kr. 116.900 á Vistamar m.v. 2 fullorðna í stúdíó. 6. júlí í 10 nætur.

Holiday World Polynesia

Ævintýralegur valkostur!

Heimsferðir kynna nú með stolti Holiday World Polynesia hótelið sem er eitt af nokkrum hótelum innan Holiday World samsteypunnar á Costa del Sol. Holiday World er sannkallaður ævintýraáfangastaður fyrir fjölskylduna einfaldlega vegna þess að hvergi á einu svæði er meiri afþreying í boði á Costa del Sol strandlengjunni. Hér eru glæsilegir veitingastaðir sem bjóða alls konar þemakvöld, úrval af drykkjum og sérstök áhersla lögð á úrvalsfæði fyrir börnin. Fyrir utan veitingastaðina eru hér barir, sundlaugabarir, snarlbarir og alls konar önnur afþreying. Fyrir þá sem kjósa líf og fjör, fjölbreytta og mikla þjónustu, þá er þetta draumastaðurinn!

Frábært verð

Frá kr. 204.900 m/allt innifalið

Netverð á mann frá kr. 204.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í Junior svítu. Netverð á mann frá kr. 250.900 m.v. 2 fullorðna í Junior svítu. 15. júní í 10 nætur.

16


Nýr og flottur garður!

Hotel Los Patos er notalegt 4* hótel sem býður fjölbreytta þjónustu og góða staðsetningu í Benalmádena. Örstutt er á ströndina og hin vinsæla snekkjubátahöfn er í göngufæri. Á hótelinu eru vel búin herbergi, öll með loftkælingu og svölum eða verönd. Herbergin eru látlaus og ekki alveg nýlega innréttuð en rúmgóð. Á hótelinu er sundlaug, barir, góð sólbaðsaðstaða, veitingastaður og lítil verslun auk fjölbreyttrar afþreyingar fyrir fyrir gesti.

Frábært verð Frá kr. 130.900

m/hálft fæði innifalið Netverð á mann frá kr. 130.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 152.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 15. júní í 10 nætur.

Benalmádena – Costa del Sol

Los Patos Park

Mac Puerto Marina

Frábær staðsetning!

Mac Puerto er einstaklega góður valkostur, alveg við snekkjubátahöfnina í Benalmadena. Torremolinos bærinn er svo hinum megin við hótelið og því geta gestir þessa hótels notið þess besta frá báðum bæjunum. Á hótelinu ríkir þægileg og róleg stemning en örstutt er í iðandi mannlíf snekkjubátahafnarinnar. Herbergin eru hlýleg og björt en ekki alveg nýlega innréttuð. Garðurinn er fallegur, með sólbekkjum, sundlaug og lítilli barnalaug. Hér er einnig veitingasalur og bar og oft á tíðum er lifandi tónlist á barnum en ekki eiginleg skemmtidagskrá. Þetta er án efa eitt af þeim hótelum sem hefur hvað skemmtilegustu staðsetninguna og vel fer um gesti hér á þessu einkar smekklega hóteli.

Frábært verð Frá kr. 160.900

m/hálft fæði innifalið Netverð á mann frá kr. 160.900 m.v. 2 fullorðna og 1 barn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 179.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 15. júní í 10 nætur.

Vistamar

Góður valkostur!

Mjög gott íbúðahótel staðsett á góðum stað í Benalmádena á Costa del Sol, í einungis um 300 metra fjarlægð frá ströndinni. Strandlífið við Benalmádena og snekkjubátahöfnina er einstaklega fjörugt og skemmtilegt og er þar að finna veitingastaði, bari og litlar verslanir. Á þessum gististað er fín aðstaða með góðri móttöku, hér er veitingastaður, snarlbar, þvottaaðstaða, bar og sundlaugagarður með sundlaug, barnalaug og sólbaðsaðstöðu. Íbúðirnar eru vel útbúnar og þægilega rúmgóðar, allar með svölum.

Frábært verð Frá kr. 107.900

Netverð á mann frá kr. 107.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð m/1 svefnherbergi. Netverð á mann frá kr. 116.900 m.v. 2 fullorðna í stúdíó. 6. júlí í 10 nætur.

Sjá fleiri gististaði á heimsferdir.is

17


Fuengirola á Costa del Sol

F

uengirola á Costa del Sol er meðal leiðandi ferðamannastaða á strandlengjunni en bærinn skartar breiðri standlengju og göngugötu sem liggur meðfram ströndinni og teygir sig inn í smærri þorp meðfram henni. Fuengirola var áður fyrr lítið sjávarþorp en hefur þróast í líflegan og skemmtilegan strandbæ/strandborg með miklum karakter. Hér er úrval tapasbara, kaffihúsa,

veitingastaða og verslana ásamt flottum ströndum sem gerir Fuengirola að frábærum sumaráfangastað. Gönguferð niður mjóar göturnar út frá torginu í bænum er alveg einstök upplifun fyrir marga sem uppgötva falin leyndarmál og yndisleg skúmaskot þessa vinalega andalúsíska bæjar.

Frá kr.

104.900 í 10 nætur

Netverð á mann frá kr. 104.900 á Nuria Sol m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð m/1 svefnherbergi. Netverð á mann frá kr. 131.900 á Nuria Sol m.v. 2 fullorðna í íbúð m/1 svefnherbergi. 6. júlí í 10 nætur.

Las Palmeras

Góð staðsetning!

Afar vel staðsett í Fuengirola við snekkjubátahöfnina, rétt við miðbæinn þar sem fjölbreytt úrval bara, veitingastaða og verslanna er að finna. Þá er aðal næturlífið í kringum höfnina, svo örstutt er í fjörið, kjósi maður slíkt í fríinu sínu. Herbergin eru vel búin og öll með svölum eða verönd. Á hótelinu er stór móttaka, barir, veitingasalur og sundlaugabar – þá er hér tennisvöllur, billiard- og borðtennisborð og barnaklúbbur er starfræktur hér fyrir aldurshópinn 5-12 ára.

Frábært verð Frá kr. 107.900 m/morgunmat

Netverð á mann frá kr. 107.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 125.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 6. júlí í 10 nætur.

18


Þetta hótel stendur á afar góðum stað í Fuengirola, alveg við strandgötuna og í einungis um 500 m fjarlægð frá verslunarmiðstöðinni La Villa. Hótelið samanstendur af 2 byggingum, með 320 herbergjum og er einn og sami garðurinn fyrir hótelgesti. Herbergin eru rúmgóð og vel búin, flest þeirra innréttuð í ljósum viðarlit með mjúkum teppum á gólfum. Hér er veitingastaður, 3 barir og kaffitería en einnig er sundlaugabar/veitingastaður og í garðinum er sundlaug með sólbekkjum og sólhlífum.

Frábært verð Frá kr. 113.900

m/hálft fæði innifalið Netverð á mann frá kr. 113.900 m.v. 2 fullorðna og 1 barn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 137.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 6. júlí í 10 nætur.

Fuengirola – Costa del Sol

Las Piramides

Glæsilegur valkostur!

Torreblanca

Nýr valkostur!

Gott hótel með góðum garði og góðri sameiginlegri aðstöðu. Herbergin eru rúmgóð, öll vel búin með loftkælingu og svölum eða verönd. Á hótelinu er fjölbreytt þjónusta í boði en hér er kaffihús, veitingastaður, bar og sundlaugabar. Einnig er hér leiksvæði fyrir börn, leikherbergi fyrir eldri börn, setustofa með sjónvarpi, verslun og hárgreiðslustofa. Í garðinum eru tvær sundlaugar, efri og neðri, á efra svæðinu er einnig buslupollur fyrir yngstu börnin. Skemmtidagskrá er í boði bæði á daginn og kvöldin, alla daga yfir hásumartímann.

Frábært verð

Frá kr. 139.900 m/allt innifalið

Netverð á mann frá kr. 139.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 175.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 6. júlí í 10 nætur.

Nuriasol

Fjölskylduvænt!

Gott íbúðahótel sem opnaði í júlí 2009, á rólegum stað í Fuengirola. Íbúðirnar eru vel búnar, allar með loftkælingu og svölum. Á neðstu hæðinni er súpermarkaður og þar er einnig mjög góður asískur Wok veitingastaður sem nýtur mikilla vinsælda. Þá er hérna einnig bar og snarlbar. Garðurinn við hótelið er þægilegur, nokkuð stór með sundlaug, lítilli barnalaug og nuddpotti, ásamt leiksvæði fyrir yngstu krakkana. Hótelið er í um 400 metra fjarlægð frá ströndinni. Þetta er einfaldlega afar góður kostur, þar sem í boði eru virkilega vel búnar íbúðir fyrir fjölskyldufólk.

Frábært verð Frá kr. 104.900

Netverð á mann frá kr. 104.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð m/1 svefnherbergi. Netverð á mann frá kr. 131.900 m.v. 2 fullorðna í íbúð m/1 svefnherbergi. 6. júlí í 10 nætur.

Sjá fleiri gististaði á heimsferdir.is

19


Torremolinos á Costa del Sol

M

argir Íslendingar þekkja Torremolinos enda einn af vinsælustu dvalarstöðunum á Costa del Sol strandlengjunni. En Costa del Sol er tvímælalaust einn vinsælasti sólaráfangastaður Íslendinga, enda býður staðurinn upp á glæsilegt úrval gististaða, veitingastaða og skemmtunar. Á Torremolinos er að finna glæsilegar strendur, vatnsrennibrautagarð, spennandi og fjörugt

mannlíf, úrval veitingastaða, meðal annarra vinsælu sjávarréttastaðina í La Carihuela og fjörugt skemmtanalífið, bæði við ströndina og í gamla bænum.

Frá kr.

91.900 í 10 nætur Netverð á mann frá kr. 91.900 á Aguamarina m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð. Netverð á mann frá kr. 114.900 á Aguamarina m.v. 2 fullorðna í stúdíó. 6. júlí í 10 nætur.

Sol Principe

Glæsilegur valkostur!

Mjög góður gistivalkostur skammt frá Bajondillo ströndinni. Öll herbergi fyrir einstaklinga og 2-3 eru í nýrri álmu og því tiltölulega nýlega innréttuð. Fjölskylduherbergi eru í eldri hlutanum og hafa ekki fengið andlitslyftingu, en þykja þægileg. Hér er að finna alla þá þjónustu sem hægt er að óska sér á einu hóteli, stóran og afar glæsilegan garð með sundlaugum fyrir alla aldurshópa, bar og veitingastað og íþrótta- og skemmtidagskrá er í gangi allan daginn. Hótelið stendur við ströndina og því hægt að ganga beint út á hana og njóta þess sem hún hefur að bjóða. Frábær kostur fyrir barnafjölskyldur.

Frábært verð

Frá kr. 184.900 m/allt innifalið

Netverð á mann frá kr. 184.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í fjölskylduherbergi. Netverð á mann frá kr. 209.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 6. júlí í 10 nætur.

20


Frábær valkostur!

Gott hótel með „allt innifalið“ þjónustu, staðsett við jaðar byggðar í Torremolinos. Herbergin eru létt og fallega innréttuð, snyrtileg með svölum eða verönd. Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, snarlbar, bar, skemmtidagskrá, leiksvæði, tennisvöllur og fallegur garður með sólbekkjum, sundlaug og barnalaug. Helsti kostur þessa hótels er stórskemmtilegur garður sem hannaður er fyrir alla aldurshópa og ekki síst fyrir allra yngstu börnin. Einfaldlega frábær valkostur fyrir fjölskyldufólk.

Frábært verð Frá kr. 129.900 m/allt innifalið

Netverð á mann frá kr. 129.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 165.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 23. maí í 12 nætur.

Torremolinos – Costa del Sol

Roc Costa Park

Hotel Griego Mar

Góð staðsetning!

Nokkuð stórt og einfalt 3* hótel skammt frá miðbæ Torremolinos sem býður mjög fjölbreytta aðstöðu og þjónustu fyrir gesti. Á hótelinu er stór veitingastaður, kaffitería, snarlbar, nokkrir barir, líkamsræktaraðstaða o.fl. Fjölbreytt afþreying er í boði á hótelinu, m.a. billiard og borðtennis. Hér er góður garður með sundlaug, sundlaugabar og góðri sólbaðsaðstöðu. Á herbergjum er loftkæling, sími, öryggishólf, gervihnattasjónvarp, baðherbergi og svalir eða verönd. Rétt við hótelið er hringiða Torremolinos með úrvali verslana, veitingastaða, næturklúbba og bara. Skemmtidagskrá er í boði fyrir hótelgesti. Frá hótelinu er um 15 mínútna gangur á ströndina.

Frábært verð Frá kr. 121.900 m/allt innifalið

Netverð á mann frá kr. 121.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 154.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 6. júlí í 10 nætur.

Aguamarina

Vinsæll valkostur!

Aguamarina er eitt vinsælasta íbúðahótelið og býður mjög góða sameiginlega aðstöðu sem hefur nýlega verið endurnýjuð. Vinsældir Aguamarina hafa skapast vegna einstakrar staðsetningar og persónulegrar þjónustu starfsfólks. Sumar íbúðir hafa verið endurinnréttaðar en þær eru allar með eldhúskrók, baðherbergi, svölum, sjónvarpi og síma. Íbúðirnar eru einfaldar en snyrtilegar. Móttaka er á jarðhæð og veitingastaður sem opnast út í garðinn. Örstutt er að fara upp í gamla bæinn, því farið er með lyftunni á efstu hæð hótelsins og gengið beint út á götu sem liggur að göngugötunni í gamla bænum. Góður kostur fyrir þá sem leita að rólegum og þægilegum gististað, á góðum stað.

Frábært verð Frá kr. 91.900

Netverð á mann frá kr. 91.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð m/1 svefnherbergi. Netverð á mann frá kr. 114.900 m.v. 2 fullorðna í stúdíó. 6. júlí í 10 nætur.

Sjá fleiri gististaði á heimsferdir.is

21


Marbella

& Estepona

á Costa del Sol

M

arbella á Costa del Sol er einn þekktasti lúxusdvalarstaður Evrópu, enda er hér að finna frábærar aðstæður fyrir ferðamenn. Marbella er þekkt fyrir gamla bæinn, sem er heillandi sambland gamalla húsa, þröngra andalúsískra stræta, veitingastaða, verslana og mannlífs sem er einstakt í Evrópu, og hina frægu snekkjubátahöfn, Puerto Banús, þar sem glæsilegustu snekkjur

heimsins liggja við akkeri yfir sumartímann. Hér finnur þú glæsilega veitingastaði, hátískubúðir, fallegar strendur, stærstu snekkjur heimsins og spennandi samansafn af heimsborgurum sem skapar andrúmsloft sem er bæði sérstætt og heillandi. Þá er bærinn Estepona skammt frá og býður úrval glæsilegra gististaða.

Frá kr.

111.900 m/morgunmat í 10 nætur Netverð á mann frá kr. 111.900 á Pyr Marbella m.v. 2 fullorðna og 2 börn í stúdíó. Netverð á mann frá kr. 151.900 á Pyr Marbella m.v. 2 fullorðna í stúdíó. 6. júlí í 10 nætur.

Bluebay Banús

Fjölbreytt þjónusta!

BlueBay Banús er skemmtilegt hótel, hannað eins og lítið þorp í andalúsískum stíl með lágreistum húsum og inni á milli þeirra eru lítil torg, eftirlíkingar eða smærri útgáfur að torgunum í gamla bænum í Marbella. Garður eða garðar hótelsins eru stórir og þar er m.a. að finna 3 sundlaugar, 3 bari og veitingastaði, borðtennisborð, billiard og fleira skemmtilegt. Þá er hér leiksvæði fyrir börnin og starfræktur er barnaklúbbur á vegum hótelsins. Herbergin eru notaleg og vel búin, öll með loftkælingu og svölum eða verönd. Þetta hótel er einstaklega skemmtilega og þjóðlega hannað, býður fjölbreytta þjónustu og er tilvalið fyrir þá sem langar að dvelja á Marbella svæðinu, einum líflegasta bænum við Costa del Sol strandlengjuna.

Frábært verð

Frá kr. 143.900

m/hálft fæði innifalið Netverð á mann frá kr. 143.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í fjölskylduherbergi. Netverð á mann frá kr. 178.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 6. júlí í 10 nætur.

22


Góður valkostur!

Playabella er í Playa hótelkeðjunni og býður gestum sínum einstaklega góða og fjölbreytta þjónustu. Það stendur á rólegum stað, nokkuð sér og er lítið í kringum það, nema fyrir framan hótelið er falleg ströndin og endalaust hafið. Herbergin eru þægilega og vel búin með svölum eða verönd. Garðurinn er einstaklega fallega hannaður, með góðri sundlaug, litlum fossum og nuddpotti. Þá er hér einnig barnalaug, sólbekkir og sólhlífar. Alls konar skemmtidagskrá er í boði á daginn og kvöldin fyrir alla aldurshópa. Einfaldlega afar gott hótel með það að markmiði að þér líði sem best meðan á fríinu þínu stendur.

Frábært verð Frá kr. 148.900 m/allt innifalið

Netverð á mann frá kr. 148.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 191.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 4. júní í 11 nætur.

Pyr Marbella

Æðisleg staðsetning!

Margir Íslendingar þekkja hótelið Pyr Marbella sem stendur á einstaklega góðum stað, rétt við snekkjubátahöfnina Puerto Banus. Pyr Marbella er ekki alveg nýlegt hótel en býður einstaklega góða þjónustu, t.d. bari og veitingastað. Hér bjóða Heimsferðir vel búnar studíóíbúðir, sem eru sérlega rúmgóðar fyrir tvo, en einnig fer ágætlega um þriðja og fjórða aðila ef um börn er að ræða. Garðurinn er þægilegur og gróinn, ekki mjög stór en með góðri sundlaug og stutt er á ströndina.

Marbella & Estapone – Costa del Sol

Gran Hotel Playabella

Frábært verð Frá kr. 111.900 m/morgunmat

Netverð á mann frá kr. 111.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í stúdíó. Netverð á mann frá kr. 151.900 m.v. 2 fullorðna í stúdíó. 6. júlí í 10 nætur.

flugsæti til og frá

Barcelona

Frá

29.900 kr.

aðra leið með sköttum

Í

Barcelona er auðvelt að njóta sín enda iðar þessi einstaka borg af lífi. Römbluna þekkja allir en eftir henni endilangri má finna

allskonar veitingastaði, kaffihús og bari og það er yndislegt að flatmaga á Barceloneta ströndinni. Strandsvæðin Sitges, Costa

Brava og Costa Dorada eru svo í seilingarfjarlægð en þangað ganga lestar reglulega. Heimsferðir bjóða flugsæti til Barcelona frá maí og fram í september. Nánar á www.heimsferdir.is Verð er háð almennum gengisbreytingum fram að brottför og miðast við gengi evru, dollars og verð eldsneytis 20. desember 2014. Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á villum sem rekja má til rangrar uppsetningar eða tæknilegra ástæðna. Verð í bæklingi er skv. verðskrá að undanskildum vorferðum eldri borgara. Sjá nánari upplýsingar um almenna ferðaskilmála Heimsferða á heimsferdir.is.

23


Salou

– frábær dvalarstaður fyrir fjölskylduna á Costa Dorada

S

alou hefur notið mikilla vinsælda vegna fjölbreytileika bæjarins, en þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Salou er fallegur strandbær í Suður-Katalóníu á Costa Dorada ströndinni, um 100 km sunnan við Barcelona. Við Salou er Port Aventura, einn stærsti og glæsilegasti skemmtigarður Spánar, en þessi bær er frábær dvalarstaður fyrir fjölskyldur. Gott úrval veitingastaða er í Salou

ásamt fjölmörgum verslunum sem gaman er að skoða. Einnig er mjög gott að versla í borginni Tarragona þar sem úrvalið er enn meira, aðeins í 15 km fjarlægð. Þar er að finna fjölbreytta matargerð Miðjarðarhafsins auk veitingastaða frá öllum heimshornum. Veitingastaðir Salou eru ekki síst frægir fyrir úrvals fiskrétti sem enginn ætti að láta ógert að prófa. Salou skartar fallegum ströndum, fjölbreyttri aðstöðu og veðurfar er einstakt. Menning, verslanir og litríkt næturlíf taka síðan við þegar sólböðum lýkur.

Frá kr.

84.900 í 7 nætur Netverð á mann frá kr. 84.900 á Apt. Cye Holiday Centre m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð. Netverð á mann frá kr. 103.900 á Apt. Cye Holiday Centre m.v. 2 fullorðna í íbúð. 5. júní í 7 nætur.

Glæsilegur valkostur!

Estival Park Estival Park er glæsilegt 4* hótel sem staðsett er í La Pineda sem er rétt við hinn þekkta strandbæ Salou. Allur aðbúnaður og þjónusta við hótelgesti er eins og best verður á kosið og fjölbreytt þjónusta og afþreying er í boði. Herbergin eru vel búin með svölum eða verönd. Á hótelinu eru sundlaugar, nokkrir veitingastaðir og barir, glæsileg heilsulind, líkamsræktaðstaða, diskótek og margt fleira.

Frábært verð

Frá kr. 91.900

m/hálft fæði innifalið Netverð á mann frá kr. 91.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 104.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 22. maí í 7 nætur.

24


Góður valkostur!

Glæsilegt hótel sem var opnað 2002. Þetta hótel, staðsett um 15 mín. frá ströndinni í rólegu hverfi en örstutt er í fjörugt mannlíf. Gestamóttaka er opin allan sólarhringinn, lyftur, veitingastaður, kaffitería og bar. Í garðinum er mjög góð sólbaðsaðstaða, stór sundlaug, barnalaug, snarlbar og gott barnaleiksvæði. Skemmtidagskrá er fyrir alla aldurshópa á daginn og á kvöldin.

Frábært verð

Salou – Costa Dorada

Hotel Villa Romana

Frá kr. 95.900

m/hálft fæði innifalið Netverð á mann frá kr. 95.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 109.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 29. maí í 7 nætur.

Nýr valkostur!

Hotel Oasis Park Þetta hótel er staðsett í einungis um 10 mínútna göngufjarlægð frá Capellans og Levante ströndunum í Salou. Hér er afar góð aðstaða, veitingastaður, barir, heilsulind með heitum nuddpottum, leikherbergi með billiardborðum og tölvuspilum, leiksvæði fyrir börn og einnig er hér skemmtidagskrá fyrir börn yfir hásumartímann. Herbergin eru vel búin með svölum eða verönd. Virkilega góður kostur, fyrir alla aldurshópa, fjölskyldur jafnt sem einstaklinga.

Frábært verð Frá kr. 88.900 m/morgunmat

Netverð á mann frá kr. 88.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 99.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 5. júní í 7 nætur.

Gott íbúðahótel!

Apt. Cye Holiday Centre Cye Holiday Center er staðsett nálægt miðbæ Salou, 300 metra frá ströndinni og rétt við lestarstöðina. Stutt er í verslanir og aðra þjónustu. Aðstaða á hótelinu er mjög góð, móttaka opin allan sólarhringinn, 3 lyftur, veitingastaður og bar sem er opinn út í sundlaugargarðinn. Í garðinum er sundlaug og barnalaug, sólbekkir, stólar og borð ásamt barnaleiksvæði en þaðan er gengt inn í spilasal með leiktækjum og billiardborðum. Íbúðirnar eru smekklega innréttaðar með svölum.

Frábært verð Frá kr. 84.900

Netverð á mann frá kr. 84.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð. Netverð á mann frá kr. 103.900 m.v. 2 fullorðna í íbúð. 5. júní í 7 nætur.

Sjá fleiri gististaði á heimsferdir.is

25


Almería

– frábær fyrir fjölskylduna

H

eimsferðir bjóða með stolti fjölskylduvæna áfangastaðinn Almería, með úrvals gististöðum í strandbænum Roquetas de Mar. Falleg ströndin teygir anga sína eina 11 km og meðfram henni er upplagt að taka góðan göngutúr, skokka eða leigja reiðhjól enda allt á jafnsléttu. Við strandgötuna standa hótelin og þeir veitingastaðir eða barir sem að henni snúa tilheyra yfirleitt hótel-

um, en eru opnir almenningi og því er upplagt að setjast niður á göngunni og fá sér einn kaldan eða tvo ásamt tapas eða hverju sem er, til að gleðja bragðlaukana. Rólegt yfirbragð einkennir Roquetas de Mar en þó er af mörgu að taka og engum ætti að leiðast. Á svæðinu er vatnsrennibrautagarður, stórt sædýrasafn,18 holu golfvöllur, go-kart svæði og stór verslunarmiðstöð sem telur einar 125 verslanir og m.a. hina sívinsælu H&M verslun. Sem sagt eitthvað við allra hæfi!

Frá kr.

85.900 í 7 nætur Netverð á mann á Moguima frá kr. 85.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð m/1 svefnherbergi. Netverð á mann á Moguima frá kr. 101.900 m.v. 2 fullorðna í íbúð m/1 svefnherbergi. 16. júní í 7 nætur.

Glæsilegur valkostur!

Zoraida Beach Resort Zoraida Beach Resort samanstendur í raun af tveimur hótelum; Zoraida Garden og Zoraida Park. Um er að ræða tvær hótelbyggingar með sameiginlegum garði og þjónustu. Hótelið stendur alveg við fallega ströndina með öllu sínu lífi og fjöri og ber fjórar stjörnur sínar afar vel. Garðurinn er stórkostlegur, með sundlaugum og rennibrautum sem liðast um stórt svæðið. Herbergin eru skemmtilega innréttuð en þau voru öll endurinnréttuð á árunum 2010-11. Garðurinn er stór og barnvænn og mikið við að vera fyrir fjölskyldufólk. Í boði er hálft fæði eða „allt innifalið“ þjónusta. Einfaldlega æðislegt!

Frábært verð

Frá kr. 109.900 m/allt innifalið

Netverð á mann frá kr. 109.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 128.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 9. júní í 7 nætur.

26


Besta staðsetningin!

Almería

Hotel Playacapricho Playacapricho er gott hótel rétt við ströndina í Playa Serena. Allt sameiginlegt svæði á hótelinu er fallega innréttað og móttakan einstaklega björt og falleg. Garðurinn er ákaflega fallega hannaður með hitabeltisívafi, einni stórri aðal sundlaug og annarri minni barnalaug en einnig eru hér nuddpottar, sólbekkir og sólhlífar - allt til þess að gera dvöl þína sem þægilegasta. Herbergin eru rúmgóð í einföldum stíl en öll búin loftkælingu, sjónvarpi, baðherbergi með hárþurrku og svölum eða verönd. Örstutt er á 18 holu golfvöll.

Frábært verð Frá kr. 99.900

m/hálft fæði innifalið Netverð á mann frá kr. 99.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 124.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 7. júlí í 7 nætur.

Frábært íbúðahótel!

Bahia Serena Þetta er afar gott og vel staðsett 4ra stjörnu íbúðahótel með stórum og fallegum sundlaugagarði, alveg við ströndina í Playa Serena. Allar íbúðirnar eru vel búnar ýmist með einu eða tveimur svefnherbergjum. Í íbúðunum er m.a. sjónvarp, eldhúskrókur, sími, loftkæling og öryggishólf og allar eru þær með svölum eða verönd. Í garðinum er stór sundlaug og barnalaug, sólbekkir og sólhlífar og á hótelinu er starfræktur barnaklúbbur og hér er lítil heilsulind og líkamsræktaraðstaða og 18 holu golfvöllur er í göngufjarlægð frá hótelinu. Eitt af betri íbúðahótelum á svæðinu!

Frábært verð Frá kr. 89.900

Netverð á mann frá kr. 89.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð. Netverð á mann frá kr. 108.900 m.v. 2 fullorðna í íbúð. 16. júní í 7 nætur.

Góður valkostur!

Playaluna Hotel Playaluna er gott hótel á góðum stað við ströndina í Playa Serena. Hótelið er með stóra og góða móttöku sem opin er allan sólarhringinn. Garðurinn við Playaluna hótelið er með góðri sólbaðsaðstöðu með pálmatrjám allt í kring. Hér er ein aðalsundlaug með vatnsrennibrautum og svo er nuddpottur við laugina. Úr garðinum er svo gengið beint út á ströndina. Á Playaluna er bæði sundlaugabar og strandbar. Á hótelinu er barnaleikvöllur og ýmis afþreying en hérna má spila borðtennis, fara í mini-golf og taka leik á risastóru skákborði. Hér er góður hlaðborðsveitingastaður, a la carte veitingastaður og barir. Herbergin eru smekklega innréttuð og vel útbúin. Öll loftkældu herbergin eru með svölum, minibar og sjónvarpi.

Frábært verð Frá kr. 106.900 m/ allt innifalið

Netverð á mann frá kr. 106.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð. Netverð á mann frá kr. 135.900 m.v. 2 fullorðna í íbúð. 9. júní í 7 nætur.

Sjá fleiri gististaði á heimsferdir.is

27


Albir

– sætur og notalegur, ekta spænskur bær

S

trandbærinn Albir á Costa Blanca er sætur, lítill og notalegur bær rétt við hinn fjöruga strandstað Benidorm sem svo margir þekkja. Albir er einstaklega skemmtilegur bær þar sem frábært er að njóta lífsins í sumarfríinu. Hér eru lágreistar byggingar sem gefur bænum fallegt yfirbragð. Albir þykir afar fjölskylduvænn og býður alla þá fjölbreyttu þjónustu sem þarf til þess að

gera gott frí enn betra. Ströndin í Albir er sérlega falleg steinvöluströnd og meðfram henni allri liggur skemmtileg strandgata. Við strandgötuna er fjöldi verslana og veitingastaða og vilji maður taka langa göngu má ganga alla leið að vitanum.

Frá kr.

89.900 m/morgunmat í 7 nætur Netverð á mann frá kr. 89.900 á Hotel & Spa Sun Palace m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 106.900 á Hotel & Spa Sun Palace m.v. 2 fullorðna í herbergi. 5. júní í 7 nætur.

Albir Playa

Góður valkostur!

Albir Playa er góður valkostur en það er fallegt og vel útbúið 4* hótel sem er tilvalið fyrir þá sem kjósa hótelgistingu sem býður góða og fjölbreytta þjónustu. Herbergin eru vel búin með parketi á gólfum og öll með svölum. Hér er stór og fallegur garður og góð leikaðstaða fyrir börn og einnig er hér starfandi barnaklúbbur og ýmis skemmtidagskrá er í boði. Mjög falleg útisundlaug er í garðinum, en einnig er hér innisundlaug og barnalaug. Í garðinum er líka nuddpottur og hér er líkamsræktaraðstaða og heilsulind. Á hótelinu er einnig hlaðborðsveitingastaður, a la carte staður og bar.

Frábært verð

Frá kr. 96.900 m/morgunmat

Netverð á mann frá kr. 96.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 117.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 19. júní í 7 nætur.

28


Hotel Kaktus Albir Hotel Kaktus Albir er staðsett alveg við strandgötuna í Albir. Fallega steinvöluströndin blasir því við gestum hótelsins. Fjölbreytt þjónusta er í boði á þessu hóteli, en hér er garður og sundlaug fyrir börn og fullorðna en einnig er önnur sundlaug uppi á þaki hótelsins. Hér eru barir, veitingastaður og næturklúbbur sem býður upp á lifandi tónlist 5 kvöld vikunnar ásamt alls konar annarri skemmtidagskrá á kvöldin. Herbergin eru huggulega búin og hlýleg með loftkælingu. Einfaldlega afar góður kostur fyrir þá sem vilja losna við ys og þys Benidorm en njóta þess að vera í rólegheitum í þessum yndislega bæ sem Albir er.

Albir

Frábær staðsetning!

Frábært verð Frá kr. 111.900 m/morgunmat

Netverð á mann frá kr. 111.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 129.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 5. júní í 7 nætur.

Hotel & Spa Sun Palace

Nýr valkostur!

Sun Palace er nýlegt hótel í Albir sem opnaði árið 2008. Hér er afskaplega fjölbreytt þjónusta og ekki erfitt að láta sér líða vel, hér á þessum stað. Meðal annars eru hér veitingastaðir, barir, kaffitería, heilsulind, hárgreiðslustofa og margt fleira. Hótelið er staðsett rétt við hlíðina á milli Benidorm og Albir. Herbergin eru vel búin og fallega innréttuð með svölum með útsýni til sjávar, sundlaugar eða fjalla. Hér er fallegur garður með sundlaug og barnalaug, ásamt aðstöðu til sólbaða, sólbekkir og sólhlífar. Hér er einnig skemmtidagskrá í boði á vegum hótelsins. Klárlega eitt af betri hótelum á Albir og eins og áður sagði býður það fjölbreytta þjónustu fyrir alla aldurshópa.

Frábært verð Frá kr. 89.900 m/morgunmat

Netverð á mann frá kr. 89.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 106.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 5. júní í 7 nætur.

Sjá fleiri gististaði á heimsferdir.is

flugsæti til og frá

Alicante

Frá

24.500 kr.

aðra leið með sköttum

V

insældir Alicante svæðisins hafa vaxið ár frá ári enda fara ferðamenn þangað aftur og aftur til að njóta alls þess sem það hefur að bjóða. Heimsferðir

bjóða flugsæti til Alicante frá mars og fram í október. Nánar á www.heimsferdir.is

29


Benidorm

– líf og fjör

B

enidorm hefur verið einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga í yfir 30 ár, enda er hér að finna eitt áreiðanlegasta veðurfar í Evrópu, sól og blíða í yfir 300 daga á ári. Hingað sækja margir ár eftir ár til að njóta sumarleyfisins og sagt er að hvergi á Spáni sé það ódýrara en einmitt hér. Yndislegt er að rölta eftir strandgötunni eða um þröngar götur gamla bæjarins, fara í tapas eða rauðvínssmökkun

eða skoða einhverjar af þeim fjölmörgu verslunum sem hér eru. Á Benidorm er fjöldi frábærra veitingastaða, bæði í gamla bænum og við strandgötuna. Gamli bærinn hefur mikið aðdráttarafl. Síðdegis fyllast göturnar þar af fólki sem kemur til að sýna sig og sjá aðra.

Frá kr.

84.900 í 7 nætur Netverð á mann frá kr. 84.900 á Vina del Mar m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð m/1 svefnherbergi. Netverð á mann frá kr. 103.900 á Vina del Mar m.v. 2 fullorðna í íbúð m/1 svefnherbergi. 5. júní í 7 nætur.

Glæsilegur sundlaugagarður!

Hotel Melia Afar vel staðsett hótel með fallegum og vel búnum herbergjum með svölum sem snúa út í garðinn. Afar fallegur sundlaugagarður með 2 sundlaugum, barnalaug, sólbekkjum og sólhlífum. Þá er hér heilsulind með innisundlaug, nuddpotti, sauna, tyrknesku baði og margskonar tegundum af nuddi og öðrum meðferðum. Góð aðstaða fyrir börn er á svæðinu s.s. barnaleiksvæði og barnaklúbbur auk þess sem skemmtidagskrá er í boði. Á hótelinu er bæði hlaðborðsveitingastaður og snarlbar ásamt hótelbar þar sem spiluð er lifandi tónlist á kvöldin o.fl. Unnt er að velja um hálft fæði eða „allt innifalið“ þjónustu.

Frábært verð

Frá kr. 110.900

m/hálft fæði innifalið Netverð á mann frá kr. 110.900 m.v. 2 fullorðna og 1 barn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 119.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 5. júní í 7 nætur.

30


Glæsilegur valkostur!

Benidorm

Levante Club Glæsilegt 4 stjörnu hótel með góða staðsetningu ofarlega á Benidorm. Hér eru björt, rúmgóð og vel búin herbergi með svölum sem allar hafa útsýni yfir garðinn og rúma allt að 3 fullorðna. Afar fjölbreytt þjónusta er á hótelinu m.a. fullkomin heilsulind og líkamsræktaraðstaða, 4 barir og mjög góð veitingaaðstaða, þannig að þótt þú sért í hjarta iðandi mannlífs á Benidorm ertu með allt til þess að þú megir njóta frísins í botn. Unnt er að velja um hálft fæði eða „allt innifalið“ þjónustu.

Frábært verð Frá kr. 135.900

m/hálft fæði innifalið Netverð á mann frá kr. 135.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 5. júní í 7 nætur.

Nýr valkostur!

Hotel Helios Hotel Helios stendur ofarlega á Levante svæðinu, en þó eru ekki nema um 350 metrar niður á ströndina. Hótelið er á 9 hæðum með snyrtilegri móttöku og lobbýi. Herbergin eru öll vel búin með loftkælingu. Garðurinn er þægilegur með sundlaug og sólbekkjum, barnalaug, barnaleiksvæði og sundlaugabar. Á hótelinu er einnig veitingastaður, bar, leikjaherbergi, sjónvarpsstofa, verslanir og hárgreiðslustofa. Þetta er gott hótel, hér er eigendum umhugað um gesti sína og því er þjónustan góð.

Frábært verð Frá kr. 108.900 m/morgunmat

Netverð á mann frá kr. 108.900 m.v. 2 fullorðna og 1 barn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 118.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 5. júní í 7 nætur.

Frábær staðsetning!

Vina del Mar Vina del Mar er eitt best staðsetta hótelið á Benidorm, alveg við „Laugaveginn“ og líflega Levante ströndina. Hótelið býður notalegar og rúmgóðar íbúðir sem rúma allt að tvo fullorðna og fjögur börn. Garðurinn er lítill með sundlaug og sólbekkjum en örstutt er á ströndina, sem er hinum megin við aðalgötuna. Einfaldlega notalegt og heimilslegt íbúðahótel en laust við allan íburð – hótel sem Heimsferðafarþegar hafa valið aftur og aftur.

Frábært verð Frá kr. 84.900

Netverð á mann frá kr. 84.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð m/1 svefnherbergi. Netverð á mann frá kr. 103.900 m.v. 2 fullorðna í íbúð m/1 svefnherbergi. 5. júní í 7 nætur.

Sjá fleiri gististaði á heimsferdir.is

31


Agadir

– stærsti sólstrandarstaður Marokkó

A

gadir er einn af þessum einstöku áfangastöðum sem maður verður að heimsækja að minnsta kosti einu sinni á ævinni. Borgin stendur við hinn fallega Agadir flóa, sem jafnan er talinn einn af þeim fallegri í heiminum en meðfram honum liggur gullin strandlengjan eins langt og augað eygir. Á þessum fallega stað skín sólin um 300 daga á ári en svæðið er umlukið fjöllum á einn veg

og loftslagið því afskaplega milt og þægilegt. Notalegan andvara leggur svo frá hafi hinum megin frá, svo dagarnir verða aldrei of heitir. Strandlengjan í Agadir telur eina 9 kílómetra, en við ströndina er nýleg 6 km löng strandgata sem iðar af mannlífi. Hér er fólk að spóka sig frá morgni til kvölds, á göngu, úti að skokka eða bara sitja og horfa á mannlífið. Á aðra höndina eru veitingastaðir, hótel og barir en á hina liggur breið og falleg ströndin.

Frá kr.

124.900 m/hálfu fæði í 13 nætur Netverð á mann frá kr. 124.900 á Tulip Inn m/hálfu fæði m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 143.900 á Tulip Inn m/hálfu fæði m.v. 2 fullorðna í herbergi.

Sofitel Royal Bay Hotel

Stórglæsilegur valkostur!

Sérlega fallegt 5* hótel við enda strandlengjunnar. Hótelið hefur afar fallega umgjörð sem er til þess fallin að þér líði sem best í fríinu. Garðurinn er glæsilegur með stórri upphitaðri laug og annarri sem ekki er upphituð. Sólbekki með dýnum og strandhandklæði má nálgast í garðinum. Á hótelinu eru 4 afar góðir veitingastaðir. Einnig eru hér barir, glæsilegur næturklúbbur og heilsubar við sundlaugina. Herbergin eru rúmgóð, hlýleg og fallega innréttuð og öll búin loftkælingu, sjónvarpi, öryggishólfi, minibar, þráðlausu Interneti. Á baðherbergi er hárþurrka. Á hótelinu er líkamsræktaraðstaða og glæsileg heilsulind.

Frábært verð

Frá kr. 239.900 m/morgunmat

Netverð á mann frá kr. 239.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 10. maí í 13 nætur.

32


Besta staðsetningin!

Agadir

Hotel Royal Atlas Agadir Vel staðsett og afar gott 4* hótel, alveg við ströndina á Agadir. Á hótelinu eru þrír veitingastaðir, þar af einn þjóðlegur marokkóskur og annar ítalskur. Hér er einnig bar og sundlaugabar með úrvali drykkja og smárétta. Garðurinn er stór og fallegur með stórri sundlaug en hótelið stendur við ströndina og því örstutt að rölta þangað. Hótelið er með sólbekki á ströndinni.

Frábært verð Frá kr. 156.900 m/morgunmat

Netverð á mann frá kr. 156.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 185.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 10. maí í 13 nætur.

Hotel Iberostar Founty Beach

Glæsilegur valkostur!

Mjög gott 4* hótel í hinni þekktu Iberostar hótelkeðju. Móttakan er sérlega björt og falleg og opin 24 tíma sólarhringsins. Hótelið stendur alveg við fallega ströndina og í innan við 2 km fjarlægð frá miðbæ Agadir. Þá er hægt að ganga eftir strandgötunni alla leið út að snekkjubátahöfn. Við strandgötuna eru hótel, verslanir, barir og veitingastaðir.

Frábært verð Frá kr. 156.900 m/allt innifalið

Netverð á mann frá kr. 156.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 208.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 10. maí í 13 nætur.

Tulip Inn Oasis

Hagkvæmur valkostur!

Oasis Agadir er góður og frambærilegur 3* valkostur í Agadir. Móttakan er tiltölulega nýuppgerð og starfsfólk allt að vilja gert að aðstoða gesti eftir fremsta megni. Hótelið er staðsett fyrir ofan ströndina, uppi í bæ en þó er örstutt ganga niður að strandgötu og stutt í snekkjubátahöfnina líka, miðbærinn er í einungis um 200 metra fjarlægð. Á ströndinni á þetta hótel sína einkaströnd eins og flest önnur hótel í borginni. Herbergin eru einföld, ekki alveg nýlega innréttuð en snyrtileg og máluð í sterkum litum í dæmigerðum marokkóskum stíl, vel búin og með frönskum svölum. Hér er hlaðborðsveitingastaður og sundlaugabar sem býður drykki og létt snarl. Garðurinn er ekki stór, en með góðri sundlaug og sólbekkjum.

Frábært verð Frá kr. 124.900

m/hálft fæði innifalið Netverð á mann frá kr. 124.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 143.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi 10. maí í 13 nætur.

Sjá fleiri gististaði á heimsferdir.is

33


Vorferðir fyrir eldri borgara

Benidorm

10. apríl í 21 nótt & 8. maí í 18 nætur Heimsferðir gerir eldri borgurum frábært tilboð í 21 náttar ferð til Benidorm í vor. Einstakt sértilboð með gistingu á Hotel Melia með hálfu fæði og drykk. Gríptu þetta frábæra tækifæri og njóttu lífsins í vor á Benidorm á ótrúlegum kjörum. Fjölbreytt dagskrá í boði í fylgd reyndra fararstjóra Heimsferða.

Frá kr. 159.900 m/hálft fæði innifalið

Netverð á mann frá kr. 159.900 á Hotel Melia**** með hálfu fæði og drykk með mat, m.v. 2 fullorðna í herbergi. 10. apríl í 21 nótt.

Tenerife 26. apríl í 22 nætur

Heimsferðir bjóða 22 nátta vorferð til Kanaríeyjunnar vinsælu Tenerife á Villa Adeje Beach á afar hagstæðu verði. Lögð er áhersla á skemmtilegan félagsskap, fjölbreytt félagsstarf og ekki síst heilsurækt sem fyrir mörgum er orðin einn dýrmætasti þátturinn í þessum ferðum. Að ógleymdum skoðunarferðum í fylgd reyndra fararstjóra Heimsferða.

Frá kr. 213.900 m/allt innifalið

Netverð á mann frá kr. 213.900 á Villa Adeje Beach m.v. 2 fullorðna í stúdíó. 26. apríl í 22 nætur.

34

Verð í vorferðum hér að ofan eru með 20.000 kr. bókunarafslætti sem gildir til 30. janúar 2015.


Golfferðir

Frá kr.

169.900

ALCAIDESA I COSTA BALLENA I NOVO SANCTI PETRI I MONTECASTILLO LA GOMERA I LA SELLA I PENHA LONGA

Í

golfferðum Heimsferða er lögð áhersla á að allir þættir séu fyrsta flokks en í boði eru hinir sívinsælu staðir Alcaidesa, Costa Ballena, La Gomera, La Sella, Montecastillo, Novo Sancti Petri og Penha Longa.

Golffararstjórar Heimsferða búa yfir mikilli reynslu af fararstjórn golfferða, samanlagt hafa þau þjónustað þúsundir ánægðra golffarþega á Spáni og Portúgal með persónulegri fararstjórn sinni.

Frábært verð Frá kr. 169.900 m/ hálfu fæði

Netverð á mann á Penha Longa m.v. 2 fullorðna í tvíbýli með hálfu fæði. 16. apríl í 4 nætur.

Á Costa Ballena er starfræktur Golfskólinn þinn en skólinn hefur verið leiðandi í golfkennslu Íslendinga erlendis frá árinu 1997. Í boði er 6 daga golfkennslafyrir byrjendur og lengra komna. Kennsla fyrir byrjendur stendur yfir í 6 daga í hverri ferð og hefjast degi eftir lendingu. Í golfskólanum er farið er yfir helstu þætti golfsins líkt og grunnatriði golfsveiflunnar, vipp, pútt, sandgryfja, leikreglur og almenn spilakennsla úti á velli. Kennsla fyrir lengra komna stendur yfir í 3 daga. Nánari upplýsingar um golfferðir fást á heimsferdir.is og hjá Herði H. Arnarsyni í síma 618 4300 og á hordur@heimsferdir.is

Costa Ballena

La Gomera

Alcaidesa 35


Sérferðir & útivistarferðir Frá kr. 169.900

Göngu- og hjólaferð á Kanarí 17.-24. mars Í þessari sérstöku göngu- og hjólaferð Heimsferða verður gengið og hjólað í rólegum takti eftir strandlengjum, um fjallastíga og eftir gömlum leiðum sem voru lagðar af fumbyggjum. Við upplifum Krestel gljúfrið á göngu, hjólum í gegnum Ayagaures dalinn ásamt því að leið okkar liggur meðfram La Fortalesa klettsins og göngum að Roque Nublo klettinum. Jafnframt því að njóta veðursældar, náttúrunnar og ægifegurðar fjallanna verður lögð áhersla á að kynnast einstakri sögu, menningu og matargerð innfæddra. Netverð á mann frá kr. 169.900 á Eugenia Victoria m/hálfu fæði m.v. 2 fullorðna í herbergi.

Frá kr. 147.900

Madeira

7.-16. apríl

Madeira er stundum nefnd „skrúðgarðurinn í Atlantshafinu“ enda með fádæmum gróðursæl og býr yfir einstökum náttúrutöfrum. Á eyjunni ríkir afar þægilegt loftslag allan ársins hring en innan um tilkomumikil fjöll, vínekrur, ávaxtagarða og fagran hitabeltisgróðurinn hafa eyjaskeggjar skapað hina fullkomnu aðstöðu ferðamannsins. Höfuðborgin Funchal hefur fjölmargt að bjóða, eins og þröngar krókóttar götur, vinaleg veitingastaði og kaffihús. Fjölmargar spennandi kynnisferðir í boði, þar sem farþegar kynnast töfrum þessarar fallegu eyju en íbúar eyjunnar eru m.a. heimsþekktir fyrir vínframleiðslu sína. Netverð á mann frá kr. 147.900 á Hotel Girasol m/morgunmat m.v. 2 fullorðna í herbergi.

Frá kr. 211.200

Léttganga á Madeira

7.-16. apríl

Nýr og spennandi valkostur sem sameinar góða útivist í hressandi göngutúrum og tíma til að njóta lífsins við sundlaugarbakkann. Miðað er við að göngurnar séu á bilinu 2-4 klst. eða um 2-6 km. Gengið er á góðum stígum svo þetta eru sannarlega góðar heilsubótagöngur í hóp góðra ferðafélaga og undir leiðsögn fararstjóra sem gjörþekkir þessa fallegu og gróðursælu eyju. Göngurnar eru fjölbreyttar og ýmist gengið meðfram rennandi lækjum, um gróðursæla dali og tignarleg fjöll. Í gönguferðunum mun gróðurinn og einstök blóm í öllum regnbogans litum setja sterkan svip sinn á leiðina. Gist verður á góðu 3* hóteli í Funchal. Netverð á mann frá kr. 211.200 á Hotel Madeira m/morgunmat m.v. 2 fullorðna í herbergi.

Frá kr. 249.900

Ævintýri í Marokkó

10.-23. maí

Agadir – Taroudant – Zagora – Tamengroute – Sahara eyðimörkin – Chigaga – Quarzazate – Marrakech – Essaouira – Agadir Einstök 13 nátta sérferð þar sem farþegum gefst tækifæri til að skyggnast inn í nýjan og framandi heim. Það er sérstök upplifun að koma til Marokkó, ekki einungis í sögulegum skilningi heldur einnig að kynnast landi og þjóð örlítið nánar. Í ferðinni er dvalið í litlum heillandi bæjum til sjávar og sveita svo og stærri borgum á borð við Marrakech og Agadir. Ekið er um stærstu pálmalundi í Norður-Afríku, ilmandi ávaxtahéruð og hin hrikalegu Atlasfjöll. Þá er haldið í úlfaldareið út í Sahara-eyðimörkina þar sem gist er í Berba-tjaldi. Ferðalagið hefur því yfirbragð hins ókunna en er jafnframt töfrum þrungið og ógleymanlegt. Í lok ferðarinnar er dvalið í Agadir en það er stærsti sólstrandarstaður Marokkó. Netverð á mann frá kr. 249.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. Hálft fæði og 4 hádegisverðir innifaldir, ásamt fjölmörgum kynnisferðum.

36

Siglingar og fleiri sérferðir væntanlegar, nánari upplýsingar á heimsferdir.is


Gardavatnið

23.-27. apríl

Gardavatn er margrómað fyrir einstaka náttúrufegurð og fjölbreytni. Dvalið í 4 nætur í hinum undurfagra bæ Malcesine við norðuausturenda vatnsins. Þar setur Scaligeri kastalinn sterkan svip sinn á bæinn og í bakgrunni gnæfir fjallið Monte Baldo. Einstaklega skemmtilegur bær með þröngum hellulögðum strætum, litlum veitingastöðum, kaffihúsum og spennandi sérverslunum. Boðið verður upp á léttar göngur og siglingar á meðan á dvöl stendur. Gardavatnið er staður sem allir elska og koma þangað aftur og aftur til að uppgötva nýja og spennandi staði í hverri ferð. Dvalið á Hótel Excelsior sem stendur við bakka vatnsins og í göngufæri frá miðbænum. Netverð á mann frá kr. 126.600 á mann á Hótel Excelsior m.v. 2 fullorðna í herbergi. Morgunverðarhlaðborð og einn kvöldverður innifalinn.

Frá kr. 219.900

Cinque Terre – Ítalía 22. maí - 30. maí – Hvítasunnuferð 30. maí - 6. jún. & 25. ágú. - 1. sep. & 1.-8. sep.

Sérferðir & útivistarferðir

Frá kr. 126.600

Gönguferðir um ströndina og þorpin í Cinque Terre á Ítalíu, á svæði sem býr yfir óviðjafnanlegri náttúrufegurð, menningu og sögu. Cinque Terre heitir eftir fimm þorpum sem virðast hanga utan í bröttum hlíðunum við ströndina sunnan við Genúa. Þar kúra fallegar hafnir, fullar af litskrúðugum litum fiskibátum og þröngum strætum með afar sérstakri stemmningu. Á milli þorpanna liggur fjöldi göngustíga, ýmist um þverhníptar klettasnasir eða um iðagrænar og ávalar hæðir þaktar vínviði og olífuviðarlundum. Gist er á heimilislegu hóteli í einu þorpanna og farið þaðan í dagsgöngur. Gengið er í um 4-6 tíma á dag og flokkast ferðirnar sem léttar til miðlungserfiðar og henta því flestum sem eru í nokkuð góðu formi. Netverð á mann frá kr. 219.900 í tvíbýli. 30. maí í 7 nætur.

Frá kr. 259.900

Portúgal

5.-16. september

Portúgal á sér ríka og langa sögu sæferða og landafunda. Í þessari skemmtilegu 12 daga sérferð kynnumst við mörgum af áhugaverðustu stöðum landsins en margir þeirra eru á heimsminjaskrá UNESCO. Ferðin hefst í Madrid og dvalið þar í 3 nætur. Þaðan er ekið til Porto í Portúgal með viðkomu í háskólabænum Salamanca. Dvalið í Porto í 4 nætur. Á áttunda degi er ekið í suðurátt til baðstrandabæjarins Estoril þar sem dvalið verður í 4 nætur. Á meðan á dvöl stendur er farið í margar áhugaverðar kynnisferðir þar sem við skoðum fallegar sveitir, bæi og þorp, kirkjur og klaustur og njótum einstakrar náttúrufegurðar Douro dalsins. Fjölmargar kynnisferðir eru innifaldar í verði. Í lok ferðar er flogið til London og dvalið daglangt í smábænum Windsor. Flogið til Íslands með kvöldflugi. Netverð á mann frá kr. 259.900 á mann m.v. 2 í herbergi. Gisting á 4* hótelum með morgunmat, 5 kynnisferðir og 4 kvöldverðir innifalið í verði.

Frá kr. 199.800

Sikiley

5.-15. október

Sikiley kemur á óvart með áhugaverða blöndu af öllu því helst sem ferðamenn óska sér. Samfelld 2700 ára menningarsaga, einstök náttúrufegurð, ótrúlegar fornminjar, fallegar byggingar og söfn, ásamt áhugaverðri matarmenningu og blómlegu mannlífi – allt þetta og miklu meira finnur þú á Sikiley. Heimsferðir bjóða beint leiguflug til Sikileyjar í byrjun október á yndislegum tíma. Hitastigið er notalegt og hentar bæði til sólbaða og fyrir þá sem vilja verja tímanum til að skoða þessar stórbrotnu eyju. Flogið er til Palermo og dvalið skammt frá strandbænum Cefalu í 5 nætur, þá er haldið til austurstrandarinnar og dvalið á ferðamannastaðnum Giardino Naxos í 5 nætur. Flogið til Íslands frá Catania flugvelli á austurströndinni. Áhugaverðar kynnisferðir eru í boði með íslenskum fararstjórum. Netverð á mann frá kr. 199.800 á mann á Hótel Fiesta Garden Beach og Hotel Giradini Naxos Villas m.v. 2 fullorðna í herbergi. Hálft fæði og drykkir með kvöldverð innifalið.

Frá kr. 239.900

Sikiley – Vindeyjar

5.-15. október

Tíu daga gönguferð til Vindeyja – Le Isole Eolie – hins ævintýralega eldfjallaeyjaklasa norður af Sikiley. Í ferðinni verður farið í valdar dagsgöngur eftir ægifögrum göngustígum á milli litskrúðugra þorpa, gróðursællra unaðslunda og fjallstinda með óviðjafnanlegu útsýni yfir nokkrar af rómuðustu náttúruperlum Suður-Ítalíu. Meðal annars verður gengið á eldfjöllin á eyjunum Vulcano og Stromboli, þar sem látlaus eldvirknin hefur réttilega fært þeim viðurnefnið „Víti Miðjarðarhafsins“. Netverð á mann frá kr. 239.900 á mann m.v. 2 fullorðna í herbergi. Gisting á 3* og 4* hótelum í 10 nætur og 5 kvöldverðir.

37


Frá kr.

89.900

Borgarferðir H

eimsferðir bjóða fjölmargar borga ferðir vorið og haustið 2015, margar af helstu perlum Evrópu í beinu leiguflugi. Allar borgirnar eiga það sameiginlegt að vera áhugaverðar, bjóða góða veitingastaði og úrvals verslunarmöguleika. Það getur verið einstæð upplifun að ganga um götur borganna og bera fallegar byggingarnar augum, þræða mjó strætin sem liggja að fallegum torgum þar sem hægt er að setjast niður og fá sér eins og einn kaldan. Njóttu lífsins og drekktu í þig árþúsundamenningu, meistaraverk á torgum úti og einstakt andrúmsloft sem þessar borgir bjóða. Skelltu þér í helgarferð!

Barcelona 31.-5. apr. I 1.-5. maí I 18-.23. sep.

23.-27. apr. I 1.-5. maí I 24.-28. sep. I 8.-12.okt.

Róm 30. apr. - 4. maí I 15.-19. okt. I 29. okt. - 2. nóv.

Hotel Ilf

Hotel Londra E. Cargill

Frá kr. 89.900

Frá kr. 129.900

Bratislava

Búdapest

Netverð á mann á Hotel ILF m.v. 2 í herbergi. 23. apríl í 4 nætur.

1.-5.maí I 11.-15. sep.

Netverð á mann á Hotel Londra E. Cargill m.v. 2 í herbergi. 30. apríl í 4 nætur.

23.-27. apr. I 1.-5. maí I 2.-6. okt. I 22.-26. okt.

Hotel Atlantis

Hotel Mercure

Mercure Metropol

Frá kr. 105.900 – Páskaferð

Frá kr. 98.900

Frá kr. 92.900

Netverð á mann á Hotel Atlantis m.v. 2 í herbergi. 31. mars í 5 nætur

38

Prag

Netverð á mann á Hotel Mercure m.v. 2 í herbergi. 1. maí í 4 nætur.

Netverð á mann á Mercure Metropol m.v. 2 í herbergi. 23. apríl í 4 nætur.


Sevilla 6.-9. nóv.

Verona 23.-27. apr.

Vín 1.-5.maí I 11.-15. sep.

Silken al Andalus

Hotel Mastino

Hotel Bellaevue

Frá kr. 93.900

Frá kr. 119.900

Frá kr. 109.900

Lissabon

Ljubljana

Valencia

Netverð á mann á Silken al Andalus m.v. 2 í herbergi. 6. nóvember í 3 nætur.

16.-20. apr. I 14.-17. maí I 12.-15. nóv.

Netverð á mann á Hotel Mastino m.v. 2 í herbergi. 23. apríl í 4 nætur.

23.-26. apr. I 29. apr.-3. maí I 1.-5. okt. I 15.-19. okt.

Netverð á mann á Hotel Bellaevue m.v. 2 í herbergi. 1. maí í 4 nætur.

8.-12. okt.

Olissippo Marques

Hotel Park

Catalonia Excelsior

Frá kr. 99.900

Frá kr. 99.900

Frá kr. 99.900

Netverð á mann á Olissippo Marques m.v. 2 í herbergi. 16. apríl í 4 nætur.

Netverð á mann á Hotel Park m.v. 2 í herbergi 29. apríl í 4 nætur.

Netverð á mann m.v. 2 í herbergi með morgunmat. 8. október í 4 nætur.

39


Fáðu aðeins meira frelsi í fríinu Visa er útbreiddasta greiðslukort í heimi. Ef þú ert með Visa-greiðslukort getur þú verið viss um að vel er tekið á móti þér, hvert sem þú ferð.

Visa – alltaf, allstaðar

www.valitor.is

40


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.