Þaulabæklingur

Page 1

Á toppnum

Þekktu nágrenni þitt


ร toppnum meรฐ Fer


rðafélagi Akureyrar


Á toppnum með Fer

Náttúran við Eyjafjörð býður upp á mörg spennandi tækifæri til hollrar og skemmtilegrar útiveru. Í samstarfi við nokkrar stofnanir og fyrirtæki á Akureyri vill Ferðafélag Akureyrar gera sitt til að kynna Eyfirðingum og öðrum landsmönnum útivistarmöguleika svæðisins fyrir alla fjölskylduna.

Þetta ætlum við að gera m.a. með því að efna til átaks er við köllum „Á toppnum“, sem gengur út á að fara á 5 stöðvar sem tengjast gönguleiðum á svæðinu (sjá aftar í bæklingnum) auk einnar stöðvar þar sem svara þarf einni almennri spurningu um ferðir á vegum FFA. Skemmtileg og góð afþreying fyrir alla fjölskylduna.

Flottar útivistarvörur í vinninga. Ef þú ferð að lágmarki á 3 stöðvar, svarar leyniorðunum rétt og gatar svarblaðið, geturðu unnið flottar og nytsamlegar útivistarvörur. Ef þú auk þess hefur farið á allar 6 stöðvarnar, svarað leyniorðunum rétt og gatað svarblaðið, verður þér veitt viðurkenningarskjal og heiðurstitillinn „Þauli Eyjafjarðar“.


rðafélagi Akureyrar


Á toppnum með Fer Leyniorðin finnur þú á eftirtöldum stöðum: Stöð 1: Skrifstofa FFA Stöð 2: Staðarbyggðarfjall (Haus) Stöð 3: Ystuvíkurfjall Stöð 4: Vaðlaheiði (Skólavarða) Stöð 5: Hlíðarfjall (Harðarvarða) Stöð 6: Súlur Hjá gestabókinni í vörðunni er spjald. Á því finnur þú leyniorðið sem þú skrifar á svarblaðið og gatar það á viðeigandi stað.


rðafélagi Akureyrar Aðalstyrktaraðilar verkefnisins eru: Akureyrarstofa eldhaf.is Hornið Intersport Íslensku Alparnir KEA kortið 66°Norður Sportver/Cintamani


Á toppnum með Fer Harðarvarða

,

Súlur

,

Skrifstofa FFA

,

Haus

,

Skólavarða

,


rðafélagi Akureyrar

Ystuvíkurfjall

,

Byggt á kortagrunni LMÍ, unnið af Eflu hf


ร toppnum meรฐ Fer


rðafélagi Akureyrar

Haus Hausinn er í 450 m hæð og er kennileiti á öxlinni sem gengur norður úr Staðarbyggðarfjallinu. Gott útsýni er þaðan til norðurs yfir byggðina og út í fjarðarmynnið. Gönguhækkun 270 m.


ร toppnum meรฐ Fer


rðafélagi Akureyrar

Ystuvíkurfjall Af fjallinu er gott útsýni yfir til byggðarinnar vestan fjarðarins og til Hríseyjar. Auðvelt er að ganga norðan megin árinnar og upp daldragið austan fjallsins og síðan til vesturs upp hlíðina og á toppinn. Gönguhækkun 540 m.


ร toppnum meรฐ Fer


rðafélagi Akureyrar

Skólavarða Skólavarðan er á vesturbrún Vaðlaheiðar og tengist nafnið nemendum Menntaskólans. Gott útsýni er yfir Akureyri og byggðina vestan fjarðarins ásamt fjalllendinu frá Kerlingu og út til Kaldbaks. Gönguhækkun 460 m.


ร toppnum meรฐ Fer


rðafélagi Akureyrar

Harðarvarða Harðarvarða er á brún Hlíðarfjalls ofan við skíðalyfturnar í um 1150 m hæð. Lokið var við að reisa vörðuna haustið 2010 og er hún kennd við Hörð Sverrisson sem lengi starfaði við skíðasvæðið í Hlíðarfjalli og átti hugmyndina að gerð hennar. Gengið er frá Skíðastöðum og er gönguhækkun 630 m.


ร toppnum meรฐ Fer


rðafélagi Akureyrar

Súlur Súlur eru bæjarfjall Akureyrar og mynda tignarlegan bakgrunn við bæjarstæðið. Súlurnar eru tvær, Ytri Súla 1145 m og Syðri Súla 1210 m. Í þeim eru ljóst líparít frá fornri eldstöð. Auðvelt er að ganga á Súlur og þangað liggur merkt gönguleið frá bílastæði við Súluveg um 5,5 km. vegalengd. Hefðbundið er að Ferðafélag Akureyrar standi fyrir gönguferð þangað 1. maí ár hvert. Gönguhækkun er 890 m.


......................................................................................................................................................................... "

Á toppnum með Fer

Skrifaðu leyniorðin hér fyrir neðan og gataðu fyrir hverja stöð: Gataðu

Stöð 1: Skrifstofa FFA ������������������������������������������������������

Gataðu

Stöð 2: Staðarbyggðarfjall, (Haus) ����������������������������������

Gataðu

Stöð 3: Ystuvíkurfjall ��������������������������������������������������������

Gataðu

Stöð 4: Vaðlaheiði, (Skólavarða) �������������������������������������

Gataðu

Stöð 5: Hlíðarfjall, (Harðarvarða) ���������������������������������

Gataðu

Stöð 6: Súlur ��������������������������������������������������������������

Nafn: ������������������������������������������������������������������������ Heimili: ��������������������������������������������������������������������� Sími: ������������������������������������������������������������������������


rðafélagi Akureyrar Klipptu og sendu svarblaðið til: Ferðafélag Akureyrar Strandgötu 23, 600 Akureyri Merktu umslagið: „Á toppnum“

Lokafrestur til að skila inn svörunum er 31. ágúst 2013. Við sendum út „Þaula“-viðurkenninguna og drögum út vinningshafa eftir að frestur er útrunninn. Hafir þú fyrirspurnir eða vantar upplýsingar, vinsamlegast hafðu samband við skrifstofu FFA, sími 462 2720 mánudaga - föstudaga kl. 15.00 - 18.00 frá 10. júni - 31. ágúst 2013. Gangi þér vel!


Á toppnum með Fer Ferðanefnd FFA færir eftirfarandi aðalstyrktaraðilum átaksins sínar bestu þakkir fyrir veittan stuðning:


rðafélagi Akureyrar



Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.